Morgunblaðið - 04.07.2018, Síða 21

Morgunblaðið - 04.07.2018, Síða 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2018 ✝ RagnheiðurArnoldsdóttir fæddist í Reykja- vík 11. nóvember 1941. Hún lést að Boðaþingi 7 þann 24. júní 2018. Foreldrar hennar voru Arn- old Falk Pét- ursson versl- unarmaður, f. 22.5. 1909, d. 25.5. 2001, og Kristjana Hrefna Guð- mundsdóttir húsmóðir, f. 15.2. 1910, d. 28.10. 2000. Ragnheiður var næstelst fimm systkina og eru þau í aldursröð: Elín, f. 8.10. 1938, d. 15.4. 2018, Guðmundur Pét- ur, f. 16.5. 1944, Björn, f. 23.7. 1945, Ásgeir, f. 2.5. 1949, og óskírður drengur, f. og d. 9.4. 1952. Ragnheiður ólst upp á Selfossi. Hún starfaði hjá Höfn Selfoss sem ung kona þar til að hún fór sem aupair til Bandaríkjanna, var þar í eitt ár. Einn- ig starfaði hún um tíma á heilsuhæli í Danmörku. Síðan bjó hún í Reykjavík og starf- aði þar hjá Póstinum og síðar hjá Bókabúð Lárusar Blöndal í mörg ár. Eftir það starfaði hún hjá Búnaðarbankanum þar til hún lét af störfum vegna aldurs. Útförin fer fram frá Sel- fosskirkju í dag, 4. júlí 2018, kl. 14. Ragnheiður Arnoldsdóttir, Agga móðursystir mín er jörð- uð í dag. Í minningunni sem barn þá var allt svo spennandi í kring- um Öggu frænku. Hún var alltaf svo frjáls, var engum háð, gerði bara það sem henni sýndist, fór til útlanda hvenær sem hentaði henni. Hún átti fallegt heimili sem samanstóð af framandi munum sem hún hafði keypt á ferðum sínum erlendis og fallegum húsgögnum þar á meðal risa- stórum appelsínugulum horn- sófa sem ég gisti ófáar nætur á sem unglingur. Hún var hrókur alls fagnaðar og sagði oft skemmtilegar sögur og oftar en ekki var það frá dvölum hennar erlendis. Það besta við þær frá- sagnir var að hún sjálf byrjaði alltaf að hlæja frá fyrstu setn- ingu og gat stundum varla klár- að söguna fyrir hlátri. Agga frænka vann lengst af í bestu bókabúð í heimi hjá móður- bróður sínum Lárusi Blöndal á Skólavörðustíg. Þar fékk maður að skoða allt og lesa spennandi bækur og blöð. Á unglingsárun- um voru það auðvitað BRAVO- blöðin sem skiptu mestu máli og oftar en ekki kom Agga fær- andi hendi á Selfoss og var maður alltaf skrefi á undan hin- um unglingunum með nýjustu plakötin í unglingaherberginu. Það er ekki hægt að hugsa um Öggu án þess að minnast á bláa Austin Mini bílinn hennar, flottasti og minnsti bíll í heimi. Það var alltaf tilhlökkun þegar „Míní-inn“ keyrði upp hlaðið hjá ömmu og afa og Agga var mætt. Seinna eignaðist hún litla rauða „Súkku“ sem hún kallaði stundum „Saumavélina“ af því að vélin í bílnum var svo lítil og suðandi. Á því tímabili bjó Agga hjá ömmu og afa á Selfossi og ég fékk að keyra á „Saumavélinni“ ásamt Soffíu vinkonu í mína fyrstu söngtíma til Diddú alla leið frá Selfossi inní Mosfellsdal, sama hvernig viðraði. Þann vetur kom snjóaksturstrikkið hennar Öggu vel að notum: „Bara losa aðeins um takið á stýrinu og leyfa bílnum að stýra sér sjálf- um“. Ég nota þetta trikk ennþá í dag. Í seinni tíð kom upp sú hefð að við Kristín frænka fór- um með Öggu á afmælisdaginn hennar út að borða og oftar en ekki var það „smørrebrød med tilbehør“ á Jómfrúnni. Þá var spjallað um alla heima og geima og oftar en ekki skálað í einhverju freyðandi. Ég er svo glöð yfir að hafa átt dásamlega gæðastund með Öggu og mömmu á síðasta ári en ég bauð þeim systrum að sjá Bláa hnöttinn í Borgarleikhúsinu. Þær voru þá báðar í hjólastól- um