Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.07.2018, Qupperneq 31
Það hefur þó enginn utan landsteina minnst einu
orði á þessa tímamótaræðu, og hversu einstök hún
sannarlega var á þessum vettvangi. Allir aðrir virðast
hafa verið úti á þekju og talið sig hafa verið á fundi
varnarbandalags og töluðu mest um að efla hern-
aðarmátt bandalagsins í takt við löngu gefin loforð.
Hefði einhver reynt að slá út okkar mann með tillögu
um að vegan-væða Afríku í snatri svo að þarlendir
tækju ekki óvænt að safna spiki með tilheyrandi erf-
iðleikum fyrir heilbrigðiskerfin, þá hefði það mis-
heppnast. „Hinir leiðtogarnir“ sáu í undirbúnings-
möppum sínum að þessi eini ráðherra sem þorði á
fundinum og flokkur hans koma úr ranni sem hefur
ætíð viljað bandalaginu vel, eins og margur slitinn
skósóli vitnar um.
Slík snilldarræða ætti að vera upplagt efni í frétt
svo mjög sem talað var á skjön við aðra í Brussel. En
samt hefur ekkert heyrst um þetta nema í „RÚV“.
Önnur ríki virðast samkvæmt fréttum hafa haldið
áfram að lofa auknu fé í hernaðarlegan viðbúnað til að
friða Trump forseta. Það sýnir öllum að Nató er ekki
aðeins hernaðarbandalag heldur sannkallað friðar-
bandalag fyrst að allir einbeittu sér að því að friða
Trump.
Trump mun að vísu einnig sjá það í sínum möppum
að hinir leiðtogarnir hafi aldrei gert neitt með sín
gömlu loforð.
Svo var það fyrir átta árum
Jóhanna Sigurðardóttir hafði reyndar þann hátt á að
reyna að forðast Natófundi eins og fært var, og það
tók enginn eftir því nema Össur, sem mætti fyrir
hana og bauð Obama í opinbera heimsókn til Íslands
og flýtti sér síðan heim og sagði íslenskum fjölmiðlum
í ofboði að Obama hefði þegið boð sitt og væri vænt-
anlegur. Var engu líkara en að Össur vildi verða á
undan Obama til Íslands. Obama hefur hins vegar
ekki séð neitt í sinni möppu um Össur, því í henni er
eingöngu fjallað um aðra leiðtoga Nató, annars yrði
mappan allt of þykk og ólæsileg. Forsetinn hefur því
ekki haft grænan grun um það hver það var sem
flaug á hann fyrirvaralaust án þess að „secret ser-
vice“ kæmi vörnum við og það er sjálfsagt meg-
inástæðan fyrir því að enn hefur ekki sést til hans.
Næsti kafli
En nú er Trump kominn til Lundúna og friðar-
sinnar þar reyna að efna til þess ófriðar sem þeir
mega af því tilefni. Þegar Trump hefur sagt „vertu
sæl mey“ við May heldur hann til Helsinki að hitta
Pútín.
Fullyrt er að rúmlega 85% fréttaspekinga hati
Trump og geti fæstir leynt því. En þeir verða að við-
urkenna að hann léttir þeim óneitanlega róðurinn yfir
hábjargræðistíma bænda.
Hefði Obama fyrirrennari farið í svona ferð á
slíkum tíma hefði ekki nokkur maður tekið eftir
því. Nema auðvitað við, því að „RÚV“ sem hefði þá
eftir „viðmælanda fréttastofunnar“ að forsetinn
væri frá sér numinn af hrifningu yfir einni ræðu á
Natófundinum sem hefði dregið vandamál kynja-
fræðinnar með trúverðugum hætti upp í hæstu
hæðir.
Og það óvenjulega og fágæta myndi þá hafa gerst
að frétt „RÚV“ höfð eftir „viðmælanda fréttastof-
unnar“ hefði í þetta eina sinn sennilega verið nokkurn
veginn rétt.
Morgunblaðið/Eggert
15.7. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31