Morgunblaðið - 11.07.2018, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 11.07.2018, Blaðsíða 36
MIÐVIKUDAGUR 11. JÚLÍ 192. DAGUR ÁRSINS 2018 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR. 1. Allt fótboltaliðið komið út 2. „Ég sá alla vega eitthvað stórt“ 3. Fengu kvíðastillandi lyf 4. „Ofboðslega sterkir krakkar“ »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Kammerkór Hallgrímskirkju, Schola cantorum, syngur íslenskar og erlendar kórperlur eftir Jón Nor- dal, Sigvalda Kaldalóns, Byrd, Mend- elssohn, Sigurð Sævarsson, Bruckner og Händel, í bland við íslensk þjóð- lög, í kirkjunni í dag kl. 12 og eru tón- leikarnir á dagskrá Alþjóðlegs orgel- sumars kirkjunnar. Tónleikagestum er boðið í kaffi og spjall við kórfélaga að tónleikunum loknum. Miðaverð er 2.500 kr. Kórperlur sungnar í Hallgrímskirkju  Kvikmynda- gagnrýnandi dag- blaðsins New York Times, Jeannette Catsoulis, hrífst mjög af frammi- stöðu leikkon- unnar Eddu Björg- vinsdóttur í Undir trénu og segir hana túlka hina þjökuðu Ingu af mik- illi snilld. Kvikmyndin er ein þeirra sem gagnrýnendur blaðsins mæla með að lesendur sjái. Edda Björgvins hlýt- ur lof í NY Times  Sænska tónlistarkonan Sumie kemur fram í tónleikaröð Norræna hússins í kvöld kl. 21. „Stundum er minna svo mikið meira og rödd Su- mie saman við þjóðlagagítar hennar mynda einhvers konar dáleiðandi og ómótstæðilega töfra,“ seg- ir meðal annars um Sumie á vef Norræna húss- ins. Dáleiðandi og ómót- stæðilegir töfrar SPÁ KL. 12.00 Í DAG Sunnan 5-13, lítils háttar væta sunnan- og vestanlands en rigning eða súld með köflum þar á morgun. VEÐUR Samuel Umtiti skaut Frökk- um í úrslitaleik heimsmeist- aramótsins í knattspyrnu þegar hann skoraði eina mark fyrri undanúrslitaleiks mótsins í gærkvöld. Belgar urðu að bíta í það súra epli að tapa enn einu sinni fyrir Frökkum á stórmóti í knatt- spyrnu. Í kvöld kemur í ljós hvort Englendingar eða Kró- atar mæta Frökkum í úr- slitaleik HM á sunnudaginn í Moskvu. »1 Frakkar komnir í úrslitaleikinn Atli Guðnason minnti hressilega á sig í síðasta leik FH-liðsins í Pepsi- deildinni í knattspyrnu eftir að hafa fengið færri tækifæri með liðinu í sumar en oft áður. Hann segir harða samkeppni vera sem fyrr um sæti í liðinu en vonast til að frammistaða hans í leiknum við Grindavík dugi til að tækifærunum fjölgi á næst- unni. »4 Atli vill gjarnan fá fleiri tækifæri með FH-liðinu Breiðablik vann í gær afar mikilvægan 1:0-sigur á Val þegar liðin mættust í Kópavogi í 9. umferð Pepsi-deildar kvenna í knattspyrnu. Það var Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir sem skoraði eina mark leiksins úr vítaspyrnu. Blikastúlkur eru í efsta sæti deild- arinnar með 23 stig eftir fyrstu níu umferðirnar en Valur er í þriðja sæti deildarinnar með 19 stig. »3 Blikastúlkur áfram á toppnum eftir sigur á Val ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Nína Guðrún Geirsdóttir ninag@mbl.is Blær Örn Ásgeirsson gerði sér lítið fyrir og sigraði á bresku stórmóti í frisbígolfi, British Open, um síð- ustu helgi. Yfir níutíu keppendur tóku þátt í mótinu og þar af níu Ís- lendingar. Blær er ekki nema fimmtán ára gamall og er talinn eitt helsta efni íþróttarinnar í Evr- ópu, að sögn Birgis