Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.07.2018, Síða 21

Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.07.2018, Síða 21
Verk eftir Einar Gíslason í listhúsinu á Brúnum. Fallegt útsýni af svölunum. Einar, Veronika Horáková og Merete Elak sýna íslenska hestinn á reiðvellinum á Brúnum. sem gránar með tímanum. „Það þarf ekkert að gera við lerkið, það veðrast bara.“ Nánast allur rekavið- ur sem kemur til Íslands er reynd- ar rússalerki, þannig að útkoman er svipuð og þau ætluðu. „Hugmynd okkar um reksturinn gengur út á mat, list og hesta. Það sem við bjóðum upp á er allt upp- runnið á staðnum; brauð og kökur er bakað hér, lambakjötið er frá okkur, eggin og salatið,“ segir Ein- ar. Hjónin eru bæði í starfi annars staðar, bústofninn er ekki stór, þau vilja byrja rólega í ferðaþjónustunni og sjá hvað setur. „Við vitum að veturinn er erfiður tími, þá er ró- legt, en við tókum reyndar á móti mörgum hópum í mat í vetur, alls konar klúbbum og fyrirtækjum,“ segir Einar. Vetrarmánuðina kenn- ir hann myndmennt við Hrafnagilsskóla handan Eyjafjarðarár en Hug- rún, sem er hjúkrunarfræðingur, starfar sem námsstjóri á Sjúkra- húsinu á Akureyri þar sem hún sinnir öllum nemum sem þangað koma. Myndlistarsýningar eru reglulega á Brúnum og í vikunni var einmitt opnuð sýning þriggja systkina úr nágrenninu, frá Munkaþverá. Kunnust þeirra er Kristín Jóns- dóttir, sem nam í Handíða- og myndlistaskólanum í Reykjavík um miðja síðustu öld og stundaði fram- haldsnám í myndlist bæði í Kaup- mannahöfn og París auk þess sem hún lærði um tíma á Ítalíu. Kristín hefur haldið yfir 20 einkasýningar og tekið þátt í fjöl- mörgum samsýningum, síðast á þessu ári í Genf í Sviss og Conn- ecticut í Bandaríkjunum. Kristín starfaði árum saman við mynd- listarkennslu. Bræður hennar sem einnig sýna á Brúnum, Kristján Hans Jónsson og Eysteinn Jónsson, eru báðir myndlistarmenntaðir en hafa haft annað að aðalstarfi alla tíð. Eldhúsið og afgreiðsluborðið á kaffihúsi hjónanna, Hugrúnar og Einars, á Brúnum. Listhúsið á Brúnum. Jónas Vigfússon teiknaði húsið samkvæmt óskum Einars bónda. 15.7. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21 Sýningarsalurinn á neðri hæðinni, þar sem systkinin frá Munkaþverá sýna nú. Afgreiðslutími Rvk Mánudaga til föstudaga kl. 10–18 Laugardaga kl. 11–17 Sunnudaga kl. 13–17 (Smáratorg) www.dorma.is Holtagörðum, Reykjavík 512 6800 Smáratorgi, Kópavogi 512 6800 Dalsbraut 1, Akureyri 558 1100 Skeiði 1, Ísafirði 456 4566 Verð og vöruupplýsingar í bækl-ingnum eru birtar með fyrirvara um prentvillur. Verð gildir til 12. ágúst 2018 eða á meðan birgðir endast. Simba dýnurnar eru fáanlegar í eftirtöldum stærðum Dýna 80 x 200 cm 64.900 kr. Dýna 90 x 200 cm 74.990 kr. Dýna 100 x 200 cm 79.900 kr. Dýna 120 x 200 cm 89.990 kr. Dýna 140 x 200 cm 99.990 kr. Dýna 160 x 200 cm 114.990 kr. Dýna 180 x 200 cm 129.990 kr. Simba-kassinn Ótrúlegt en satt. Simba dýnan þín kemur í kassa sem er 1,05 x 0,5 x 0,5 m. Háþróuð tæknin sem notuð er til að pakka henni með þessum hætti tryggir að þegar þú hefur tekið hana úr kassanum þenur hún sig út á fáeinum klukkustundum og verður aftur jafn fjaðrandi og þegar henni var pakkað. Komdu og kynntu þér Simba í næstu Dormaverslun eða á www.simba.is Simba tvinndýnan er gerð úr einstakri samsetningu 2500 keilulaga gorma og móttækilegs minnissvamps. Fáðu betri svefn – sama hvert svefnmynstur þitt er.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.