Morgunblaðið - 11.07.2018, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 11.07.2018, Qupperneq 14
Thinkstock/Getty Images Greining Erfitt getur reynst að finna orsakavaldinn að sýkingu. Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is „Það greindust sjö með Listeria monocytogenes-sýkingu í fyrra. Fjór- ir létust af völdum sýkingarinnar, þrír einstaklingar með undirliggjandi sjúkdóma og ungabarn en þetta er sá hópur sem er í mestri hættu. Heil- brigðum einstaklingum sem fá lister- íusýkingu verður ekki meint af henni að öllu jöfnu,“ segir Haraldur Briem, settur sóttvarnalæknir. Hann segir að frá því að skráning hófst árið 1978 hafi að meðaltali einn einstaklingur greinst með listeriu á ári. Sum árin hafi enginn greinst en önnur ár frá einu og upp í fimm tilfelli. „Sýking af völdum listeríubakteríu virðist vera að aukast og er það í takt við aukningu í öðrum Evrópulöndum. Við höfum verið í samstarfi við að ættgreina bakteríuna en við höfum ekki getað tengt sýkingar hér á landi við sýkingar í öðrum Evrópulönd- um,“ segir Haraldur. Langt frá neyslu til sýkingar „Vandamálið við að finna orsaka- vald listeríusýkingar er hvað það er langur tími sem líður frá því að ein- staklingur neytir vöru með lister- íubakteríu og þar til hann veikist. Það er erfitt að spyrja um neyslumynstur daga eða vikur aftur í tímann,“ segir Svava Liv Edgarsdóttir hjá Matvæla- stofnun. Hún segir að stofnunin sem hafi eftirlit með matvælaframleiðslu afurða úr dýraríkinu hafi farið í um- fangsmiklar fyrirbyggjandi aðgerðir og fræðslu í því skyni að sporna við listeríubakteríum í matvælum. Á mánudag tilkynnti Matvæla- stofnun að grunur léki á listeríu í frosnum maísbaunum og mexíkó- blöndu og innkallaði innflutningsaðil- inn allar vörur sem framleiddar voru frá 13. ágúst 2016 til 20. júní 2018. Listeríusýkingum hefur fjölgað milli ára  Sjö greindust í fyrra  Af þeim létust fjórir  Aukning í Evrópulöndum  Erfitt að finna orsaka- valdinn  Litlar afleiðingar fyrir fullfrískt fólk  Fyrirbyggjandi aðgerðir og fræðsla hjá MAST 14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. JÚLÍ 2018 Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrir- tækja (SSF), skrifaði grein í Morg- unblaðið, sem birtist í gær, undir fyrirsögninni Meingölluð íslensk lög um sjúkdómatryggingar. Friðbert segir í grein sinni að einn stór galli sé á sjúkdómatrygg- ingunni, sem stríði gegn hags- munum trygg- ingataka, en það sé lagaákvæðið um að sá sem rétt eigi til bóta sam- kvæmt slysa- tryggingu, sjúkratryggingu eða heilsutrygg- ingu með eða án uppsagnarréttar glati þeim rétti ef ekki er gerð krafa til trygginga- félagsins um bætur innan árs frá því að tryggingataki fékk vitneskju um sjúkdóm sem hann stríðir við. (Krabbamein, hjarta- eða nýrna- sjúkdómar og tauga- og hrörnunar- sjúkdómar.) Í grein Friðberts kemur fram að annars staðar á Norðurlöndum er tilkynningarfresturinn þrjú ár og í Danmörku og víðar sé samstarf milli heilbrigðisyfirvalda, trygginga- félaga og viðskiptavina varðandi sjúkdómatryggingar. Greinist ein- staklingur með einhvern ofan- greindra lífsógnandi sjúkdóma þá sendi heilbrigðisyfirvöld viðkomandi bréf þar sem sjúklingurinn er minntur á að skoða vel allar per- sónulegar