Morgunblaðið - 04.07.2018, Qupperneq 27
félags Borgfirðinga 1999-2004, var
sölu- og markaðsstjóri Kjötvara og
Stjörnusalats í Borgarnesi 2004-2006,
framkvæmdastjóri kjördæmaráðs
Sjálfstæðisflokksins í NV-kjördæmi
2006-2007 og hefur verið fram-
kvæmdastjóri Brákarhlíðar, hjúkr-
unar- og dvalarheimilis í Borgarnesi,
frá 2007.
Bjarki sat í stjórn FSÍÖ, Félag
stjórnenda í öldrunarþjónustu 2008-
2013, situr í stjórn SFV, Samtaka fyr-
irtækja í velferðarþjónustu, frá 2013
og er nú varaformaður samtakanna
frá 2015, sat í samninganefnd SFV
vegna gerðar rammasamnings á milli
hjúkrunarheimila og ríkisins 2015-
2017 og situr í nefnd sem sér um
eftirfylgni þess samnings í samstarfi
við Sjúkratryggingar Íslands.
Bjarki sat í sveitarstjórn Borgar-
byggðar frá 2002 þangað til í júní
2018. Hann var varaformaður
fræðslunefndar 2002-2006, forseti
sveitarstjórnar 2006-2010 og 2014-
2018, var formaður fræðslunefndar
2010-2014, formaður byggðarráðs
2010-2014, sat í stjórn samtaka sveit-
arfélaga á Vesturlandi 2010-2016 og
áheyrnarfulltrúi í stjórn Orkuveitu
Reykjavíkur 2007-2009, 2010-2012 og
2014-2018.
Bjarki var varaformaður Ung-
mennasambands Borgarfjarðar 2000-
2002, sat í stjórn körfuknattleiks-
deildar Skallagríms frá 2009, var for-
maður deildarinnar 2010-2012 og
2016-2018 og situr nú í mótanefnd
Körfuknattleikssambands Íslands.
Hann hefur hlotið silfurmerki KKÍ.
Bjarki sat í stjórn Háskólans á Bif-
röst 2011-2016 og var stjórnar-
formaður 2015-2016 og var formaður
Vinnumarkaðsráð Vesturlands, til-
nefndur af félagsmálaráðherra 2012-
2015.
Bjarki er forseti veiðifélagsins
Daníels á Hólnum. Hann var annar af
forystusauðum Sauðamessu í Borgar-
nesi, í félagi við Gísla Einarsson,
fyrstu níu ár þeirrar hátíðar, en þeir
hættu sökum leti og gott fólk tók við
keflinu fyrir fjórum árum.
„Ég er svo sem enginn dellukarl
þegar kemur að áhugamálum. Ég hef
gætt þess að hreyfa mig, hef haft
áhuga á útivist og íþróttum alla tíð og
er gallharður stuðningsmaður Skalla-
gríms og ekki síður stórliðsins í Man-
chester-borg í Englandi, Manchester
City hefur verið og er mitt lið undan-
farna áratugi. Svo skipar fjölskyldan
auðvitað stóran sess og ekki síst nú á
tímum barnabörnin mín tvö.
Fjölskylda
Eiginkona Bjarka er Guðrún Ólafs-
dóttir, f. 2.3. 1969, skrifstofumaður
hjá Stéttarfélagi Vesturlands. For-
eldrar hennar eru Ólafur Axelsson, f.
31.7. 1944, húsasmíðameistari, og Jó-
hanna Þórðardóttir, f. 29.5.1946, hús-
freyja. Þau búa í Borgarnesi.
Börn Bjarka og Guðrúnar eru 1)
Jóhanna Marín Björnsdóttir, f. 28.11.
1992, BS í íþrótta- og heilsufræði og
nemi í hjúkrunarfræði, búsett í Borg-
arnesi en maður hennar er Viktor
Már Jónasson og eru börn þeirra
Hlynur Mikael Viktorsson, f. 2015, og
Sonja Björk Viktorsdóttir, f. 2016; 2)
Ólafur Axel Björnsson, f. 26.2. 1996,
nemi í hestafræðum við Háskólann á
Hólum, búsettur í Borgarnesi en unn-
usta hans er Gyða Helgadóttir nemi;
3) Andri Steinn Björnsson, f. 22.1.
2004, nemi í Grunnskólanum í Borg-
arnesi, og 4) Aron Ingi Björnsson, f.
22.1. 2004, nemi í Grunnskólanum í
Borgarnesi.
Systkini Bjarka eru Ingólfur Krist-
inn Þorsteinsson, f. 7.10. 1956, prent-
smiður í Reykjavík; Helga Björk Þor-
steinsdóttir, f. 15.7. 1961, leikskóla-
kennari í Borgarnesi, og Valur Rúnar
Þorsteinsson, f. 16.5. 1973, hönnuður í
Reykjavík.
Foreldrar Bjarka: Hjónin Inga
Ingólfsdóttir, f. 10.1. 1932, verslunar-
maður og fyrrv. umsjónarmaður
Skallagrímsgarðs, og Þorsteinn
Valdimarsson, f. 12.6. 1929, d. 11.11.
