Morgunblaðið - 11.07.2018, Síða 22

Morgunblaðið - 11.07.2018, Síða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. JÚLÍ 2018 ✝ HalldóraSveinbjörns- dóttir fæddist í Ófeigsfirði á Ströndum 10. ágúst 1938. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi 4. júlí 2018. Foreldrar hennar voru Sigríð- ur Þórunn Guð- mundsdóttir, hús- freyja f. 1900, d. 1976 og Sveinbjörn Guðmunds- son bóndi, f. 1896, d. 1955. Systkini Halldóru eru: Har- aldur, f. 1937 og Guðrún, f. 1942. Halldóra giftist árið 1965 Hrólfi Halldórssyni, fram- kvæmdastjóra Bókaútgáfu Menningarsjóðs, f. 1935, d. 1987. Þau bjuggu á Hringbraut 106. Dætur þeirra eru: 1) Þóra, f. 1965, gift Tómasi Kristjánssyni. Synir þeirra eru: Hrólfur Andri, f. 1988, Ragnar Atli, f. 1992 og Kristján Ari, f. 1998. 2) Sigríður, gift Viðari Karlssyni. Þeirra börn eru Hlynur Karl og Harpa Hrafnborg. Fósturbörn Höllu eru Haukur Jakob og Líf og stjúpdóttir Svanhvít Lilja og barnabörnin eru sex. 3) Guð- mundur Pétur, f. 1969, í sambúð með Söru Fuxén. Þeirra barn er Ágúst Carl. Sonur Guðmundar er Ásgeir Tómas. 4) Valsteinn, f. 1970, kvæntur Berglindi Björk Hreinsdóttur. Þeirra synir eru Snævar Freyr og Hrafnkell Dagur. 5) Ragna Kemp, f. 1973, gift Magnúsi Bjarklind. Þeirra börn eru Atli og Ólöf Halla. Halldóra ólst upp í Ófeigsfirði á Ströndum. Hún gekk í barna- skólann á Finnbogastöðum, var einn vetur í Gagnfræðaskólan- um á Akureyri og lauk lands- prófi í Reykjavík. Halldóra lauk einnig námi frá Húsmæðraskól- anum á Laugum. Að námi loknu fluttist hún til Reykjavíkur og vann ýmis störf. Mestan sinn starfsferil starfaði Halldóra í Landsbanka Íslands í Austur- stræti, fyrst sem gjaldkeri og síðar sem deildarstjóri en hún lét af störfum hjá Landsbank- anum árið 2003. Útför Halldóru fer fram frá Neskirkju í dag, 11. júlí 2018, klukkan 13. f. 1967, d. 2018, gift Gunnari H. Sverris- syni. Þeirra börn eru: Halldór Árni, f. 1997, Sverrir Geir, f. 1997 og Þórunn Hanna, f. 2004. 3) Halldóra, f. 1977, gift Pétri S. Waldorff. Þeirra börn eru: Skúli, f. 2011 og Margrét, f. 2014. Seinni maður Halldóru var Haraldur Valsteinsson, útibús- stjóri hjá Landsbankanum, f. 1934, d. 2017. Þau hófu sambúð á Skeljagranda 17 vorið 1992 og giftu sig árið 2002. Héldu þau heimili sitt síðustu árin í Borg- artúni 30a í Reykjavík. Börn Haraldar eru: 1) Heimir Valdi- mar, f. 1955, kvæntur Hrönn Hilmarsdóttur. Þeirra börn eru Valgerður Dýrleif og Haraldur Hilmar og barnabörnin eru fjög- ur. 2) Halla Valgerður, f. 1967, Nú er elsku mamma farin frá okkur en stórt skarð hefur verið hoggið í fjölskylduna á undan- förnum mánuðum. Fyrst lést Sigga systir án nokkurs fyrir- vara í byrjun janúar og nú mamma hálfu ári seinna með stuttum aðdraganda. Þetta er búið að vera erfitt ár hjá fjöl- skyldunni og hefur það eflaust átt þátt í því hversu fljótt mamma fór. Mamma hafði mest- alla tíð verið heilsuhraust og í góðu formi. Hún stundaði leik- fimi reglulega, var í golfi og veiði og hafði almennt gaman af allri útivist. Mamma var uppalin í Ófeigsfirði á Ströndum ásamt systkinum sínum og frændsystk- inum. Í þá daga var þríbýli í Ófeigsfirði og mjög oft margt um manninn. Hún átti góða æsku á Ströndunum en flutti svo ung að heiman, fyrst einn vetur til Akureyrar og síðan til Reykjavíkur þar sem hún bjó eftir það alla sína tíð. Þar kynnt- ist mamma pabba, Hrólfi Hall- dórssyni, og hófu þau búskap á heimili hans og