Morgunblaðið - 06.06.2018, Side 36

Morgunblaðið - 06.06.2018, Side 36
Færeyski landsliðsmaðurinn Kaj Leo i Bartalsstovu, leikmaður ÍBV, er efst- ur í einkunnagjöf Morgunblaðsins eftir sjö umferðir í Pepsi-deild karla í knattspyrnu. Hann hefur fengið M í hverjum einasta leik ÍBV til þessa. Hallgrímur Mar Steingrímsson úr KA er meðal þeirra sem komast næstir Færeyingnum en rætt er við Hallgrím í blaðinu í dag. »2 og 3 Eyjamaður skarar fram úr í M-gjöfinni MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 157. DAGUR ÁRSINS 2018 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR. 1. Óska eftir vitnum að árekstrinum 2. Fjórir á gjörgæslu alvarlega ... 3. Kostar of mikla peninga að ... 4. Banaslys á Vesturlandsvegi »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Sýningin Bókverk verður opnuð í Safnhúsinu í dag kl. 15.30 og er hún á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík. Á henni eru dregin fram áhugaverð dæmi um skapandi prentverk, bók- band og tilraunir með form bókar- innar úr safneign Landsbókasafns Ís- lands – Háskólabókasafns, eins og segir á vef hátíðarinnar, og leitað er fanga allt aftur til loka 19. aldar og verkin sett í samhengi við bókagerð listafólks fram til dagsins í dag. Á meðan á hátíðinni stendur verð- ur sérsýning á bókverki Eyglóar Harðardóttur, „Sculpture“ frá árinu 2016, og verður frumgerð verksins sýnd í Lestrarsal Safnahússins. Sýningin er sett er upp í tilefni af 200 ára afmæli Landsbókasafnsins en innan safnsins er nú aukin áhersla á sérstöðu bókverka í safn- kosti, að því er fram kemur á hátíð- arvefnum. Sýningarstjórar eru Unnar Örn Auðarson og Ólafur J. Engilbertsson. Prentverk, bókband og tilraunir með form  Opnunartónleikar sumardagskrár Jazzklúbbsins Múlans fara fram í kvöld kl. 21 á Björtuloftum í Hörpu. Á þeim kemur fram hljómsveit undir stjórn saxófónleikarans Garðars Eðvaldssonar og leikur nýja frum- samda tónlist eftir Garðar sem hefur ver- ið í tónlistarnámi í Basel síðastliðin þrjú ár og lýkur BMus-gráðu í saxófónleik í sumar. Garðar og hljómsveit leika á Björtuloftum Á fimmtudag Suðvestan 3-8 m/s. Skýjað um landið vestanvert, en bjart með köflum í öðrum landshlutum. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast austanlands. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hæg S-læg eða breytileg átt. Skýjað og sums staðar þoka. Bjart með köflum á N- og A-landi, en líkur á þokumóðu við sjóinn. Hiti 8-20 stig, hlýjast í innsveitum NA-lands. VEÐUR Brynjar Þór Björnsson, átt- faldur Íslandsmeistari í körfubolta með KR, gæti verið á leið til liðsins sem tapaði fyrir KR í úrslitum Ís- landsmótsins í vor en vann KR í bikarúrslitaleiknum í vetur; Tindastóls. Þetta herma heimildir Morgun- blaðsins. KR er nú í leit að nýjum þjálfara eftir að Finn- ur Freyr Stefánsson til- kynnti að hann væri hættur með liðið. »1 og 2 Brynjar Þór á leið til Tindastóls? ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Erna Ýr Öldudóttir ernayr@mbl.is „Þetta er svona „della“ sem ég fékk. Ég er búinn að vera aðdáandi Meg- asar lengi, eða frá árunum 1975-76 þegar ég var á fermingaraldri að vinna í Hraðfrystihúsi Dýrafjarðar við að fletja og salta fisk,“ segir Gunnar Davíðsson í samtali við Morgunblaðið. Gunnar safnar verk- um Megasar og hefur nú í því skyni lýst sérstaklega eftir hljóðsnældum með honum í smáauglýsingu í Skessuhorni og á bland.is. „Mig vantar fjórar hljóðsnældur, en þær voru gefnar út samhliða hljómplötunum, síðasta með „Þrír blóðdropar“. Svo komu geisladisk- arnir, bæði upprunalegar og endur- útgáfur, og vínylplöturnar voru svo gefnar út saman í kassa. Megas seldi svokallaða bæklinga á götum Reykjavíkur á árunum 1968-73. Ég á frumútgáfurnar, allar nema eina, og endurútgáfurnar. Megas teiknaði og málaði myndir, sérstaklega eftir að hann var í Myndlistarskólanum. Í byrjun ferilsins teiknaði hann utan á fyrstadagsumslög,“ að sögn Gunn- ars, sem á fjögur af þeim og honum áskotnaðist nýlega teikning eftir Megas að auki. Sjaldgæft að finna á markaði „Myndir eftir Megas eru sjaldgæf- ar á markaði, fólk lætur þær ekki oft af hendi,“ segir Gunnar, sem kveðst þó setja tónlistarsöfnunina í forgang. Hann segist enn ekki hafa fengið mikil viðbrögð við auglýsing- unum. „Ég hef svipast um heima á Íslandi, en það er ekki mikið að finna, ekki einu sinni í Kolaportinu. Plöt- urnar eru tiltölu- lega algengari, nema fyrstu út- gáfur. Megas hefur gefið út textabækur og skáldsögur og hann skrifaði æskuminningarnar með Þór- unni Valdimarsdóttur. Sumir text- arnir eru torráðnir en skemmtilegir, tilvísanir í heimsbókmenntir og gert grín að okkur samtímis, t.d. sagan af Axlar-Birni sem er gömul íslensk glæpasaga. Í bæklingunum eru ljóð og söngtextar sem hafa jafnvel ekki komið út á plötum,“ segir Gunnar, sem kveður sig að auki vanta eitt tón- listarmyndband. Hann segir RÚV luma á talsverðu óútgefnu efni eftir Megas og það væri synd að gefa það ekki út. Aðspurður kveðst hann enn ekki hafa hitt átrúnaðargoðið, en Gunnar hefur búið í Noregi síðan 1983. „Ég vil nú ekkert vera að ónáða Megas, en það væri gaman að hitta hann einhvern tímann.“ Fékk ungur Megasardellu  Gunnar býr í Noregi og safnar verkum Megasar Ljósmynd/Gunnar Davíðsson Megasarsafnið Gunnar er vongóður um að sjaldgæfir gripir, aðallega hljóðsnældur og tónlistarmyndband, rati ein- hvern tímann í safnið. Á myndinni má sjá gamalt eintak af Vikunni sem inniheldur veglegt viðtal við listamanninn. Magnús Þór Jónsson, Megas, fæddist 7. apríl 1945, sonur skáldsins Þórunnar Elfu Magnúsdóttur og Jóns Þórðarsonar, kennara og rithöfundar. Megas ólst upp í Norðurmýrinni, gekk í Austurbæjarskóla og Menntaskólann í Reykja- vík. Magnús Þór samdi lagið um Gamla sorrí Grána fyrir fermingu og hreifst af Elvis Presley og Halldóri Laxness. Hann rakst á nafnið Megas í grískri orðabók í Háskóla Íslands og hefur notað það síðan hann reyndi að fá smásögu birta undir því nafni í Les- bók Morgunblaðsins. Sagan fékkst birt, þó undir skírnarnafni hans. Eftir Megas liggja 32 hljómplötur, textar, bækur og ljóð ásamt fjölda teikninga og málverka og hann er af ýmsum talinn þjóðskáld. Listamaður og þjóðskáld GAMLA SORRÍ GRÁNA SAMDI MEGAS FYRIR FERMINGU Megas á Iceland Airwaves 2017. „Ég held að leikurinn við Gana verði ágæt prófraun fyrir okkur vegna þess að langt er síðan við lékum við lands- lið frá Afríku síðast,“ segir Alfreð Finnbogason, landsliðsframherji í knattspyrnu. Ísland mætir Gana á Laugardalsvelli annað kvöld í síðasta leiknum fyrir HM. »1 Leikurinn við Gana ágæt prófraun fyrir HM

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.