Morgunblaðið - 06.06.2018, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 06.06.2018, Qupperneq 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2018 ✝ Ingibjörg JónaJónsdóttir fæddist í Reykjavík 21. mars 1944. Hún lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 28. maí 2018. Foreldrar henn- ar voru hjónin Jón M. Þorvaldsson, skipstjóri í Reykja- vík, f. 24.4. 1900 á Rauðstöðum í Arnarfirði, d. 30.1. 1965, og Ingibjörg Þórðardóttir, húsfreyja í Reykjavík, f. 22.4. 1903, frá Laugabóli í Ísafirði, Ísafjarðar- djúpi, d. 26.5. 1977. Systkini Ingibjargar Jónu eru: Þór Halldórsson viðskipta- fræðingur, f. 12.10. 1932 í Reykjavík, d. 18.5 1970, maki Svava Davíðsdóttir banka- starfsmaður, Halla Jónsdóttir tanntæknir, f. 13.12. 1936 í Reykjavík, d. 12.1. 2018, og Kristrún Jónsdóttir tann- smiður, f. 9.12. 1941, maki Njörður Tryggvason bygg- ingaverkfræðingur, d. 18.6. 2010. 7.2. 1991, maki Birgitta Stein- grímsdóttir líffræðingur, f. 28.9. 1991, sonur þeirra er Ein- ar, f. 14.4. 2018, Ingibjörg Rut stúdent, f. 19.12. 1997, Snædís Halla menntaskólanemi, f. 21.12. 1999, og Steinunn Marín grunnskólanemi, f. 21.3. 2007. Ingibjörg lauk stúdentspróf frá Verzlunarskóla Íslands 1965 og síðan kennaraprófi frá Kennaraskólanum. Síðar bætti hún við sig sérkennaranámi og námi í kynjafræðum við Há- skóla Íslands. Á námsárunum vann hún ýmis störf, meðal annars hjá Búnaðarbankanum og sem flugfreyja hjá Flugleiðum. Að kennaranámi loknu kenndi hún einn vetur við Landakotsskóla. Þau hjón fluttust til Akraness í nóvember árið 1967, þar sem Ingjaldur hóf störf sem tann- læknir. Ingibjörg starfaði við Brekkubæjarskóla, fyrst sem bekkjarkennari og síðar sem sérkennari, samtals í um þrjá- tíu ár. Ingibjörg Jóna helgaði líf sitt starfi sínu og fjölskyldu. Hjónin byggðu hús í Jörundarholti 174 á Akranesi og bjuggu þar í um 35 ár þar til þau fluttust til Garðabæjar í febrúar 2016. Útför Ingibjargar Jónu fer fram frá Akraneskirkju í dag, 6. júní 2018, og hefst athöfnin klukkan 13. Ingibjörg Jóna giftist 17.9. 1966 Ingjaldi Bogasyni tannlækni, f. 18.9. 1940. Börn þeirra eru: 1) Jón Þor- valdur, dr. í sál- fræði, f. 28.3. 1967, d. 27.4. 2004, maki Guðríður Björns- dóttir hjúkrunar- fræðingur, f. 17.8. 1965. Synir þeirra eru Ingjaldur Bogi tæknifræð- ingur, f. 17.6. 1990, og Ás- mundur Logi stúdent, f. 10.4. 1996. 2) Ingibjörg Steinunn, rekstrarfræðingur og atvinnu- rekandi, f. 20.4. 1968, maki Guðmundur Ragnar Guðmunds- son, rekstrarfræðingur og at- vinnurekandi, f. 18.8. 1967. Börn þeirra eru Guðmundur Heiðar lögfræðingur, f. 26.6. 1991, Inga Björk stúdent, f. 6.6. 1994, og Arnaldur Þór stúdent, f. 9.7. 1998. 3) Sólborg Þóra hjúkrunarfræðingur, f. 17.3. 1971, maki Einar Geir Hreins- son lyfjafræðingur, f. 11.12. 1963. Börn þeirra eru Marvin Ingi iðnaðarverkfræðingur, f. Elsku mamma mín, það er komið að kveðjustund. Við horf- um á eftir þér inn í eilífðina með djúpum söknuði, þangað sem við öll einhvern tímann förum, í friði frá þjáningum, friði í hjarta, sátt við lífdaga þína og það sem þú skilur eftir þig. Lífið heldur áfram og við vöndum okkur að lifa því. Þú reyndist mér yndisleg móð- ir. Faðmur þinn ávallt opinn og hlýr, varst örlát á „hrós vítam- ínin“ og notaðir sem leið til að byggja okkur upp og sýna góð- vild. Sama hvernig dagsform þitt var, alltaf varstu til staðar, tilbúin að hlusta og styðja. Þú ræktaðir garðinn þinn vel, var umhugað um velferð okkar fjölskyldunnar. Þráðir ekkert heitar en að afkom- endur þínir fyndu sér hillu í lífinu, lifðu sátt og hamingjusöm. Hvattir