Morgunblaðið - 06.06.2018, Blaðsíða 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2018
VIÐTAL
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Tónlistarhátíðin Eistnaflug verður
haldin í Neskaupstað 11.-14. júlí en
hún hefur verið haldin þar í bæ allt
frá árinu 2005 og hátíðin í ár því sú
fjórtánda í röðinni. Hátíðin var illa
sótt í fyrra miðað við fyrri ár með
um 1.100 gesti í stað þeirra 1.800
sem reiknað var með og olli það tapi
upp á 24 milljónir króna. Unnið var
að fjárhagslegri endurskipulagn-
ingu í kjölfarið og gripið til þess
ráðs að selja hluti í í félaginu Milli-
fótakonfekti ehf. sem sér um rekst-
ur hátíðarinnar. Með þessu, styrkj-
um og aðstoð fyrirtækja, hljóm-
sveita og íbúa í Neskaupstað, tókst
að bjarga hátíðinni. Nýir hluthafar
tóku við og Stefán Magnússon,
stofnandi og framkvæmdastjóri
Eistnaflugs, seldi hlut sinn í félag-
inu. Ný stjórn og framkvæmda-
stjórn hafa tekið við og nýjustu
fréttir eru þær að milljón króna
skuld Millifótakonfekts ehf. við bæj-
arfélagið hafi verið felld niður.
Vantaði fleiri erlenda gesti
Fjármálastjóri hátíðarinnar,
Magný Rós Sigurðardóttir, og
kynningarfulltrúi hennar og bókari,
Erna Björk Baldursdóttir, litu við í
morgunkaffi í Hádegismóum en
Magný starfar sem bókasafnsfræð-
ingur á Landsbókasafninu og Erna
er vörustjóri hjá Inter Medica sem
selur tæknivörur fyrir heilbrigðis-
geirann. Blaðamanni lék forvitni á
að vita hvernig það kom til að þær
tóku að sér fyrrnefnd störf fyrir há-
tíðina. „Ég er búin að vera að vinna
við hátíðina í mörg ár sem almennur
starfsmaður og í janúar í fyrra kom
ég inn til að sjá um peninga- og
skipulagsmál og hjálpa til við stjórn-
ina. Erna kom inn á svipuðum
tíma,“ segir Magný. „Þannig að við
komum inn á lokasprettinum fyrir
síðustu hátíð og ákváðum að klára
þetta, fyrst að þetta fór svona, að
hjálpa til við að ná þessu upp,“ bætir
hún við.
Spurð að því hvað hafi valdið
dræmri miðasölu og tapi í fyrra seg-
ir Magný að erlendu gestirnir hafi
ekki látið sjá sig, gengi krónunnar
hafi verið of hátt og komið niður á
miðasölu. Ráð hafi verið gert fyrir
fleiri gestum en komu á endanum.
„Yfirbyggingin var bara of dýr mið-
að við það,“ segir Erna.
Magný segir að ekki hefði verið
hægt að bjarga hátíðinni án velvilja
og aðstoðar hljómsveita, fyrirtækja
og íbúa í Neskaupstað. Fjöldi hljóm-
sveita og fyrirtækja hafi gefið eftir
greiðslur og eigendur fasteigna sem
leigðar voru fyrir hljómsveitir og
starfsfólk hafi gefið skipuleggj-
endum þann langa frest sem nauð-
synlegur var til að greiða upp skuld-
ir. „Væri ekki fyrir það hefði þetta
líklega ekki tekist,“ segir Magný.
Gamli andinn endurvakinn
– Ég heyrði því fleygt að Cava-
lera-bræður úr Sepultura hefðu
kostað jafnmikið og allir hinir flytj-
endurnir til samans?
„Nei, nei, þeir kostuðu slatta en
það var ekki einhver punktur sem
felldi hátíðina,“ svarar Magný og
bendir á að tónlistarhátíðir á Íslandi
og þungarokkshátíðir víða um heim
hafi barist í bökkum í fyrra og
margar hverjar farið á hausinn.
Magný segir hátíðina ekki haldna í
gróðaskyni en þar sem hún hafi end-
að í mínus í fyrra hafi skipulag
hennar í ár verið ansi mikið hark.
En hvaða áhrif hefur þetta hark á
dagskrá hátíðarinnar í ár? „Ætli við
séum ekki með helmingi minna
„budget“ í ár en í fyrra og þá helm-
ingi minna líka fyrir erlendar hljóm-
sveitir sem er stærsti útgjaldaliður-
inn,“ segir Erna. Erlendu sveitirnar
séu því færri og valdar sérstaklega
og samið við þær með hliðsjón af
niðurskurði.
Magný og Erna segir hátíðina
samt sem áður vandaða og með
sama góða andanum og alltaf hafi
verið. „Og við ætlum að gera meira,
t.d. með útisvæðið og skapa
skemmtilegri stemningu, það eru
V.I.P. miðar til sölu í fyrsta skipti.
Við ætlum að ná gamla andanum
aftur,“ segir Erna.
– Eruð þið þá að reyna að laða að
fjölskyldur í meiri mæli?
„Já, fjölskyldum hefur reyndar
oftast staðið til boða að koma,“ svar-
ar Magný og að meira verði gert
fyrir fjölskyldur nú en í fyrra. Börn
og unglingar megi nú vera inni til kl.
23 í fylgd með forráðamönnum.
Gus Gus leikur fyrir dansi
– Hvað er það merkilegasta á
dagskránni í ár?
