Morgunblaðið - 11.07.2018, Side 29

Morgunblaðið - 11.07.2018, Side 29
DÆGRADVÖL 29 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. JÚLÍ 2018 www.kvarnir.is 1996 2016 20 ÁRAKvarnir/Brimrás/Pallar ehf | Álfhellu 9 | 221 Hafnarfirði sími 564 6070 | kvarnir@kvarnir.is | www.kvarnir.is | www.pallar.is Vinnupallar margar stærðir og gerðir VIÐ leigjum út palla og kerrur Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú hefur sterka réttlætiskennd og lætur í þér heyra sé henni brugðið. Þú ert djarfur og þorir að taka áhættu. 20. apríl - 20. maí  Naut Þér finnst þú kominn á einhverskonar leiðarenda og að þú þurfir á nýju umhverfi að halda. Vertu varkár í orðum í dag þannig að þú komir þér ekki í klípu. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú þarft að fást við mjög vanda- samt og persónulegt verkefni sem þér er lífsnauðsyn að geta einbeitt þér að á næst- unni. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Það hefur ekkert upp á sig að berja höfðinu við steininn. Haltu þínu striki á þinn rólega og magnaða hátt og þú átt eftir að verða allsráðandi í ríki þínu. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Taktu umhverfi þitt til gagngerrar end- urskoðunar og drífðu svo í þeim breytingum sem þér finnast nauðsynlegar. Horfstu í augu við raunveruleikann. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Notaðu daginn endilega til þess að sinna rannsóknum, hugur þinn er djúpur og rannsakandi þessa dagana. Ekki er víst að allir skilji það, en það skiptir engu máli. 23. sept. - 22. okt.  Vog Samskipti þín við annað fólk ættu að ganga sérstaklega vel í dag. Með hjálp góðra vina tekst þér að sigla þínum málum í höfn. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú þarft að gera hlé á störfum þínum og reyna að safna orku til frekari at- hafna. En hálfnað er verk þá hafið er og vilji er allt sem þarf til þess að þú náir árangri. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú þarft ekki að réttlæta allar þínar gerðir. Láttu slag standa því hugsan- legt er að þú getir hagnast á aðgerðum þín- um. 22. des. - 19. janúar Steingeit Það felst áskorun í að binda enda á vissa hluti þessa dagana. Já, já, kannski sjá ekki allir breytingarnar, en þú veist betur og sérð að allt hefur snúist á betri veg. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Misskilningur og tafir hafa sett svip sinn á líf þitt að undanförnu. Ekki er allt sem sýnist og það er þitt verk að kom- ast að hinu sanna. 19. feb. - 20. mars Fiskar Einhver mun koma þér svo á óvart að þú verður að játa þá staðreynd að aldrei skyldi dæma eftir útlitinu einu saman. Jón Valur Jensson rifjar uppstöku eftir Jóhannes úr Kötlum á Boðnarmiði, sem „er bæði skemmtileg og með sérstöku stuðla- formi (hver lína sér um stuðla)“. Heimildin er vefur sem Svanur sonur skáldsins hefur sett upp: (johannes.is/lausavisu/visur-ur- hveragerði/). Til að gera langa sögu stutta sendi Valgarð Runólfs- son fv. skólastjóri í Hveragerði eftirfarandi frásögn um framan- greinda vísu: „Jóhannes fór með eftirfarandi vísu og sagði frá tilurð hennar á kvöldsamkomu Barna- og Miðskól- ans í Hveragerði (eins og hann hét þá) vorið 1959 eða ’60. Hann kom gangandi eftir göngu- stíg og var á leið inn á Heilsuhæli NLFÍ þegar hann tók eftir einni undurfagurri snót sem sat þar á bekk. Hann sest hjá henni og segir með sinni tælandi röddu: Sest ég hjá sólinni rjóðu og halla mér blítt upp að henni. En tók þá eftir ungum manni sem stefndi á bekkinn til þeirra, og bætti þá við í snatri: Sjaldan er gíll fyrir góðu nema úlfur á eftir renni. … stóð upp og fór sína leið.