tryggingar til að fara ekki á mis við hugsanleg réttindi. Ekkert slíkt samstarf sé hér á landi og neyt- endavernd sé almennt ábótavant. „Ég gekk á tryggingafélagið sem ég er hjá, til þess að fá skýringu á því hvers vegna tilkynningarfrest- urinn er bara eitt ár hér en þrjú ár á hinum Norðurlöndunum,“ sagði Friðbert í samtali við Morgunblaðið í gær. Hann segir að einu svörin sem hann hafi fengið hafi verið að svona hefði þetta verið ákveðið á Alþingi. En þegar hann hafi farið að kynna sér málið, komi glöggt í ljóst að það sé krafa tryggingafélaganna í um- sögnum til Alþingis um frumvarpið frá 2004 að sama gildi um sjúkdóma- tryggingu og slysatryggingu. „Mér finnst einnig mikilvægt, þegar sjúklingur greinist með ein- hvern þessara sjúkdóma, krabba- mein, hjarta- eða nýrnasjúkdóma eða tauga- og hrörnunarsjúkdóm, að viðkomandi sjúkrastofnun sendi sjúklingnum bréf til þess að minna á að skoða persónulegar tryggingar,“ sagði Friðbert. Hann segist hafa farið að skoða þessi mál ofan í kjölinn eftir að hann fékk krabbamein. Hann hafi til- kynnt of seint um sjúkdóm sinn til tryggingafélags síns, eða um hálfu öðru ári eftir að hann vissi af sjúk- dómnum og því ekki fengið trygg- ingabætur. „Málið er það, að þegar maður greinist með svona alvarleg- an sjúkdóm, þá er maður ekki alveg með hugann við það hvort maður ætlar að fara að nýta einhverjar sjúkdómatryggingar eða ekki. Ég var frá mars til desember í allskonar meðhöndlun, fyrst skurð- aðgerð, síðan geislameðferð og ein- beitingin var vitanlega á meðferð- inni og engu öðru,“ sagði Friðbert. Friðbert vonar að einhver á Al- þingi taki við sér þegar þing kemur saman í haust og beiti sér fyrir því að lögunum verði breytt til sam- ræmis við það sem tíðkast annars staðar á Norðurlöndum. „Þetta er mikið réttlætismál fyrir marga,“ segir Friðbert. Segir lagabreyt- ingu réttlætis- mál fyrir marga  Vill samræmingu við Norðurlönd Friðbert Traustason Karlmaður var í síðustu viku dæmdur í 90 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir ítrekuð brot í Vest- mannaeyjum. Meðal þeirra brota, sem maðurinn var dæmdur fyrir, eru líkamsárás gegn barni, hótanir, umferðarlagabrot og vopnaburður. Gerði lögreglan upptæka bæði öxi og sveðju hjá manninum. Játaði brot sín án athugasemda Maðurinn játaði öll brot sín eins og þau voru sett fram í ákæru máls- ins. Í ákærunni segir m.a. að í jan- úar í fyrra hafi hann veist að dreng, ýtt honum upp að flaggstöng og tekið drenginn hálstaki. Maðurinn veitti drengnum svo eftirför og skellti honum í rúðu í útidyrahurð verslunar þannig að drengurinn fékk bæði punktblæðingu og eymsli. Að auki var maðurinn einnig fundinn sekur um að hafa ógnað og hótað að drepa annan mann og var þá vopnaður stórri heimatilbúinni sveðju. Við leit lögreglu á heimili mannsins sama dag fannst sveðjan og öxi, sem voru gerði upptæk eins og áður segir. Hvað varðar umferðarlagabrot var maðurinn fundinn sekur um fjölda slíkra brota, allt frá því að aka gegn akstursstefnu yfir í að nota ekki öryggisbelti eða nota far- síma án handfrjáls búnaðar. Dæmdur í 90 daga skilorðsbundið fangelsi Ilmur hinnar gullnu stundar Terre de Lumière L’Eau Kringlan 4-12 | s. 577-7040

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.