eignuðust okkur þrjár systurnar. Mamma var mjög handlagin og lék allt í höndunum á henni. Þegar við systurnar vorum litlar saumaði hún flest fötin okkar og einnig var tímabil þar sem hún átti prjónavél og prjónaði bæði á okkur og aðra. En það voru ekki bara hin hefðbundnu „húsmóð- urstörf“ sem léku í höndunum á henni heldur sá hún líka um að dytta að á heimilinu og ef það þurfti t.d. að skipta um raf- magnstengla eða bora þá var hún mætt og leysti þau verkefni vel af hendi. Eitt sumarið tók hún sig til og lagði hellur og reisti grindverk meðfram lóðinni okkar á Hringbrautinni með smá hjálp frá nágrönnunum. Pabbi varð bráðkvaddur árið 1987 og um þremur árum seinna kynntist mamma Haraldi, seinni manni sínum. Haraldur átti fimm börn og við vorum þrjár systurnar, þannig að það var stór hópur í kringum þau. Þau voru dugleg að bjóða okkur öll- um heim og héldu alltaf vegleg jólaboð og páskaboð. Mamma og Haraldur höfðu svipuð áhugamál og voru dugleg að ferðast um landið og einnig voru þau mikið í golfi og í sumarbústaðnum sín- um í Grímsnesi. Síðustu árin voru ekki auðveld hjá mömmu, Haraldur greindist með Alzheimer fyrir nokkrum árum og dvaldi hann á Sóltúni og heimsótti mamma hann þangað nær daglega. Hann lést fyrir einu og hálfu ári. Ég á eftir að sakna mömmu minnar mikið, en hún var stór hluti af fjölskyldu okkar og mikið með okkur síð- ustu árin. Við fórum reglulega saman í leikhús og í golf og einn- ig kom hún með okkur í nokkrar utanlandsferðir. Söknuður fjölskyldunnar er mikill en minning um elsku mömmu mun lifa. Þóra. Elsku mamma. Nú þegar þú hefur kvatt okk- ur langar mig til að þakka þér fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig og fjölskylduna meðan þú varst á lífi. Þú varst alltaf eins og rekaviðurinn frá Ströndum, sem þú líktir sjálfri þér við, stóðst traust við hlið okkar sama hvað á bjátaði, veðruð af lífsins ólgu- sjó, sem hafði ekki alltaf farið um þig mjúkum höndum þó að oftast nær hafi verið lygnt í sæ- inn og sólin glampað á öldur lífs- ins. Aldrei sáum við þig fella tár, ekki þegar pabbi varð bráð- kvaddur aðeins 52 ára að aldri, ekki þegar Haraldur, seinni maður þinn, kvaddi eftir ára- langa baráttu við Alzheimer og ekki nú síðast í janúar þegar Sigga systir lést með sviplegum hætti aðeins fimmtug að aldri. Það var ekki í anda þinnar kyn- slóðar að flíka tilfinningum sín- um eða láta bilbug á sér finna þrátt fyrir að á móti blási. Á sama tíma einkenndist nærvera þín af svo mikilli hlýju og vænt- umþykju fyrir þínum nánustu og umburðarlyndi gagnvart fólki al- mennt. Við fjölskyldan, sem breyttist og bættist í í gegnum tíðina, áttum líka svo margar yndislegar stundir saman og þið Haraldur áttuð svo mörg góð ár þar sem hátopparnir voru hvers konar útivist og ferðalög. Þú varst alltaf svo heilsuhraust og glæsileg, algjör nagli í mínum augum og það var ekki auðvelt að horfa upp á þig í veikindunum sem slitu þig frá okkur á ógn- arhraða síðustu vikurnar. Þú vissir alveg í hvað stefndi og tókst því af því einstaka æðru- leysi sem einkenndi þig alla tíð. Elsku mamma, ég kveð þig með miklum söknuði en á sama tíma í þeirri fullvissu að þú yf- irgafst þetta líf sátt við guð og menn. Eftir lifa ótalmargar góð- ar minningar um einstaka, sterka og hjartahlýja konu. Halldóra. Ég er sorgmædd og þakklát. Ég var 17 ára þegar ég hitti þig fyrst en þá voruð þið pabbi að kynnast. Í upphafi var ég