Morgunblaðið - 16.06.2018, Page 39

Morgunblaðið - 16.06.2018, Page 39
bands íslenskra kvikmyndafram- leiðenda 1980-91. Hann hlaut heiðursverðlaun í leikritasamkeppni LR 1973 fyrir Sögu af sjónum, fékk Gullbjöllu Sænsku kvikmyndaaka- demíunnar fyrir Óðal feðranna 1981, og 1984 var hann heiðraður sem leik- stjóri ársins í Svíþjóð af Sænsku kvikmyndaakademíunni fyrir kvik- myndina Hrafninn flýgur. Kvik- myndin Í skugga hrafnsins var út- nefnd til Evrópsku kvikmyndaverð- launanna Felix fyrir besta leik í aðalkvenhlutverki og aukakarl- hlutverki, myndin hlaut Prix jury special-verðlaunin í Valencienne í Frakklandi. Þá voru myndirnar Hrafninn flýgur, Hin helgu vé og Myrkrahöfðinginn valdar til sýn- ingar á aðaldagskrá Berlínarhátíð- arinnar, og Hin helgu vé hlaut gull- og silfurverðlaun á kvikmyndahátíð- inni í Troia í Portúgal. Þá hlaut Hrafn hin árlegu kvikmyndaverðlaun kaþólskra kvikmyndagagnrýnenda, OCIC 1994 og NDR-Fönderpris Optimus 1994. Honum var boðið sæti í Evrópsku kvikmyndaakademíunni 1995, fyrstum Íslendinga. Hann hef- ur hlotið fjölda annarra viðurkenn- inga, m.a. Smekkleysuverðlaunin 1988 og heiðursverðlaun Eddunnar 2011. Hvað er þér efst í huga þegar þú lítur um öxl, yfir lífshlaupið? „Ég hef alltaf verið á hlaupum og stundum á harðahlaupum. En nú er ég farinn að kasta mæðinni og fer bara fetið." Fjölskylda Kona Hrafns var Edda Kristjáns- dóttir, f. 8.1. 1950. Þau skildu. Hún er dóttir Kristjáns Einarssonar, f. 11.12. 1899, d. 10.7. 1985, rafvirkja- meistara, og k.h., Margrétar Ein- þórsdóttur (Sigurðardóttur), f. 16.10. 1913, d. 7.9. 1979, húsmóður. Börn Hrafns og Eddu eru Kristján Þórður, f. 1.12. 1968, rithöfundur og skáld í Reykjavík, kona hans er Mel- korka Tekla Ólafsdóttir, dóttir þeirra Thea Snæfríður; Tinna, f. 24.8. 1976, leikkona í Reykjavík, en maður henn- ar er Sveinn Geirsson leikari, tví- burasynir þeirra Starkaður Máni og Jökull Þór; Sól, f. 2.5 1981, grafískur hönnuður, maður hennar er Sigurður Einarsson, dóttir þeirra Sunna Ís- gerður, og Örk, f. 8.7. 1994, veit- ingakona. Sonur Hrafns og Yusmillu Guerra Tores frá Kúbu er Aron Daniel Hrafnsson Guerra, f. 12.7. 2004. Hrafn á einnig son með núver- andi sambýliskonu sinni frá Kúbu, Yairu Duribe Azharez, og heitir hann Anton Ariel Armand Hrafnsson Du- ribe, f. 3.5. 2013. Systkini Hrafns eru Þorvaldur, f. 16.7. 1950, stærðfræðingur; Snædís, f. 14.5. 1952, lögfræðingur, og Tinna, f. 18.6. 1954, fyrrverandi þjóðleik- hússtjóri. Maður Tinnu er Egill Ólafsson tónlistarmaður, meðal barna þeirra Ólafur Egilsson leik- stjóri/rithöfundur, og Gunnlaugur, ballettdansari við Konunglegu óp- eruna í Stokkhólmi. Hálfsystir samfeðra: Júlía Mar- grét Alexandersdóttir, f. 21.4. 1977, blaðamaður á Morgunblaðinu. Foreldrar Hrafns: Gunnlaugur Einar Þórðarson, f. 14.4. 1919, d. 20.5. 1998, dr. jur, hrl. og forsetarit- ari í tíð Sveins Björnssonar, og Her- dís Þorvaldsdóttir, f. 15.10. 