Morgunblaðið - 11.07.2018, Page 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. JÚLÍ 2018
Katrín Lilja Kolbeinsdóttir
katrinlilja1988@gmail.com
Guðrún Theodóra Alfreðs-dóttir er menntaður vöru-hönnuður og starfar semslíkur í London en þar
hefur hún búið í tæp sex ár. Theo-
dóra lauk BA-námi í vöruhönnun frá
Listaháskóla Íslands og fljótlega
eftir útskrift flutti hún til Frakk-
lands. Þar hóf hún starfsnám hjá
Domaine de Boisbuchet, skapandi
samfélagi hönnuða sem halda viku-
löng námskeið fyrir áhugasama.
Eftir starfsnámið í Frakklandi hélt
Theodóra til Bretlands.
„Draumurinn var alltaf að kom-
ast í mastersnám í The Royal Col-
lege of Art í London sem ég gerði
haustið 2013. Aðstæður buðu upp á
að flytja til Bretlands veturinn áður
og nýtti ég þann vetur til þess að
fara í starfsnám hjá Faye Toogood í
London sem mótaði mig mikið og
svo til að vinna í möppu og umsókn
fyrir skólann ásamt öðru. Í Royal
College of Art var ég í deild sem
kallast Design Products og var svo
heppin að vera á síðasta árinu sem
þeir kenndu samkvæmt gamla kerf-
inu. Það sem er svo sérstakt við
RCA er að innan vöruhönnunar-
deildarinnar er hægt að velja sér
svið, eða línu, sem hentar áhugasviði
manns best og er þar allt frá mjög
gagnrýninni samfélagslegri hönnun
upp í hreina iðnhönnun. Hægt er að
velja sér línu fyrir hvort ár fyrir sig
og var ég fyrra árið á línu sem skoð-
aði það hvernig hönnuðir geta verið
hvatar að breytingum í víðum skiln-
ingi, t.d. með því að nota hönnun til
þess að varpa ljósi á ákveðin málefni
eða breyta mynstrum innan ákveð-
inna kerfa/verkferla. Seinna árið var
ég svo á svokallaðri Designer/Maker
línu undir handleiðslu Max Lamb og
Harry Richardson og gafst mér þar
tækifæri til þess að samtvinna þenn-
an þankagang frá fyrsta árinu við
þeirra nálgun.“
Þekktir hönnuðir
Theodóra hefur nýtt tíma sinn
vel í Bretlandi, en hún hefur meðal
annars starfað fyrir þekkta hönnuði
á borð við Phillippe Malouin og Bet-
han Laura Wood.
„Philippe var kennari í RCA
þegar ég var þar. Rétt eftir að ég út-
skrifaðist var hann að gera verkefni
sem hafði snertifleti við eitt af mín-
um lokaverkefnum svo hann hringdi
í mig og bauð mér að koma og vinna
rannsókn fyrir sitt verkefni, ég hafði
alltaf verið með stjörnur í augunum
yfir honum sem hönnuði svo ég verð
að viðurkenna að ég fékk fiðrildi í
magann. Rannsóknin gekk mjög vel
og ég endaði með að vinna hjá hon-
um í tæpt eitt og hálft ár. Það var
ómetanlegt að vinna hjá Phil. Ég
lærði svakalega mikið af honum,
meðal annars hvernig maður tæklar
alvöru verkefni á þeim hraða sem er
krafist, hvernig það gengur fyrir sig
að vera með eigið stúdíó og hrein-
lega að treysta innsæinu, það virðist
alltaf hafa rétt fyrir sér,“ segir
Theodóra og bætir við: „Það var svo
svipað með Bethan, ég kannaðist við
stelpuna sem var aðstoðarhönnuður
hjá henni og þegar ég frétti að hún
væri að flytja frá London lét ég þær
vita að ég væri spennt fyrir að verða
partur af því stúdíói. Eins og alls
