Morgunblaðið - 04.07.2018, Page 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2018
Anna Edda Ásgeirsdóttir næringarráðgjafi á 70 ára afmæli ídag. Hún lærði fagið í Bretlandi og starfaði við það í rúm 40ár, á Borgarspítalanum, Landakoti og Landspítalanum. Anna
Edda hætti störfum haustið 2014 en þá var hún búin að vinna þar í 40
ár.
Anna Edda vann með bæði börnum og öldruðum í starfi sínu. „Ég
sá um næringu fyrir börn með PKU (phenlketonuria) efnaskiptagalla,
en tekið er blóðsýni í hælnum á öllum börnum sem fæðast á Íslandi til
að athuga hvort þau séu með þennan efnaskiptagalla. Þau börn sem
greinast þurfa að vera á sérstöku mataræði. Svo var ég að vinna með
sykursýki barna og unglinga á barnaspítalanum og var á líka á öldr-
unardeildinni að athuga með næringu fyrir aldraða og hvernig hægt
væri að bæta hana.“ Anna Edda fylgist enn með fræðunum þótt hún
sé hætt að vinna. „Já, ég geri það. Ég er á móti öllum boðum og bönn-
um hvað næringu snertir þótt sumir eins og fólk með PKU þurfi að
vera á ströngu mataræði.“
Anna Edda fæddist í Barmahlíð í Reykjavík og ólst þar upp en for-
eldrar hennar voru Ásgeir Sigurðsson og Svanbjörg Halldórsdóttir.
„Þau eru bæði látin, en ég er örverpið í fjölskyldunni. Bræðir mínir
eru fjórir, en tveir þeirra eru farnir, og systurnar eru tvær og önnur
þeirra er farin.“
Anna Edda hefur gaman af ferðalögum og er nýkomin úr ferð með
systur sinni, Guðrúnu, í Aix-en-Provence í Frakklandi. Svo málaði
hún líka á postulín áður fyrr. Í tilefni dagsins ætlar Anna Edda að
bjóða sínum nánustu heim í matarboð.
Systur Anna, til hægri, og Guðrún á ferðalagi á Spáni og í suðurhluta
Frakklands í fyrra en þær eru duglegar að ferðast saman.
Á móti boðum og
bönnum í mataræði
Anna Edda Ásgeirsdóttir er sjötug í dag
B
jörn Bjarki Þorsteinsson
fæddist á Böðvarsgötu 4
í Borgarnesi og ólst upp
í Borgarnesi. Hann var í
Grunnskólanum í Borg-
arnesi, lauk stúdentsprófi frá Fjöl-
brautaskóla Vesturlands á Akranesi
1989, prófum frá Endurmenntun HÍ í
Atvinnulífsins skóla 2001 og í mann-
auðsstjórnun og leiðtogafærni frá
Opna háskólanum – HR 2016. Auk
þess hefur hann sótt fjölda námskeiða
um samskipti og stjórnun, m.a. á
vegum Endurmenntunar HÍ.
Bjarki sinnti ýmsum verslunar- og
þjónustustörfum hjá Kaupfélagi
Borgfirðinga á árunum 1989-94, var
verslunarstjóri Kaupfélags Stein-
grímsfjarðar í Hólmavík 1994-97, inn-
kaupastjóri hjá KÁ og á Selfossi og
verslunarstjóri hjá 11-11 1997-99,
verslunar- og innkaupastjóri Kaup-
Björn Bjarki Þorsteinsson, framkvæmdastj. Brákarhlíðar – 50 ára
Fjölskyldan Bjarki og Guðrún, ásamt Andra Steini og Aroni Inga nýfermdum, og Ólafi Axel og Jóhönnu Marín.
Myndin er tekin í Borgarnesi og það er að sjálfsögðu Hafnarfjall sem gnæfir svo tignarlega í baksýn.
Málsvari Manchester City
og Sjálfstæðisflokksins
„Peysufatadagur“ Vignir Helgi, Ómar Bjarki og Bjarki í peysum, prjón-
uðum í B́rákarhlíð sem boðnar voru upp við fjáröflun fyrir heimilið.
Reykjavík Atlas Ari Val-
entinsson fæddist 17.
mars 2018 kl. 14.10 á
Landspítalanum í Reykja-
vík. Hann vó 4.172 g og var
54 cm langur. Foreldrar
hans eru Karen Bergljót
Knútsdóttir og Valentin
Oliver Loftsson.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Dvergshöfða 2, 110 Reykjavík bilanaust@bilanaust.is
Sími: 535 9000 | bilanaust.is
Gæði, reynsla og gott verð
Vottaðir hágæða
VARAHLUTIR
í flestar gerðir bifreiða
Siðan 1962
Bílanaust er einnig í Hafnarfirði – Keflavík – Selfossi – Akureyri – Egilsstöðum
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is