Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.07.2018, Qupperneq 2
Hvaðan kom hugmyndin
að styrktartónleikunum?
Í ár eru liðin tuttugu og fimm ár síðan Bjarki, bróðir
minn, lést úr heilahimnubólgu, aðeins nítján ára gamall. Á
sama tíma eru liðin tuttugu og fimm ár frá því hljóm-
sveitin Ðí Kommitments var stofnuð í Fjölbrautaskólanum
í Breiðholti en Bjarki var í henni. Upphaflega hugmyndin
var að koma hljómsveitinni saman og vera með tónleika og
safna jafnvel fyrir Hammondi. Síðan bar Kalli (Karl Ol-
geirsson, innsk. blaðamanns), sambýlismaður minn,
þessa hugmynd undir starfsfólk Hörpu sem bauðst til
að halda stærri tónleika í Eldborgarsalnum í samstarfi
við þau. Í minningu Bjarka. Þannig að allt í einu varð
það sem átti að verða litlir endurfundir að risastóru
dæmi.
Af hverju að safna fyrir Hammondi?
Bjarki spilaði á Hammond og það er ekkert slíkt til í
Hörpu. Það er dýrt að flytja Hammond á milli staða
og því væri frábært að það væri bara til þar. Nú er
búið að stofna félag sem heldur utan um söfnunina og
það mun einnig halda utan um Hammondið og rekstur
þess í samstarfi við Hörpu.
Hverjir koma fram á tónleikunum?
Það eru fjölmargir og allt úrvalstónlistarfólk. Meðal
annarra verða það Jón Ólafsson, Björgvin Halldórsson,
Ragnheiður Gröndal, Eyþór Ingi Gunnlaugsson, Katrín
Halldóra og Moses Hightower, Ðí Kommitments, Salka
Sól og Maus.
Hvenær verða tónleikarnir haldnir?
Þeir verða haldnir sunnudaginn 26. ágúst og hefjast kl. 17:00.
Og verða sem sagt í Eldborgarsal Hörpu.
Hvar og hvenær verður hægt að kaupa miða?
Miðasala er þegar hafin á síðunni tix.is og miðaverð er 4.900 krón-
ur.
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.7. 2018
Ritstjórn
Árni Matthíasson arnim@mbl.is Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Orri Páll Ormarsson
orri@mbl.is Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Þegar maður hélt að veðrið hér í fásinninu gæti ekki orðið leiðinlegrakom þetta „sumar“. Ég veit að Eyjólfi Kristjánssyni (og eflaust ein-hverjum fleirum) finnst ekkert gaman að tala um veðrið sí og æ en
hvaða hótfyndni er það samt hjá almættinu (sú ágæta kona verður hér eftir
kölluð gælunafni sínu, Alla) að blása til ættarmóts lægða hér yfir suðvestur-
horni landsins? Og planta á sama tíma víðáttumikilli hæð suður í hafi. Alla,
hvað höfum við eiginlega brotið af okkur? Og til að bíta höfuðið af skömminni
þá er brakandi þurrkur, glampandi sól og 24 stiga hiti fyrir austan og norðan
– alla daga. Meira að segja íbúar Kanaríeyja horfa þangað öfundaraugum.
„Hvar værum við eiginlega ef við hefðum ekki HM?“ spurði Edda Sif Páls-
dóttir íþróttafréttakona í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins í vikunni þegar
Bogi Ágústsson fréttaþulur sneri sér brúnaþungur að henni eftir að hafa far-
ið yfir enn eina rigningarspána.
„Og nú er það um það bil að verða
búið,“ svaraði Bogi um hæl og augun
í aumingja stúlkunni brustu.
„Ekki segja þetta!“
Veit ekki hvort það er tilviljun en
svo virðist sem flestir sjónvarpsveð-
urfræðingar landsins séu gufaðir
upp; Elín Björk Jónasdóttir situr ein
eftir með dembuna. Hún birtist
kvöld eftir kvöld á skjánum og lætur
sér hvergi bregða. Einn daginn
spáði hún úrkomu á morgun, úr-
komu hinn og úrkomu daginn þar á
eftir. Á fjórða degi gat hún heldur
ekki útilokað úrkomu. Það þarf kannski ekki fagmann til; ég treysti mér al-
veg til að lofa ykkur úrkomu 21. júlí og 29. ágúst. Og alla dagana þar á milli.
Elín Björk vex samt við hverja raun og er bersýnilega rétta manneskjan í
verkið; að segja sunnvestlendingum þessar ömurlegu fréttir. Hún lítur út
fyrir að vera svona „ekkert helvítis væl og kjaftæði-valkyrja“ og tók raunar
af öll tvímæli um það í fréttasamtali á Stöð 2 (frekar en RÚV) nýverið. Spurð
hvort hún væri ekki orðin þreytt á þessari ótíð og ósköpum öllum svaraði El-
ín Björk: „Nei, það þýðir ekkert að kvarta við mig. Við búum á Íslandi!“
Hverju orði sannara. Það þýðir ekkert að veina undan veðri og hótfyndni
Öllu gömlu hér um slóðir. Vegir hennar eru órannsakanlegir. Þess vegna geri
ég orð Einars Á.E. Sæmundsen, þjóðgarðsvarðar á Þingvöllum, að mínum en
spurður hvort hann hefði áhyggjur af veðrinu þegar efnt verður til hátíðar-
þingfundar á Þingvöllum í næstu viku svaraði hann í sjónvarpsfréttum: „Ef
veðrið ætti að vera einhver hindrun fyrir okkur Íslendinga þá gerðist nú lítið
á sumrin hér. Við bara gerum hlutina.“
Morgunblaðið/Ómar
Við búum á Íslandi!
Pistill
Orri Páll
Ormarsson
orri@mbl.is
’Ef veðrið ætti að veraeinhver hindrun fyrirokkur Íslendinga þá gerð-ist nú lítið á sumrin hér.
Við bara gerum hlutina.
Hjörtur Árni Jóhannsson
Nei, í sjálfu sér ekki.
SPURNING
DAGSINS
Hefur þetta
leiðinlega
veður haft
einhver
áhrif á sum-
aráformin
þín?
Sólmundur Jónsson
Nei.
Bjarni Már Gíslason
Nei, við erum einmitt á leiðinni í bú-
stað núna.
Ingunn Arnardóttir
Nei, í rauninni ekki.
Ritstjóri Davíð Oddsson
Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndina tók
Ásdís Ásgeirsdóttir
Sigríður Eyrún Friðriksdóttir stendur fyrir styrktartón-
leikum í Hörpu þar sem safna á fyrir kaupum á Ham-
mond-orgeli í minningu Bjarka, bróður hennar.
Hammond
í Hörpu
SIGRÍÐUR EYRÚN
FRIÐRIKSDÓTTIR
SITUR FYRIR SVÖRUM