Morgunblaðið - 06.06.2018, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 06.06.2018, Blaðsíða 6
ÚRSLIT SVEITARSTJÓRNARKOSNINGA 20186 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2018 Hágæða umhverfisvænar hreinsivörur fyrir bílinn þinn Glansandi flottur Fást í betri byggingavöruverslunum, matvöruverslunum og bensínstöðvum. Málefnasamningur Sjálfstæðis- flokks, Vinstri grænna og Samfylk- ingar og óháðra í Borgarbyggð var undirritaður í gær. Viðræður flokk- anna gengu greiðlega og að sögn oddvita flokkanna komu engin ágreiningsmál upp. Meðal helstu áherslna nýrrar sveitarstjórnar verður bætt þjón- usta og búsetuskilyrði í Borgar- byggð auk uppbyggingar mikil- vægra innviða og mannauðs. Þá vilja flokkarnir að gengið verði sem fyrst til samninga um áframhaldandi sam- starf við Gunnlaug Júlíusson, núver- andi sveitarstjóra Borgarbyggðar. Búið er að skipta helstu verkefnum á milli flokkanna en málefnasamning- urinn verður lagður fyrir á fyrsta fundi nýkjörinnar sveitarstjórnar. aronthordur@mbl.is Viðræður gengu greiðlega Meirihluti Málefnasamningur nýrrar sveitarstjórnar í Borgarbyggð var undirritaður í gær. Viðræður flokkanna þriggja gengu hratt og vel.  Nýr meirihluti í Borgarbyggð Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is Sjálfstæðisflokkur og Framsókn og óháðir í Hafnafirði hafa myndað með sér nýjan meirihluta og skrif- uðu undir samning þess efnis um hádegisbilið í gær. Flokkarnir hófu formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta fyirir rúmri viku, en Sjálfstæðisflokkur hlaut fimm full- trúa kjörna í sveitarstjórnarkosn- ingunum og Framsóknarflokkur einn. Meðal þess sem málefnasamn- ingur flokkanna felur í sér er að gerð verði stjórnsýsluúttekt til að auka skilvirkni í stjórnkerfi bæjar- ins og leitað verði leiða til að auka lýðræðisvitund íbúa. Rósa Guðbjartsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokks og verðandi bæjarstjóri Hafnarfjarðar, sagði að mikill samhljómur hefði verið meðal flokkanna og málefni eldri borgara og barnafjölskyldna yrðu í for- grunni. Þá mundi meirihlutinn einn- ig leggja mikla áherslu á ábyrgan rekstur og aðhald í útgjöldum til að greiða niður skuldir bæjarns. Þess utan er stefna meirihlutans að auka systkinaafslátt af leik- skólagjöldum, bætt starfskjör á leikskólum, betri nýting skólahúsa og að festa heilsueflingu eldri borg- ara í sessi auk annarra verkefna. Sjálfstæðisflokkur hafði áður ver- ið í meirihluta með Bjartri framtíð en sá flokkur bauð ekki fram í Hafnarfirði í sveitarstjórnarkosn- ingunum. Framsóknarflokkur kem- ur því inn í bæjarstjórnina en það er í fyrsta skipti í 20 ár sem flokkurinn fær mann kjörinn í bæjarstjórn. Morgunblaðið/Hari Undirritun Forsvarsmenn Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks í Hafnarfirði undirrituðu málefnasamning í gær. Nýr meirihluti myndaður í Hafnafirði  Mikil áhersla lögð á barnafjölskyld- ur og eldri borgara í nýjum sáttmála Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is „Þetta eru viðræður sem meirihluti bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokks sam- þykkti en líkt og ég hef áður sagt vil ég halda samstarfi okkar við Bjarta framtíð áfram,“ segir Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs og oddviti Sjálfstæðisflokks, um meiri- hlutaviðræður Sjálfstæðis- og Fram- sóknarflokks í Kópavogi. Flokkarnir funduðu í húsnæði sjálfstæðismanna í Hlíðarsmára klukkan sex í gær- kvöldi, en þar var farið yfir helstu stefnumál. Ármann segir að starfshópur hafi nú verið skipaður sem mun fara bet- ur yfir áherslumál flokkanna. „Þetta verður rætt á næstu dögum og við höfum skipað starfshóp sem mun fara betur í þessi helstu mál,“ segir Ármann. Næst hugsanlega fyrir vikulok Birkir Jón Jónsson, Oddviti Framsóknarflokks, segir að viðræð- ur gærkvöldsins hafi gengið vel og hann eigi von á niðurstöðu fyrr en síðar. Spurður hvort möguleiki sé á því að meirihluti verði myndaður fyrir vikulok segir hann svo vera. „Það er möguleiki en við höfum ekki sett okkur nein tímamarkmið hvað það varðar. Við ætlum okkur að vanda til verka en það er mikill sam- hljómur á milli flokkanna,“ segir Birkir Jón og bætir við að hann sjái ekkert standa í vegi fyrir því að nýr meirihluti verði myndaður. „Ég hef átt gott samstarf við þetta fólk alltaf kjörtímabilið og við þekkj- um áherslur hvert annars mjög vel,“ segir Birkir Jón. Samningar gætu náðst fyrir vikulok  Bæjarstjóri Kópavogs hefði kosið samstarf við BF Viðreisn Ármann Kr. Ólafsson Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Kópavogur Líkur eru á nýjum meirihluta í Kópavogi á næstu dögum. Birkir Jón Jónsson Málefnasamningur Sjálfstæðisflokks og Vinstri-grænna í Mosfellsbæ var undirritaður á Hlégarðstúni við Hlé- garð um fimmleytið í gær. Meðal stefnumála sem tæpt er á í samningn- um eru: Fjölgun félagslegra íbúða í samræmi við þarfir á hverjum tíma, nægt framboð lóða til byggingar leiguíbúða eða námsmannaíbúða án arðsemissjónarmiða og aukið fram- boð húsnæðis fyrir ungt fólk. Greiðlega gekk að fá samninginn samþykktan á fundum flokkanna að lokinni kynningu. „Samninguinn var samþykktur á báðum stöðum með lófaklappi,“ segir Haraldur Sverris- son, bæjarstjóri og oddviti Sjálfstæð- isflokks í Mosfellsbæ. Bjarki Bjarna- son, oddviti Vinstri-grænna, tók í svipaðan streng og sagði mikinn ein- hug hafa ríkt varðandi samstarfið. Auk fyrrgreindra stefnumála áætla flokkarnir að ljúka vinnu við um- hverfisstefnu Mosfellsbæjar sem tek- ur mið af heimsmarkmiðum Samein- uðu þjóðanna og fjölga nemendum í Listaskóla Mosfellsbæjar. aronthordur@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Mosfellsbær Tryggja á aukið framboð húsnæðis fyrir ungt fólk. Setja fjölgun íbúða í forgang  VG fer með Sjálfstæðisflokki í Mosó

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.