og ég var búin að skipu- leggja út í ystu æsar hvernig ég myndi rúlla þeim til skiptis inní sal til að horfa á sýninguna og þess á milli að rúlla þeim inni í forsalinn til að drekka kaffi og spjalla. Þetta var þeirra síðasta gæðastund sam- an því nú eru þær báðar farnar yfir móðuna miklu, með rétt um tíu vikna millibili. Mér hlýnar um hjartarætur að hugsa til allra minninganna og góðmennsku Öggu í garð okkar krakkanna. Hún þreyttist aldr- ei á að taka systrabörn sín í fangið svo og syngja fyrir þau og spjalla. Ég ósk’ að sautjánþúsund sól- argeislar klappi þér á kinn með sautjánþúsund sólargeisla happi, vinur minn. (Úr Bláa hnettinum 2016, Bergur Þór Ingólfsson) Ég á eftir að sakna Öggu. Kristjana Stefánsdóttir. Elsku Agga okkar. Þú hefur alltaf verið mik- ilvægur hluti af lífi okkar systkinanna. Við eigum svo margar góðar og notalegar minningar um þig. Þú varst alltaf svo mikil barnagæla bæði við okkur og svo síðar við börn- in okkar. Okkur er sérstaklega minnisstæð vísa sem þú fluttir með leikrænum hætti til að gleðja óvær börn: Ennabein, augastein, nebbatot, munnaop, hökubás, gilligilligás, magapot og bossaskot. Þú varst ömmu og afa svo góð og við erum þakklát fyrir það. Það sýndi sig best þegar þú fluttir til þeirra svo þau gætu lengur búið í Hrefnutang- anum þar sem við eigum öll svo góðar minningar. Þú sýndir okkur og fjöl- skyldunni mikinn áhuga. Í gegnum þig vissum við alltaf hvað var að gerast í lífi annarra ættingja og þannig hélstu stór- fjölskyldunni tengdri. Við eigum eftir að sakna þín, elsku Agga. Megi minning þín lifa. Viggó, Ásgeir Örn og Hrefna Lind. Það voru yfirleitt símtöl einu sinni í viku, eftir að ég stofnaði fjölskyldu og spurt um strák- ana og síðar börnin, hvað væri að frétta, inni á milli sagði hún svo hvað væri að frétta af öðr- um fjölskyldumeðlimum og frændfólki. Flestar fjölskyldu- upplýsingar komu í gegnum hana, og þó að lífssvið stórfjöl- skyldunnar stækkaði, þá fannst manni allt vera svo smátt í sniðum og náið. Hún var sam- nefnari fjölskyldunnar. Ég minnist sem lítill drengur gjafa sem hún gaf mér þegar hún kom frá „útlöndum“. Hún ferð- aðist mjög mikið og fór ekki troðnar slóðir í áfangastöðum. þetta var á þeim árum þegar ferðalög voru talsvert mál. Hún talaði alltaf við mann eins og fullorðinn mann, þó að maður væri bara „strákur“, kannski þess vegna var hún í miklu uppáhaldi í æsku, svo fylgdu alltaf einhver góð lífsráð hverju samtali. Ég bjó hjá henni eina önn þegar ég var í skóla í Reykjavík, þá áttaði maður sig á því hvað hún lifði annasömu lífi, fór mikið í leikhús og á tón- leika og átti mikið af vinum. Samt var fjölskyldan alltaf númer eitt. Og þó að hún væri alltaf ein átti hún hvert einasta bein í okkur systkinabörnum sínum og tók fullan þátt í lífi okkar flestra. Hugurinn fyllist minn- ingum þegar maður sest niður og skrifar um Öggu frænku. Hjálpsemi og æðruleysi eru mjög ofarlega í huga þegar hennar er minnst. Þakklæti fyllir huga minn og eflaust margra annarra. Gísli Stefánsson og fjölskylda. Ragnheiður Arnoldsdóttir hefur kvatt okkur eftir erfið veikindi í rúm tvö ár. Agga, eins og hún var ávallt kölluð var mikill gleðigjafi, hláturmild og skapgóð. Minningarnar eru margar og skemmtilegar, sem koma af ferðalögum bæði í sumarbústaði hér heima og ferðum á erlenda grund. Fyrsta ferðin okkar til út- landa var til Danmerkur í sum- arhús í Helsingör með vinum