okkur áfram og studdir við með hlýju. Maður velur þau gildi sem manni þykir eftirsókn- arverð frá uppvexti sínum og eru samverustundir fjölskyldunnar eitt af þessum gildum sem ég fer með út í lífið. Minnist ég sam- verustundanna í Jörundarholtinu sem þú lagðir svo mikla áherslu á. Oftast var glatt á hjalla en stund- um gat fólk líka tekist á við mat- arborðið í líflegum umræðum um menn og málefni. Þú kaust að umbera ólík sjónarhorn, viðhorf og lífssýn. Þráðir ekkert heitar en að fjölskyldan lifði saman í sátt og samlyndi. Sjálf gast þú verið seinheppin í vali á umræðu- efni og léð máls á einhverju sem gat hitt á viðkvæma strengi. Það var þín leið til að brjóta upp þögn eða kalla fram lífleg viðbrögð. Við sem þig þekktum vissum að þú varst alltaf vel meinandi. Í þínum huga var fólk ekki að rífast, að- eins að rökræða hlutina. Þú kaust að horfa fram hjá leiðindum, horfa á kosti fólks fremur en galla þess og höfða til máttar fyr- irgefningarinnar. Þú elskaðir okkur og fátt gaf þér eins mikið að vita af fjölskyldu þinni lifa saman í sátt og samlyndi. Þú sýndir mikið baráttuþrek og lífsvilja í veikindunum þínum. Hafðir mikið að lifa fyrir eins og þú sagðir sjálf. Sjúkdómurinn tók yfir, þú sýndir æðruleysi, sættir þig við það sem þú fékkst ekki breytt og nýttir tímann vel. Studdir við okkur og hvattir áfram. Notaðir húmor sem styrk og elskaðir fátt eins mikið og fá okkur til þess að hlæja. Líf þitt var gott, þú hreyfðir við mörgu til hins betra, sást það jákvæða í öllum. Þjáningum þínum er lokið og þú kvaddir okkur með frið í hjarta, vissir af ást okkar til þín og við af þinni. Á stundum sorg- arinnar verðar tilfinningar manns sterkari en nokkru sinni og skilningur á ástinni og því sem mestu máli skiptir í lífinu blasir við. Að hafa tíma til að vera, hlusta og gefa. Að elska og vera elskaður. Kveðjustundin var falleg þeg- ar þú horfðir með stolti yfir hóp- inn þinn, sendir honum fingur- koss og kvaddir svo undur blíðlega með setningu sem þú átt- ir svo auðvelt með að segja: „Ég elska ykkur.“ Þessi minning verður ein af mörgum dýrmætum með þér sem áfram mun lifa í hjarta okkar allra. Þú ert styrkur minn, fjársjóð- ur minn og vinur minn – klett- urinn sem hefur ekki haggast öll þessi ár. Mín kæra ástkæra móðir. Þakka þér. Hvíl í friði, elsku mamma. Þín Sólborg. Meira: mbl.is/minningar Það er svo ótrúlega sárt og mikið tómarúm að geta ekki notið návistar þinnar lengur. Mikið var ég lánsöm að hafa fengið þig sem móður. Þú varst vön að vera alltaf með faðminn opin fyrir fjölskyldu þína og sjá það góða í hverjum og einum. Við höfum nánast alla tíð verið í daglegum samskiptum. Það var svo yndislegt að vera í kringum þig því að þú hafðir svo gott hjartalag og varst alltaf svo jákvæð og uppörvandi ásamt því að hafa þann eiginleika að geta alltaf komið manni í gott skap. Þegar ég hringdi í þig eða heim- sótti fékk ég alltaf hlýjar mót- tökur og þú dásamaðir það að heyra í mér eða fá mig í heimsókn og fjölskyldu mína. Það þurfti svo lítið til þess að gleðja þig. Þú varst orðin fárveik og hvattir mig til að halda upp á 50 ára afmælið mitt sem þú ætlaðir að mæta í og þú ætlaðir líka að mæta í stúdentsútskrift yngsta sonar okkar hjóna. Því miður urðu örlögin þau að hvoruga veisluna áttir þú kost á að koma í. Eins veik og þú varst þá barm- aðir þú þér aldrei og þráðir lífið ofar öllu því þú hafðir svo mikið að lifa fyrir eins og þú orðaðir það. Fjölskyldan var þér allt. Þú varst örlát á hrósið og fyrir rúm- um mánuði varstu stórslösuð að koma úr sjúkrabíl en gast eigi að síður