Morgunblaðið - 16.06.2018, Side 42

Morgunblaðið - 16.06.2018, Side 42
42 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2018 Þorgrímur Kári Snævarr thorgrimur@mbl.is Í ár verður Alþjóðlegt orgelsumar haldið hátíðlegt í 26. sinn í Hallgríms- kirkju. Gestum kirkjunnar gefst tækifæri til að hlýða á fjölbreytta orgeltónlist frá ýmsum löndum frá 16. júní til 19. ágúst en á þeim tíma verða haldnir fernir tónleikar á viku. „Þetta er hátíð sem á sér langa sögu,“ segir Hörður Áskelsson, kant- or Hallgrímskirkju og listrænn stjórnandi orgelsumarsins. „Þetta er 26. sumarið í röð sem við höldum þessa orgelhátíð, sem byrjaði tölu- vert smærri í sniðunum. Þetta byrj- aði þegar stóra, fína Klaisorgelinu var komið fyrir í Hallgrímskirkju, sem var í desember 1992. Fyrsta org- elsumarið var haldið sumarið eftir. Það varð til að erlendri fyrirmynd því orgeltónleikaraðir á sumrin eru al- gengar í erlendum stórkirkjum sem ferðamenn sækja. Núna eru þetta orðnir fernir tónleikar á viku hjá okkur og er búið að vera þannig í níu ár. Við erum með þrenna tónleika þar sem orgelið er í brennidepli, á fimmtudögum, laugardögum og sunnudögum – hádegistónleika á fimmtudögum og laugardögum og svo stærri tónleika á sunnudags- eftirmiðdögum. Með hádegistón- leikum kammerkórsins Schola can- torum á miðvikudögum bættust við fjórðu tónleikarnir árið 2009. Á þeim tónleikum er mest sungið án undir- leiks, en stundum er stóra orgelið líka sett í gang til að koma til móts við óskir tónleikagesta. Fjóra daga vikunnar er sem sé hægt að koma á tónleika í Hallgrímskirkju yfir há- sumarið.“ Fjölbreytni í fyrirrúmi Aðspurður segir Hörður að ferða- menn séu jafnan í meirihluta áheyr- enda á tónleikunum. „Við höfum samt alltaf haldið í þá von að Íslendingar uppgötvi þessa tónleika. Listvina- félag Hallgrímskirkju stendur á bak við þessa hátíð og við erum í góðu sambandi við okkar félagsmenn, sem eru rúmlega 400 talsins. Þeir koma af og til á tónleikana og taka með sér gesti. Svo er einn og einn Íslendingur sem sækir næstum hverja tónleika allt sumarið. Meirihlutinn er þó ferðamenn og þeir eru auðvitað af- skaplega þakklátir fyrir tækifærið til að upplifa þetta stórkostlega orgel í svo vel hljómandi rými.“ Hörður segir Alþjóðlegt orgel- sumar bjóða upp á hóp framúrskar- andi organista frá mörgum löndum. Orgeltónar í Hallgrímskirkju  Alþjóðlegt orgelsumar hefst í 26. sinn í dag VIÐTAL Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Þetta verður veisla fyrir skynfærin, enda er Robert Wilson meistari sjón- rænna áhrifa,“ segir Valgeir Sigurðs- son, tónlistarstjóri tónleikhússýning- arinnar Eddu sem sýnd er á Stóra sviði Borgarleik- hússins á Listahá- tíð í Reykjavík á morgun og mánu- dag kl. 20. Um er að ræða upp- færslu Norska leikhússins í Osló í samvinnu við Leikhúsið í Árós- um, en Árósar voru menning- arborg Evrópu í fyrra þegar uppfærslan var frum- sýnd. Leikstjóri er Robert Wilson sem að vanda hannar líka útlit sýning- arinnar og lýsingu. Jon Fosse vann leiktextann upp úr íslensku Eddu- kvæðunum, en dramatúrg er Carl- Morten Amundsen og aðstoðarleik- stjóri er Ann Christin Rommen. Tón- listin er eftir CocoRosie og Arvo Pärt, búninga hannar Jacques Rey- naud og leikarar eru Henrik Rafael- sen, Gjertrud Jynge, Sigve Bøe, Frode Winther, Eivin Nilsen Salthe, Marianne Krogh, Paul-Ottar Haga, Joachim Rafaelsen, Ola G. Furuseth, Jon Bleiklie Devik, Renate Reinsve, Unn Vibeke Hol, og Inge Jørgensen Dragland. Umbar öskurköst leikstjórans Edda er fyrsta sýningin eftir Wil- son sem sett er upp hérlendis, en hann er einn þekktasti leikhúsmaður samtímans. „Þetta er því einstakt tækifæri fyrir íslenska áhorfendur. Fyrir þá sem séð hafa sýningar hans erlendis og þekkja stíl hans held ég að þetta sé skemmtileg túlkun á Eddukvæðunum, því hans nálgun er mjög ólík því sem við eigum að venj- ast þegar kemur að þessum efnivið,“ segir Valgeir sem sjálfur hafði aðeins séð Einstein on the Beach, sem Wil- son vann í samstarfi við Philip Glass, þegar hann þekktist boðið um að vinna með Wilson. Valgeir bendir á að Wilson vinni gjarnan með gamalt handverk í leik- húsinu, bæði í sviðshreyfingum og sviðslausnum. „Þar gegna sviðsmenn lykilhlutverki í að færa leikmyndina, því hann vill að allt sé gert handvirkt – sem er auðvitað bæði mannfrekt og flókið. Hann er mikill nákvæmnis- maður þannig að það má engu skeika,“ segir Valgeir og tekur fram að áhugavert hafi verið að kynnast vinnuaðferðum