staðar er hönnunarheimurinn frekar
lítill hérna í einhverjum skilningi svo
Bethan þekkir bæði Philippe og
Max og vissi því að ég hentaði vel í
starfið.“
Theódóra hefur sömuleiðis unn-
ið sjálfstæð verkefni, meðal annars
matarstell sem fjallar um efnisheim-
inn í kringum okkur. Að sögn Theó-
dóru er fólk oft upptekið af því hvað
það borðar en veltir því minna fyrir
sér hvaðan diskurinn sjálfur sé kom-
inn. „Allir hlutirnir í settinu inni-
halda steinefnið feldspar í einhverri
mynd og eru eiginleikar þess nýttir
misjafnlega í hverjum iðnaði fyrir
sig en settið staflast svo upp í tótem
sem myndar tengsl milli allra efn-
anna. Núna nýlega fékk ég styrk frá
Hönnunarsjóði sem ég er ótrúlega
þakklát fyrir til þess að gera litla
framleiðslu af settinu en það verður
frábært að sjá það komast í almenna
sölu.“
Að sögn Theódóru hafa önnur
verkefni hennar verið meira ferlis-
drifin. Til að mynda eitt verka henn-
ar sem var sýnt á sýningunni Til-
raunir - leir og fleira í Hafnarborg,
þar sem hún, ásamt Daniel Durnin,
prófaði sig áfram með nýjar leiðir til
þess að brenna leir án þess að hrófla
við honum.
„Það er, í stað þess að grafa
hann upp og búa til hlut sem er svo
settur í brennsluofn þá létum við
jarðveginn sjálfan móta hlutinn og
brenndum hann með gasbrennara á
staðnum. Núna undanfarið hef ég
svo verið að vinna verkefni sem
skoðar mótagerð og sé ég fram á að
það verði verkefni í nokkrum stig-
um.“
Ásamt fjölda annarra verkefna
hefur Theódóra einnig verið að
kenna í Listaháskóla Íslands. „Ég
var að kenna í Listaháskólanum á
síðustu önn, var með 9 vikna nám-
skeið með nemendunum á fyrsta ári
í vöruhönnun. Þar voru þau að kom-
ast aðeins inn í þennan þankagang
og gera allskonar spennandi til-
raunir með efni og aðferðir. Hug-
myndin var að kynna þeim mismun-
andi æfingar sem þau geta nýtt sér í
hugmyndavinnu og fá þau til að
skoða hlutina frá nýjum sjónar-
hornum, reyna að átta sig á hvar
þau geta nýtt sér verkferla á nýjan
hátt eða komið með einhvers konar
inngrip í þá. Mér fannst mjög
spennandi að kenna, gaman að geta
miðlað og á sama tíma lærði ég hell-
ing af þeim og öllu ferlinu. Planið er
því að kenna þennan sama kúrs aft-
ur næsta haust og hlakka ég mikið
til.“
Theódóra var einnig með verk
til sýnis á HönnunarMars sem fram
fór dagana 15.-18. mars. „Fyrsti
hluti verkefnisins, Mót, var kynntur
á HönnunarMars. Verkefnið er ferl-
isdrifin rannsókn sem skoðar mögu-
leika á smávægilegum inngripum í
mótagerð með eftirlíf móta að leið-
arljósi. Í mörgum framleiðsluferlum
er mótagerð nauðsynleg til þess að
búa til þann hlut sem óskað er eftir.
Að verkinu loknu er mótið svo sett
til hliðar og athyglin færist á þann
hlut sem það gefur af sér. Ég er því
búin að vera að skoða hvernig hægt
er að lengja lífdag mótanna sjálfra
eftir að frumhlutverki þeirra er lok-
ið. Fyrsti hluti verkefnisins er þrí-
víðar skissur sem endurspegla kons-
eptið en þar fá mótin áframhaldandi
líf sem abstraktverk eftir að upp-
haflegu hlutverki þeirra er lokið.