ekki alveg viss hvort ég vildi deila honum með þér en var fljót að átta mig á því að þarna var kom- in einstök manneskja sem við vorum svo ótrúlega heppin að fá inn í lífið okkar. Við tvær grínuðumst með úr hverju þú værir gerð og þú sagð- ist vera eins og rekaviður á Ströndum. Alger nagli og um leið svo hlý, úrræðagóð og með mikið jafnaðargeð, hallmæltir aldrei nokkrum manni og skiln- ingsrík með eindæmum. Þú naust þín á hreyfingu og úti í náttúrunni. Þú fórst 15 km á gönguskíðum án þess að blása úr nös, með bláu nestistöskuna meðferðis. Leikfimina stundaðir þú samviskusamlega í 30 ár. Þú elskaðir að ferðast, norður á Ak- ureyri, á Mýri til Gunnu systur og í Ófeigsfjörð sem var þinn yndisstaður. Þú varst mikil veiðikló og gaman hvað þið pabbi nutuð laxveiði saman. Golfferðir ykkar voru margar og núna síð- ast í maí varstu með góðum fé- lögum að slá 18 holur á Spáni. Þú kunnir vel að meta gott berjaland og eftir slíkar ferðir fengum við að njóta dýrindis hlaups og sultu. Miðengi í Grímsnesi var sælureitur ykkar pabba þar sem við nutum sam- verunnar við ýmis tækifæri. Þú þekktir landið vel, plöntuheiti, fuglana og fjöllin og þeim áhuga deilduð þið Magnús. Þú varst listakona á saumavélinni, heklu- nálinni og með prjónana og saumaðir á mig útskriftarföt og kápu með loðkraga auk þess sem þú saumaðir flauelskjól á Ólöfu Höllu þegar hún var lítil, sem ég held mikið upp á. Þú komst mér á óvart þegar þú bakaðir hjarta- laga bollur fyrir brúðkaupið okk- ar Magnúsar og kaffitertan þín er og verður mín uppáhalds að ógleymdum bestu fiskibollum í heimi. Þið pabbi hélduð ófáar veislur á Skeljagranda þar sem þið gáfuð okkur átta afkomend- um tækifæri til að kynnast og eiga gæðastundir saman. Nú er það okkar að halda þeim teng- ingum lifandi. Það var mikið áfall að þú skyldir missa heils- una svona skyndilega og að ekk- ert væri hægt að gera til að snúa við blaðinu. Rétt eins og með rekaviðinn þá hafðir þú fengið að upplifa lífsins ólgusjó. Þið pabbi höfðuð bæði misst ykkar ástvini sem spilaði stórt hlutverk þegar þið tvö náðuð saman. Að missa fyrsta eiginmann of snemma og síðan fylgja öðrum í heim al- gleymis er mikil þolraun. Verst var þó þinn mikli missir við frá- fall Siggu en eins og amma mín sagði þá á enginn að þurfa að lifa börnin sín. Hin ótrúlega þú mættir eigin veikindum af æðru- leysi og yfirvegun, sagðist ekki vera „almáttug“ og í raun sátt við endalokin. Það voru mín hlunnindi að fá að eiga þig að. Við vorum nánar og töluðum hreint út um hlutina, bæði skemmtilegar upplifanir og þær erfiðari. Þannig náðum við saman og fundum mikið traust hvor hjá annarri. Þú færðir pabba hamingju og gekkst mér fumlaust í móðurstað. Þú varst góða stjúpan mín, algerlega passlega til staðar. Þú varst móðuramman sem börnin mín elska og sakna og mikil vinkona Magnúsar. Þú áttir alveg ofboðs- lega stórt hlutverk í lífi mínu, elsku Halldóra. Hafðu þökk fyrir allt og allt, þín er sárt saknað. Ragna. Halldóru hans pabba þekkti ég í 26 ár – meira en helming ævi minnar og lengur en mína eigin móður sem féll frá fyrir 30 árum. Hún var ekkja þegar hún og pabbi tóku saman og það varð strax ljóst að með henni hafði pabbi minn fundið hamingjuna á ný. Það var svo dásamlegt að fylgjast með þeim njóta lífsins saman, í veiði og golfi, á skíðum og ferðalögum bæði innan- og utanlands. Stórfjölskyldan stækkaði, alls átta börn, makar og barnabörn