Morgunblaðið - 06.06.2018, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 06.06.2018, Blaðsíða 31
31 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2018 Himnaríki og helvíti eftir Jón Kal- man Stefánsson og Bjarna Jónsson í leikstjórn Egils Heiðars Antons Pálssonar hlaut flest verðlaun þegar Gríman – íslensku sviðslista- verðlaunin voru veitt í 16. sinn við hátíðlega athöfn í Borgarleikhús- inu í gær. Sýningin var tilnefnd til tólf verðlauna og hlaut alls sjö, fyrir leikrit, leikstjórn, leikmynd Egils Ingibergssonar, búninga Helgu I. Stefánsdóttur, lýsingu Þórðar Orra Péturssonar og tón- list Hjálmars H. Ragnarssonar auk þess sem sýningin var valin sýning ársins. Alls skiptu tíu sýningar með sér verðlaununum 19 auk þess sem Guðrún Ásmundsdóttir hlaut heiðursverðlaun Sviðslista- sambands Íslands fyrir ævistarf sitt í þágu sviðslista á Íslandi. Sýn- ingarnar Crescendo eftir Katrínu Gunnarsdóttur og Fólk, staðir og hlutir eftir Duncan Macmillan í leikstjórn Gísla Arnar Garðars- sonar hlutu næstflest verðlaun kvöldsins eða tvenn hvor sýning. Katrín var verðlaunuð sem dans- höfundur ársins fyrir Crescendo auk þess sem Baldvin Þór Magnús- son var verðlaunaður fyrir hljóð- mynd. Leikkonurnar Nína Dögg Filippusdóttir og Sigrún Edda Björnsdóttir hlutu verðlaun fyrir bestan leik í Fólk, staðir og hlutir, Nína Dögg í aðalhlutverki og Sig- rún Edda í aukahlutverki. Besti leikari í aðalhlutverki var valinn Eggert Þorleifsson fyrir túlkun sína á föðurnum í samnefndu leik- riti eftir Florian Zeller sem Kristín Jóhannesdóttir leikstýrði. Besti leikarinn í aukahlutverki var val- inn Valur Freyr Einarsson í 1984 í leikgerð á samnefndri skáldsögu eftir George Orwell sem Bergur Þór Ingólfsson leikstýrði. Söngvari ársins var valinn Krist- ján Jóhannsson fyrir túlkun sína á Cavaradossi í óperunni Toscu eftir Puccini og Þyrí Huld Árnadóttir valin dansari ársins í danssýning- unni Hin lánsömu sem Anton Lachky samdi í samvinnu við dans- ara verksins. Barnasýning ársins var valin Í skugga Sveins eftir Karl Ágúst Úlfsson í leikstjórn Ágústu Skúladóttur og útvarps- verk ársins var Fákafen eftir Kristínu Eiríksdóttur. Dansarinn Sigurður Andrean Sigurgeirsson var valinn sproti ársins. Morgunblaðið/Eggert Sú besta Himnaríki og helvíti, í sviðsetningu Borgarleikhússins, var valin sýning ársins. 10 sýningar verðlaunaðar  Eggert Þorleifsson og Nína Dögg Filippusdóttir verð- launuð fyrir leik sinn  Kristján Jóhannsson fyrir söng Gleði Eggert Þorleifsson var leikari ársins fyrir hlutverk sitt í Föðurnum Fögnuður Verðlaun in leikkona ársins hlaut Nína Dögg Filippusdóttir fyrir hlutverk sitt í Fólk, staðir og hlutir. Tenór Söngvari ársins er Kristján Jóhannsson, eftir frammistöðu sína í Tosca. Kát Þyrí Huld Árnadóttir fagnaði sem dansari ársins fyrir hlutverk sitt í Hinum lánsömu. Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is Rocky Horror (Stóra sviðið) Mið 6/6 kl. 20:00 49. s Fös 8/6 kl. 20:00 51. s Sun 10/6 kl. 20:00 Lokas. Fim 7/6 kl. 20:00 50. s Lau 9/6 kl. 20:00 52. s Allra síðustu sýningar! Elly (Stóra sviðið) Fös 31/8 kl. 20:00 139. s Sun 9/9 kl. 20:00 142. s Sun 16/9 kl. 20:00 145. s Lau 1/9 kl. 20:00 140. s Mið 12/9 kl. 20:00 143. s Lau 22/9 kl. 20:00 146. s Fös 7/9 kl. 20:00 141. s Fim 13/9 kl. 20:00 144. s Sun 23/9 kl. 20:00 147. s Sýningar haustið 2018 komnar í sölu. Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið) Fös 8/6 kl. 20:30 Lokas. Tilnefnd til sex Grímuverðlauna. Allra síðustu sýningar. Slá í gegn (Stóra sviðið) Lau 9/6 kl. 19:30 33.sýn Sun 10/6 kl. 19:30 34.sýn Fim 14/6 kl. 19:30 35.sýn Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna! Svartalogn (Stóra sviðið) Fös 8/6 kl. 19:30 10.sýn Heillandi verk um óvæntu möguleikana í lífinu leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200 Heiðursverðlaun Sviðslista- sambands Íslands Guðrún Ásmundsdóttir Sýning ársins Himnaríki og helvíti í sviðsetningu Borgarleikhússins Leikrit ársins Himnaríki og helvíti eftir Jón Kalman Stefánsson og Bjarna Jónsson Leikstjóri ársins Egill Heiðar Anton Pálsson – Himnaríki og helvíti Leikari ársins í aðalhlutverki Eggert Þorleifsson – Faðirinn Leikkona ársins í aðalhlutverki Nína Dögg Filippusdóttir – Fólk, staðir og hlutir Leikari ársins í aukahlutverki Valur Freyr Einarsson – 1984 Leikkona ársins í aukahlutverki Sigrún Edda Björnsdóttir – Fólk, staðir og hlutir Leikmynd ársins Egill Ingibergsson – Himnaríki og helvíti Búningar ársins Helga I. Stefánsdóttir – Himnaríki og helvíti Lýsing ársins Þórður Orri Pétursson – Himnaríki og helvíti Tónlist ársins Hjálmar H. Ragnarsson – Himnaríki og helvíti Hljóðmynd ársins Baldvin Þór Magnússon – Crescendo Söngvari ársins Kristján Jóhannsson – Tosca Barnasýning ársins Í skugga Sveins Dans- og sviðshreyfingar ársins Chantelle Carey – Slá í gegn Dansari ársins Þyrí Huld Árnadóttir – Hin lánsömu Danshöfundur ársins Katrín Gunnarsdóttir – Crescendo Útvarpsverk ársins Fákafen eftir Kristínu Eiríksdóttur Sproti ársins Sigurður Andrean Sigurgeirsson Á endanum rötuðu sjö til Himnaríkis og helvítis HANDHAFAR GRÍMUVERÐLAUNANNA 2018 Sjónarspil Þuríður Blær Jóhannsdóttir í hlutverki sínu sem drengurinn í Himnaríki og helvíti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.