Ómarssonar, formanns Íslenska frisbígolf- sambandsins. Blær Örn segist fyrst hafa kynnst íþróttinni fyrir þremur ár- um. Var hann þá á ferðalagi á Vestfjörðum með félaga sínum og rakst á nýopnaðan frisbígolfvöll á Flateyri. Upp frá því fór hann að æfa sig. „Ég fékk frisbídiska í af- mælisgjöf í kjölfar vesturferðar- innar og keypti m.a. körfur í garð- inn minn til að geta æft mig heima fyrir. Svo fór ég að keppa á viku- legum mótum og fyrr en varði byrjaður að keppa reglulega úti í löndum.“ Hann segist æfa sig mik- ið heima fyrir, bæði innanhúss og utan. „Ég æfi mjög reglulega á völlunum hér heima en þeim fer sí- fellt fjölgandi. Svo æfi ég sjálfur heima og á veturna höfum við að- stöðu innanhúss. Þar æfum við nokkrir saman.“ Minni hlaup en í fótboltanum Blær segist finna fyrir miklum áhuga á íþróttinni á Íslandi, sem fer ört vaxandi. „Þetta er enn þá frekar lítil íþrótt á Íslandi en stækkar mjög hratt og alltaf fleiri og fleiri að byrja að spila, sem er bara frábært.“ Hann segir jafn- framt einhverja vini sína spila frisbígolf, þó að enginn hafi keppt í íþróttinni líkt og hann. Blær segist ekki spila golf en hann æfði fótbolta í sjö ár áður en hann fékk frisbígolfdelluna. Hann hætti í fótboltanum til að einbeita sér að frisbígolfinu. „Það er minna hlaup í þessu en fótboltanum,“ seg- ir Blær og hlær. Hann var að vonum ánægður með árangurinn á breska stór- mótinu og fékk hann m.a. pen- ingaverðlaun fyrir sigurinn, sem hann má þó ekki taka við. „Ég má ekki taka við peningunum því ég keppi í barnaflokki á Evrópu- mótinu, það eru reglur sem segja til um það. Fékk frisbídiska í stað- inn,“ segir Blær kátur en hann má keppa í unglingaflokki fram að 18 ára aldri. Á döfinni hjá Blæ er að fara á Evrópumeistaramót í Króatíu í ágúst. „Núna er ég að fara að æfa mig á fullu fyrir það. Þetta er það skemmtilegasta sem ég geri.“ Talinn efnilegastur í Evrópu  Blær Örn sigraði í breskri frisbígolfkeppni Ljósmynd/Íslenska frisbígolfsambandið Sigurvegari Blær Örn tekur hér við gullverðlaunum á alþjóðlegu stórmóti í frisbígolfi í Bretlandi á dögunum. Töluverður áhugi er á frisbígolfi hér á landi um þessar mundir og hafa svokallaðir folfvellir (frisbí- golfvellir) sprottið upp úti um allt land. Fyrsti völlurinn var settur upp á Akureyri árið 2001 en fyrsti alvöruvöllurinn var gerður á Úlfljótsvatni árið 2002 en þá voru körfurnar heimagerð- ar, unnar úr síldarplasttunnum. Í dag finnast tæplega sextíu slíkir vellir víða um landið, allt frá Svalbarðseyri til Bolungarvíkur. Aðgangur er alltaf ókeypis. Hug- mynd frisbígolfs er að leika golf með frisbídiskum. Folfdiskunum er kastað frá teigsvæði í átt að skotmarki, sem í flestum til- vikum er sérsmíðuð karfa. Þá er best að eiga diska fyrir ólíkar aðstæður, líkt og viðgengst í golfinu. Diskunum er skipt í þrjá flokka; púttera, miðlungsdiska og drævera. Frisbígolf tekur yfir landið SÍFELLT FJÖLGAR FRISBÍGOLFVÖLLUM Á fimmtudag Suðvestan 5-10 m/s. Skýjað og yfirleitt þurrt á vestanverðu landinu en bjartviðri norðaustan til. Hiti 10 til 20 stig. Á föstudag Suðlæg átt og súld sunnan- og vestanlands en gengur í austan 8-13 m/s og bætir í rigningu. Hiti 10 til 22 stig. VEÐUR » 8 www.mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.