2001, bílstjóri hjá Norðurleið og KB í
Borgarnesi, síðan skrifstofumaður og
kjötmatsmaður hjá Sláturhúsi KB í
Borgarnesi
Björn Bjarki
Þorsteinsson
Dagmar Jónasdóttir
húsfr. í Laxárdal
Sigurjón Guðmundsson
b. í Laxárdal
Anna Sigurjónsdóttir
húsfr. í Gilhaga og ráðsk. á Borðeyri
Ingólfur Kristinn Jónsson
b. í Gilhaga í Hrútafirði
Inga Ingólfsdóttir
húsfr. og verkak. í Borgarnesi
Sigríður Kristbjörg Kristjánsdóttir
húsfr. á Valdasteinsstöðum í Hrútafirði
Jón Jónsson
b. á Valdasteinsstöðum
Arnar Guðmundsson
ritari Samfylkingar
Svavar Gests-
son fv. alþm.,
ráðherra og
sendiherra
Guðný Dóra Gestsdóttir
forstöðum. á Gljúfrasteini
Guðrún
Valdimars-
dóttir húsfr. í
Rvík, á Grund
og húsfr.
og verkak. í
Hafnarfirði
Anna Inga Grímsdóttir
forstöðum. hjá Valitor
Sveinn Kjartan
Gestsson b. á
Staðarfelli
Kristjana Halla Ingólfs-
dóttir húsfr. á Kirkjubóli
Svandís
Svavars-
dóttir
alþm. og
heilbrigðis-
ráðherra
Áslaug Helgadóttir aðstoðarrektor Land-
búnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri Helgi J. Halldórsson cand. mag..
Guðbjörg Valdimars-
dóttir húsfr. í Kópavogi
Guðný Þorsteinsdóttir
húsfr. á Kjalvararstöðum
í Reykholtsdal
Halldór Þórðarson
b. á Kjalvararstöðum í Reykholtsdal
Helga Ingibjörg Halldórsdóttir
húsfr. á Guðnabakka og Hömrum
Valdimar Davíðsson
b. á Guðnabakka í Stafholtstungum og Hömrum
Guðbjörg Stefánsdóttir
vinnuk. á Hjarðarholti og víðar í Stafholtstungum
Davíð Jakobsson
sjóm. og vinnum.,
víða í Borgarfirði
Úr frændgarði Björns Bjarka Þorsteinssonar
Þorsteinn Valdimarsson
kjötmatsm. og bílstj. í Borgarnesi
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2018
Jónmundur Júlíus Halldórssonfæddist á Viggbelgsstöðum íInnri-Akraneshreppi 4.7.
1874. Foreldrar hans voru Halldór
Jónsson húsmaður þar og í Hólms-
búð, síðast múrari í Reykjavík, og
Sesselja Gísladóttir húsfreyja.
Halldór var sonur Jóns Halldórs-
sonar, bónda á Eystra-Reyni og á
Króki á Akranesi, og k.h., Þuríður
Bjarnadóttir, en Sesselja var dóttir
Gísla Jóhannessonar, bónda í Bæ í
Miðdal og á Leysingjastöðum í
Hvammssveit, og k.h., Guðfinnu Sig-
urðardóttur.
Kona Jónmundar var Guðrún hús-
freyja, dóttir Jóns Guðmundssonar,
bónda á Valdastöðum og í Eyrar-
Uppkoti í Kjós, og Guðrúnar Korts-
dóttur, forföður Möðruvallaættar
Þorvarðarsonar.
Börn Jónmundar og Guðrúnar
sem upp komust voru Guðmundur
loftskeytamaður í Reykjavík; Sess-
elja, búsett á Stað í Grunnvík; Guð-
rún, hjúkrunarkona í Danmörku, og
Halldór, búfræðingur, kennari og
yfirlögregluþjónn á Ísafirði.
Jónmundur lauk stúdentsprófi frá
Lærða skólanum 1896 og guðfræði-
prófi frá Prestaskólanum árið 1900.
Hann var aðstoðarprestur í Ólafsvík
um skeið, fékk Barð í Fljótum 1903,
Mjóafjarðarprestakall 1915, bjó þá í
Þinghól í Brekkuþorpi, fékk lausn
ári síðar en bjó þar áfram og réri til
fiskjar á sumrin en var þingskrifari
á Alþingi á vetrum.
Jónmundur varð sóknarprestur á
Stað í Grunnavík 1918-54. Hann
gekkst fyrir stofnun Kaupfélags
Fljótamanna, sat þar í hreppsnefnd
og var oddviti um skeið, var sýslu-
nefndarmaður í Skagafirði 1908-15,
oddviti Grunnavíkurhrepps og sat í
sýslunefnd Norður-Ísafjarðarsýslu
1921-54, kenndi ungmennum og var
virkur í ungmennafélagsstarfi og
sundkennslu Grunnvíkinga.
