Morgunblaðið - 11.07.2018, Síða 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 1. J Ú L Í 2 0 1 8
Stofnað 1913 161. tölublað 106. árgangur
REYNIST BEST
AÐ TREYSTA
INNSÆINU MÆTTIR Á EISTNAFLUG
SPÁÐ Í LEIK
ENGLENDINGA
OG KRÓATA
UNE MISÈRE 30 ÍÞRÓTTIR 4GUÐRÚN THEODÓRA 12
„Mig langar að faðma hann,“ sagði
faðir eins fótboltadrengjanna tólf
sem bjargað var úr hellinum í Taí-
landi. Aðgerðum lauk í gær þegar
náð var í síðustu fjóra piltana, auk
þjálfara þeirra.
Níutíu kafarar, þar af um 50 frá
öðrum löndum en Taílandi, tóku
þátt í björguninni en kafararnir
leiddu drengina í tveggja manna
teymum gegnum myrk og þröng
hellagöngin.
Drengirnir og þjálfari þeirra voru
allir fluttir á sjúkrahús í Taílandi
þar sem þeir verða í sóttkví um sinn
þar sem óttast er um ástand á
ónæmiskerfi þeirra. Fyrstu átta
drengjunum var bjargað á sunnu-
dag og mánudag. Eru þeir sagðir
við góða heilsu líkamlega og andlega
en þeir hafa gengist undir miklar
rannsóknir síðustu sólarhringa.
Foreldrar drengjanna hafa ekki
fengið þá í faðm sinn enn en hafa þó
séð drengina gegnum gler á sjúkra-
húsinu.
Samkvæmt BBC neyddust dreng-
irnir til að drekka vatnið í hellinum
og er því ótti um sýkingar. Þeir eru
einnig afar vannærðir. »17-18
„Mig langar að faðma hann“
Allir fótboltastrákarnir í Taílandi komnir heilir úr hellinum
AFP
Björgun Kafarar úr taílenska sjó-
hernum á leið að sækja drengina.
Þeir sem reynt hafa vita að sjósund er slík sæla að
fólk verður nánast háð því að fara í sitt kalda bað
með reglulegu millibili. Auk þess er félagsskapur
fólks sem stundar sjósund einstaklega gefandi og
stór hluti af stundinni góðu. Þessir tveir nutu vissu-
lega engrar sumarsólar í sínu júlísundi við Naut-
hólsvík í Reykjavík í gær, en veður er reyndar
aukaatriði fyrir flesta þá sem stunda sjósund.
Morgunblaðið/Valli
Tveir vinir og báðir á sundi
Sjósund þykir allra meina bót
Landeigendur í landi Voga í Mývatnssveit
hafa ákveðið að loka fyrir Kvennagjá í hell-
inum Grjótagjá en hellirinn hefur verið vin-
sæll baðstaður í gegnum tíðina. Ólöf Hall-
grímsdóttir, einn landeigenda, segir
aðkomuna oft og tíðum mjög slæma og hafa
þau því gripið til þess ráðs að loka fyrir
kvennagjána tíma-
bundið til að vernda
svæðið.
.„Virðingarleysið
er algjört. Það er
ekkert farið eftir
skiltunum. Þarna er
fólk að hafa hægðir,
þvo skóna sína, þvo
leirtauið, bursta
tennurnar og einnig
hafa sumir sofið
þarna í gjánni.“
Auk þess segir
Ólöf að ekki sé farið
eftir skiltum á svæð-
inu, þar sem standi
skýrt að ekki sé
leyfilegt að baða sig
inni í hellinum. Þau
hafi því sett girðingu
fyrir gjána og læst,
til að varna því að fólk stelist ofan í vatnið.
Enn er þó hægt að skoða og taka myndir af
hellinum. Ólöf segir eigendur ráðalausa og
því var ákveðið að grípa í þessa tímabundnu
lausn meðan beðið er eftir deiliskipulagi
fyrir landssvæðið.
„Við erum ekki undir það búin að fá
þennan aukna fjölda gesta á svæðið. Það er
dásamlegt að baða sig þarna, en við viljum
ekki að staðurinn eyðileggist,“ segir Ólöf.
