Morgunblaðið - 04.07.2018, Síða 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2018
Leið 52 ekur milli Reykjavíkur og Landeyjarhafnar þrisvar
sinnum á dag í sumar. Kynntu þér málið áwww.straeto.is
Skiljum bílinn eftir heima og förum
með Strætó á Goslokahátíð í Eyjum.
Teitur Gissurarson
teitur@mbl.is
Hin árlega Alþjóðlega tónlistar-
akademía í Hörpu hófst 27. júní síð-
astliðinn en síðan þá hafa um 70
nemendur frá sjö löndum notið
handleiðslu innlendra og erlendra
tónlistarkennara í fremstu röð. Lin
Wei Sigurgeirsson, stofnandi og
listrænn stjórnandi akademíunnar,
segir akademíuna hafa farið vel af
stað í ár en hún er nú haldin sjötta
árið í röð.
„Ég var einmitt að koma af æf-
ingu hjá strengjakvartettinum og
þau hljómuðu stórkostlega,“ segir
Wei en opnunartónleikar akademí-
unnar fara fram í kvöld klukkan 20.
Aldur nemenda
spannar tuttugu ár
„Þegar við [Sinfóníuhljómsveitin]
fluttum starfsemi okkar úr Há-
skólabíói yfir í Hörpuna varð ég
uppnumin af hrifningu vegna feg-
urðar Hörpu og aðstöðunnar fyrir
hljómsveitina. Ég hugsaði með
mér: „Þessu verður að deila á al-
þjóðlegum grundvelli“,“ segir Wei,
aðspurð hvers vegna hún hafi stofn-
að Tónlistarakademíuna í Hörpu.
Wei hefur verið meðlimur Sinfón-
íuhljómsveitar Íslands frá árinu
1988 en hún er fædd í Guangzhou í
Kína og hóf fiðlunám hjá föður sín-
um, prófessor Lin Yao Ji, sjö ára
að aldri. „Efnahagurinn í landinu
var líka slæmur á þessum tíma og
var það hluti af ástæðunni,“ segir
Wei, en Sinfóníuhljómsveit Íslands
fluttist inn í Hörpu árið 2011.
Wei segir að færri nemendur en
vildu hafi vegna efnahags getað
sótt sér tíma erlendis og því hafi
hún viljað færa kennarana til nem-
endanna. Aldur nemendanna við
akademíuna spannar rúmlega tutt-
ugu ár í ár en þeir yngstu eru átta
ára og sá elsti 29.
Fótboltinn hefur áhrif
„Við þurftum að færa hátíðina
vegna fótboltans,“ segir Wei en
vegna leikja Íslands á HM karla í
knattspyrnu var ákveðið að seinka
hátíðinni og er hún því í ár haldin
nokkrum vikum seinna en vana-
lega. Vegna seinkunarinnar taka í
ár örlítið færri nemendur þátt en
áður en Wei segist þó mjög ánægð
með þátttökuna í akademíunni.
„Við byrjuðum fyrst 35 en erum í
ár rúmlega 70,“ segir hún. Seink-
unin varð þó til þess að Eldborgar-
salur Hörpu stóð akademíunni til
boða fyrir tónleikahald og verða því
hátíðartónleikar akademíunnar
haldnir í Eldborg 14. júlí næstkom-
andi.
Til að fagna 100 ára fullveldi Ís-
lands verður tónverkið Eldur eftir
Jórunni Viðar flutt en Jórunn
fæddist árið 1918 og lést í fyrra.
„Verkið á sérstaklega vel við há-
tíðina því Jórunn samdi það sjálf
þegar hún var ung,“ segir Wei en
verkið samdi Jórunn við fyrsta ís-
lenska ballettinn. „Hún var einnig
fyrsta íslenska konan sem lauk
formlegu tónsmíðanámi,“ bætir hún
við.
Yngsti einleikarinn
frá upphafi
Bjarni Frímann Bjarnason, ný-
ráðinn tónlistarstjóri Íslensku óp-
erunnar og aðstoðarhljómsveit-
arstjóri Sinfóníuhljómsveitar
Íslands, mun sjá um hljómsveit-
arstjórn hátíðarhljómsveitarinnar
en tónleikunum mun ljúka með
Hetjusinfóníu Beethovens.
Kínverski fiðluleikarinn Ziyu He
mun leika með hljómsveitinni en
hann hlaut meðal annars fyrstu
verðlaun í hinni alþjóðlegu Menu-
hin-keppni þegar hann var aðeins
16 ára.
Þá mun ellefu ára gömul stúlka,
Ásta Dóra Finnsdóttir, leika á tón-
leikunum en hún er yngsti einleik-
arinn frá upphafi sem hefur komið
fram með hátíðarhljómsveit Aka-
demíunnar. Ásta Dóra hefur stund-
að nám við Suzuki Allegro-skólann
um árabil og hefur leikið og lært á
á píanó frá unga aldri.
Stífar æfingar í tæpa viku
„Sibbi æfir stíft með þeim í sex
til átta tíma á dag í fimm daga,“
segir Wei um strengjakvartettinn
sem leikur á áðurnefndum opn-
unartónleikum akademíunnar á
miðvikudag. Sigurbjörn Bernharðs-
son stýrir námskeiði í strengja-
kvartettleik en hann starfaði sem
fiðluleikari í Pacifica String-
kvartettnum í 17 ár og er prófessor
við Oberlin Conservatory í Ohio í
Bandaríkjunum. Á tónleikunum
verða leiknir þættir úr strengja-
kvartettum eftir Mozart, Sjostako-
vitsj, Schumann og fleiri en tónleik-
arnir verða haldnir í Norðurljósasal
Hörpu.
Varð að deila Hörpu með fleirum
Opnunartónleikar Tónlistarakademíunnar í Hörpu haldnir í kvöld Lin Wei Sigurgeirsson segir
akademíuna hafa gengið stórkostlega í ár Fegurð Hörpu varð innblásturinn að akademíunni
Á æfingu Strengjakvartett á æfingu í Hörpu undir handleiðslu Sigurbjörns Bernharðssonar.
Stofnandi Lin Wei er stofnandinn. 11 ára Ásta Dóra Finnsdóttir.Stjórnandi Bjarni F. Bjarnason.
4. júlí. Guðný Guðmunds-
dóttir heldur masterklass í
Norðurljósasal Hörpu klukkan
16.30.
4. júlí. Opnunartónleikar
tónlistarakademíunnar klukk-
an 20.00. Nemendur sem notið
hafa leiðsagnar Sigurbjörns
Bernharðssonar leika ýmis
verk.
6. júlí. Lín Wei Sigurgeirsson
heldur fyrirlestur og mast-
erklass í Tónskóla Sigursveins
klukkan 16.30.
7. júlí. Margrét Kristjáns-
dóttir fiðluleikari kynnir nýtt
kennsluefni í Tónskóla Sigur-
sveins klukkan 12.30.
7. júlí. Auður Hafsteins-
dóttir heldur masterklass í
Tónskóla Sigursveins klukkan
16.30.
Alla dagskrá Alþjóðlegu tón-
listarakademíunnar má nálgast
á www.musicacademy.is.
Nóg um að vera fyrir almenn-
ing í Hörpu á næstu dögum
DAGSKRÁ TÓNLISTARAKADEMÍUNNAR Í HÖRPU
Undrabarn Ziyu He leikur með hátíðarsveit
akademíunnar á lokatónleikum 14. júlí.