okkar Ester og Steinari með Njörð tæplega tveggja ára gamlan og Ragnheiði Krist- jánsdóttur frænku Öggu. Þarna dvöldum við í þrjár vikur, höfð- um bíl og var keyrt um Sjáland og til Kaupmannahafnar. Í framhaldi af því fórum við Agga og Ragnheiður til Gauta- borgar til að heimsækja Krist- ínu Brynjólfsdóttur vinkonu okkar. Þar vorum við í viku. Þetta var því mánaðar reisa, mjög skemmtileg í alla staði. Seinna fórum við Agga saman til Ítalíu í sólarlandaferð. Í þeirri ferð var boðið upp á ferð- ir til San-Marino, Feneyja og Rómar. Auðvitað fórum við í þær ferðir. Í Róm var gist í 3-4 nætur. Fararstjórinn hafði lært listasögu í Róm og sagan varð þess vegna ljóslifandi fyrir okk- ur. Meðal annars var farið í páfagarð. Er við komum í Vat- íkanið hafði hans heilagleiki, páfinn, brugðið sér af bæ og var að spóka sig í Reykjavík. Agga fór með okkur í Sam- kór Selfoss til Bandaríkjanna í þriggja vikna söngferðalag um austurströnd USA. Hún hafði mjög gaman af þeirri ferð eins og við öll. Þegar við vorum í New-York minntist hún þess, er hún var ung stúlka þar, sem au-pair í eitt ár hjá góðri fjölskyldu. Nokkrar stúlkur frá Selfossi höfðu verið hjá sömu fjölskyldu áður. Margar gistinætur átti ég í Efstasundinu hjá Öggu á ár- unum er við hittumst vina- hópurinn og fórum þá út til að líta á mannlífið. Agga var mjög vönduð manneskja. Aldrei talaði hún illa um nokkur mann. Þegar hún var spurð að því eftir að hún veiktist hvernig hún hefði það sagðist hún alltaf bara hafa það gott. Þó vissum við að hún væri oft sárþjáð. Það eru aðeins tveir mánuðir síðan Elín, systir Öggu, lést. Blessuð sé minning þeirra beggja. Bræðrum þeirra systra og fjölskyldum, börnum Elínar og fjölskyldum þeirra vottum við Sigurður innilega samúð. Ólöf Erla Halldórsdóttir. Ragnheiður Arnoldsdóttir ✝ Magnús Magn-ússon fæddist á Ísafirði 18. ágúst 1926. Hann lést á dvalarheimili aldr- aðra, Hraun- búðum, í Vest- mannaeyjum 27. júní 2018. Foreldrar hans voru Magnús Frið- riksson, skipstjóri á Ísafirði, ættaður frá Gjögri, og kona hans, Jóna Pétursdóttir frá Hlíð í Álftafirði, verkakona. Eldri bræður hans voru Lúðvík, Gunnlaugur, Trausti, Ólafur og Loftur, allir látnir. Systkini sammæðra, börn Jónu og Ásgeirs Ásgeirssonar, vélstjóra á Ísafirði, eru Þórður, Pétur og Vigdís Ingibjörg. Magnús Friðriksson drukkn- aði 28 ára gamall, fimm mán- uðum áður en Magnús fæddist. Honum var komið í fóstur til hjónanna Sigurjóns Þ. Jónsson- ar, bankastjóra og alþing- ismanns, og konu hans, Kristínar Þorvaldsdóttur, á Ísafirði. Þar ólst hann upp en fluttist með fóst- urforeldrum sínum á Seltjarn- arnes 1937. Magnús giftist 1963 Aðal- fjörð Skjaldarson. Magnús og Að- albjörg skildu 1977. Barn Magn- úsar og Hrefnu Júlíusdóttur frá Hellissandi er Bjarkey, f. 28. maí 1948. Hún var áður gift Heiðari Jónssyni og eignuðust þau þrjú börn, Júlíus Steinar (sonur hans er Sæmundur Heiðar), Sigríði Láru og Áslaugu Olgu (dóttir hennar er Victoría Lára). Magnús ólst upp á Ísafirði og Seltjarnarnesi. Eftir skólagöngu fékkst hann við ýmis störf, var m.a. á Keflavíkurflugvelli, en fluttist 1956 til Vestmannaeyja og vann fyrst í verslun Lofts, bróður síns, á Þingvöllum. Hann var sjómaður í nokkur ár, vann í Ísfélagi Vestmannaeyja, en varð síðar kokkur í Ísfélaginu og á Hótel Berg. Eftir eldgosið í Vest- mannaeyjum 1973 settust Magn- ús og fjölskyldan að í Hafnarfirði og var hann þar