Morgunblaðið - 11.07.2018, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. JÚLÍ 2018
Nína Guðrún Geirsdóttir
ninag@mbl.is
Í Mývatnssveit er einn þekktasti
hellir landsins, Grjótagjá. Í gjánni
má finna lághitavatn en þar hefur
löngum verið vinsæll baðstaður með-
al Íslendinga og nú í seinni tíð, er-
lendra ferðamanna. Undanfarið hef-
ur ágangur ferðamanna verið svo
mikill að landeigendur sjá engan
annan kost en að loka opinu í
kvennagjánni fyrir umferð ferða-
manna.
Ólöf Hallgrímsdóttir er einn eig-
enda að landi Voga í Mývatnssveit.
Hún segist verulega ósátt við um-
gengnina í gjánni og virðist einu
gilda þó að sett séu upp skilti.
„Við settum
upp leiðbeinandi
skilti á fjórum
tungumálum þar
sem helstu upp-
lýsingar koma
fram. Þrátt fyrir
það er umgengn-
in vægast sagt
slæm, fólk er ekki
að virða skiltin
þar sem stendur
skýrt að ekki sé lengur leyft að baða
sig í gjánni,“ segir Ólöf.
Í kjölfar jarðhræringa á áttunda
og níunda áratug 20. aldar hitnaði
vatnið verulega í gjánni og það var
ekki fyrr en árið 2004 að vatnið kóln-
aði og varð aftur ákjósanlegt fyrir
baðferðir.Um ræðir bæði karla- og
kvennagjá þar sem áður fyrr böðuðu
kynin sig aðskild frá hvort öðru.
Að sögn Ólafar er Grjótagjá ein-
stakur staður og eru flekamót í
gjánni. „Þessi staður er víða auglýst-
ur og gífurlega vinsæll. Við erum að
tala um hundruð gesta á hverjum
degi.“
Hún segir aðkomuna í gjánni
verulega ósnyrtilega á köflum.
„Virðingarleysið er algjört. Þarna er
fólk að hafa hægðir, þvo skóna sína,
þvo leirtauið, bursta tennurnar og
einnig hafa sumir sofið þarna inni.
Við sáum ekki annað í stöðunni en að
láta loka fyrir opið á kvennagjánni.“
Ólöf tekur þó fram að lokunin sé
fullkomlega afturkræf og sé aðeins
tímabundin lausn á meðan beðið er
eftir deiliskipulagi. „Málið er í bið-
stöðu á meðan verið er að deiliskipu-
leggja svæðið. Sent var erindi varð-
andi deiliskipulagið til umhverfis-
ráðuneytisins í apríl og enn er beðið
eftir svari frá þeim. Skipulagið er
forsenda fyrir uppbyggingu innviða
á svæðinu. Í dag er svæðið þó opið og
almenningi frjálst að koma og taka
myndir af gjánni.“
Erfitt að eiga við þetta
Auk þess að loka fyrir kvenna-
gjána hafa þau gripið til annarra ráð-
stafana til að vernda svæðið, s.s. sett
upp þurrkamra og útbúið bílastæði.
Ólöf segir það duga skammt. „Við er-
um ekki undir það búin að fá þennan
fjölda. Við höfum sett upp strengi og
gert stíga til að stjórna umferð fólks
en þetta eru það margir að erfitt er
að eiga við þetta. Þetta er merkileg-
ur og áhugaverður staður og það er
dásamlegt að baða sig þarna. Við
viljum þó ekki að staðurinn eyðilegg-
ist. Okkur er annt um hann og viljum
að það verði eftirsóknarvert að heim-
sækja hann,“ segir Ólöf.
Að hennar sögn er draumur eig-
enda að hafa starfskraft sem vaktar
svæðið og leiðbeinir gestum.
„Við vonum að þetta geti orðið
baðstaður aftur, en þá undir eftirliti.
Það er ljóst að það þarf starfsfólk á
svæðum sem þessu til þess að vernda
og fylgjast með að borin sé virðing
fyrir þeim,“ segir Ólöf ennfremur.
Læst Eigendur neyddust til að loka hellismunnanum svo gestir stelist ekki í sundferðir.
