Morgunblaðið - 04.07.2018, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2018
Mögnuð rafmagnsverkfæri og frábært verð
ÞÓR FH
REYKJAVÍK:
Krókháls 16
Sími 568-1500
AKUREYRI:
Baldursnes 8
Sími 568-1555
Vefsíða:
www.thor.is
Fyrirvari er settur vegna hugsanlegra ritvillna.
Bútsög - LS1019L
Kr. 150.000,-
með VSK
Bútsög - LS1216FLB
Kr. 160.000,-
með VSK
Mótor 1510 W
Sagarblað Ø 260 mm / 30 mm
90° Sagdýpt/Breidd 91 mm / 310 mm
45° Sagdýpt/Breidd 58 mm / 218 mm
Gráðufærsla vinstri/hægri 60°
Gráðuhalli vinstri/hægri 45°
Þyngd 26,1 kg
Borð fyrir sögina fylgir með
Mótor 1650 W
Sagarblað Ø 305 mm / 30 mm
90° Sagdýpt/Breidd 102 mm / 382 mm
45° Sagdýpt/Breidd 69 mm / 268 mm
Gráðufærsla vinstri/hægri 45°
Gráðuhalli vinstri/hægri 52° / 60°
Þyngd 26,6 kg
Borð fyrir sögina fylgir með
Fyrrverandi for-
sætisráðherra
Malasíu, Najib
Razak, var í gær
handtekinn fyrir
meint hlutverk í
svokölluðum
„1MDB-skandal“
en Razak er sak-
aður um að hafa
dregið sér fé að
andvirði um sjö hundruð milljónir
Bandaríkjadollara úr fjárfestinga-
og þróunarsjóði malasíska ríkisins
sem kallast 1MDB.
Razak var forsætisráðherra Mal-
asíu frá 2009 en beið óvænt lægri
hlut í kosningum í maí síðast-
liðnum. Hét eftirmaður hans, Ma-
hathir Mohamad, því eftir kosn-
ingasigurinn í maí að hefja rann-
sókn á 1MDB-málinu að nýju og
lofaði að sækja alla þá til saka sem
bæru ábyrgð á fjársvikum upp á
marga milljarða Bandaríkjadollara
úr fjárfestinga- og þróunarsjóði
ríkisins. Razak hefur ávallt neitað
sök í málinu og var hreinsaður af
sökum á meðan hann var í embætti.
Nokkur önnur ríki hafa Razak þó
til rannsóknar, t.d. bandaríska
dómsmálaráðuneytið.
Razak stofnaði árið 2009 1MDB-
sjóðinn, sem var ætlað að gera
Kuala Lumpur, höfuðborg Malasíu,
að mikilli fjármálamiðstöð auk þess
að drífa áfram efnahag landsins í
gegnum auknar fjárfestingar, að
því er kemur fram í frétt BBC.
MALASÍA
Fyrrv. forsætisráð-
herra handtekinn
Najib Razak
Axel Helgi Ívarsson
axel@mbl.is
Tólf ungir leikmenn taílensks knattspyrnuliðs
ásamt þjálfara sínum fundust á lífi í Tham Lu-
ang-hellakerfinu, sem er í norðurhluta Taílands,
rétt við landamæri Laos, seint á mánudag. Hafði
þeirra þá verið saknað í rúma níu daga. Fjöl-
mörg ríki taka þátt í björgunaraðgerðum ásamt
taílenskum yfirvöldum. Tekist hefur að koma
vistum og lyfjum til hópsins auk símalínu svo
strákarnir geti náð tali af fjölskyldum sínum,
sem beðið höfðu milli vonar og ótta í marga daga.
„Mér er ofsalega létt þótt ég hafi enn ekki
fengið tækifæri til að sjá strákinn minn. Ég vil
segja honum að ég sé enn hér að bíða eftir hon-
um,“ segir Kieng Khamleu, móðir eins þeirra tólf
stráka sem sitja fastir í hellinum, við AFP-
fréttastofuna. Þá segir faðir annars við AFP að
hann trúi því varla að hópurinn sé á lífi: „Þetta
er óhugsandi. Ég hef beðið í 10 daga og ég
ímyndaði mér ekki að þessi dagur myndi renna
upp.“
Hópurinn gæti þurft að dúsa
lengi í hellinum
Ekki er ljóst með hvaða leiðum hópnum verð-
ur bjargað úr hellunum né hve langan tíma sú
aðgerð mun taka. Gæti farið svo að hópurinn
þyrfti að dvelja í hellinum í nokkra mánuði, eða
þar til regntímabilinu lýkur. Yrði vistum þá kom-
ið til hópsins og þá hafa nokkrir læknar í taí-
lenska hernum boðið sig fram til að dvelja með
hópnum. Er hinn möguleikinn að hópurinn læri
að kafa. Hafa köfunarsérfræðingar bent á ýmis
vandamál við þann möguleika, s.s. að það taki
þaulvanan hellakafara margar klukkustundir að
kafa frá staðnum þar sem hópurinn fannst og að
inngangi hellisins auk þess sem óreyndir og
þreyttir strákar gætu auðveldlega fyllst skelf-
ingu reyndu þeir að kafa.