sem nutu þess að ferðast með þeim og njóta sam- verustunda. Minningar úr veiði- ferðum, sumarbústaðaferðum og dásamlegu ferðalagi í Ófeigs- fjörðinn ylja. Hún þekkti landið eins og lófann á sér og deildi með okkur af þekkingu sinni öll- um nöfnum og staðháttum – fjöllin og árnar, dalirnir, jurt- irnar og blómin. Jóla- og páska- veislur voru árlega, risaboð þar sem allir komu saman að ógleymdum ótal öðrum boðum og veislum þar sem borð svign- uðu undan heimatilbúnum kræs- ingum. Halldóra mín tók mér opnum örmum á sinn hægláta hátt og reyndi aldrei að ala mig upp enda kannski fullseint í rassinn gripið en hún var vin- kona mín sem ég gat alltaf leitað til og fyrir það er ég henni svo óendanlega þakklát. Hún hlust- aði margoft á mig rausa um allt á milli himins og jarðar, laumaði inn ráðum og róaði svo oft. Gaf mér kaffi, kleinur og hlýtt faðm- lag – allt sem þurfti. Hún gekk mér í móðurstað, án þess að vera á nokkurn hátt að reyna það. Börnunum mínum var hún besta amma í heimi og það er ekkert sjálfgefið. Hún er eina amman sem þau þekkja í móð- urætt og þeim svo óendanlega dýrmæt. Einlæg væntumþykja og áhugi hennar á lífi og starfi barnanna gerði samband þeirra einstakt og syrgja þau hana sárt. Hún var virkur þátttakandi í öll- um viðburðum í minni flóknu fjölskyldu, brúðkaupi, skírnar- veislum, fermingum og afmælum og oft nutum við þess að hafa þau hjón hjá okkur um jól eða áramót þar sem Halldóra fór fremst í flokki í sprengingum vel studd af eiginmanni og barna- og unglingaskara. Dásamlegar minningar. Ég veit vel að henni líkaði ekki lofsöngur, enda ein af fulltrúum þeirrar kynslóðar sem ber ekki tilfinningar sínar á torg en ég get ekki annað en minnst á þá óendanlegu ást, virðingu og þolinmæði sem hún sýndi pabba mínum í hans veikindum. Engin orð lýsa aðdáun minni á þeim styrk sem hún sýndi á erfiðum tímum. Halldóra hafði afgerandi áhrif á mig með sinni hæglátu og traustu nærveru. Hana mun ég taka mér til fyrirmyndar í lífinu um leið og ég held minningu hennar á lofti um ókomna tíð. Við hjónin og börnin okkar Halldóra Svein- björnsdóttir ✝ Örn Sigurðs-son fæddist 11. september 1938. Hann lést á Heilbrigðis- stofnun Norður- lands á Húsavík mánudaginn 2. júlí 2018. Hann var kvæntur Sig- rúnu Garðars- dóttur, f. 5.5. 1939, d. 6.9. 2017. Foreldrar Arnar voru Þóra Guðrún Kristinsdóttir, f. 25.1. 1915, d. 14.8. 1992, og Sig- urður Jóhannsson, f. 29.5. 1904, d. 18.2. 1959. Þau voru bændur og bjuggu fyrst á Arnstapa og síðar á Lækja- móti. Systkini Arnar eru Kristín Sigurðardóttir, f. 21.8. 1945, Svanhildur Á. Sigurðardóttir, f. 11.5. 1947, d. 7.11. 2015, Kristbjörg Sigurðardóttir, f. 23.12. 1950, og Jóhann Sig- urðsson, f. 14.8. 1955. Börn Arnar og Sigrúnar eru I) Sigurður Arnarson, f. 7.2. 1962. II) Gerða Arnar- dóttir, f. 17.4. 1963, eigin- maður hennar er Kristinn M. Bárðarson, f. 3.1. 1957, dætur þeirra eru 1) Sigrún Erna Kristinsdóttir, f. 25.6. 1987, sam- býlismaður Sigrún- ar er Daníel Gunnarsson, f. 13.11. 1982. 2) Sara Sif, f. 3.2. 1992, sambýlis- maður hennar er Atli Tómasson, f. 27.11. 1991 III) Þóra Elín Arnardóttir, f. 1.6. 1964. IV) Sigurveig Arnardóttir, f. 23.11. 1966, sambýlismaður hennar er Aðalsteinn Haralds- son, f. 14.3. 1964, sonur þeirra er Guðmundur Helgi Aðal- steinsson, f. 26.4. 1988. Örn ólst upp á Arnstapa í Ljósvatnsskarði. 