gefið þér tíma til þess að hrósa sjúkraflutningamönnum og fékkst þá til þess að roðna. Þetta var einkennandi fyrir þig því þú lýstir allt umhverfið upp. Minningarnar frá æskuheimil- inu eru ljúfar. Við systkinin bjuggum alltaf við mikið ástríki foreldranna og þér var alltaf mjög umhugað um að okkur liði vel og okkur myndi ganga vel í líf- inu. Þú varst frábær kennari, fróð og hvattir bæði nemendur þína og börn til dáða. Dýrmætustu stundir þínar voru að hafa allan fjölskylduhóp- inn ykkar pabba saman í mat og eiga góðar samverustundir. Þegar við hjónin gistum í Jör- undarholtinu með börnin okkar lítil og við vorum oft þreytt eftir vinnuvikuna þá sást þú alltaf til þess að við hvíldumst vel og þá höfðuð þið pabbi ofan af fyrir börnunum svo að við gætum hvílst. Það var einnig dásamlegt að vera hjá þér þegar ég var nýbúin að eignast börnin mín. Þú varst fróð, víðlesin og með stálminni. Sérstaklega varst þú sterk í sögu og öllum ártölum. Mundir alla afmælisdaga, brúð- kaupsafmæli o.s.frv. Þú elskaðir að horfa á spurningakeppnir og varst alltaf með svörin á hreinu áður en svarið kom hjá keppend- um. Þú áttir yndislega vini og sam- ferðafólk sem stóð þétt við bakið á þér og ræktuðu þig til dauða- dags. Nú ert þú laus við alla verki og Jón bróðir og allir ættingjarnir og vinir að handan búnir að taka vel á móti þér. Þú ert ein falleg- asta vera sem ég hef kynnst og þú skilur eftir þig dýrmætar minningar sem við munum varð- veita. Ég trúi því að við munum hittast öll saman að lokum. Við hugsum vel um pabba og hvert annað. Hvíl í friði, elsku mamma, og takk fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig og fjölskyldu mína. Þín dóttir, Ingibjörg Steinunn Ingjaldsdóttir. Það fyrsta sem ég man eftir Ingibjörgu Jónu var í anddyri Brekkubæjarskóla, þar var hún kennari og ég nemandi. Sá háttur var hafður á í grunnskóla á þess- um tímum að börn voru send í frí- mínútur í öllum veðrum. Skipti þá engu hvernig veður var, út fór- um við. Ef veður voru válynd fengum við fyrir náð og miskunn að híma í anddyri skólans. Fyrsta minning mín af Ingu Jónu var einmitt þarna í anddyrinu, bjall- an hafði hringt og Inga og sam- kennari hennar komu til að hleypa okkur inn. Ég hafði lært af eldri bræðrum mínum hvernig best er að halda aftur hurð sem virkaði vel því hvorki Inga né samkennari hennar gátu opnað dyrnar. Ekki reiddist Inga þessu, það gerði samkennarinn hins vegar og þegar ég sleppti hurð- inni hljóp ég umsvifalaust inn og gerði köll að hárafari hans. Inga rifjaði þetta oft upp með lát- bragði og höfðum við alltaf jafn gaman af. Síðan liðu mörg ár og aftur lá leið saman þegar ég kynntist Sól- borgu dóttur hennar. Nokkur aldursmunur er á okkur og þótti mér því líklegra að foreldrar hennar væru þessu ekki sam- þykk. Hafði ég af þessu nokkrar áhyggjur og átti því allt eins von á því að fyrsti fundur yrði erfiður. Eftir nokkurra mánaða tilhugalíf rann stundin upp. Þetta var á sunnudagseftirmiðdegi, við Sól- borg sátum í stofunni þegar hjón- in komu heim. Ingjaldur settist í stól fyrir framan mig, Inga gekk inn í eldhús og fannst mér sem þau væru undirbúin. Sólborg fór frá og þarna sat ég eftir með Ingjald fyrir framan mig. Hann spurði ákveðið og æft hvað ég ætlaði mér með dóttur þeirra, hver væru mín framtíðaplön og annað í þeim dúr. Ég svaraði öllu eins vel og ég gat og af fullri ein- lægni. Meðan á þessu stóð leit Inga af og til fram hvössum aug- um manni sínum til hvatningar og þá sérstaklega ákveðið þegar mér hafði tekist að ná honum í að tala um hesta. Fannst mér þarna sem