við ýmisleg störf þar til þau fluttust til Eyja á ný 1975. Bjuggu þá í húsinu London og Magnús stundaði smíðavinnu o.fl. Á seinni árum vann hann við skiltagerð og ýmis smáverkefni fyrir fyrirtæki og félög í Vest- mannaeyjum. Magnús tók virkan þátt í félagslífi í Eyjum, var heið- ursfélagi Knattspyrnufélagsins Týs og Leikfélags Vestmanna- eyja, vann sem túlkur og móts- stjóri fyrir Sjóstangaveiðifélagið. Hann var ágætur teiknari, söngvari og hagyrðingur. Útför Magnúsar fer fram frá Landakirkju í dag, 4. júlí 2018, og hefst athöfnin kl. 14. björgu Jóh. Berg- mundsdóttur, f. 1919, d. 2003, frá Borgarhól í Vestmannaeyjum. Hún var þá ekkja og sat í búi með sjö börnum sínum: El- ínborgu, f. 1940, Þóru, f. 1942, d. 2013, Aðalbjörgu, f. 1944, Birgi, f. 1946, d. 1979, Helga, f. 1949, Jóni, f. 1952, og Þuríði, f. 1954. Magnús og Aðalbjörg eign- uðust fyrst Jóhannes Þórarins- son, f. 2. nóvember 1959, sem varð kjörbarn Ásu Bergmunds- dóttur og Þórarins Kristjáns- sonar á Dalvík. Hann var giftur Álfheiði Úlfarsdóttur og eiga þau þrjú börn: Írisi Angelu (sem á Þorkel Alex og Natalíu), Þórarin og Ásu. Sambýliskona Jóhann- esar er Mardís Andersen. Seinna barn Magnúsar og Að- albjargar er Elín Helga, f. 16. september 1963. Fyrri maður hennar var Þórarinn Axel Jóns- son; þau eignuðust þrjú börn: El- ísu (sonur hennar er Þór) og tví- burana Helenu og Sigurjón. Eiginmaður Elínar er Fannar Ey- Í dag kveð ég elsku afa minn og fæ að minnast hans í nokkrum orðum. Afi var mér mikill innblástur varðandi list. Ég man eftir gamla húsinu hans þar sem veggirnir voru allir skreyttir í teikningum og málverkum eftir hann. Honum fannst gaman að sýna mér verkin sín og segja sögur sem tengdust þeim. Hjálpsamur, fyndinn og hjartahlýr eru lýsingarorð sem ég vel fyrir hann. Afi var alltaf til í að spila ólsen ólsen við okkur systkinin þegar við vorum í pöss- un hjá honum og voru það ófáir grjónagrautarnir sem hann eld- aði fyrir okkur í hádeginu. Þetta eru ógleymanlegar minningar sem hlýja hjarta mínu á þessum tímum. Ekki má gleyma því að hann var meistari meistaranna í fimmaurabröndurum. Elsku afi M.M. hvílir nú í friði. Hann mun alltaf eiga stað í hjarta mínu. Helena Þórarinsdóttir. Hann var alltaf kallaður Maggi Magg. Hann kom inn í líf okkar rétt eftir 1960. Móðir okkar og hann höfðu kynnst í Samkomu- húsinu í Vestmannaeyjum þegar hællinn á skónum hennar datt af og valt niður stigann og fyrir fæt- ur hans. Hann var laghentur og gerði strax við skóinn og kom hælnum aftur á sinn stað. Sam- band hafði myndast. Það var örugglega ekki auðvelt fyrir MM að ganga inn í heimili þar sem sjö fyrirferðarmiklir krakkar voru fyrir. Hann tók að sér hlutverk húsbóndans á heimili okkar, fyrst í Borgarhól, í gosinu í Hafnarfirði og loks aftur í Eyjum. Maggi féll vel að anda hússins og sýndi hinum mörgu gestum þess, bæði ungum og eldri, áhuga og natni. Það var spilað flest kvöld við borðstofuborðið og oft sátu þar eftirminnilegir karakt- erar og mikil kátína ríkti, en mamma bar í þá og okkur krakk- ana kaffi og bakkelsi. Þetta voru alþýðlegar menningarhátíðir. Maggi var geðgóður og líflegur og naut þess að hafa skemmtilegt fólk í kringum sig. Maggi var fjölhæfur og list- hneigður. Hann talaði og skrifaði ensku og Norðurlandamál, las talsvert, bæði íslenskar og er- lendar bækur. Steinn Steinarr var uppáhald hans og oft vitnað til skáldsins. Þegar Kanasjón- varpið