Morgunblaðið - 21.06.2018, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 21.06.2018, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 2018FRÉTTIR SVEIGJANLEGOGLIPUR INNHEIMTUÞJÓNUSTA Hafðu samband, við leysum málin með þér! Laugavegur 182, 105 Rvk. | Sími: 510 7700 | momentum@momentum.is jakkafatajoga.is ÁNÆGJA EFLING AFKÖST Það mun eflaust koma Sæmundi Sæmundssyni vel í forstjórastarf- inu hjá Borgun að búa að mikilli þekkingu á sviði forritunar og tækni. Greiðslumiðlunarheim- urinn þróast með ógnarhraða og fyrirtækið þarf stöðugt að laga sig að nýjustu lausnum í hörðu sam- keppnisumhverfi. Hverjar eru helstu áskoranirnar í rekstrinum þessi misserin? Greiðslukorta- og greiðslumiðl- unargeirinn er í mikilli gerjun og miklar breytingar framundan. Mestu áskoranirnar eru að gera fyrirtækið í stakk búið að vera leiðandi í þessum breytingum og takast á við nýja tækni og breytt viðskiptalíkön. Það er einmitt þessi staða sem gerir Borgun svo áhugavert fyrirtæki og heiminn sem við lifum í gríðarlega spenn- andi. Hver var síðasta ráðstefnan sem þú sóttir? Síðasta ráðstefnan var á vegum OpenWay, sem er framleiðandi grunnhugbúnaðarlausnar sem Borgun notar. Þetta var mjög góð ráðstefna þar sem mér gafst tæki- færi til að hitta marga viðskipta- vini fyrirtækisins og stjórnendur þess og um leið að hlýða á mjög áhugaverðar reynslusögur og fyrirlestra þar sem skyggnst var inn í framtíðina. Hvaða hugsuður hefur haft mest áhrif á hvernig þú starfar? Ég hef í gegnum árin reynt að tileinka mér það besta sem verður á vegi mínum á hverjum tíma og það á einnig við um bækur og fólk. Engin ein bók eða manneskja hef- ur mótað mig sérstaklega hvað þetta varðar. Ég hef að auki verið svo heppinn að fá að starfa með mjög hæfileikaríkum ein- staklingum í gegnum tíðina og margir þeirra hafa mótað mig verulega og sú mótun er að sjálf- sögðu enn í gangi. Upp úr stendur að heiðarleiki og réttsýni skiptir mestu máli í öllu starfi. Hvernig heldurðu þekkingu þinni við? Maður lærir eitthvað nýtt á hverjum degi, ekki síst með því að hlusta á þá sem eru samferða manni í leik og störfum. Ég sæki svo námskeið og les mikið. Hugsarðu vel um líkamann? Já, ég reyni það. Ég spila bad- minton og stunda hlaup. Svo er skotveiði mikið áhugamál og henni fylgir oftar en ekki góð útivera og hreyfing. Síðan er góður svefn al- gjört lykilatriði. Hvert væri draumastarfið ef þú þyrftir að finna þér nýjan starfa? Fátt er skemmtilegra og meira gefandi en að vinna með fólki. Ég er ekki frá því að ég myndi vilja einbeita mér enn meira að því og þá kemur sér vel að hafa útskrifast í vor sem markþjálfi (executive coach) frá Háskólanum í Reykja- vík. Ég ákvað að bæta við mig þessari menntun eftir að hafa nýtt mér markþjálfun með góðum ár- angri og sá markþjálfun sem tæki- færi til að efla mig sem stjórn- anda. Ég held að það gæti verið mjög gaman að prófa að vinna sem markþjálfi. Hvað myndirðu læra ef þú feng- ir að bæta við þig nýrri gráðu? Ætli ég myndi ekki horfa til náms sem gerði mig hæfari í að skilja og greina mannlegt eðli, sem er svo skemmtilega marg- breytilegt og óútreiknanlegt. Stjórnun snýst um fólk og hvernig hægt er að hjálpa því að þroskast og dafna. Það er endalaust hægt að bæta við sig þekkingu til að verða betri stjórnandi. Hvaða kosti og galla sérðu við rekstrarumhverfið? Kostirnir eru að greiðslumiðlun er mjög tæknidrifið umhverfi, þar sem hraði og breytingar eru mikl- ar. Ég þrífst best í slíku umhverfi. Ég er lítið fyrir að skilgreina galla, þeir eru alla jafna bara verkefni sem þarf að