henni væri lítið um ráðahag- inn en það verð ég að segja þetta var í fyrsta og eina sinn sem ég fann þá tilfinningu. Allar stundir síðan og allt fram á seinasta dag fann ég ekkert nema elsku hennar. Glæsileg, hjartgóð og örlát kona sem sá alltaf það besta í öll- um. Inga hvatti mig til náms, tók mig inn á heimili sitt eins og væri ég eitt barna hennar, hvatti, studdi og gladdist þegar áföngum var náð. Fyrir það allt og vináttu hennar er ég óendanlega þakk- látur og vona að mér takist ein- hvern tímann á lífsleiðinni að til- einka mér þá eiginleika sem hún hafði. Hvíl í friði, mín elskulega tengdamóðir. Einar Geir Hreinsson. Elskuleg tengdamóðir mín er látin eftir erfið veikindi. Mikið þótti mér vænt um þig og mikið lærði ég af þér. Ég var heppinn með tengdaforeldra. Þegar ég kom inn á ríkmannlegt heimili ykkar 1989 tóku á móti mér stór- ar myndir forfeðra ykkar sem þið voruð stolt af. Ég skynjaði strax mikinn metnað og dugnað sem ég hreifst af og fór vel saman við mín lífsgildi. Fjölskyldan var mið- punkturinn í öllu ykkar lífi og þið voruð frábærar fyrirmyndir í öllu. Þegar við hjónin vorum að stofna fyrirtækið okkar í ársbyrj- un 1992 sagðist ég vilja tengja nafn fyrirtækisins við prentun, hraða og persónulega þjónustu. Snillingurinn tengdamóðir mín var ekki lengi að koma með nafn- ið Prentmet. Inga Jóna var atburðagreind og elskaði spurningaleiki og þrautir. Mikið þótti mér vænt um allar ykkar hefðir sem gerðu heimili ykkar að fyrirmyndar- heimili. Alltaf var mikil eftir- vænting að koma til ykkar á laug- ardagskvöldum og borða dásamlegan mat og eiga gott spjall þar sem mikið var rætt um það sem bar helst á góma hverju sinni. Tengdaforeldrar mínir eru einstakt fólk sem setur fjölskyld- una alltaf í fyrsta sæti. Mikið get- um við yngra fólkið lært af ykkur. Ég man þegar ég kom í fyrstu skiptin í mat til ykkar. Ég hafði kynnst dóttur ykkar í Háskólan- um á Bifröst haustið 1989 og var valinn matmaður skólans (borð- aði mest að mati kokksins). Þú bauðst mér eftirrétt eftir aðalrétt en þá var ég búinn með tvo diska af aðalrétti og sagði að sjálfsögðu já takk. Að loknum eftirrétti bauðstu mér banana sem ég þáði. Að því loknu kom stór bjór og Prins Póló o.s.frv. Það var ekki erfitt að elska svona tengdamóður sem elskaði að gefa af sér. Alltaf varstu að hrósa öðrum og fékk eiginmaður þinn og fjölskylda góðan skammt af hrósi. Þið voruð fyrirmyndar- hjón sem við hin yngri höfum sem frábærar fyrirmyndir. Fjölskyld- an er stór og stolt af ykkur hjón- um. Við munum rækta fjölskyld- una eins og þú hefðir viljað. Blessuð sé minning þín, mín frábæra tengdamóðir, sem kenndir mér svo mikið, ég mun aldrei gleyma þér. Þinn tengdasonur, Guðmundur Ragnar Guðmundsson. Í dag er sunnudagurinn 3. júní og þrír dagar í afmælið mitt og jarðarför ömmu. Ég fletti upp gömlum myndaalbúmum með myndum af okkur og hugsa um þær hlýju og góðu minningar sem við áttum með þakklæti í hjarta. Það er svakalega erfitt að skrifa stutt um þessa einstöku konu sem var mér ávallt svo kær og góð. Ef ég fengi að ráða þá væri þetta á lengd við Biblíu þar sem ég get endalaust sagt eitthvað fallegt um hana og minningar okkar. Amma Inga Jóna var ynd- islegasta kona sem ég þekkti. Hún var alltaf góð við alla og lýsti alla staði og hjörtu sem hún hitti. Mér leið hvergi betur en í kring- um hana og afa. Hún var mín besta vinkona og betri trúnaðar- vin var ekki hægt að hugsa sér. Ég var alltaf mjög tengd henni og hringdi í hana daglega og stund- um oft á dag. Hún og afi voru fal- legustu hjón sem ég þekki að inn- an