“ Ég get ekki stillt mig um að sækja Sjödægru Jóhannesar og fletta upp á „Ferskeytlum“ sem við Ari Jós- efsson fórum svo oft með í MA: Rennur gegnum hjarta mitt blóðsins heita elfur: upp í strauminn bylta sér kaldir sorgarfiskar. Út um tálknin japla þeir þungum svörtum kvörnum þar til eins og kolabotn undir niðri verður. Sit ég við hið rauða fljót - stari niðrí djúpið þar sem Gleði dóttir mín liggur nár í myrkri. Á sunnudag skrifar Davíð Hjálm- ar Haraldsson: „Nú er mikið líf í Krossanesborgum“: Nú er velsæld víðast hvar, vaxa blóm um hóla og ungamömmur eru þar orðljótar og góla. Guðmundur Arnfinnsson yrkir á Boðnarmiði: Lúkasi Loftssyni nefið var ljómandi myndarlegt gefið, það er flott á sinn hátt og ferlegt og blátt, þegar fyllir það ótætis kvefið. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Skáldið frá Kötlum og sorgarfiskar „ER ÞETTA SÁ SEM LENTI Í RISATRUKKSÁREKSTRINUM?“ „ÉG VAR AÐ LEITA AÐ HONUM!“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... lyktin af ilmvatninu hennar. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ÉG SKIL! ÉG HEF SAMBAND EF ÉG ÞARF EINHVERN TÍMANN UPPGJAFARLAG! SJÁÐU ÞETTA ÞAKKARBRÉF FRÁ GAURNUM SEM Á PÍTSUSTAÐINN SENT FRÁ VILLUNNI HANS Í SUÐUR-FRAKKLANDI! VILLAN SEM GRETTIR BYGGÐI LÚTUR, GETURÐU SAMIÐ FYRIR MIG ORRUSTUSÖNG? ÉG GET ÞAÐ EKKI, HERRA! ÉG ER Á MÓTI ÖLLU OFBELDI! Víkverji hefur verið að velta fyrirsér aðdráttarafli Berlínar í skáldsögum, kvikmyndum og sjón- varpsþáttum. Um þessar mundir sýnir Ríkissjónvarpið spennuþátta- röðina Njósnir í Berlín. Þættirnir gerast nokkurn veginn á okkar tím- um og gengur mikið á. Fyrir um 30 árum sýndi sama stöð þættina Berlin Alexanderplatz, sem leik- stjórinn Rainer Werner Fassbinder gerði eftir samnefndri skáldsögu Alfreds Döblins. Sú saga gerist reyndar öllu fyrr, eða 1928, þegar miklar hræringar voru í Berlín og Weimarlýðveldinu og nasistar voru að ryðja sér til rúms. Goodbye to Berlin eftir Christopher Isherwood gerist á sama tíma og varð uppi- staðan að kvikmyndinni Cabaret eftir Bob Fosse með Lizu Minelli, Michael York og Joel Grey í aðal- hlutverki. x x x Rithöfundurinn Philip Kerr hefureinnig gert sér mat úr þessu tímabili með sögum sínum um lög- reglumanninn Bernie Gunther. Gunther er hörkutól, finnst lítið til nasista koma, en kemst ekki hjá því að eiga samskipti við þá í lögreglu- störfum sínum í Berlín. Sögurnar um Gunther byrja á fjórða áratugn- um, ná yfir seinni heimsstyrjöld og allt fram í kalda stríðið. Kerr lést fyrr á þessu ári, en mun hafa lokið við 14. bókina skömmu áður og er hún væntanleg á næsta ári. Fyrstu þrjár bækur Kerrs um Gunther bera af, en allar eru þær skemmti- legar. x x x Um þessar mundir er mikið látiðmeð þætti, sem nefnast Baby- lon Berlin og Víkverji veit ekki hvar verða teknir til sýninga hér á landi. Þeir þættir gerast á svip- uðum tíma og saga Döblins og eru byggðir á skáldsögum Volkers Kutschers um rannsóknarlögreglu- manninn Gereon Rath. Í bókunum getur lesandinn fylgst með því hvernig hallar undan fæti í Weim- arlýðveldinu og nasistar sækja í sig veðrið um leið og hann les um ævintýri Raths. Ef tekst að ná anda bókanna í þáttunum eiga áhorf- endur von á góðu. vikverji@mbl.is Víkverji Guð vonarinnar fylli yður öllum fögn- uði og friði í trúnni svo að þér séuð auðug að voninni í krafti heilags anda. (Rómverjabréfið 15.13)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.