Morgunblaðið - 11.07.2018, Qupperneq 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. JÚLÍ 2018
*NÝ
R
HYUNDAI
IX35 2.0 CRDI
PREMIUM PANORAMA
4x4, dísel, sjálfskiptur – í nokkrum litum,
með leðri, glerþaki, leiðsögukerfi, bakkmyndavél o.fl.
Verð aðeins kr. 3.990.000
562 1717
Kletthálsi 2 - bilalif@bilalif.is
bilalif.is
Eigum mikið úrval af nýjum og nýlegum bílum á staðnum
*e
ft
ir
ár
sb
íll
fy
rs
ta
sk
rá
ni
ng
8.
20
15
ICQC 2018-20
Hótel Transylvanía 3: Sumarfríið
Þriðja teiknimyndin um Dra-
kúla greifa, fjölskyldu hans og
vini. Mavis, dóttir Drakúla, hef-
ur áhyggjur af því að faðir
hennar sé að ofgera sér í starfi
og skipuleggur því frí fyrir þau
tvö og helstu vini þeirra en fríið
verður ógleymanlegt. Með í för
eru m.a. tengdasonur Drakúla,
múmía og Frankenstein. Leik-
stjóri er Genndy Tartakovsky
og meðal leikara í íslenskri tal-
setningu eru Orri Huginn
Ágústsson, Sigríður Eyrún
Friðriksdóttir og Laddi.
Metacritic: 59/100
Skyscraper
Hasarmynd með Dwayne John-
son í aðalhlutverki. Árás er
gerð á hæstu byggingu heims í
Hong Kong og þegar eldur
brýst út ofarlega í henni er yf-
irmanni öryggismála í turn-
inum, Will Sawyer, kennt um.
Hann er þó alsaklaus og reynir
að hreinsa nafn sitt í kapphlaupi
við tímann og um leið bjarga
eiginkonu sinni og börnum sem
eru í sjálfheldu í byggingunni.
Leikstjóri er Rawson Marshall
Turber og með önnur helstu
hlutverk fara Neve Campbell og
Chin Han. Metacritic: 51/100
Bíófrumsýningar
Drakúla fer í frí og John-
son bjargar fjölskyldunni
Á háloftunum Dwayne Johnson á
veggspjaldi Skyscraper, hasarmynd
sem er ekki fyrir lofthrædda.
Ásýningu Katrínar Elvars-dóttur Augnablik minn-inganna í BERG Contem-porary má sjá ljósmyndir
frá síðustu tveimur áratugum á ferli
hennar en auk þess er á sýningunni
eitt vídeóverk frá árinu 2016. Þegar
gengið er inn í sýningarrýmið blasir
við ljósmyndasería þar sem öll verk-
in að einu undanskildu eru af hvít-
um klassískum styttum sem um-
luktar eru grænum gróðri. Eitt
þeirra sker sig úr en það er svart-
hvít ljósmynd sem tekin er í sama
garði og umlykur stytturnar en
löngu fyrr. Þar beinir Katrín sjón-
um sínum beint inn í ræktaðan
gróður. Sama myndin hefur verið
stækkuð upp á vegginn og myndar
eins konar bakgrunn eða undirlag
fyrir hinar og rammar þannig inn
það tuttugu ára tímabil sem verkin
eru tekin á. Verkin tengjast
bernskuminningum Katrínar af
styttum danska fjöllistamannsins
Martinus Simson (1886-1973) sem
finna má í Tungudal við Ísafjörð.
Simson flutti til Íslands árið 1915
eftir að hafa starfað sem sirkus-
listamaður í upphafi tuttugustu ald-
ar og settist að á Ísafirði, þar sem
hann tók mikið af ljósmyndum og
setti mark sitt á bæinn. Katrín hef-
ur reglulega myndað styttur Sim-
sons og titil sýningarinnar sækir
hún einnig til hans, en hann skrifaði
mikið um heimspekileg og andleg
málefni.
Í verkunum sem tengjast styttum
Simsons beitir Katrín þröngu sjón-
arhorni á myndefnið og áhorfandinn
fær aðeins séð hluta af styttum í
manngerðu umhverfi sem er ekki
þekkjanlegt – nema í undantekning-
artilfellum. Einungis hnakka, bak
eða mjaðmir skjannahvítra sund-
fataklæddra styttna ber við bláan
himin eða grænan gróður. Tíminn
hefur sett mark sitt á umhverfið í
myndparinu „The Search for Truth,
Simson’s Garden 8a ab“ sem eru
pósitíf og negatíf mynd af sömu fyr-
irmynd, sem gera það að verkum að
sprungur, mosagróður og aðrir nú-
ansar á styttunum verða áberandi.