leysa. Hvað gerirðu til að fá orku og innblástur í starfi? Fjölskyldan á jörð í Hrísey í Eyjafirði, þar sem við erum með æðarrækt og skógrækt. Þangað sæki ég orku og innblástur, enda að mínu mati fallegasti staður á Ís- landi sem ég er tengdur órjúfan- legum böndum. Ég fæ einfaldlega aldrei nóg af því að vera í Hrísey. Hvaða lögum myndirðu breyta ef þú værir einráður í einn dag? Þetta er erfið spurning. Ælti ég myndi ekki breyta lögum um mannanöfn og mannanafnanefnd. Fólk á hreinlega að fá að heita það sem það vill og hið opinbera á ekki að skipta sér af því. SVIPMYND Sæmundur Sæmundsson, forstjóri Borgunar Fær aldrei nóg af því að vera í Hrísey Morgunblaðið/Kristinn Magnússon „Ég er lítið fyrir að skilgreina galla, þeir eru alla jafna bara verkefni sem þarf að leysa,“ segir Sæmundur. ÁHUGAMÁLIÐ Ef illa gengur að smala vinnufélög- unum í fótboltaleik úti á næsta túni hjálpar kannski að segja þeim að von sé á alveg sérstökum bolta. Almenn- ingur getur keypt sama Adidas- bolta og notaður er á HM í Rúss- landi og kostar ekki nema 129 dali. Boltinn hefur fengið nafnið Tel- star18 og er hönnunin innblásin af fyrstu svörtu og hvítu Telstar- boltunum sem Adidas hannaði fyrir HM í Mexíkó 1970 með það fyrir augum að gera bolta sem auðvelt væri fyrir áhorfendur að sjá á sjón- varpsskjám þess tíma. Í dag eru allir komnir með lita- sjónvörp sem sýna hvert smáatriði á vellinum, en áfram eru boltarnir hvítir og svartir. Boltinn er gerður úr strendingum sem hafa verið bræddir saman frek- ar en saumaðir og fyrir vikið er yfir- borðið sléttara og vatnsheldara, og auðveldar knattspyrnukempunum á vinnustaðnum að sparka af meiri ná- kvæmni. Boltinn er líka sá fyrsti sem er bú- inn tölvukubbi sem leyfir eigand- anum, ef hann notar þar til gerðan skynjara á snjallsímanum sínum, að opna fyrir aðgang að sérstöku fót- boltaforriti. ai@mbl.is Hinn eini sanni heimsmeistarabolti Yfirborðið á að auka nákvæmnina. NÁM: Stúdent frá Verzlunarskóla Íslands 1982; próf frá Tölvuhá- skóla Verzlunarskóla Íslands 1989; tölvunarfræði frá University of Texas at Austin 1993; The Executive Program, Darden Bus- iness School, University of Virginia 2005; stjórnendamarkþjálfi, Háskólinn í Reykjavík, 2018. STÖRF: Haukar hf., forritari og síðar framkvæmdastjóri, 1982- 1988; Hjarni hf., hugbúnaðarsérfræðingur, 1989-1991; Tölvu- miðstöð sparisjóðanna, hugbúnaðarsérfræðingur, 1994-1999; Teris (áður Tölvumiðstöð sparisjóðanna), forstjóri, 1999-2011; Sjóvá-Almennar tryggingar hf., framkvæmdastjóri rekstrar- sviðs, 2011-2017; Borgun hf., forstjóri, frá 2018. ÁHUGAMÁL: Skotveiði, skíði, badminton, útivera í íslenskri náttúru. FJÖLSKYLDUHAGIR: Giftur Margréti Völu Kristjánsdóttur, dós- ent við lagadeild Háskólans í Reykjavík. Þrír synir, tvær tengda- dætur og sex mánaða sonardóttir sem ég sé ekki sólina fyrir. HIN HLIÐIN TÆKNIN Þó svo að víða megi finna stafrænar merkingar við hillur verslana hafa stafrænir merkimiðar á vörum ekki sést fyrr en nú. Um er að ræða tækni sem þróuð var af suðurkór- eska fyrirtækinu Solu-M og þótti hönnunin svo vel heppnuð að hún hlaut Red Dot-hönnunarverðlaunin. Eins og sjá má á myndinni er gert ráð fyrir plássi fyrir vörumerki framleiðanda en þar fyrir neðan er lítill rafpappírsskjár sem tengist þráðlaust við tölvukerfi verslunar- innar. Má með nokkrum músar- Tæknivæddur merki- miði fyrir nútímabúðir Merkimiðinn tengist þráð- laust við netið. smellum má breyta verði vörunnar í einni verslun, eða í öllum verslunum um allan heim. ai@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.