sem utan og betri fyrirmyndir var vart hægt að finna. Þau rifust aldrei og elskuðu hvort annað og fjölskylduna meira en allt. Ég heimsótti þau eins oft og ég gat og fór ég nánast til þeirra um hverja helgi þegar þau bjuggu á Akranesi en þetta var besti tími vikunnar. Ég og amma vorum lík- ar á margan hátt. Við vorum báð- ar með stálminni, fjölskyldan var okkur allt, elskuðum að hjálpa fólki, hlusta á sögur og ræða um ættfræði daginn inn og út og margt fleira. Hún var alltaf að hrósa öllum og fann alltaf það besta í fólki. Takk, elsku amma, fyrir allt. Elska þig meira en orð fá lýst og mun ávallt gera. Veit að þú vakir yfir mér og munt alltaf gera. Mun reyna að gera þig stolta af mér svo lengi sem ég lifi. Þú verður ávallt númer eitt hjá mér. Hvíldu í friði, fallegi engillinn minn. Inga Björk Guðmundsdóttir. Elsku amma. Orð fá því ekki lýst hve mikið ég elska þig. Á hverju kvöldi hugsa ég til þín og heyri ljúfu rödd þína spjalla við mig. Nærvera þín var mér ómetanleg. Þú varst alltaf ástúð- leg, hlý og uppbyggjandi við mig alla tíð. Lést alla í kringum þig varða og settir fólkið þitt í fyrsta sæti. Þú varst rík kona, fjölskylda þín og vinir voru þér kærust. Þú ræktaðir sambönd þín við ástvini þína af alhug sem ég kann mikils að meta. Þú og afi voruð ávallt með opin faðm uppi á Skaga í Jör- undarholti sem var mitt annað heimili í barnæsku. Þú kunnir að gleðja okkur frændsystkinin, hvert og eitt okkar. Varst búin að kaupa uppáhaldsmatinn okkar þegar þú áttir von á okkur, þjón- aðir okkur og matreiddir líkt og við værum kóngafólk í höllinni þinni. Gerðir allt fyrir okkur og meira en það. Við vorum gim- steinarnir þínir og þú okkar, ég þakka Guði fyrir allar stundirnar sem við áttum. Þú ert sú sem mótaði mig hvað mest sem manneskju. Kenndir mér fyrst og fremst að vera hlý og góð við náungann. Gast alltaf séð það besta í fólki og lýstir upp allt í kringum þig með gleði, húm- or og ást. Þú gerðir þennan heim að betri stað. „Þín velferð – mín velferð,“ sagðir þú alltaf. Hvattir mig til dáða við hvert einasta tækifæri sem gafst. Engin hafði jafn mikla trú á mér og þú. Þú munt ávallt vera stór hluti af mér og lifa innra með mér um ókomna tíð. Ég mun alltaf finna fyrir stuðningi þínum og stolti þegar á reynir í lífi mínu. Þú ert mín fyrirmynd og drif- kraftur, verður alla tíð. Nú kveð ég þig, elsku amma, og græt þig svo sárt. Þú varst engillinn okkar hér á jörðu og nú ertu engill meðal Guðs. Ég trúi að nú sért þú á betri stað með syni þínum og systur. Einn daginn hittumst við aftur. Gullið mitt og gimsteinn, hvíldu í friði. Þín nafna, Ingibjörg Rut Einarsdóttir. Ingibjörg Jóna Jónsdóttir  Fleiri minningargreinar um Ingibjörgu Jóna Jóns- dóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Ástkær eiginkona, móðir okkar, tengdamóðir og amma, RAGNHEIÐUR STEPHENSEN, hjúkrunarforstjóri, lést á Hrafnistu föstudaginn 1. júní. Jóhann Hjálmarsson Þorri Jóhannsson Dalla Jóhannsdóttir Kjartan Pierre Emilsson Jóra Jóhannsdóttir Kristjón Freyr Sveinsson barnabörn og barnabarnabarn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, ERLA BERNHARÐSDÓTTIR frá Ærlækjarseli í Öxarfirði, lést fimmtudaginn 31. maí. Útför hennar fer fram frá Skinnastaðarkirkju föstudaginn 8. júní klukkan 14. Jón Grímsson Guðný M. Guðnadóttir Helgi Valur Grímsson Jóna Kristín Einarsdóttir Arnþór Grímsson Heiðrún Pétursdóttir Grímur Örn Grímsson Stefán Haukur Grímsson Sigríður Benediktsdóttir Bernharð Grímsson Eyrún Egilsdóttir og fjölskyldur þeirra

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.