kom til Vestmannaeyja fór hann í hlutverk þýðandans þann- ig að við, gestir og vinir okkar krakkanna, gátum fylgst með og lifað okkur inn í myndirnar og þættina, t.d. „Combat“ og „Guns- moke“. Margir nutu hjálpsemi hans af þessu tagi, t.d. útlending- ar sem flæktust til Eyja og erfitt var að skilja. Hann liðsinnti þeim og bauð þeim m.a.s. stundum í mat. Maggi var heimsmaður í hátt- um og viðhorfum og hugsaði dá- lítið öðru vísi en margir í Eyja- samfélaginu, fordómalaus og hlustaði á fólk, karla sem konur, unga sem aldna. Hann var mikil félagsvera og starfaði í mörgum félögum í Eyjum. Á heimilinu tók hann þátt í húsverkum, eldaði ansi oft og var natinn við yngstu dótturina. Þetta þótti ekki sjálf- sagt á þessum tíma. Hann var jafnaðarmaður að hugsun. Maggi lék með Leikfélaginu og gerði stundum leiktjöld. Hann var allt í öllu á alþjóðlegum sjó- stangaveiðimótum um hvítasunn- una. Mest vann hann þó fyrir Knattspyrnufélagið Tý, ekki síst í kringum þjóðhátíðir, málaði skreytti og smíðaði. Fyrir það fékk hann bæði þakkir og heiður sem honum þótti vænt um. Síðustu átta árin dvaldi Maggi á Hraunbúðum í Vestmannaeyj- um. Það var ekki auðvelt að koma honum þangað og kostaði miklar fortölur því hann vildi ekki vera innan um gamalt fólk. En þangað fór hann og hafði ekki verið þar í marga daga þegar hann tók gleði sína á ný, enda frábært starfsfólk á Hraunbúðum. Oft grínaðist hann með það að við mættum ekki láta neinn vita af því hvað honum liði vel á Hraunbúðum, hann ætti þetta alls ekki skilið. Við þökkum Magga samfylgd- ina, og fyrir þær góðu hliðar sem hann átti og við nutum. Við systk- inin minnumst hans með gleði. Blessuð sé minning hans. Jón Bernódusson og Þuríður Bernódusdóttir Magnús Magnússon Elsku Klara mín. Það er svo margt sem mig langar að segja en þú ert búin að vera part- ur af lífi mínu síðan ég kom til ykkar Ómars bróður austur á Reyðarfjörð þegar þið voruð gift og ég orðin móðurlaus aðeins tíu ára gömul. Ykkar leiðir skildi en ég og þú héldum alltaf góðu sam- Klara Kristinsdóttir ✝ Klara Krist-insdóttir fædd- ist 26. apríl 1936. Hún lést 6. júní 2018. Útför Klöru fór fram frá Vídal- ínskirkju 15. júní 2018. bandi og ég hefði ekki getað verið heppnari með þig. Þú komst mér í móðurstað og ég hef alltaf fengið að vera hluti af þinni fjöl- skyldu. Eftir að þið Vignir giftust var ég alltaf velkomin á ykkar heimili, hvort sem það var fyrir austan á Reyðarfirði eða á Strikinu í Garðabænum. Minningarnar um þig eru margar og mér afar dýrmætar og ótal margt sem ég get talið upp. Þú varst alltaf til staðar fyrir mig elsku Klara og ég gleymi því aldr- ei þegar ég missti Magnús son minn hversu fljót þú varst að koma suður og standa mér við hlið eins og klettur. Þú kenndir mér svo ótal margt í gegnum tíðina, bæði saumaskap og matargerð, sem ég hef búið að alla tíð og á ég margar uppskrift- irnar frá þér. Það kemur oft fyrir að ég er spurð hvaðan ég hafi fengið uppskriftir að hinu og þessu og svarið oftar en ekki „frá henni Klöru minni, hvar annars staðar?“ Þú varst einstök í mat- argerð, bakstri og saumaskap og allt gott og fallegt sem kom frá þér. Ég kveð þig með söknuði og þakka fyrir allt. Minning þín er mér ei gleymd; mína sál þú gladdir; innst í hjarta hún er geymd, þú heilsaðir mér og kvaddir. (Káinn) Hvíl í friði elsku Klara. Þín Kolbrún Magnúsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.