Morgunblaðið - 04.07.2018, Page 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2018
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Við grínumst stundum meðað við höfum farið á okkarfyrsta stefnumót þegar viðvorum 15 ára í tíunda
bekk í Tjarnarskóla. Við vorum kos-
in kóngur og drottning skólans á
balli og fengum í verðlaun að fara
saman út að borða á Hard Rock, og
fórum í bíó. En við urðum ekki kær-
ustupar þá, það var erfitt að sann-
færa þennan mann um að ég væri sú
rétta handa honum, það tók mig
fimmtán ár,“ segir Tinna Finnboga-
dóttir og hlær þegar hún rifjar upp
hvernig leiðir hennar og eigin-
mannsins, Bergs Hallgrímssonar,
lágu fyrst saman.
„Við tókum alltaf strætó saman
til og frá Tjarnarskóla og ég fór í
Versló eins og hann. En ég hætti í
Versló eftir eina önn og fór í MH. Ég
var skotin í Bergi alla tíð frá því ég
sá hann fyrst 15 ára, í gegnum fram-
haldsskólaárin og í þessi fimmtán ár
þar til ég landaði honum. Ég hélt ég
væri að segja honum rosa leyndar-
mál þegar ég sagði honum öllum
þessum árum síðar að ég hefði verið
skotin í honum. Hann vissi það al-
veg, enda hafði hann verið tekinn á
teppið inn til skólastjórans í tíunda
bekk og beðinn um að hætta að
trufla nemandann sem var alltaf að
stara á hann. Sem var þá ég. Skóla-
stjórinn hafði miklar áhyggjur af því
að ástsýki mín gæti haft slæm áhrif
á framgang minn í einkunnum. Þetta
var greinilega rosalega illa falið
leyndarmál hjá mér,“ segir Tinna.
Enginn spurði eins oft og ég
Tinna segist lítið hafa verið á
Íslandi í mörg ár eftir menntó, hún
var í háskólanámi í útlöndum og
skiptinemi, dvaldi um tíma í Gvate-
mala og á fleiri stöðum. „Ég held því
fram að ástæðan fyrir því að Bergur
var ekki genginn út þegar ég kom
heim hafi verið sú að engin kona var
eins þrjósk og ég. Ég þurfti að vinna
fyrir þessu, ég tékkaði reglulega á
honum hvort hann væri ekki til í að
koma og gera eitthvað með mér, en
hann þóttist alltaf vera upptekinn.
Ég held að enginn hafi spurt eins oft
og ég. Þegar ég tók að mér stórt
verkefni í vinnunni og vantaði sam-
starfsaðila sem væri iðnaðarverk-
fræðingur, þá var Bergur sá eini
sem ég þekkti með þá menntun. Svo
það lá beint við að fá hann í lið með
sér,“ segir Tinna og bætir við að
samstarf þeirra hafi staðið í þrjú ár.
„Ég nældi ekki í hann strax sem
kærasta, það tók tvö ár af þessum
þremur. Þetta var þolinmæðisverk,
eins og að landa stórum fiski,“ segir
Tinna og hlær en þau Bergur hafa
verið saman undanfarin fimm ár og
eiga rúmlega tveggja ára son.
Hafa gaman meðan spilað er
Þau Tinna og Bergur hafa brall-
að ýmislegt saman, m.a. hannað
borðspilið Sjónarspil en þau safna
nú fyrir útgáfunni á Karolina fund.
„Ég kem úr mikilli spilafjöl-
skyldu þar sem ævinlega hefur verið
heilmikið spilað, bæði brids og fleira.
Í seinni tíð hefur það þróast út í
borðspilamennsku, en Bergur hefur
aftur á móti lengi stundað borð-
spilamennsku með sínum vinum. Við
erum því bæði spilanördar þótt á
mismunandi hátt sé. En við kom-
umst að því að það sama hentar ekki
öllum þegar kemur að spila-
mennsku. Mörgum finnst ekkert
gaman að spila flókin spil og lengi,
þótt okkur Bergi finnist það æð-
islegt. Sumum finnst ekki gaman
þegar spil krefjast þess að fólk hugsi
svo mikið að það talar nánast ekkert
saman á meðan spilað er. Og mörg-
um finnst leiðinlegt hvað það getur
tekið mikinn tíma að læra sum spil.
Okkur fannst því bráðvanta létt spil
og einfalt sem hentaði öllum, svo við
fórum að velta fyrir okkur hvernig
hægt væri að búa til spil sem tæki
enga stund að læra og hægt væri að
spjalla saman og hafa gaman meðan
spilað væri. Og úr varð Sjónarspilið,
eftir nokkurra ára þróun hjá okkur.“
Hnotið um orðið kjaftaskur
Í Sjónarspilinu fá leikmenn
spjöld með lýsingarorðum og þurfa
að velja þau spil sem lýsa meðspil-
urunum best. Það þarf að vanda val-
ið, allir spilarar eru með sömu spil
og hvert spil má bara nota einu
sinni. Hver í hópnum er t.d. nördinn
og hver er hjálpsamur? Það er ekk-
ert eitt rétt svar því leikmenn fá stig
fyrir það hversu margir eru sam-
mála. Hægt er að fylgja eigin sann-
færingu og velja orð sem hverjum og
einum finnst lýsa meðspilurunum
best, eða sýna kænsku og velja orð
sem viðkomandi telur að flestir muni
velja.