Wilson. „Hann er mikill einvaldur í leikhús- inu og hefur afar gott vald á miðlinum þegar kemur að sjónrænni útfærslu, hvort heldur snýr að leikmynd, lýs- ingu eða leik. Hann hefur eðlilega ekki sama vald á tónlistinni þó hún sé ávallt fyrirferðarmikil í sýningum hans og keyri áfram senurnar. Hann reiðir því sig mikið á samstarfið við tónlistarfólk í flestum verka sinna,“ segir Valgeir og tekur fram að sam- starf þeirra hafi ekki verið átakalaust. „Fram að Eddu hefur Wilson ávallt verið með lifandi tónlistarflutning í sýningum sínum, en að þessu sinni var tónlistin að miklu leyti tekin upp fyrirfram þó söngurinn sé fluttur lif- andi á sviðinu. Það gekk vægast sagt á ýmsu, þó allt hafi smollið á end- anum þegar við náðum gagnkvæmum skilningi,“ segir Valgeir kíminn og rifjar upp að það hafi hjálpað sér í vinnuferlinu að aðeins voru um tvö ár síðan þau Sigríður Sunna Reynis- „Wilson meistari sjónrænna áhrifa“  Edda í leikstjórn Roberts Wilson sýnd í Borgarleikhúsinu Stílfærsla Joachim Rafaelsen er Týr, Gjertrud Jynge er völva og Unn Vibeke Hol er svikul völva. Valgeir Sigurðsson Sýningin Merkilína eða Line of Reasoning verður opnuð í Gallerí Úthverfu í dag, laugardag. Sýn- ingin er eftir listamanninn Sigurð Atla Sigurðsson, sem hefur undan- farin ár unnið ásamt Leifi Ými Eyj- ólfssyni að verkefninu Prent & vin- ir. Sigurður og Leifur hafa meðal annars sýnt verk sín í Íslenskri grafík, Listasafni Reykjavíkur, Listasafni Íslands, Hafnarborg, Nýlistasafninu, Myndhöggvara- félaginu, Harbinger, í New York, Aþenu og víðar. Á sýningunni Merkilínu sýnir Sigurður Atli tjöruprent sem hann lét prenta með jarðvegsþjöppu á Ísafirði. Þegar tjöruprentunum er stillt upp mynda þau nokkurs konar gangverk sem kallast á við endur- tekningarsama uppbyggingu hversdagslífsins. Sigurður nýtir sér endurtekningar og tveggja orða samtöl (t.d. „Hvað“ - „Ekkert.“) á prentunum til þess að rannsaka tenglin á milli orða og merkingar þeirra. Tjöruprentin standa fyrir tungumálið sjálft og kastljósinu er þar með beint að daglegu háttalagi fólksins sem nýtir sér það. Á strig- ann er orðið „Merkilína“ prentað með tjöru og skapast þar andstæða á milli rökvísrar merkingar orðsins og groddalegrar aðferðarinnar sem notuð er til að prenta það. Á sýningunni notar Sigurður prent- listina til að láta tungumálið lýsa eigin vanköntum. Prent Eitt af verkum Sigurðar Atla, með kennimerki Prents & vina. Tungumálaörðug- leikar á tjöruprenti Söfn • Setur • Sýningar LISTASAFN ÍSLANDS Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár grunnsýning Þjóðminjasafnsins Heiðnar grafir í nýju ljósi – sýning um fornleifarannsókn á Dysnesi við Eyjafjörð Iben West og Else Ploug Isaksen – Augnhljóð í Myndasal Nanna Bisp Büchert – Annarskonar fjölskyldumyndir á Vegg Prýðileg reiðtygi í Bogasal Leitin að klaustrunum í Horni Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi Sjónarhorn - Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú grunnsýning Safnahússins Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög, ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira Bókverk og Kveisustrengur úr Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali Júlía & Julia ljúfar veitingar í fallegu umhverfi Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands Hverfisgata 15, 101 Reykjavík, s. 530 2210 www.safnahusid.is - https://www.facebook.com/safnahusid/ Opið alla daga 10-17 SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS Suðurgata 41, 101 Reykjavík, s. 530 2200, www.thjodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn Opið alla daga 10-17 ÝMISSA KVIKINDA LÍKI - ÍSLENSK GRAFÍK – 11.5. - 23.9.2018 ELINA BROTHERUS - LEIKREGLUR – 16.2. - 24.6.2018 FJÁRSJÓÐUR ÞJÓÐAR Valin verk úr safneign – 7.4.2017 - 31.12.2019 BÓKFELL Eftir Steinu í Vasulka-stofu 22.5 - 31.12 2018 SAFNBÚÐ – Listrænar gjafavörur Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is. Listasafn Íslands er opið alla daga frá kl. 10-17. LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR TVEIR SAMHERJAR – ASGER JORN OG SIGURJÓN ÓLAFSSON 21.10.2017 - 7.10.2018 Opið alla daga frá kl. 13-17. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is Kaffistofa – heimabakað meðlæti SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR - HEIMILI LISTAMANNS OG SÝNINGAR KORRIRÓ OG DILLIDÓ - ÞJÓÐSAGNAMYNDIR ÁSGRÍMS JÓNSSONAR 15.5. - 15.9.2018 Opið alla daga frá kl. 13-17. Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.