1923, leikkona og náttúruverndarfröm- uður. Hrafn Gunnlaugsson Halldóra Sigurðardóttir bróðurdóttir Jóns, föður Guttorms J. Guttormssonar skálds í Kanada Jón Jónsson Þveræingur hreppstj. á Þverá í Laxárdal María Víðis Jónsdóttir húsfr. í Hafnarfirði Þorvaldur Tómas Bjarnason bóksali í Hafnarfirði Herdís Þorvaldsdóttir leikkona og náttúruverndarfrömuður Herdís Nikulásdóttir húsfr. á Höfn, frá Nýlendu í Leirhöfn Bjarni Tómasson form. á Klöpp í Höfnum Dóra Þorvaldsdóttir húsfr. í Kópavogi Agnar Þórðarson rithöfundur Benedikt Jónsson b. og bókavörður á Auðnum og stofnandi Kaupf. Þingeyinga Þorvaldur Sigurður Þorvaldsson fv. skipulagsstj. Reykjavíkurborgar Úlfar Þórðarson augnlæknir og borgarfulltr. Áskell Snorrason tónskáld áAkureyri Sverrir Þórðarson blaðam. Snorri Jónsson b. á Þverá og stofnandi Kaupf. Þingeyinga Jóhann Skaptason sýslum. á Patreks- firði og á Húsavík Hörður Þórðarson sparisjóðsstj. Jón J. Víðis landmælingamaður Bergljót Sigurðar- dóttir húsfr. í Litla- gerði í Dalsmynni, S-Þing., síðarAkureyri María Þorvaldsdóttir leikkona og píanóleikari, lengst af í LosAngeles Þóra Sigurðardóttir Egyptalandsfari Þóra Þorvaldsdóttir húsfr. í Rvík Unnur Benediktsdóttir Bjarklind (Hulda skáldkona) Sara Hermann Kaaber frá Suður-Jótlandi, af frönskum húgenottaættum Jens Ludvig Joachim Kaaber frkvstj. í Kaupm.höfn, náfrændi Ludvigs Kaaber bankastj. Ellen Johanne Kaaber húsfr. í Rvík Þórður Sveinsson yfirlæknir á Kleppi Steinunn Þórðardóttir húsfr., af Guðlaugsstaðaætt Sveinn Pétursson b. á Geithömrum, af Harðabóndaætt, bróðursonur Kristjáns, afa Jónas- ar Kristjánssonar læknis, afa Jónasar Kristjánssonar fyrrv. ritstj. DV Úr frændgarði Hrafns Gunnlaugssonar Gunnlaugur Einar Þórðarson dr. jur, hrl. og forsetaritari Sveins Björnssonar ÍSLENDINGAR 39 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2018 Emil Thoroddsen fæddist íKeflavík 16.6. 1898, sonurÞórðar Thoroddsen, lækn- is og alþm., og k.h., Önnu Guð- johnsen. Systkini Emils voru Þor- valdur, forstjóri, píanóleikari og einn stofnenda Tónlistarfélags Reykjavíkur, og Kristín Katrín, móðir Þorvalds Steingrímssonar fiðluleikara. Bróðir Þórðar var Skúli, afi Skúla Halldórssonar tón- skálds. Þórður var sonur Jóns Thoroddsen skálds, bróður Jó- hönnu, langömmu tónskáldanna Sigurðar Þórðarsonar og Jóns Leifs, og Bjarna Böðvarssonar hljómsveitarstjóra, föður Ragga Bjarna. Anna var systir Kristjönu, móður Jóns, kórstjóra Fóst- bræðra; systir Mörtu, ömmu Jór- unnar Viðar tónskálds. Anna var dóttir Péturs Guðjohnsen, dó- morganista og kórstjóra sem oft er nefndur tónlistarfaðir Reykja- víkur. Emil lærði á píanó hjá móður sinni og Kristrúnu Benediktsson, lauk stúdentsprófum 1917, cand. phil.-prófi í listasögu við Kaup- mannahafnarháskóla 1918, lærði málaralist hjá Ásgrími Jónssyni og síðar í Kaupmannahöfn en myndir eftir hann voru þá sýndar í Charlottenborg. Þá stundaði hann tónlistarnám í Leipzig og Dresden 1920-24. Eftir það dvaldi hann í Reykjavík. Emil varð brátt helsti píanóleik- ari í Reykjavík, aðalpíanóleikari Ríkisútvarpsins og menning- arritdómari Morgunblaðsins um langt árabil. Hann var afburða- maður sem tónskáld, píanóleikari, listmálari, leikritahöfundur og gagnrýnandi. Tónverk hans munu þó halda nafni hans á lofti sem eins fremsta tónskálds þjóðar- innar. Meðal tónverka hans eru Alþingishátíðarkantata, 1930; Ís- lands Hrafnistumenn, 1939; Hver á sér fegra föðurland, frumflutt á lýðsveldishátíðinni á Þingvöllum 1944 og lögin í Pilti og stúlku. Emil lést í Reykjavík 7.7. 