„Við höfum lánað Sjónarspilið
til ólíkustu hópa til að prufukeyra
það og allir hafa verið mjög ánægðir.
Fólk hefur skemmt sér vel og í ljós
hefur komið að aðrir sjá vini sína
ekki endilega í sama ljósi og þeir
sjálfir og sumir líta aðeins út fyrir að
vera eitthvað sem þeir eru ekki í
raun. Þetta býður upp á mikla
skemmtun,“ segir Tinna og bætir við
að þó svo að spilið sé ætlað fyrir 14
ára og eldri, þá sé það líka fyrir
yngri, svo framarlega sem þeir sem
spila skilja orðin. „Yngri börn hafa
kannski ekki tileinkað sér öll orðin
og reyndar eru dæmi um að fólk um
tvítugt hafi hnotið um orð eins og
kjaftaskur og nærgætin, þau hafa
ekki vitað hvað þau merkja. En ég lít
á það sem kost ef spilið hefur þá
hliðarverkun að auka orðaforða
fólks, ekki veitir af að efla íslenska
málkennd. Ég er íslenskunörd og
vildi hafa lýsingarorðin í spilinu sem
fjölbreytilegust, en Bergur lét mig
taka sum þeirra út, hann áleit að of
fáir skildu þau. Ég fékk þó að halda
nokkrum góðum inni.“
„Ég nældi í hann á þrjóskunni“
Það tók Tinnu 15 ár að
landa kærastanum sem
hún hafði verið skotin í
frá því í grunnskóla.
Seiglan borgar sig greini-
lega og nú hafa þessir
spilanördar hannað
Sjónarspilið, sem
skemmtir þeim sem spila.
Morgunblaðið/Eggert
Spilanördar Tinna og Bergur með Hilmar son sinn, en hann fær að leika sér með spil eins og hann vill.
Kóngurinn og drottningin 1999
Bergur og Tinna 15 ára og nýkrýnd
á skólaballi. Fengu í verðlaun að
fara saman út að borða og í bíó.
Ertu algjör snyrtipinni eða líturðu
bara út fyrir að vera það? Ertu jafn-
mikill töffari og þú heldur? Ertu alveg
viss um að aðrir sjái þig á sama hátt
og þú? Sjónarspil, hugarfóstur Bergs
og Tinnu, hentar í fjölskylduboð og
fyrir vinahópa. Söfnun fyrir útgáfu
spilsins á Karolinafund gengur vel en
enn vantar upp á að fylla takmarkið.
Það er til mikils að vinna fyrir þá sem
leggja í púkkið, eftir upphæðum er
hægt að fá eitt eða fleiri eintök af
spilinu, sérstaka fullorðins-
aukaútgáfu og fá þau Tinnu og Berg í
heimsókn á spilakvöld. Jafnvel mæta
þau hjón á spilakvöld með meðlæti
og drykki, kenna á spilið og svara öll-
um spurningum og vangaveltum.
Sjónarspil er skemmtilegt fjöl-
skyldu- og partíspil sem nýtur sín
best í góðra vina hópi. Það hentar
frábærlega í vinahópinn því reglurnar
eru einfaldar, spilatíminn er stuttur
og allir gera á sama tíma – engin bið
eftir öðrum. Spilið er fyrir 14 ára og
eldri og leikmenn geta verið fjórir til
átta. Spilatími er 15 mínútur, flestir
taka tvær eða þrjár umferðir.
Verkefnið heitir Sjónarspil á
www.karolinafund.com, þar er hægt
að fræðast nánar og leggja lið.
Facebook: Sjónarspilið
Ertu jafnmikill töffari og þú heldur?
Tinna og Bergur koma í
heimsókn á spilakvöldum
Gaman Þeir sem prófað hafa Sjónarspilið eru sammála um skemmtanagildið.
Suðurhrauni 4210 Garðabæ | Furuvellir 3 600 Akureyri | Sími 575 8000 | samhentir.is
Heildarlausnir
í umbúðum og öðrum rekstrarvörum
fyrir sjó- og landvinnslu
u KASSAR
u ÖSKJUR
u ARKIR
u POKAR
u FILMUR
u VETLINGAR
u HANSKAR
u SKÓR
u STÍGVÉL
u HNÍFAR
u BRÝNI
u BAKKAR
u EINNOTA VÖRUR
u HREINGERNINGAVÖRUR
Allt á
einum
stað