Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.07.2018, Blaðsíða 15
bandarískri sögu og okkur var boðið í veislu.
En kennararnir elskuðu allir stelpurnar,“ seg-
ir Louise.
Líf mitt gjörbreyttist
Louise tók fleiri skiptinema á eftir þeim ís-
lensku og heldur góðu sambandi við þá flesta,
alls tólf frá ýmsum löndum. „Þetta hefur veitt
mér mikla gleði. Stundum er þetta erfitt því ég
hef svo marga á minni könnu og ég vil að þau
eigi öll gott líf. Ef lífið er erfitt hjá einni af
dætrum mínum verð ég sorgmædd. Og ég held
að vinir mínir skilji þetta ekki alveg. En þetta
er mjög gefandi og ég held að þetta hjálpi
heiminum, a.m.k. í okkar litla hluta heims.
Þegar ég sé allar fréttirnar af flóttamönnum
þá hugsa ég að það sé ekki erfitt að bjóða fólki
sem er af öðrum menningarsvæðum velkomið.
Maður þarf að sýna þolinmæði og þau þurfa
líka að sýna þolinmæði,“ segir Louise og bætir
við að það að taka inn skiptinema auki víðsýni
og umburðarlyndi á milli ólíkra þjóða.
„Ég er ekkert fullkomin og get alveg orðið
fúl en þegar stelpurnar voru hér sögðum við
oft fyrirgefðu við hver aðra,“ segir hún en á
milli þeirra ríkir mikil væntumþykja og gagn-
kvæm virðing.
„Stelpurnar kalla mig mömmu og nú kalla
börnin þeirra mig ömmu. Þegar ég segi við vini
mína að ég sé að fara til Íslands að heimsækja
dætur mínar skilja þeir ekkert hvað ég er að
meina. Fólk skilur ekki hvað maður getur orð-
ið náinn skiptinemunum sínum,“ segir Louise.
Hún segist njóta þess að hafa séð þær vaxa
og þroskast og eignast börn. „En fyrir mér eru
þær alltaf ungu stelpurnar mínar. En ég veit
að þær eru orðnar fullorðnar konur og það
gengur vel hjá þeim og það gleður mig. Og það
sama gildir um manninn minn heitinn, hann
naut þess mjög að fylgjast með þeim. Þetta er
gott fólk. Maður lendir einhvers staðar á jörð-
inni og reynir að gera það sem maður getur.
Líf mitt gjörbreyttist við að kynnast stelp-
unum,“ segir Louise.
„Og hún breytti lífi okkar. Þegar ég kom til
baka hafði ég miklu meiri áhuga á heimsmálum
og ferðalögum. Ég hef verið aktív í alþjóð-
legum stjórnmálum og var í háskólaráði og
stúdentaráði seinna meir. Louise vildi að ég
sendi Ronald Reagan jólakort, en mér fannst
það ekki góð hugmynd á sínum tíma,“ segir
Heiðrún og hlær.
„Það er svo sérstakt að eiga svona skipti-
nemamömmu sem kemur svona reglulega og
það er svo gott samband á milli okkar. Það er
ótrúlega dýrmætt. Hún er bara mamma sem
býr í Bandaríkjunum. Ég segi við barnabörnin
að ég eigi tvær mömmur,“ segir Anna Guðrún.
„Hún er með í öllu.“
Heiðrún bætir við:
„Þegar ég var skiptinemi hjá henni eignaðist
Hafdís frumburðinn sinn, árið 1988. Og Louise
skildi mig eftir og fór til Íslands til þess að
heimsækja fyrsta barnabarnið!“ segir hún og
hlær.
Louise segist geta lesið barnabækur fyrir ís-
lensku barnabörnin sem hún fær stundum að
passa.
Aðspurð hvort hún kunni eitthvað í íslensku,
svarar hún á íslensku: „bara pínulítið“. Og
bætir við á ensku: „Ég skil fullt og get lesið
barnabækur.“
Ég elska kókosbollur
Þær Anna Guðrún, Hafdís og Heiðrún segja að
Louise sé sannkallaður sendiherra Íslands í
Ohio. „Hún hefur verið að kenna sem afleys-
ingakennari og alltaf kennir hún nemendum
sínum um Ísland. Svo er hún sögukennari og
hefur mikinn áhuga á menningu og tungu-
málum,“ segir Heiðrún.