Þekktu vel til hellaþyrpingarinnar
Eru strákarnir tólf á aldrinum 11 til 16 ára og
þjálfarinn 25 ára gamall. Ekki er vitað hvers
vegna hópurinn fór inn í hellinn eftir að hafa lok-
ið knattspyrnuæfingu laugardaginn 23. júní, en
ljóst er að hann hafði áður gert sér ferð í hellinn
og þekkti því umhverfi hans ágætlega. Upphófst
mikil rigning á meðan hópurinn var inni í hell-
inum; svo mikil að hellagöngin, sem eru ein þau
lengstu í Taílandi, fylltust mörg hver af vatni og
varð hópurinn því innlyksa.
Erfið björgun fram undan
12 strákar í taílensku knattspyrnuliði ásamt þjálfara sínum eru komnir í leit-
irnar í Thuam Luang-hellakerfinu eftir níu daga leit Hafa fengið matvæli og lyf
AFP
Gleðifregnir Foreldri t.h. þakkar taílenskum hermönnum störf sín í björgunaraðgerðunum.
Um 300 manns í norðurhluta Kaliforníu í Bandaríkj-
unum hafa neyðst til að yfirgefa heimili sín vegna mik-
illa elda sem kviknuðu síðasta laugardag. Geisa eld-
arnir á tveimur mismunandi svæðum. Hefur sá stærri
skilið eftir sig um 60 þúsund ekrur af sviðinni jörð og
gengur slökkviliðsmönnum erfiðlega ná tökum á hon-
um. Eru eldar sem þessir nokkuð tíðir í Kaliforníu yfir
þurrkatímabil á sumrin.
Tveir stórbrunar breiðast hratt út í norðurhluta Kaliforníuríkis í Bandaríkjunum
AFP
Hundruð hafa yfirgefið heimili sín
Nokkur ríki sem eru hluti af Atl-
antshafsbandalaginu hafa svarað
gagnrýni frá Donald Trump Banda-
ríkjaforseta um að þau þurfi að auka
framlög til bandalagsins, en Banda-
ríkjaforseti sendi bréf þess efnis til
ríkisstjórna í m.a. Noregi, Belgíu og
Kanada í síðustu viku. AP-
fréttastofan greinir frá þessu.
Varnarmálaráðherra Noregs,
Frank Bakke-Jensen, segir í svari til
AP-fréttastofunnar að Noregur
standi við þær skuldbindingar sem
ákveðnar voru á fundi NATO-ríkja
árið 2014. Á þeim fundi var ákveðið, í
kjölfar þess að Rússland innlimaði
Krímskaga, að hætta niðurskurði á
framlögum til varnarmála og bæta
frekar í samhliða hagvexti í efna-
hagnum til þess að mæta því mark-
miði að eyða sem nemur 2% af
vergri landsframleiðslu til varnar-
mála.
Gefur lítið fyrir bréfið
Forsætisráðherra Belgíu, Charles
Michel, dregur úr mikilvægi bréfs-
ins sem honum barst frá Banda-
ríkjaforseta og segir það einfaldlega
„dæmigert“ í aðdraganda leiðtoga-
fundar Atlantshafsbandalagsins, að
því er segir í frétt AP-fréttastof-
unnar. „Við tökum þátt í mörgum
hernaðaræfingum með öðrum ríkj-
um bandalagsins og það er ríkis-
stjórnin sem ákvað að binda enda á
niðurskurð í varnarmálum,“ segir
Michel.
Talsmaður varnarmálaráðuneytis
Kanada, Renée Filiatrault, tekur í
sama streng og segir að yfirvöld þar
í landi muni auka framlög til varn-
armála um 70% næsta áratuginn.
„Áætlunin er fjármögnuð að fullu og
mætir varnarþörfum landsins. Hún
styður einnig við okkar langvarandi
hlutverk í friðar- og öryggismálum,“
segir Renée Filiatrault í frétt AP.
Svara gagnrýni frá Trump
Leiðtogar NATO-ríkjanna hittast í Brussel í næstu viku