Morgunblaðið - 11.07.2018, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. JÚLÍ 2018
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Óútskýrður akstur Thomasar Møll-
er Olsen að morgni 14. janúar í
fyrra frá klukkan sjö til ellefu er
190 kílómetrar, en ekki að lág-
marki 140 kílómetrar eins og hafði
komið fram við aðalmeðferð máls-
ins fyrir héraðsdómi. Þetta er nið-
urstaða nýrrar skoðunar lögreglu-
stjórans á höfuðborgarsvæðinu um
akstur rauðu KIA Rio-bifreiðar-
innar sem Thomas var með á leigu
á þeim tíma sem Birna Brjánsdóttir
hvarf.
Skoðun lögreglunnar var gerð að
beiðni ríkissaksóknara í tengslum
við meðferð matsmáls fyrir héraðs-
dómi. thorsteinn@mbl.is
Fjöldi kílómetra
passar við nýtt mat
Dómsmál Thomas leiddur fyrir dómara.
Erla María Markúsdóttir
erla@mbl.is
„Þetta kom óþægilega við mann og
maður hafði auðvitað mestar áhyggj-
ur af starfsfólkinu og hvort það væri í
hættu en sem betur fer var það ekki
svoleiðis,“ segir Hafsteinn Viktors-
son, forstjóri PCC Bakka, í samtali
við mbl.is. Frá því að annar ofn kís-
ilversins var gangsettur 30. apríl hef-
ur fjórum sinnum verið slökkt á hon-
um, fyrst vegna tæknilegrar bilunar,
tvisvar vegna viðhalds málmhreinsi-
búnaðar og nú vegna eldsvoða.
Eldur kom upp í kísilverinu í
fyrrakvöld., eins og kom fram í
Morgunblaðinu í gær. Greiðlega
gekk að slökkva eldinn en um alls-
herjarútkall var að ræða og sinntu
tæplega 30 slökkviliðsmenn slökkvi-
starfi um tíma. Frumniðurstöður
benda til þess að eldurinn hafi byrjað
í einum af ofngeymum sem mata hrá-
efni inn í ofninn og breiðst þaðan yfir
í rafskautapallinn. Allt tiltækt
slökkvilið Norðurþings var kallað út
ásamt liðsauka frá slökkviliði Þing-
eyjarsveitar. Tók það slökkviliðið um
einn og hálfan klukkutíma að slökkva
eldinn.
Skemmdir eru ekki taldar veru-
legar og mun fyrirtækið einbeita sér
að því að gangsetja hinn ofn verk-
smiðjunnar, Boga, og hefja fram-
leiðslu aftur sem fyrst. Á meðan
verður allt kapp lagt á að gera ofninn
Birtu rekstrarhæfan á ný. „En þetta
þýðir að við munum ekki framleiða
kísil í þessum ofni í einhvern tíma,“
segir Hafsteinn, sem vonast til að
framleiðsla verði komin aftur í gang
eftir tíu daga.
Hann segir eldsvoðann mikið áfall.
„Við vorum komin á flug með ofninn
og farin að framleiða hágæðavöru
þegar þetta gerist. Þetta er heilmikið
áfall. En það birti yfir þegar maður
gerði sér grein fyrir því að fólk var
ekki í hættu og enginn slasaðist.“
Rafmagnslaust varð á öllu svæði
kísilversins í gærmorgun og voru
neyðarskorsteinar opnir í um 45 mín-
útur þegar rafmagn kom aftur á.
Hafsteinn segir að engin tengsl séu á
milli rafmagnsleysisins og eldsvoð-
ans. „Það varð villa í tölvubúnaði sem
brást vitlaust við þannig að það þurfti
að opna neyðarskorsteinana tvo. Í
hvert skipti sem slökkt er á ofnunum
eða eitthvað fer úrskeiðis þá eru
neyðarskorsteinarnir opnaðir og það
hefur gerst nokkrum sinnum.“
Fjórða stöðvun hjá PCC Bakka á árinu
Tæknilegar bilanir, viðhald og elds-
voði ástæður stöðvunar Framleiðsla í
ofninum í gang að nýju eftir 10 daga
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Eldur Slökkviliðsbíll að störfum í
kísilverinu á mánudagskvöldið.
PCC Bakki 2018
» 3. maí: Neyðarskorsteinar
opnaðir vegna viðhaldsvinnu.
» 9. maí: Ofninn hitaður og
lykt barst til Húsavíkur.
» 15. maí: Slökkt á ofni vegna
tæknilegrar bilunar.
» 18. maí: Ofninn tekinn úr
rekstri vegna viðhalds.
» 9. júlí: Rafmagn fór af öllu
svæði kísilversins um morg-
uninn og eldur kemur upp í
ofnhúsi kl. 19:30.
Karlmaður var í Héraðsdómi Vest-
urlands í síðustu viku dæmdur í
fjögurra mánaða skilorðsbundið
fangelsi fyrir að hafa ráðist gegn
eiginkonu sinni í sumarhúsi í Borg-
arbyggð í apríl sl. Játaði maðurinn
að hafa veist að henni, slegið hana í
andlitið svo hún féll og hlaut skurð
ofan við auga, mar og bólgu, auk
bólgu á handlegg, hlið og hné.
