Morgunblaðið - 04.07.2018, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 04.07.2018, Blaðsíða 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2018 Dreifingardeild Morgunblaðsins leitar að dugmiklu fólki 13 ára og eldra, til að bera út blöð. Allar nánari upplýsingar í síma 569 1440 eða dreifing@mbl.is Hafðu samband í dag www.mbl.is/laushverfi Hressandi morgunganga Vegna upplausnar í Sænsku aka- demíunni í tengslum við margum- töluð hneykslismál munu Nóbels- verðlaunin í bókmenntum ekki verða veitt í ár. Hópur sænskra menningarfrömuða, sem er óánægður með þá ákvörðun, hyggst stofna til nýrra verðlauna sem ætlunin er að veita á sama tíma og venjulega er tilkynnt um nýjan handhafa Nóbelsverð- launanna, í október. Í frétt The Guardian segir að yf- ir eitt hundrað rithöfundar, leik- arar, blaðamenn og fleira fólk sem starfar í menningargeiranum hafi stofnað Nýju akademíuna, sem muni veita ný verðlaun í haust. Í yfirlýsingu frá hópnum segir að Nýja akademían hafi verið stofnuð til að minna fólk á að bókmenntir og menning í víðustu merkingu eigi að stuðla að lýðræði, gagnsæi, samúð og virð- ingu, án forréttinda, hroka eða mismununar. Þá segir að á tímum þegar í síauknum mæli sé efast um mannleg gildi, þá verði bókmenntir sífellt mikilvægara afl til að koma í veg fyrir þöggun og kúgun. Fyrir vikið telur Nýja akademían að kunnustu bókmenntaverðlaun jarðar séu það mikilvæg að þrátt fyrir allt ætti að veita þau í ár. Sem mótvægi við ákvörðun Sænsku akademíunnar býður sú nýja bókavörðum í Svíþjóð að til- nefna vænlega verðlaunahafa úr hópi rithöfunda og skálda allra landa, með það í huga að leita að höfundi sem hafi sagt „sögu manna í heim- inum“. Þegar tilnefn- ingar hafa borist býður Nýja akademían almenn- ingi að kjósa og verða verk fjögurra höfunda sem flest atkvæði fá síðan metin af dómnefnd sem velur verðlaunahaf- ann. Nýja akademían verður síðan leyst upp 11. desember, eftir að verðlaunin hafa verið afhent. Sænska akademían hyggst veita tvenn Nóbelsverðlaun 2019. Ný verðlaun í Svíþjóð Teitur Gissurarson teitur@mbl.is „Við erum búnir að vera að hittast í rúmt ár og reyna að finna hvað okkur langar að spila,“ segir Óskar Guð- jónsson saxófónleikari um kvartett sinn MOVE sem heldur tónleika á Björtuloftum í Hörpu í kvöld. Tón- leikarnir eru hluti af sumardagskrá Múlans en Múlinn er djassklúbbur sem heldur tónleika á Björtuloftum allt árið um kring. Kvartettinn MOVE samanstendur af reyndum tónlistarmönnum að auki við Óskar; píanóleikaranum Eyþóri Gunnarssyni, bassaleikaranum Valdi- mari Kolbeini Sigurjónssyni og trommuleikaranum Matthíasi M.D. Hemstock. Efnið sem leikið verður á tónleik- unum er blanda af lögum frá gullald- arárum amerískrar djasstónlistar en einnig efni eftir meðlimi sveitarinnar. Reyna að mynda heildarhljóm „Ég er búinn að vera að henda inn hugmyndum jafnt og þétt yfir árið sem við erum búnir að vera að vinna. Við erum búnir að reyna að búa til okkar harmóníska og rytmíska heim þar sem maður tekur menn aðeins út úr elementunum sínum og út úr þæg- indarammanum. Maður er aðeins að ýta við því, bæði hjá sjálfum sér og öðrum,“ segir Óskar spurður um efni kvöldsins og bætir við: „Maður reynir að taka skref fram á við. Nú eða aftur á bak! Það fer eftir því hvernig litið er á það.“ Óskar segir meðlimi hljómsveit- arinnar hafa spilað saman áður en sveitin MOVE sé formlega um tveggja ára. „Þetta eru kannski svona tvö ár sem við erum búnir að vera að reyna að þróa með okkur einhvers konar hljómsveitarsánd af einhverri alvöru. Við erum að reyna að takast á við ólíkt efni en erum samt að reyna að mynda einhvern heildarhljóm á milli okkar inni í hverju efni fyrir sig,“ segir Óskar. Aðspurður hvort hljómsveitin hafi fundið hljóminn sem það leitar að segir Óskar glaður í bragði: „Neinei! Þetta er bara rétt byrjunin.