1953 fluttist hann ásamt foreldrum sínum að Lækjamóti í Kinn og stund- aði þar búskap alla tíð. Með- fram bústörfum vann hann við múrverk og í sláturtíðum hjá Kaupfélagi Suður-Þingeyinga á Svalbarðseyri. Útförin fer fram frá Þor- geirskirkju í dag, miðvikudag- inn 11. júlí 2018, klukkan 14. Þegar ég hugsa til tengda- föður míns sé ég mynd af þeim hjónum Erni og Sigrúnu. Þau höfðu góða nærveru, voru gest- risin og glaðlynd enda voru margir sem komu í kaffisopa til þeirra. Alltaf voru góðar veit- ingar, kjarnyrtar umræður og hlátrasköll þegar við átti. Örn var barngóður, stelpurn- ar mínar voru bara á fjórða ári þegar þær fóru að fara með afa sínum í fjósið og hann taldi þeim trú um að þær væru ómetanlegar hjálparhellur. Kýrnar fengu nafn og númer og stelpurnar og Guðmundur Helgi frændi þeirra tóku þátt í að velja nöfnin. Sigrún nefndi t.d. Sunnu og þegar færi gafst gaukaði hún að henni auka- skammti af fóðurbæti. Sara var mörg sumur hjá afa sínum og ömmu og þeim mikil hjálpar- hella. Guðmundur Helgi var ekki gamall þegar afi hans kenndi honum á koppafeitisprautu. Hann var hugfanginn af þessu töfratæki og um tíma voru mörg verkfæri og verkfæra- borðið klístrað af koppafeiti, enda var máltæki Guðmundar Helga „hér þarf nú að smyrja“. Afi hans var kannski þreyttur á að hafa verkfærin útklístruð en að sama skapi gladdi það hann mikið þegar Guðmundur Helgi byrjaði að læra bifvélavirkjun. Á yngri árum var Örn lið- tækur íþróttamaður og keppti á héraðsmótum og landsmótinu á Laugum (1961), í kastgreinum og stangarstökki. Ég held að hann hafi ekki gefið sér mikinn tíma til æfinga, kannski eina og eina kvöldstund. Örn var alla tíð hraustur og hamrammur að afli. Eitt sinn var ég að basla við að losa varadekk af Gemsanum okkar Gerðu og gat ekki með nokkru móti bifað felgulyklinum hvern- ig sem ég tók á. Þá kom Össi og snéri lyklinum eins og ekk- ert væri og losaði um felg- urærnar. Síðan sagði hann: „Við gerum þetta nú svona hérna fyrir norðan“ en ég hugsaði skömmustulegur að það var jafngott að þetta var á hlaðinu á Lækjamóti en ekki einhvers staðar uppi á fjöllum. Örn eignaðist ungur harm- óníku. Hann var sjálfmenntað- ur, fiktaði sig áfram og spilaði fyrir krakkana sína. Á seinni árum fóru þau Sigrún á nokkur landsmót harmóníkuunnenda sem haldin voru á Hellu. Við Gerða gáfum honum DVD-safn- diska frá einu landsmótinu sem hann hafði mikla unun af að horfa á. Sigrún og Örn ferð- uðust með Félagi eldri borgara mörg sumur, ferðir sem þau höfðu mjög gaman af og ekki spillti þegar Jón Árni frá Mý- vatni var bílstjóri. Við Gerða höfum verið nær öll jól eða áramót á Lækjamóti, stundum í blíðskaparveðri en í minningunni oftar í erfiðu færi og ófærð. Ein áramótin var mikil ófærð en svo vel vildi til að þá við vorum á Lödu Sport. Össi hjálpaði mér að keðja Sportarann, öll hjól. Sportbif- reiðin rann léttilega yfir Vík- urskaðið þó það væri í raun ófært enda er Ladan snilldar- bifreið. Ég veit að Erni hefði þótt það upplifun að keyra nýju Vaðlaheiðargöngin. Fyrir nokkrum árum fór heilsan að gefa sig og Örn fór í hvíldarinnlögn á Skógarbrekku á Húsavík. Við andlát Sigrúnar fór það svo að hann fluttist al- farið þangað. Þar leið honum vel enda umönnun starfsfólks með afbrigðum góð, sem ég vil þakka fyrir hönd fjölskyldunn- ar. Ég minnist tengdaforeldra minna með hlýhug og virðingu. Guð blessi minningu þeirra. Kristinn Marinó Bárðarson. Örn Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.