Morgunblaðið - 04.07.2018, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2018
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Komið og skoðið úrvalið
KEBE
Hvíldarstólar
Tegundir: Rest og Fox
Opið virka dag
a
11-18
laugardaga
11-15
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Arnar Þór Ingólfsson
Þorgrímur Kári Snævarr
Ástandið á fæðingardeild Landspít-
alans er alvarlegt að mati Ölmu Möll-
er landlæknis. Uppsagnir tólf ljós-
mæðra tóku gildi á laugardaginn.
Reynt er að flýta útskrift mæðra og
nýbura og ljósmæður starfandi ann-
ars staðar á spítalanum hafi verið
beðnar að hlaupa í skarðið á fæðing-
ardeildinni. Rólegt hefur verið á
deildinni frá því að uppsagnirnar
tóku gildi en staðan er þó þannig að
ekkert má út af bregða.
Samningsumboð hjá nefnd
Alma var meðal þeirra sem sóttu
fund velferðarnefndar Alþingis í
gærmorgun til að ræða stöðuna sem
komin er upp vegna uppsagnanna.
Segir hún að hún og aðrir fulltrúar
Landspítala komi ekki að samninga-
gerð við ljósmæður heldur hafi þetta
fyrst og fremst verið upplýsinga-
fundur. Á fundinum sagði Svandís
Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra að
mönnun á meðgöngu- og sængur-
legudeildum væri afar lítil og að spít-
alarnir mættu ekki við neinu viðbót-
arálagi. Þó sagðist hún sem
heilbrigðisráðherra ekki geta gert
margt til að leysa deiluna þar sem
samningsumboðið lægi hjá samn-
inganefnd ríkisins.
Í samtali við mbl.is í gærkvöldi
lagði Bjarni Benediktsson fjármála-
ráðherra áherslu á að laun ljósmæðra
hefðu undanfarin ár hækkað með
sambærilegum hætti og laun annarra
BHM-félaga. Jafnframt hefðu ljós-
mæður fengið sérstaka launahækkun
árið 2008. Ummæli Bjarna voru í
samræmi við skýrslu sem fjármála-
ráðuneytið birti í gær á heimasíðu
sinni. Bjarni vísaði á bug gagnrýni á
hækkanir sem gerðar hefðu verið á
hans eigin launum sem alþingis-
manns þar sem laun launþega kjara-
ráðs hefðu hækkað með sambæri-
legum hætti og laun annarra
launahópa.
„Allir líta á sig sem sérstaka“
„Mér þykir slæmt að vita til þess að
þetta ástand veldur mörgum kvíða og
áhyggjum,“ sagði Bjarni en bætti við
að heilbrigðiskerfið væri með neyðar-
áætlun sem nú væri verið að fylgja eft-
ir og ætti að tryggja að fæðingar gætu
farið fram við eðlilegar aðstæður.
Bjarni sagðist ekki geta svarað því
hve mikið væri ásættanlegt að hækka
laun ljósmæðra. Aðeins væri hægt að
miða við kjarabætur á borð við aðra
launahópa nema sérstök réttlæting
væri fyrir öðru. „Það er saga hins ís-
lenska samningamódels að allir líti á
sig sem sérstaka og að þeir eigi að
hækka meira en aðrir. Þannig höfum
við farið í gegnum hverja kjaralotuna
á eftir annarri í gegnum tíðina og
endað úti í skurði.“
Mega ekki við viðbótarálagi
Morgunblaðið/Ásdís
Alvarleg staða Vegna uppsagna er nú lítil mönnun á fæðingardeildum.
Landlæknir og heilbrigðisráðherra segja ástandið alvarlegt á fæðingardeildum vegna uppsagna
ljósmæðra Fjármálaráðherra segir kjör ljósmæðra hafa þróast í samræmi við aðra launahópa
Kjaradeila ljósmæðra
» Uppsagnir 12 ljósmæðra tóku
gildi á laugardag.
» Yfirvinnubann ljósmæðra
mun taka gildi um miðjan júlí.
» Heilbrigðisstofnanir í ná-
grenni Reykjavíkur geta lítið
lagt hönd á plóg til að veita
aukna þjónustu í höfuðborginni.
» Mönnunin er lítil á fæðingar-
deildum og spítalar mega ekki
við viðbótarálagi að sögn heil-
brigðisráðherra.
Síminn hf. braut gegn ákvæði fjöl-
miðlalaga sem leggur bann við því að
fjölmiðlaveita beini viðskiptum við-
skiptamanna sinna að tengdu fjar-
skiptafyrirtæki. Þetta kemur fram í
ákvörðun Póst- og fjarskiptastofn-
unar sem birtist á vef hennar í gær.