Tíminn er einnig undirliggjandi í
vídeóverkinu „The Solar Eclipse
Shadow“ (2016). Hér er um óræða
mynd að ræða sem varpað er sömu-
leiðis bæði negatíft og pósitíft á tvo
skjái á endavegg gegnt fyrrnefndu
verki. Myndin virðist vera af plöntu
en er í raun tekin af skuggavarpi
hennar sem kemur fram við sól-
myrkva og kallar fram sérkennileg
og dulúðleg mynstur með litlum
hálfhringjum og hringjum. Hér er
forvitnilegt verk á ferðinni þar sem
kyrrstaða ljósmyndarinnar og
hreyfanleiki vídeómiðilsins togast á.
Þó Katrín hafi ekki fengist við
vídeómiðilinn að miklu marki, utan
nokkurra verka við upphaf ferils
hennar, þá hefur hún áður nýtt sér
fagurfræði kvikmyndarinnar í gegn-
um linsuna í ljósmyndaverkum sín-
um. Til að mynda á sýningunni
Sporlaust sem var á Þjóðminjasafni
Íslands fyrir rúmum áratug.
Í innri sal getur að líta ljóðrænar
myndir sem Katrín er hvað þekkt-
ust fyrir að undanförnu, um er að
ræða valin verk úr seríum hennar
Vanished summer og Equivocal auk
þriggja nýrra verka. Hnausþykk
flauelsgluggatjöld, bældur koddi,
fínleg blúndugardína eða ljós inn
um glugga eru ummerki eða vísun
sem veita tilfinningu fyrir veru
manneskju sem þó er hvergi sjáan-
leg. Myndefnið hefur persónulega
tengingu fyrir Katrínu en allt eru
þetta staðir sem hún hefur gist á
sjálf. Með næmi fyrir efniskennd og
dulúðlegri birtu fangar Katrín á
ljóðrænan og fallegan hátt minn-
ingar um veru sína, staði þar sem
mörkin á milli hins ímyndaða og
raunverulega verða ógreinileg.
Minningar eru flöktandi fyrirbæri,
standa stundum ljóslifandi fyrir
hugskotssjónum eða dofna þegar frá
líður og verða jafnvel að minn-
ingabrotum án samfellu. Á sýning-
unni Leitin að sannleikanum púslar
Katrín saman ljóðrænum augnablik-
um eigin minninga með myndheimi
sínum. Púslið gengur sérstaklega
vel upp í verkunum sem tengjast
styttum Simsons og vídeóverkinu og
dýnamísku samspilinu sem næst þar
á milli. Mögulega hefði sýningin náð
skarpari og heildstæðari áhrifum
fram með þeim eingöngu, þar sem
verkin í innri salnum (sem löngu
hafa sannað gildi sitt) bæta litlu við
heildarsamhengið.
Morgunblaðið/Hari
Samspil „Á sýningunni Leitin að sannleikanum púslar Katrín saman ljóðrænum augnablikum eigin minninga með
myndheimi sínum. Púslið gengur sérstaklega vel upp í verkunum sem tengjast styttum Simsons og vídeóverkinu og
dýnamísku samspilinu sem næst þar á milli,“ segir um sýningu Katrínar Elvarsdóttur í BERG Contemporary.
BERG Contemporary
Katrín Elvarsdóttir: Augnablik
minninganna bbbmn
BERG Contemporary, Klapparstíg 16.
Sýningin stendur til 3. ágúst 2018. Opið
þriðjudaga til föstudaga frá kl. 11 – 17
og frá kl. 13 – 17 á laugardögum.
ALDÍS ARNARDÓTTIR
MYNDLIST
Ljóðrænar „Með næmi fyrir efniskennd og dulúðlegri birtu fangar Katrín á
ljóðrænan og fallegan hátt minningar um veru sína, staði þar sem mörkin á
milli hins ímyndaða og raunverulega verða ógreinileg,“ skrifar rýnir.
Leitin að sannleikanum