1944. Merkir Íslendingar Emil Thoroddsen Laugardagur 90 ára Elísabet G. Hermannsdóttir 85 ára Ingveldur Viggósdóttir Ísak Þorbjarnarson Jóhanna Sigurðardóttir Sigurður R. Guðjónsson 80 ára Aðalsteinn J. Maríusson Ingibjörg Leifsdóttir Valdís Árnadóttir 75 ára Grímur Valdimarsson Guðbjörn Þórsson Guðmundur Sigursteinsson Gylfi Konráðsson Leifur Rúnar Guðjónsson Ólafur Geir Vagnsson Sigmundur Óli Eiríksson 70 ára Auður G. Albertsdóttir Brynja Sigrún Jósefsdóttir Elín Pálsdóttir Erlingur Óskarsson Hrafnhildur Ester Ormsdóttir Ólöf Ragnarsdóttir Pétur Theodór Pétursson Sævar Herbertsson 60 ára Arnþrúður Guðný Óskarsdóttir Bjarni Ágústsson David Stanley Roberts Guðjón Friðbjörn Jónsson Guðmundur Skúlason Inga Hanna Hannesdóttir Jódís Hlöðversdóttir Jóhann Gunnarsson Kristín Kristjánsdóttir Ólafur Nilsson Ólöf Guðmundsdóttir Pétur Friðriksson Rannveig Ingvadóttir Rósa María Salómonsdóttir Unnur Elísa Jónsdóttir Þórdís Leifsdóttir Þórður Helgason 50 ára Atli Heimir Birkisson Árni Jón Baldursson Bjarni Frostason Bjarni Össurarson Rafnar Björn Þórir Sigurðsson Danuta Wolynska Einar Traustason Elín Björg Cabaluna Guðný Jónsdóttir Guðrún Þ. Schmidhauser Helgi Sigurgeirsson Ingólfur G. Vigfússon Jón Sæmundur Auðarson Páll Ísleifur Jónsson Rúnar Þór Ingvarsson 40 ára Árni Sigurjónsson Fannar Freyr Bjarnason Guðlaug Elfa Ragnarsdóttir Guðrún Davíðsdóttir Hjalti Gylfason Marek Marcin Wiczling María Albertsdóttir Pálína Heiða Gunnarsdóttir Sandra Dögg Guðmundsdóttir Wojciech Franciszek Kobiela 17. júní 95 ára Geirþrúður Hjörvar 90 ára Hjördís Björnsdóttir 85 ára Eva Dagbjört Þórðardóttir Kolbrún Kristjánsdóttir Kristín Ólafsdóttir Kristjana Sigmundsdóttir Tómas Njálsson 80 ára Birna Gunnhildur Friðriksdóttir Daníel Jónasson Grétar S. Kristjánsson Guðrún Hulda Guðmundsdóttir Hrafn Bragason Jón Sigurðsson Margrét Erna Guðmundsdóttir Ragnheiður Hermannsdóttir Soffía Skarphéðinsdóttir Þorleifur Pálsson 75 ára Guðmunda Sigríður Gunnlaugsd. Ólöf Karlsdóttir Þorsteinn Jónsson 70 ára Aðalsteinn Pétursson Björg B. Marisdóttir Brynjar Rafnsson Hildur Gunnarsdóttir Hrafn Gunnlaugsson Hrafnhildur Sigurðardóttir Hrönn Ágústsdóttir Sigríður Ásdís Sigurðardóttir Sigrún Kjartansdóttir Sigurbjörn Fanndal Sólrún Pétursdóttir 60 ára Anna Kristín Traustadóttir Anne Cecilia Benassi Atli Erlendsson Áslaug Jónsdóttir Borgþór Harðarson Bryndís Valgarðsdóttir Grettir Ingi Guðmundsson Helga Rúna Gústafsdóttir Hilmar Þorkelsson Jón Rafnsson Kristbjörn Ólafsson Ólafur Steinar Hauksson Sigríður Jenný Hrafnsdóttir Sigurður Grétarsson 50 ára Aðalheiður Þ. Marinósdóttir Baldur Þór Ketilsson Björk Birgisdóttir Bragi Björnsson Broddi Ægir Svavarsson Guðjón Hafþór Ólafsson Hólmfríður Jónsdóttir Jósefína Harpa Zophoníasdóttir Magnús Freyr Hrafnsson Ragnar Þór Reynisson Rúnar Hermannsson 40 ára Almar Árnason Bragi Ragnarsson Guðrún Edda Hólmgrímsdóttir Hanna Bjarnason Litvinenko Jamal Azagough Aazani Magdalena Tatiana Krainska Miguel Engill Hermannsson Ólafur Einar Hrólfsson Óttar Örn Helgason Rejane Santana Da Silva Rósa Hrefna Gísladóttir Sigurður Ólafsson Sindri Freyr Sigursteinsson Til hamingju með daginn Eyesland . Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 . www.eyesland.is RayBan 3016 sólgleraugu kr. 22.900,- Sumarið er hér Frábært verð á glerjum Einfókus gler Verð frá kr. 16.900,- Margskipt gler Verð frá kr. 41.900,- Gleraugnaverslunin Eyesland býður mikið úrval af umgjörðum á góðu verði – og þú færð frábæra þjónustu. Verið velkomin!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.