Næstu skref verkefnisins eru að
færa þennan þankagang inn í iðn-
aðarumhverfi, svo sem gler- og ker-
amikframleiðslu,“ segir Theódóra.
Margt spennandi í bígerð
Að sögn Theódóru er margt
spennandi í bígerð á næstu mán-
uðum. „Planið er að koma matar-
stellinu í framleiðslu núna á næstu
mánuðum og vonandi koma því í
sölu í lok sumars. Svo erum við hóp-
ur úr RCA sem erum að undirbúa
samsýningu fyrir London Design
Week sem er í september. Hug-
myndin er að við vinnum sjálfstætt
en innan sama þema til þess að gera
gagnvirka leikmynd þar sem við
munum svo nota leikara, hljóð og
myndbrot til þess að breyta upplifun
á rýminu á hverjum degi. Við erum
ennþá í hugmyndavinnu svo þetta
gæti allt breyst, en það er æðislegt
að endurstilla orkuna okkar saman
og vinna að sameiginlegu markmiði.
Svo er ég partur af öðrum óform-
legum hóp sem kallast Designers On
Holiday og er líka RCA-tengdur en
fer hann til Gotlands í Svíþjóð á
hverju sumri að bralla saman. Þar
erum við í tvær vikur í náttúrunni og
vinnum að mismunandi verkefnum,
bæði stórum og smáum. Í fyrra
bjuggum við t.d. til gufubað og úti-
sturtuklefa en núna í sumar er plan-
ið að búa til betra vatnsveitukerfi á
þessu litla svæði og byggja fleiri
kofa til að sofa í ásamt því að baka
brauð í útiofninum sem við höfum
gert og lita efni með matar-
afgöngum. Svona dagsdaglega vinn
ég svo bæði að eigin verkefnum og
„freelance“ en ég er með nokkur
stúdíó/fyrirtæki sem ég vinn reglu-
lega með og sinni þar vöruhönnun,
rýmishönnun, listrænni ráðgjöf og
rannsóknum, stíliseringu fyrir
myndatökur og fleira skemmtilegt,
allt eftir verkefnum hverju sinni,“
segir Theódóra að lokum.
Innsæið virðist alltaf hafa rétt fyrir sér
Guðrún Theodóra
Alfreðsdóttir, vöruhönn-
uður, lét drauminn
rætast og fór í meistara-
nám í London. Hún býr
nú í borginni, hefur starf-
að fyrir þekkta hönnuði
og vinnur að eigin verk-
efnum.
Hönnuður Guðrún Theodóra Alfreðsdóttir, vöruhönnuður í London. Litríkt Nokkrir hlutir, sem Guðrún Theodóra, verkhönnuður, hefur skapað.
BETA SUMARTILBOÐ
ekki bara gott verð...
skápur
Verkfæraskápur
Kr. 198.227.-
Beta EASY verkfæraskápur
374 stk
7 skúffur (588x367 mm) á rennibrautum
Skúffubotn varinn með mjúkri gúmmímottu
4 hjól - 125 mm
2 hjól föst og 2 með beygju, 1 bremsa
Miðlæg læsing á framhlið fyrir skúffur
Thermoplast vinnuborð, ber 800 kg
Hægt að bæta við pappírsrúlluhaldi
Fáanlegur flösku og brúsahaldari
Vörunúmer: BE024002101 -
024509011, 024509080,
024509130, 024509210
923E/C25
Kr. 14.228.-
Topplyklasett
1/2” - 25 hlutir
903E/C42
Kr. 5.490.-
Topplyklasett
1/4” - 42 hlutir
Öll sumartilboðin frá Beta má sjá á heimasíðu Iðnvéla: www.idnvelar.is
1263/D6
Kr. 3.906.-
Skrúfjárnasett
6 stk (+ og -)
2056 E/E17
Kr. 52.496.-
Verkfærataska
144 hlutir