Vestfirðingar kunna ógrynni
skemmtisagna af séra Jónmundi,
enda maðurinn góðmenni, rammur
af afli, sérlundaður og orðheppinn.
Séra Jónmundur lést 9.7. 1954.
Merkir Íslendingar
Jónmundur J.
Halldórsson
90 ára
Alda Björnsdóttir
Anna G. Eggertsdóttir
Gunnar Konráðsson
85 ára
Elín Þórðardóttir
80 ára
Gunnar Þór Magnússon
Helgi Erling Daníelsson
Hreinn Guðbjartsson
Jóel Þorbjarnarson
Sigríður Stephensen
Pálsdóttir
Þuríður H. Kristjánsdóttir
75 ára
Ellen Ida G. Haakansson
Margrét I. Hansen
Selma Friðfinnsdóttir
Sigríður V. Jónsdóttir
Sigrún Ósk Bjarnadóttir
70 ára
Anna Edda Ásgeirsdóttir
Anna Marý Jónsdóttir
Grétar Guðmundsson
Gunnar Karlsson
Ingibjörg Jónsdóttir
Jóhann Jensson
Jóna Lúðvíksdóttir
Sigþór Pétur Svavarsson
60 ára
Gaudencio T. Balneg
Guðmundur Björgvinsson
Gunnþór Árnason
Hallgrímur Harðarson
Rannveig E. Bjarnadóttir
Skapti Valsson
Vija Skromane
Wladyslaw Ladny
50 ára
Arnar Olsen Richardsson
Björn Bjarki Þorsteinsson
Friðrik Bergmannsson
Geir Gjöveraa
Gunnar Guðjónsson
Hálfdán Theódórsson
Hjörleifur M. Hjartarson
Indlaug Cassidy
Vilmundardóttir
Kári Gunnarsson
Kerstin Geiger
Kristjana E. Jónsdóttir
Valdimar K. Sigurðsson
Þóra Kristín Jónasdóttir
40 ára
Adam Modzelewski
Ásdís Hallgrímsdóttir
Dagur Th. Vattnes Jónsson
Hafsteinn Már Andersen
Heiðrún Kjartansdóttir
Hjördís Berglind Zebitz
Hrefna Sigurjónsdóttir
Jenný Arnardóttir
Kittý Guðmundsdóttir
Kristján B. Heiðarsson
Sigríður Elfa Eyjólfsdóttir
30 ára
Antanas Bacevicius
Artur Krzysztof Maziarz
Eimantas Stukas
Haukur Guðmundsson
Helen Valdís Sigurðardóttir
Herdís Haraldsdóttir
Hrafnkell Ari Yngvason
Jenný Magnúsdóttir
Karen Bergljót Knútsdóttir
Logi Árnason
Markús Svansson
Ólöf Helgadóttir
Pétur Torfi Guðmundsson
Radoslaw G. Kapanke
Sigríður Sunna Atladóttir
Sigrún Ása Arngrímsdóttir
Sonja Guðlaugsdóttir
Sunna Sigmarsdóttir
Tinna Holt Victorsdóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Tinna lauk stúd-
entsprófi og prófi í ljós-
myndun og starfar hjá
Glerauganu.
Maki: Guðmundur Orri
Arnarsson, f. 1983, húsa-
smiður.
Stjúpdóttir: Elínborg
Petra, f. 2012.
Foreldrar: Ólöf Guðrún
Þórðardóttir, f .1970, og
Victor Kristinn Gíslason, f.
1966. Uppeldisfaðir: Ólaf-
ur Gestur Rafnsson, f.
1970.
Tinna Holt
Victorsdóttir
30 ára Karen ólst upp í
Reykjavík, býr þar, lauk
prófi frá Hússtjórnarskól-
anum á Hallormsstað,
prófi í ferðamálafræði og
er förðunarfræðingur.
Maki: Valentin Oliver
Loftsson, f. 1994, hug-
búnaðarverkfræðingur
hjá Advania.
Sonur: Atlas Ari, f. 2018.
Foreldrar: Knútur Steinar
Eðvarðsson, f. 1970, d.
2000, og Ellen Guð-
mundsdóttir, f. 1971.
Karen Bergljót
Knútsdóttir
30 ára Herdís ólst upp í
Kjósinni, býr á Akureyri,
lauk BA-prófi í félags-
vísindum frá HA og starf-
ar við leikskólanum Trölla-
borgir.
Maki: Rögnvaldur Már
Helgason, f. 1988, verk-
efnastjóri á Markaðsstofu
Norðurlands.
Dóttir: Regína Diljá
Rögnvaldsdóttir, f. 2011.
Foreldrar: Guðrún Ingva-
dóttir, f. 1967, og Har-
aldur Magnússon, f. 1967.
Herdís
Haraldsdóttir
Z-brautir &
gluggatjöld
Opið mánud.-föstud. 10-18 Faxafeni 14 | 108 Reykjavík | S. 525 8200 | www.z.is |
Mælum, sérsmíðum og setjum upp
Úrval - gæði - þjónusta
Falleg gluggatjöld
fyrir falleg heimili