Louise segist ekki upplifa sig sem túrista á
Íslandi, enda ferðirnar hingað orðnar býsna
margar. Fyrir tæplega fjörutíu árum, þegar
hún kom fyrst til Íslands, voru ferðamenn hér
sjaldséðir hvítir hrafnar. Louise hefur fylgst
með hvernig Reykjavík hefur breyst á síðustu
áratugum. „Ég hef getað séð breytingarnar í
gegnum árin. Sem dæmi var ekki búið að
byggja Flugstöð Leifs Eiríkssonar þegar ég
kom fyrst. Eitt skipti sem ég kom tók ég síð-
ustu vélina sem lenti á gamla flugvellinum og
þremur dögum síðar flaug ég burt frá nýja
flugvellinum,“ segir hún. „Og nú er beint flug
til Cleveland, loksins!“
„Ég er búin að koma hingað í Grasagarðinn í
38 ár og það hefur mikið breyst. Og margt hef-
ur breyst hér á landi. Þegar ég kom hér fyrst
var ekki allt malbikað,“ segir hún en Louise
hefur ferðast víða um land, farið yfir Sprengi-
sand og siglt út í Grímsey svo eitthvað sé
nefnt. Hún hefur einnig brennandi áhuga á ís-
lenskum kvikmyndum og hefur séð þær flest-
ar. „Svo les ég allar bækur eftir íslenska höf-
unda. Laxness var sá fyrsti sem ég las til þess
að skilja Ísland almennilega. Nú les ég líka
Arnald Indriðason og Yrsu Sigurðardóttur og
segi öllum vinum mínum frá þessum bókum.
Svo auðvitað þekki ég alltaf Ísland þegar aug-
lýsing eða bíómynd er tekin upp hér, þá bendi
ég alltaf og segi, ég veit hvar þetta er! Og
skyrið! Ég man að þegar Siggi byrjaði með
Siggi’s skyr fór ég að kynna það fyrir öllum
vinum mínum,“ segir hún. „Svo elska ég kók-
osbollur!“
Við förum að slá botninn í samtalið. Börn,
barnabörn og barnabarnabörnin íslensku
þurfa að fara að komast heim. Louise er sátt
við 21 ferðina til Íslands.
„Ég var smá smeyk að koma í þetta sinn því
ég vissi að það væri svo margt breytt frá síð-
ustu ferðinni fyrir fjórum árum. Nú væri
ferðamannastraumurinn miklu meiri. Ég var
hrædd um að allt yrði breytt. Mig langaði ekk-
ert að hitta alla þessa túrista þannig að við fór-
um á Snæfellsnes og þar voru ekki svo margir
túristar þannig að það var gott,“ segir hún og
kvartar alls ekki yfir veðrinu.
„Hér er eitthvað sérstakt samband manns
og náttúru. Enginn sem kemur hingað sem
ferðamaður talar um veðrið. Þeir tala allir um
náttúruna, fjöllin og víðáttuna.“
Morgunblaðið/Ásdís
„Stelpurnar kalla mig mömmu og nú kalla
börnin þeirra mig ömmu. Þegar ég segi við
vini mína að ég sé að fara til Íslands að heim-
sækja dætur mínar skilja þeir ekkert hvað ég
er að meina. Fólk skilur ekki hvað maður get-
ur orðið náinn sínum skiptinemum,“ segir Lo-
uise. Frá vinstri er Anna Guðrún með barna-
börnin Dagbjörtu Önnu og Karítas Ylfu,
Hafdís með dóttur sína Selmu Dögg, Louise,
Heiðrún og dóttir hennar Eygló María.
15.7. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15
Hefðbundin heyrnartæki hækka talmál frá einum viðmælanda sem snýr að þér og loka
á önnur hljóð. Nýju Opn heyrnartækin skanna hljóðumhverfið 100 sinnum á sekúndu til
að aðgreina talmál frá hávaða og koma jafnvægi á hljóð í kringum þig. Þannig verður
hljóðmyndin eðlilegri og þú nýtur þess betur að hlusta og taka virkan þátt í samræðum.
Prófaðu nýju Opn heyrnartækin í 7 daga
Heyrnartækni | Glæsibæ | Álfheimum 74 | 104 Reykjavík | Landsbyggðaþjónusta | Sími 568 6880
Hefðbundin heyrnartæki Nýju Opn heyrnartækin
Tímapantanir í síma 568 6880
www.heyrnartaekni.is