“ Snarstefjun og spuni spila stórt hlutverk Óskar segir það bæði krefjandi og skemmtilegt að spila í forminu sem MOVE tekur sér fyrir hendur en snarstefjun og spuni spilar stórt hlut- verk í tónleikum kvartettsins. „Þú ert með einhvers konar grind, sem er melódían og harmónían og rythminn, en svo stendurðu sem tón- skáld uppi á sviði þegar þú ert að spila sóló. Þá þarftu að semja ennþá betri melódíu í rauntíma og að setja allan þinn sannfæringarkraft í það á þeirri stundu,“ segir Óskar og bætir við: „Þetta er listform sem býður upp á svo rosalega marga möguleika.“ Óskar segir að þrátt fyrir að hann sé saxófónleikari sveitarinnar standi það ekki upp á hann einan að spila sólóin og bætir við: „Þau [sólóin] skiptast eins jafnt og hægt er. Raun- verulega er engum sett of mikið fyrir. Það mega allir spila eins og þeir vilja spila þegar þeir vilja spila það. Þetta er gert í mesta bróðerni.“ Áhorfendur stýra stýningunni „Áhorfendur geta spilað stóra rullu í tónleikunum, allt eftir því hvernig þeir nálgast hlustunina,“ segir Óskar um tónlistina en hann segir hlustun vera það mikilvægasta í djasstónlist. Hann segir formið raunverulega vera aukaatriði og bætir við: „Þú ert að reyna að leita að þessu samspili á milli hljómsveitarmeðlimanna og áheyrendanna og svo aðstæðnanna sem þú ert í. Þú ert að reyna að fanga það augnablik inn í músíkina þannig að formið og lagið breytist ef þess er þörf.“ Eins og áður segir er Múlinn djass- klúbbur en hann er samstarfsverk- efni Félags íslenskra hljómlist- armanna (FÍH) og Jazzvakningar. Klúbburinn var nefndur í höfuðið á Jóni Múla Árnasyni en hann var heið- ursfélagi og verndari Múlans. Múlinn var stofnaður árið 1997 og hefur verið starfræktur síðan. Tónleikar MOVE hefjast klukkan 21.00 og standa að líkum í um tvo tíma með hléi. Þó segir Óskar: „Lengdin fer bara eftir því hvað áheyrendur vilja mikið og hvað við erum í miklum fílingi!“ „Það fá allir að taka sóló þegar þeir vilja“  Kvartettinn MOVE leikur á Múlanum á Björtuloftum Ljósmynd/Spessi Reyndir Liðsmenn MOVE, kvartetts Óskar Guðjónssonar eru öngvir aukvisar þegar kemur að djasstónlist. Fornleifafræðingar í Egyptalandi finna reglulega merka muni og minjar frá fyrri tímum. Um liðna helgi fannst, samkvæmt tilkynn- ingu frá ráðuneyti fornleifa í landinu, í Sidi Gaber-hluta borg- arinnar Alexandríu merkileg gröf frá Ptolemaic-tímabilinu. Gröfin kom í ljós þegar unnið var að grunni nýbyggingar og segja fornleifafræðingar að hún sé merkileg fyrir margra hluta sakir og hafi auk þess ekki verið skemmd af grafaræningjum fyrri alda. Þetta er stærsta og ríkmannleg- asta gröf frá Ptolemaic-tímabilinu sem fundist hefur í Alexandríu. Nærri henni fannst við uppgröft- inn höfuð hoggið í alabastur og er talið að það kunni að sýna ásýnd mannsins sem þar er grafinn. Mikil steinkista eða grafþró úr svörtu graníti fannst á fimm metra dýpi sem þykir, samkvæmt tilkynningunni, grunnt fyrir slík- ar minjar. Lokið er enn fest á kistuna með upprunalegri steypu- blöndu og verður ekki rofið fyrr en kistan er komin á safn. AFP Grafþró Ráðuneyti fornleifa í Egyptalandi sendi frá sér mynd af gröfinni sem fannst í Alexandríu. Í henni er svört steinkista úr graníti, sú stærsta sem þar hefur fundist. Merkileg gröf finnst í Alexandríu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.