Ljósmynd/Ólöf Hallgrímsdótti
Slæmt Ólöf segir aðkomuna oft mjög slæma. Þau hafi m.a. þurft að hreinsa upp hægðir.
Landeigendur banna baðferðir
Landeigendur eru ráðalausir vegna slæmrar umgengni ferðamanna í Grjótagjá í Mývatnssveit
Bíða eftir deiliskipulagi fyrir svæðið Ferðamenn hafa meðal annars gengið örna sinna í gjánni
Ólöf
Hallgrímsdóttir
Fjórir menn luku á mánudagskvöld
fjögurra daga siglingu á skútunni
Xenu frá Færeyjum til Íslands í
skútukeppninni Viking Offshore
Race, en lagt var úr höfn í Þórshöfn í
Færeyjum föstudaginn 6. júlí.
Jens Pétur Jensen, fram-
kvæmdastjóri Internets á Íslandi (IS-
NIC) og skipstjóri skútunnar Xenu,
segir í samtali við Morgunblaðið að
ferðalagið hafi gengið vel þótt veður
hafi verið afar vont. „Það gekk á
ýmsu, við misstum sjó niður um lúg-
una í nokkur skipti í ferðinni þannig
að siglingatækin hjá okkur duttu út. Í
raun og veru duttu öll siglingatækin
út fyrir utan AES-kerfið og það sem
við vorum með í „iPad-inum“,“ segir
Jens léttur.
Með honum í áhöfn voru Jay
Thompson, bandarískur atvinnusigl-
ari, Arnþór Ragnarsson úr siglinga-
félaginu Þyt í Hafnarfirði og Árni T.
Guðmundsson járnsmiður. Segist
Jens þakka fyrir að hafa sterkan og
handlaginn mann um borð eins og
Árna.
„Þetta er sama slóðin og víking-
arnir sigldu til Íslands. Fyrsta sem
við sjáum til landsins frá hafi er Ing-
ólfshöfði og Hjörleifshöfði,“ segir
Jens um siglingaleiðina frá Fær-
eyjum til Íslands. Jens hvetur Íslend-
inga til þess að kynna sér siglingar
betur, enda hafi þær spilað stóran
sess allt frá landnámi. axel@mbl.is
Ljósmynd/Steindór Dan Jensen
Heimkoma F.v. Jay Thompson, Jens Pétur Jensen, Arnþór Ragnarsson og Árni T. Guðmundsson skála við höfnina.
Í svaðilför á víkingaslóð
Þrír Íslendingar og einn Bandaríkjamaður tóku þátt í sigl-
ingakeppni milli Færeyja og Íslands Vont veður hafði áhrif
Basko og Samkaup
hafa undirritað
kaupsamning um
kaup Samkaupa á
fjórtán verslunum,
m.a. undir merkjum
10-11 og Iceland.
Samkvæmt tilkynningu frá
Basko er kaupsamningurinn háður
ákveðnum fyrirvörum, m.a. sam-
þykki Samkeppniseftirlitsins.
Basko rekur samtals 42 sölustaði
undir merkjum 10-11, Iceland,
Inspired By Iceland, Háskólabúð-
arinnar, Kvosarinnar, Bad Boys og
Dunkiń Donuts. Eftir kaup Sam-
kaupa standa því eftir 28 verslanir
á vegum Basko, en ekki er gefið
upp hvaða verslanir
nákvæmlega Sam-
kaup keypti. Mun
Samkaup meira vera
að kaupa sér stað-
setningar frekar en
vörumerki.
Samhliða breytingunum lætur
Árni Pétur Jónsson af störfum sem
forstjóri Basko og tekur sæti í
stjórn félagsins. Hann verður
áfram hluthafi í félaginu og mun
sitja sem stjórnarformaður í Eldum
rétt ehf., dótturfélagi Basko.
Í stað hans hefur Sigurður Karls-
son verið ráðinn framkvæmdastjóri
Basko. Hefur hann starfað hjá fyr-
irtækinu frá árinu 2000.
Samkaup kaupir fjórtán verslanir Basko
FALLEG OG VÖNDUÐ
LEIKFÖNG
Kíktu á netverslun okkar
bambus.is
Borgartún 3, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is
bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14
úr náttúrulegum efnivið,
tré og silki