Sýn hf., sem er í eigu Vodafone, og
Gagnaveita Reykjavíkur ehf. höfðu
kvartað til PFS eftir að Síminn
stöðvaði flutning ólínulegs myndefn-
is Sjónvarps Símans yfir kerfi Voda-
fone frá 1. október 2015. Viðskipta-
vinir Símans gátu því einungis notað
myndlykla og IPTV-dreifikerfi Sím-
ans, sem er á neti Mílu, dótturfélags
Símans, til að sækja slíkt efni.
PFS hefur lagt níu milljóna kr.
stjórnvaldssekt á Símann sem greið-
ist í ríkissjóð, en hámarkssektar-
heimild er tíu milljónir. Síminn og
Míla mótmæltu ákvörðuninni, og
kærðu til úrskurðarnefndar, sem
staðfesti ákvörðunina.
Í tilkynningu frá Sýn ehf. segir
m.a. að niðurstaðan sé sigur neyt-
enda þar sem PFS taki skýrt fram að
Símanum beri að gæta jafnræðis
gagnvart öðrum dreifileiðum sjón-
varps. Ákvörðunin bendi til að Sím-
inn hafi með athæfinu misnotað
markaðsráðandi stöðu sína. Sýn ehf.
vilji láta kanna réttarstöðu sína í
framhaldinu. ernayr@mbl.is
Síminn hf. sektaður um níu
milljónir vegna lögbrots
Stöðvuðu flutning ólínulegs myndefnis yfir kerfi Vodafone
Morgunblaðið/Eggert
Síminn Braut lög með því að gæta
ekki jafnræðis í dreifingu myndefnis.
Drög að frumvarpi um afnám upp-
reistar æru hafa verið birt á
samradsgatt.island.is, sem ætluð er
til eflingar samráði stjórnvalda og al-
mennings, skv. vef Stjórnarráðsins.
Almenningur getur nú skoðað
drögin og sent inn umsögn um frum-
varpið í gegnum samráðsgáttina til
30. júlí nk. og eftir það verða allar
umsagnir gerðar opinberar.
Í drögunum er lagt til að horfið
verði frá því að stjórnvöld taki
ákvarðanir um uppreista æru, að
óflekkað mannorð verði ekki lengur
skilyrði fyrir að fá að gegna tiltekn-
um störfum eða fyrir kjörgengi til
sveitarstjórnar, en skilyrði fyrir að
öðlast lögmannsréttindi og ýmis störf
og embætti í réttarvörslukerfinu
verði gerð strangari.
Sigríður Á. Andersen dómsmála-
ráðherra segist í svari til blaðamanns
bæði hafa viljað afnema úr lögum
heimild til veitingar uppreistar æru
en um leið tryggja að þeir sem hafa
afplánað refsidóma geti snúið aftur til
sinna starfa.
Leitað um-
sagna um
uppreist æru
Frumvarpsdrögin
á samráðsgátt
Næsta víst er að ekki er leiðinlegt
að vera þar sem kettlingar eru að
leik, en þessir tveir, sem gætu allt
eins heitið Snúður og Snælda, hitt-
ust á Hraðastöðum í Mosfellsdal í
gær.
Eitthvað spennandi fangaði at-
hygli þeirra í stutta stund og náðu
þeir að festast á filmu rétt á meðan.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Snúður og Snælda á meðan allt lék í lyndi
Tvö skip fengu þokkalegasta kol-
munnaafla í Rósagarðinum út af
Suðausturlandi á mánudaginn. „Við
ætlum að láta á það reyna hvort
eitthvert framhald verður á veið-
inni,“ er haft eftir Albert Sveins-
syni, skipstjóra á Víkingi AK, á
vefsíðu HB Granda í gærkvöldi.
Víkingur hefur verið að kol-
munnaveiðum austarlega í Síldar-
smugunni auk Venusar NS síðustu
daga en Venus er nú á leið til
Vopnafjarðar með tæplega 1.000
tonna afla.
,,Það hefur verið rólegt yfir veið-
unum hjá okkur. Í gær vorum við
með 150 tonn eftir langt hol og
heildaraflinn hjá okkur er um 870
tonn í sex holum. Það var hins veg-
ar líflegra hjá Berki NK og Bjarna
Ólafssyni AK í Rósagarðinum í
gær og ég hef heyrt að aflinn hafi
farið upp í 330 tonn eftir daginn,“
sagði Albert. en auk þessara
tveggja skipa er nú Margrét EA
komin á svæðið.
Makrílveiðar fara að hefjast og
urðu skipverjar varir við makríl í
kantinum á Stokksnesgrunni.
Ágætur kol-
munnaafli
Venus á leið til
lands með 1.000 tonn