Draumur landeigendanna er að opnað verði
aftur fyrir baðaðstöðu í hellinum og þá
helst með starfsmann á svæðinu sem getur
tryggt að borin sé virðing fyrir gjánni og
umhverfinu. ninag@mbl.is
Banna
böð í
gjánni
Fengu nóg af
slæmri umgengni
Vinsælt
» Grjótagjá var
vinsæll bað-
staður Íslend-
inga á 8. ára-
tugnum.
» Í kjölfar jarð-
hræringa á 8.
og 9. áratugn-
um hitnaði
vatnið um of.
» Upp úr alda-
mótum kólnaði
vatnið og stað-
urinn varð aftur
vinsæll.
MBaðferðir bannaðar í Grjótagjá »4
Meirihluti þeirra sem kaupa sér
fyrstu fasteign fá aðstoð frá fjöl-
skyldu eða vinum til að fjármagna
kaupin. Þá fer meðalaldur þeirra
sem kaupa sér fyrstu fasteign
hækkandi og eru líkur á að þessi
þróun haldi áfram samkvæmt hag-
fræðingi hjá Íbúðalánasjóði.
Í nýrri skýrslu frá Íbúðalánasjóði
kemur einnig fram að flestir þeir
sem eru á leigumarkaði hyggist
vera þar áfram en útlit er fyrir að
enn muni bætast í hópinn.
Helgi Valur Gunnarsson og
Helga Hlín Stefánsdóttir þurfa ekki
að fara inn á leigumarkaðinn en
þau eru í hópi þeirra sem gátu
keypt sér íbúð með aðstoð foreldra.
Þau segja stuðning foreldra skipta
sköpum og telja það mjög erfitt fyr-
ir skólafólk að festa kaup á fast-
eign. teitur@mbl.is »15
Flestir fá aðstoð við
fyrstu íbúðakaup
Íbúðir Meðalaldur þeirra sem kaupa
fyrstu fasteign fer hækkandi.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Sýkingum af völdum Listería
Monocytogenes virðist fara fjölg-
andi. Í fyrra sýktust sjö einstakl-
ingar af völdum bakteríunnar.
Fjórir af þeim létust, þar af eitt
ungabarn. Listería leggst verr á
aldraða, barnshafandi konur,
ófædd og nýfædd börn og ein-
staklinga með skert ónæmiskerfi.
Fullfrískt fólk á ekki að þurfa að
hafa áhyggjur af því að verða al-
varlega veikt af listeríu. Með-
göngutími sýkingar er að meðaltali
tvær vikur en liðið geta allt að 70
dagar frá neyslu matar og þar til
sýking greinist. Mikilvægt er að
sjóða mat vel, sérstaklega unna
vöru með langt geymsluþol. »14
Listeríusýkingum
fjölgar á milli ára
Leiðtogar aðildarríkja Atlantshafs-
bandalagsins halda til fundar í
Brussel í dag á spennuþrungnum
tíma. Donald Trump Bandaríkja-
forseti hefur ítrekað gagnrýnt að-
ildarríkin, sér í lagi Þjóðverja, fyrir
að standa ekki við samþykkt fram-
lög til NATO, eða 2% af landsfram-
leiðslu.
Er talið líklegt að ummæli hans
varpi skugga á fundinn.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráð-
herra og Guðlaugur Þór Þórðarson
utanríkisráðherra sækja fundinn
fyrir hönd Íslendinga. Katrín mun
m.a. funda með Jens Stoltenberg,
framkvæmdastjóra NATO, og
fulltrúum ICAN, samtaka um
kjarnaafvopnun, sem hlutu friðar-
verðlaun Nóbels í fyrra.
Þrátt fyrir gagnrýni Trump seg-
ist Guðlaugur ekki telja að sam-
stöðu bandalagsþjóðanna verði ógn-
að. „Þetta snýst ekki bara um orð,
heldur gerðir,“ sagði hann og benti
á að Bandaríkjamenn hefðu í verki
sýnt fram á áframhaldandi hollustu
við NATO. »10 og 17
Spennuþrunginn
fundur NATO í dag