Morgunblaðið - 06.06.2018, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 06.06.2018, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 6. J Ú N Í 2 0 1 8 Stofnað 1913  131. tölublað  106. árgangur  GRÓSKUMIKIÐ OG FJÖLBREYTT SAFNASTARF MÁLMURINN GÓÐUR FYRIR HJARTAÐ FRUMKVÖÐULL Í RAFVÆÐINGU ÍSLANDS GAMLI ANDINN Á EISTNAFLUGI 33 STYTTA AF JÓHANNESI REYKDAL 12LISTASAFN ÁRNESINGA 14 Drykkjarumbúðum, hvort sem þær eru úr plasti, áli eða gleri, hefur fjölgað hratt síðustu ár, en í fyrra var 158.120.461 eining í íslenska skilakerfinu. Alls voru þá greiddir rúmlega tveir milljarðar í skilagjald á umbúðum drykja. Helgi Lárus- son, framkvæmdastjóri Endur- vinnslunnar, segir að tæpast fari á milli mála að aukin velmegun og straumur ferðamanna eigi þátt í þessum breytingum. Þessir þættir eigi eflaust einnig þátt í því að skil á umbúðum hafi minnkað hlutfalls- lega. Hann segir athyglisvert hversu mjög einingum hefur fjölgað síðustu ár. Ein skýring á því geti verið að neysluvenjur séu að breytast og við- skiptavinir færi sig úr tveggja lítra umbúðum í minni einingar. Í þessu tilviki gæti koma Costco inn á ís- lenska markaðinn hafa haft áhrif, en Íslendingar drekki ekki endilega meira en áður. Vel hefur gengið að senda plast- umbúðir til endurvinnslu erlendis. Sömu sögu er hins vegar ekki að segja um lítt flokkað plast, sem áð- ur endaði gjarnan í Kína. » 4 og 18 Tveir milljarðar í skilagjald fyrir flöskur og dósir í fyrra Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Í milljónavís Plastflöskur flokkaðar í móttökustöðinni í Knarrarvogi. Guðrún Ásmundsdóttir, leikkona, leikstjóri og leikskáld, hlaut heiðurs- verðlaun Grímunnar þegar verðlaunin voru afhent í gærkvöldi. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, afhenti henni verðlaunin. Sýningin Himnaríki og helvíti, sem byggð er á þríleik Jóns Kalmans Stefánssonar, hlaut sjö verðlaun. Nína Dögg Filippusdóttir var valin leik- kona ársins í aðalhlutverki og Eggert Þorleifsson leikari ársins. »30-31 Morgunblaðið/Eggert Guðrún hlaut heiðursverðlaun Grímunnar Grímuverðlaunin afhent í Borgarleikhúsinu  „Við erum að sjá tölur sem við höfum aldrei séð áður,“ segir Eyj- ólfur Guðmundsson, rektor Háskól- ans á Akureyri. Umsóknum hefur fjölgað um allt að 50% milli ára. Rektor segir að mikil eftirspurn sé eftir sveigjanlegu námsframboði en meirihluti umsókna er frá fólki ut- an höfuðborgarsvæðisins. Fyrir- komulag háskólans henti vel þeim sem ekki vilja flytjast búferlum vegna náms. Þá vakti athygli að fjöldi um- sókna í kennaradeild tvöfaldaðist. Aukin fjölbreytni í kennaranáminu skilar sér í jákvæðara viðhorfi til námsins en áður að mati rektors. ninag@mbl.is »10 Metaðsókn í Háskól- ann á Akureyri Vinsæll Aldrei hafa fleiri umsóknir borist.  Embætti héraðssaksóknara hefur til skoðunar kaup hjónanna Svan- hildar Nönnu Vigfúsdóttur og Guð- mundar Arnar Þórðarsonar á olíu- félaginu Skeljungi árið 2008 og kaup þeirra á færeyska félaginu P/F Magni með fleiri fjárfestum. