Morgunblaðið - 21.06.2018, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 21.06.2018, Qupperneq 1
Sæmundur Sæmundsson, forstjóri Borgunar, segir greiðslukort og greiðslumiðlun í gerjun og miklar breytingar fram undan. MIKLAR BREYTINGAR FRAM UNDANSTÆRSTI VIÐBURÐURINN HM-fótboltann má tengja við símann í gegnum tölvukubb. 4 Unnið í samvinnu við EURAM 2018 er stærsti viðburðurinn sem tengist viðskiptafræði sem haldinn hefur verið hér á landi. 7 VIÐSKIPTA 4 FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 2018 Endurskoðun • Skattur • Ráðgjöf www.grantthornton.is Grant Thornton endurskoðun ehf. er íslenskt aðildarfélag Grant Thornton International Ltd., sem er eitt af fremstu alþjóðlegu samtökum sjálfstæðra endurskoðunar og ráðgjafarfyrirtækja. Grant Thornton endurskoðun ehf. sérhæfir sig í að aðstoða rekstraraðila við að nýta tækifæri til vaxtar og bættrar afkomu með skilvirkri ráðgjöf. Framsýnn hópur starfsmanna, undir stjórn eigenda, sem ávallt eru aðgengilegir viðskiptavinum, nýta þekkingu og reynslu sína til að greina flókin málefni og finna lausnir fyrir viðskiptavini sína, hvort sem það eru einkarekin, skráð félög eða opinberar stofnanir. Yfir 35.000 starfsmenn Grant Thornton fyrirtækja í meira en 100 þjóðlöndum, leggja metnað sinn í að vinna að hag viðskiptavina, samstarfsmanna og samfélagsins sem þeir starfa í. Tjón útflytjenda algeng Í niðurstöðum skýrslu um tjón útflytjenda í viðskiptum sínum við erlenda aðila kemur fram að rétt rúmlega helmingur liðlega 40 fyrir- tækja sem svöruðu spurningalista Íslandsstofu hefur lent í einhvers konar svikum eða van- efndum í útflutningsstarfsemi sinni. Tiltölulega fá dæmi eru þó um svik en oftast var um van- efndir að ræða tengdar gjaldþrotum viðskipta- vina. Bent er á það í skýrslunni að engin stofnun hér á landi hafi það verkefni að greiðslutryggja útflutning. Ísak Kári Kárason, höfundur skýrslunnar, segir þetta koma á óvart, sé litið til annarra norrænna landa til samanburðar. „Öll hin norrænu löndin eru með risastórar stofnanir með allt að hundrað starfsmenn sem sjá um að greiðslutryggja sína útflytjendur. Þetta gefur þeim ákveðið forskot. Það er þó til starfsemi sem heitir Tryggingadeild útflutn- ings, sem á að vera starfandi stofnun, en hefur ekki verið virk um árabil. Hún hvarf í rauninni bara.“ Lítil vitneskja um kostnað Í annarri skýrslu sem Íslandsstofa gaf út samhliða hinni kemur fram að fyrirtæki í út- flutningi hafi litla vitneskju um kostnað sem fylgir millifærslum til erlendra viðskiptavina. Aðspurður af hverju ráðist var í gerð þess- ara skýrslna segir Ingólfur Sveinsson, fjár- málastjóri Íslandsstofu, að stofnunin hafi fund- ið það á eigin skinni að millifærslukostnaður geti verið óvenju hár. „Kostnaður við að borga erlenda reikninga getur verið mjög hár. Maður getur t.d. þurft að borga 30 dollara í kostnað við reikning sem hljóðaði einungis upp á 100 dollara.“ Í skýrslunni kemur fram að banka- og milli- færslukostnaður útflutningsfyrirtækja er að meðaltali í kringum 0,1% af heildarveltu. Sá fyrirvari er þó settur í skýrsluna að einungis sjö fyrirtæki svöruðu spurningalista Íslands- stofu um millifærslukostnað sinn. Ingólfur seg- ir helstu skýringuna fyrir því vera þá, að fyrir- tækin séu almennt ekki nógu meðvituð um þennan kostnað og að sum þeirra líti á þennan kostnað sem sjálfsagðan hlut sem fylgdi því að starfa í útflutningsstarfsemi. Íslandsstofa komst einnig að þeirri nið- urstöðu að fjártækni væri lítið notuð af íslensk- um fyrirtækjum við millifærslur. Fjártæknin er þó líkleg til að ryðja sér til rúms á næstu árum með komu PSD2-löggjafarinnar, sem mun gera þriðja aðila kleift að fá aðgang að upplýsingum viðskiptavina bankanna, með þeirra samþykki. Steingrímur Eyjólfsson steingrimur@mbl.is Meira en helmingur útflutnings- fyrirtækja segist hafa lent í svikum og vanefndum í viðskiptum sínum við erlenda aðila, samkvæmt nýrri könn- un sem Íslandsstofa hefur gert. Morgunblaðið/Árni Sæberg Útflutningsfyrirtæki lenda í ýmiss konar svikum og vanefndum sem oftast tengjast gjaldþrotum. Úrvalsvísitalan EUR/ISK 1.900 1.800 1.700 1.600 1.500 1.400 21.12.‘17 21.12.‘17 20.6.‘18 20.6.‘18 1.613,17 1.769,46 130 125 120 115 110 125,5 126,25 „Upphafleg fjárfesting var 230 milljarðar króna og því eru árlegar afskriftir svo miklar að félagið nær aldrei að skila hagnaði til að það fari að borga tekjuskatt. Margir hafa viljað halda því fram að félagið muni aldrei borga tekjuskatt hér á landi, en ég tel líklegt að það hefjist snemma á næsta áratug miðað við sömu rekstrarforsendur,“ segir Magnús Þór Ásmundsson, forstjóri Alcoa-Fjarðaáls, í viðtali í opnu Við- skiptaMoggans. Hann bendir þó á að það verði mikil verðmæti eftir í landinu í formi opinberra gjalda, launa, kaupa á vörum og þjónustu og sam- félagsstyrkja. „Á síðasta ári nam þetta um 29 milljörðum króna eða um 36% af tekjum,“ segir Magnús en Alcoa Fjarðaál flutti út vörur fyrir 81 milljarð króna á síðasta ári. Styttist í greiðslu tekjuskatts Magnús segir mikil verðmæti vegna starfsemi Alcoa verða eftir á Íslandi. Miðað við óbreyttar rekstr- arforsendur má áætla að íslensk starfsemi Alcoa fari að greiða tekjuskatt í upp- hafi næsta áratugar. 8 Oft er mikið í húfi hjá sprota- fyrirtækjum og þá er freist- andi að ýkja og jafnvel blekkja til þess að ná markmiðum fram. Ekki trúa öllu sem nýju neti 10 Lufthansa kann að leika tveim skjöldum þegar það lýsir yfir áhuga á Norwegian og gerir um leið yfirtöku keppinautar dýrari. Lex: Refskákin um Norwegian 11

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.