Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.07.2018, Qupperneq 26
ur, aðrir nota þau aðeins við
jakkaföt, en við höfum séð
aukningu á sölu á axlabönd-
um,“ segir Ari.
„Það eru í raun þrjár
ástæður hvers vegna fólk
gengur með axlabönd. Í
fyrsta lagi er það af prakt-
ískum ástæðum, þegar fólki
finnst óþægilegt að vera með belti.
Það geta verið menn með bumbu,
eða bara þeir sem þykja axlabönd
þægilegri heldur en belti. Fyrir
mitt leyti eru axlabönd hentugri
kostur, þú þarft ekkert að pæla í
þeim, sama hversu mikið þú beygir
þig þarftu ekkert að laga þau,
þannig að það er stór ástæða fyrir
því að fólk gengur með axlabönd
frekar en belti.
Í öðru lagi eru axlabönd notuð
af menningarlegum ástæðum.
Axlabönd voru mikið notuð af
breskum pönkurum, snoðaðir gaur-
ar í Fred Perry-pólóbolum og
sýruþvegnum gallabuxum. Axla-
bönd eru ákveðið tákn um gamla
tíma, þannig að það felst svolítil
ádeila í því þegar pönkarar nota
axlabönd við rifnar gallabuxur eða
berir að ofan, það er ákveðin ögr-
un.
Í þriðja lagi eru axlabönd oft
notuð sem aukahlutur, menn sem
kóróna gott lúkk með flottum axla-
böndum og para það við lita-
samsetninguna sem þeir eru að
vinna með.“
Meira notuð við
formleg tilefni
Þótt hægt sé að nota axlabönd við
flest tilefni segir Ari þau mest not-
uð með jakkafötum eða smóking
Í áratugi hafa belti haldiðuppi buxum landsmanna, ogVesturlandabúa almennt, á
meðan skyldmenni beltisins,
axlaböndin, hafa fengið að
sitja á hakanum. Ekki hafa
belti þó alltaf ráðið ríkjum
á markaði þessum, en á
miðri nítjándu öld og
snemma á þeirri tutt-
ugustu voru axlabönd alls-
ráðandi. Í dag, hins vegar,
eru belti normið, þótt ófáir
herramenn og stílfrömuðir
spóki sig með axlabönd í
auknum mæli, bæði við
formleg tækifæri og óform-
leg. Blaðamaður Sunnudags-
blaðsins ræddi við Ara Stefán
von Hammersmark, tískuspekúl-
ant úr Herragarðinum, um axla-
bönd, hvenær þau eru við hæfi, og
hvers vegna beltanormið sé oft
brotið.
Praktísk og pólitísk
„Það er þannig séð hægt að vera
með axlabönd við hvaða tilefni sem
er, það fer allt eftir því hvernig
einstaklingurinn klæðir sig. Sumir
ganga með axlabönd við gallabux-
og kjólfötum. „Reglan með smók-
ingföt er að þú átt alltaf að vera
með axlabönd, annaðhvort svört
eða dökkblá, sem hneppast í tölur
á buxunum. Með kjólfötum verða
axlaböndin að vera hvít.
Annars er ekkert algjörlega
bannað, líkt og í mörgum öðrum
herrafatnaði. Ég vissulega mæli
ekki með því að vera með rauð
skáröndótt axlabönd við fjólubláa
og græna köflótta skyrtu, eða að
ganga með bæði axlabönd og belti,
en á meðan þú ferð ekki gjör-
samlega út fyrir strikið ættir þú
að sleppa.“
Pendúllinn sveiflast
Rétt eins og með flest annað detta
axlabönd í og úr tísku sitt á hvað,
pendúllinn sveiflast fram og aftur.
„Í gamla daga voru til dæmis skó-
hlífar gríðarlega vinsælar, svona
gúmmítúttur sem hlífa leðurskóm,
en þeir sem ólust upp með afa sem
notaði skóhlífar vildu ekki sjá þær.
Svo kemur ný kynslóð og í dag
eru skóhlífar byrjaðar að dúkka
upp hér og þar hjá fólki sem vill
vernda skóna sína frá saltinu og
slabbinu. Það sama má segja um
axlabönd. Við munum kannski ekki
sjá axlabönd koma í staðinn fyrir
belti á næstunni, en ég held að
axlabönd séu að koma aftur.“
Ari Stefán er starfsmaður hjá
Herragarðinum og laganemi.
Beltanormið brotið
Axlabönd hafa haldið uppi buxum séntíl-
manna, pönkara og fjölmargra þar á milli í ár
og aldir. Vinsældir þeirra hafa dalað á síðustu
áratugum en endurkoma axlabandanna gæti
verið handan við hornið.
Pétur Magnússon petur@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Ed Westwick er
mikill tískufröm-
uður, og hann
kann að rokka
axlabönd.
Til eru bæði smelluaxlabönd
og töluaxlabönd, hér er
dæmi um það síðarnefnda.
Maður í axlaböndum ról-
ar sér á San Diego Pride.
TÍSKA
26 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.7. 2018
Það er ákveðið tískutabú að vera með bæði belti og axlabönd, en hugtakið að
vera með belti og axlabönd er gjarnan notað yfir manneskju sem er óþarflega
varkár eða notar margar mismunandi aðferðir til að forðast mistök.
Belti og axlabönd
Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími 534 9600 · heyrn.is
GÓÐ HEYRN
GLÆÐIR SAMSKIPTI!
Með þeim heyrist talmál sérstaklega vel
vegna þess að þau þekkja tal betur
en önnur tæki.
Tæknin sem
þekkir tal
Nýju ReSound LiNX 3D
eru framúrskarandi heyrnartæki
ReSound LiNX3