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins fóru umfangs- miklar aðgerðir fram vegna máls- ins á fimmtudaginn í síðustu viku. Aðgerðirnar stóðu frá morgni og fram á kvöld. Grunaðir voru hand- teknir og aðrir teknir í skýrslutöku. Nokkrir hafa stöðu sakbornings í málinu. Ólafur Þór Hauksson hér- aðssaksóknari staðfestir að hafa ráðist í aðgerðir vegna málsins. Svanhildur og Guðmundur sendu frá sér yfirlýsingu vegna þessa í gær. »4 Nokkrir hafa stöðu sakbornings Skipahönnunarfyrirtækið Rafnar hef- ur ákveðið að loka starfsstöð sinni í Kópavogi og hefur starfsfólki fyrir- tækisins verið sagt upp í kjölfarið. Stjórn fyrirtækisins hefur ákveðið að breyta starfseminni þannig að í stað skipasmíði mun það gera sérleyfis- samninga við erlend fyrirtæki og semja um smíði utan eigin starfsstöðv- ar. Björn Jónsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, segir þessa stefnubreyt- ingu í raun næsta skref í þróunarferli fyrirtækisins. Ýmsar ytri aðstæður hafi ráðið því að haga hafi þurft rekstr- inum með öðru móti en hingað til. „Efnahagsumhverfið, einkum sterk króna, hefur reynst okkur óhagstætt og langar vegalengdir á helstu mark- aði og takmarkaður áhugi innlendra fjárfesta á fyrirtækinu hafa gert okk- ur erfitt fyrir,“ segir Björn. Hann segir að þrátt fyrir þetta horfi fyrirtækið til framtíðar og þessa dagana séu fulltrúar Al Seer Marine Technologies, sem starfi í Sameinuðu arabísku furstadæmun- um, hér á landi. Það fyrirtæki hefur nú þegar tryggt sér leyfissamning við Rafnar. »9 Mikil uppstokkun á starfsemi Rafnar Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Það hafa allir verið mjög lausnamiðaðir en sam- komulag er ekki enn í höfn. Miðað við það hvernig samtölin hafa verið tel ég þó góðar líkur á því að okkur takist að ljúka þinginu með sómasamlegum hætti,“ sagði Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra við Morgunblaðið seint í gærkvöldi. Stíf fundahöld voru á Alþingi í gærkvöldi um afgreiðslu mála fyrir þinglok. Stærsta ágreiningsefnið er sem fyrr veiði- gjaldafrumvarpið. Formenn þingflokka funduðu ítrekað og formenn flokkanna funduðu svo í gær- kvöldi um framhaldið. Fundum verður haldið áfram í dag, þingflokksformenn um morguninn og formenn flokkanna í hádeginu að sögn Katrínar. Býstu við niðurstöðu í dag? „Já, ætli það skýrist ekki hvort við náum að bind- ast einhverju samkomulagi um það hvernig við ljúkum þinginu að þessu sinni.“ „Þetta hefur þokast en staðan er viðkvæm,“ sagði Oddný G. Harðardóttir, formaður þingflokks Samfylkingarinnar, seint í gærkvöldi. „Meðan það er verið að tala saman aukast þó líkurnar á að við náum lendingu.“ Forsætisráðherra lagði fram tillögu um máls- meðferð í veiðigjaldamálinu í hádeginu í gær. Ekki verður tekin afstaða til tillögunnar fyrr en sátt næst um þinghaldið. Tugir mála bíða þar afgreiðslu en þinglok voru áætluð á morgun. Náist sátt um „pakkann“, hvaða mál fara í gegn fyrir þinglok, má búast við að þingstörfum ljúki ekki fyrr en um eða eftir helgi. „Viðkvæm staða“ á þingi  Forsætisráðherra býst við niðurstöðu um afgreiðslu mála á þingi í dag  Fundað fram á kvöld í gær  Formenn flokka á þingi hittast í hádeginu  Veiðigjöld stærsta ágreiningsefnið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.