Taldi dómurinn fjögurra mánaða
skilorðsbundið fangelsi hæfilega
refsingu, en fullnusta refsingar fell-
ur niður að þremur árum liðnum.
Dæmdur fyrir árás
gegn eiginkonunni
Að kikna í hnjáliðunum, missa jafnvægið, fá svimatilfinningu, hjartslátt,
svitna, fara í andnauð og verða jafnvel óglatt. Þeir sem glíma við loft-
hræðslu kannast vel við þessi einkenni og fleiri. Vonandi hafa þessir starfs-
menn verktakafyrirtækis ekki verið lofthræddir þegar þeir fóru upp á þak
fjölbýlishúss í Eskihlíð á dögunum.
Í svona aðstæðum er vissara að fara varlega og gæta fyllsta öryggis.
Morgunblaðið/Hari
Vissara að starfsmenn
glími ekki við lofthræðslu
Þrír í þakviðgerðum í Eskihlíð
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Fyrirtæki sem auglýsa skipulagðar
ferðir á Svínafellsjökul hafa undan-
farið leitað á aðra jökla með við-
skiptavini sína, t.d. Skaftafellsjökul,
vegna sprungunnar sem liggur á ská
niður vesturhlíð Svínafellsheiðar.
Veðurstofa Íslands og Háskóli Ís-
lands komu um helgina fyrir sírit-
andi mælum við sprunguna, en ekki
er útilokað að stórt berghlaup geti
orðið á svæðinu. Ríkisstjórnin ræddi
málið á fundi sínum í gær.
Almannavarnir vöruðu í lok júní
við ferðum á jökulinn og mæltust til
þess að ferðaþjónustuaðilar færu
ekki með hópa upp á jökulinn vegna
hættu á skriðuföllum á hann.
Hafa dregið úr ferðum
Ólafur Sigurðsson hjá Ferðaþjón-
ustunni Svínafelli segir að eftir íbúa-
fund í maí sl. hafi dregið snögglega
úr umferð í grennd við sprunguna.
„Menn fara ekki mikið upp á fjallið
sjálft, en voru mikið að fara á jökul-
inn fyrir neðan þetta. Eftir þennan
fund sem var um daginn hafa menn
dregið verulega úr því,“ segir hann.
„Þetta angrar okkur ekki mikið,“
segir Ólafur, sem rekur gistipláss.
„Það er ein afbókun sem við vitum af
vegna þess að fólk treysti sér ekki til
að koma á svæðið,“ segir Ólafur.
„Þetta hefur aðallega áhrif á fyrir-
tæki sem hafa verið með skipulagðar
ferðir upp á jökulinn. Þau leita sér að
öðrum jöklum til að fara á,“ segir
hann og nefnir að menn bíði spenntir
eftir mælingum Veðurstofunnar.
Farið á aðra
jökla til öryggis
Sýna varkárni við Svínafellsjökul
Veðurstofan mælir gliðnun í sprungu
Morgunblaðið/Frikki
Svínafellsjökull Stór sprunga er í
vesturhlíð Svínafellsheiðar.
Mannbjörg varð á þriðja tímanum í
gær þegar eldur kom upp í báti á
Héraðsflóa. Stjórnstöð Landhelgis-
gæslunnar bárust neyðarboð frá
bátnum og samkvæmt fyrstu upp-
lýsingum var báturinn sokkinn.
Einn var um borð og tókst honum
að komast í björgunarbát og senda
neyðarkallið. TF-SYN, þyrla Gæsl-
unnar, var við leit að meintum
hvítabirni suður af Hraunhafnar-
vatni á Melrakkasléttu þegar til-
kynning barst um slysið og var
áhöfn hennar þegar í stað beðin um
að halda á vettvang.
Rétt rúmum hálftíma eftir að TF-
SYN var kölluð út var búið að hífa
manninn um borð í þyrluna úr
björgunarbátnum. Aðstæður til
björgunaraðgerða voru góðar á
Héraðsflóa og var maðurinn við
góða heilsu. Enn logaði í bátnum
þegar þyrlan hélt frá vettvangi
slyssins. Var maðurinn fluttur til
Egilsstaða og lenti þyrlan þar um
klukkan 16:00 síðdegis.
Mannbjörg þegar
eldur kom upp í báti
TF-SYN Áhöfn þyrlu Landhelgisgæsl-
unnar hafði í nægu að snúast í gær.
Morgunblaðið/Hari
Björgunarsveitarfólk frá Björg-
unarfélagi Hornafjarðar bar slas-
aðan göngumann um kílómetra leið
frá Vestrahorni austan við Höfn í
Hornafirði að vegslóða í gærmorg-
un. Maðurinn hafði ökklabrotnað
og var fluttur með bíl til Hafnar til
aðhlynningar. Þyrla Landhelgis-
gæslunnar var upptekin við ísbjarn-
arleit á Melrakkasléttu.
Báru slasaðan mann
einn kílómetra
Eldur kom upp í heimahúsi á Kjal-
arnesi laust fyrir klukkan sjö í gær-
morgun. Slökkvilið sá um að
slökkva og reykræsta. Íbúi var
fluttur á slysadeild til skoðunar
vegna gruns um reykeitrun.
Einhverjar skemmdir urðu vegna
eldsins og reyks að því er fram kom
í dagbók lögreglunnar.
Eldur í heimahúsi
á Kjalarnesi