„Kreator,“ svara báðar í kór og
hlæja. „Það er stærsta nafnið. Svo
náðum við Tý núna í lokin og það
hafa verið svakalega viðbrögð við
því. Þeir hafa ekki spilað hér í tíu ár,
það þekkja allir „Orminn langa“ og
þeir eru búnir að þróa svolítið tón-
listina, orðnir kannski í ætt við
Skálmöld í dag,“ segir Erna.
Dagská Eistnaflugs liggur fyrir
(sjá eistnaflug.is) og fær Gus Gus
þann heiður að ljúka hátíðinni á
laugardagskvöldi. Sú sveit er víðs
fjarri þungarokkinu sem hátíðin er
þekktust fyrir. „Stærsti parturinn
er þungarokk en við höfum alltaf
endað á partíi í lokin. Páll Óskar
hefur komið og Retro Stefson þann-
ig að það er alltaf partí þar sem allir
dansa saman,“ segir Magný og Erna
bætir við að ekki sé hægt að hafa há-
tíðina eingöngu með málmtónlist
vegna miðasölu. Hún sé dræmari
þegar einungis sé um eina gerð tón-
listar að ræða.
Góð fyrir hjartað
En hvernig stendur á því að þær
Erna og Magný hafa svona mikinn
áhuga á þessari tónlist, málminum?
„Hún er æðisleg, svo góð fyrir hjart-
að,“ segir Magný og Erna segist
hafa verið í kringum þessa tónlistar-
senu í 25 ár. „Barnsfaðir minn var í
nokkrum hljómsveitum og ég fór á
alla tónleika sem ég komst á. Það
myndaðist vinahópur þá sem ég á
ennþá og hann er ástæðan fyrir því
að ég byrjaði að fara á Eistnaflug
árið 2006. Þetta er bara æðisleg tón-
list, það er svo mikill sköpunar-
kraftur þarna og margir góðir lista-
menn,“ segir Erna. Magný segir
vini sína hafa hlustað á þungarokk
og þannig hafi hún áttað sig á því
hvað þetta væri yndisleg tónlist.
„Þetta er svo fullkomin útrás og
fólkið sem er að hlusta á þungarokk
og spila það er svo gott fólk,“ segir
hún.
Erna segir að þótt menn séu oft
vígalegir á sviði, málaðir í framan
með hárið flaksandi og í miklum
ham, þá fari þeir heim að faðma
kettlingana sína að tónleikum lokn-
um. „Þetta er bara leikhús, í raun-
inni, uppi á sviði,“ bendir hún á.
„Þungarokkið er oft misskilið.“
Svartasti svartmálmur
– Nú er þetta þannig tónlist að
maður þarf að vera með eyrnatappa
til að hljóta ekki heyrnarskaða en
hvaða hljómsveit haldið þið að sé lík-
legust í ár til að valda slíkum skaða?
Magný og Erna hlæja og Erna
svarar svo að líklega sé það sænska
svartmálmssveitin Watain. „Það er
svartasti svartmálmur og þeir verða
með eld og leikmuni á sviðinu og alls
konar múnderingar. Þetta er
þyngsta erlenda hljómsveitin,“ segir
Erna, „sem sprengir í þér botnlang-
ann.“
Talið berst að öðrum áhrifum sem
þungmálmur getur haft á líkamann
og segist Magný hafa upplifað
fyrstu þungmálmstóna á tónleikum
eins og högg í andlitið. Erna segir
einhvern hafa líkt þessu við að fá
jarðýtu í andlitið sem losi slæmar
tilfinningar út og hleypi góðum inn
og þær hlæja að þessum mögnuðu
lýsingum. „Svo fer maður bara að
brosa og líður vel, ég bara brosi út
að eyrum,“ segir Erna brosandi og
Magný segist fá mikla útrás á tón-
leikum.
Þrjár konur í Millifótakonfekti
– Þetta er dálítið karllægt allt
saman, hátíðin kennd við eistu og
fyrirtækið sem sér um rekstur
hennar heitir Millifótakonfekt.
„Já, enda vorum við spurðar,
þegar hátíðin var að ganga í gegnum
breytingar í fyrra, hvort við vildum
breyta nafninu á fyrirtækinu en mér
finnst þetta bara svo mikil snilld, að
þrjár konur séu að reka fyrirtæki
sem heitir Millifótakonfekt!“ segir
Magný og hlær innilega, en þriðja
konan er Helga Dóra Jóhannes-
dóttir og sér um íslenskar hljóm-
sveitir og varnings- og miðasölu.
„Það fylgir þessu engin mismunun,
þetta er bara húmor og mér finnst
þetta bara fallegt og skemmtilegt.“
Morgunblaðið/Helgi Snær Sigurðsson
Eistnaflugskonur Erna Björk Baldursdóttir og Magný Rós Sigurðardóttir.
„Sprengir í þér botnlangann“
Kreator og Týr eru meðal þeirra málmsveita sem koma fram á Eistnaflugi í ár „Losar slæmar
tilfinningar út og hleypir góðum inn,“ segir einn skipuleggjenda um jákvæð áhrif málmsins
Vígalegur Einn
liðsmanna Watain.
Z-brautir &
gluggatjöld
Opið mán.-fös. 10-18, lau. 11-15 Faxafeni 14 | 108 Reykjavík | S. 525 8200 | www.z.is |
Mælum, sérsmíðum og setjum upp
Úrval - gæði - þjónusta
Falleg gluggatjöld
fyrir falleg heimili
ICQC 2018-20