Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.07.2018, Side 4
Ferðamenn frá ýmsum lönd-
um taka sér ferð með Circle
Air. „Hingað kemur mest af
Bandaríkjamönnum, hugs-
anlega vegna þess að kaup-
máttur þess fólks er senni-
lega meiri en margra
annarra, en dollarinn hefur
vaxið nokkuð jafnt og þétt
með krónunni, en svo eru
Indverjar einnig í sókn,“ segir
Þorvaldur Lúðvík.
Mikið var um Þjóðverja og
Hollendinga framan af en
þeim hefur heldur fækkað,
eins og farþegum frá Bret-
landi og hinum norrænu
löndunum.
Farþegi í vél Circle Air í vikunni.
Farþegar
víða að
Náttúran tekur á sig ýmsar myndir.
Halda mætti að Kjarval hefði verið með
pensilinn á lofti í Kverkfjöllum í vikunni.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Helstu perlur vinsælar úr lofti
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónssonsöðlaðu um fyrir nokkrummisserum og stofnaði í félagi
við aðra lítið flugfélag um útsýnisflug
yfir helstu perlur Íslands. Slíkt flug
hefur verið í boði á Norðurlandi en
aldrei frá höfuðstað landshlutans.
Þorvaldur segir viðtökur hafa verið
góðar; svo góðar raunar að fyrirtækið
býður ekki upp á útsýnisflug frá
Reykjavík í sumar eins og áður held-
ur eru báðar vélar Circle Air nú gerð-
ar út frá Akureyri. „Við komum aftur
suður sennilega í haust, þegar um
hægist fyrir norðan,“ segir hann.
Þorvaldur Lúðvík segir ein 20 ár
síðan hann fór fyrst að velta fyrir sér
mögulegu útsýnisflugi, enda lengi
verið flugdellukarl og hefur flogið
sjálfur síðan hann var 14 ára.
„Okkur fannst vanta afþreyingu fyr-
ir ferðamenn, ekki síst af skemmti-
ferðaskipunum; ég var viss um að
margir þeirra vildu fljúga og skoða sig
um, sjá allt það besta á Norðaust-
urlandi á einum og hálfum klukkutíma
í stað þess að eyða heilum degi í rútu.
Það fólk sem fer í flug hefur þá meiri
tíma til að vera á veitingastöðum, söfn-
um eða verslunum og til að skoða sig
um; gera þannig meira úr Íslands-
heimsókninni.“
Circle Air keypti tvær Airvan-
flugvélar og var líka með þyrlu í
rekstri í stuttan tíma. „Það voru helst
lúxusferðamenn sem höfðu efni á að
fara með þyrlu enda þrisvar sinnum
dýrara en að skoða sig um úr flugvél
og við hættum með þyrluna.“
Hvor vél tekur sjö farþega. „Þær
eru sérútbúnar, með stórum dekkjum
þannig að hægt er að lenda á óhefð-
bundnum flugvöllum, gluggar eru
stórir og allir með gluggasæti, þannig
að auðvelt er að taka myndir.“
Flugið hófst sumarið 2016 sem
nokkurs konar tilraun, en þetta er
annað „alvöru“ sumarið og Þorvaldur
Lúðvík segir að þrátt fyrir býsna erf-
ið ytri skilyrði séu ferðirnar vinsælar
ekki síst meðal fólks af skipunum.
Með ytri skilyrðum á hann við hve
sterk íslenska krónan hefur verið síð-
ustu misseri. „Blikur eru þó á lofti og
ég held að þetta nái jafnvægi, ekki
síst eftir daprar tölur fyrirtækja í
kauphöll, samdrátt í tekjum ferða-
þjónustunnar og þá er gengissig lík-
legt í kjölfarið.“
Hann segir töluvert um að Íslend-
ingar geri sér dagamun, „eða gefi
flugferð í stórafmælisgjöf; gefi upp-
lifun í stað þess að kaupa málverk eða
bollastell. Börnin slá jafnvel saman.
Hver hefur ekki gaman af því að
skoða Öskju, Herðubreið eða Kverk-
fjöll úr lofti?“
Circle Air býður upp á ýmsar ferð-
ir, í einni er einmitt m.a. flogið yfir
þessa staði og þá er lent í Herðu-
breiðarlindum, á gömlum flugvelli
sem Bandaríkjamenn gerðu þegar
geimfarar stunduðu æfingar í ná-
grenninu við undirbúning geimferða
á sjöunda áratugnum.
Þorvaldur Lúðvík segir að þeir
hafi lagt í mikla fjárfestingu og það
taki tíma að byggja upp reksturinn.
„Ferðirnar eru nokkuð dýrar en þá
verður stöðugt að bjóða góða þjón-
ustu. Viðbrögð hafa verið góð til
þessa, til dæmis á Tripadvisor. Við
fengum vottun þaðan fyrr í sumar
vegna stöðugleika í gæðum þjónust-
unnar og ánægju viðskiptavina.
Sumir hafa sagt þar að flugið með
okkur sé það besta sem þeir gerðu á
Íslandi og fólk ætti jafnvel að fara til
Íslands þó ekki væri nema bara fyrir
flugið! Ég er mjög bjartsýnn og er
reyndar alveg viss um að framtíð
ferðaþjónustu á Norðurlandi er mjög
björt.“
Lengi hefur verið rætt um mögu-
leika á beinu flugi milli Akureyrar og
útlanda og Þorvaldur Lúðvík segist
mjög bjartsýnn á flug Superbreaks
næsta vetur milli borga á Bretlands-
eyjum og Akureyrar. „Þar er kom-
inn flugrekandi sem hefur burði til
að sinna þessu á réttan hátt; er með
flugvélar við hæfi og rétt þjálfaða
flugmenn, sem er að sjálfsögðu nauð-
synlegt. Norðurland á gríðarlega
mikið inni, ég held að sífellt fleiri séu
að uppgötva að Ísland sem ferða-
mannaland er ekki bara suðvest-
urhornið og Suðurland og kannanir
sýna að þeir sem koma aftur til lands-
ins fara í auknum mæli út á land.“
Hann segist sannfærður um að
innan örfárra ára verði komið á býsna
reglubundið flug frá útlöndum til Ak-
ureyrar. „Það hefur verið skoðað af
mörgum flugrekendum og ég held að
það sé bara spurning um hver tekur
skrefið. Auðvitað hafa ýmsar bábiljur
á köflum hamlað þessari þróun, ekki
síst þær heimatilbúnu, en þetta er á
leiðinni.“
Eins og fjallað hefur verið um er
oft mikill átroðningur á stöðum eins
og Gullfossi og Geysi. „Þar er oft
mjög þröngt um manninn en annars
staðar á landinu eru margar perlur
sem mér finnst sjálfsagt að bent sé á.
Það er ekki gott til afspurnar ef
ferðamönnum finnst svæði liggja
undir skemmdum eða telji sig sjá lítið
annað en aðra ferðamenn.
Opinbert markaðsstarf á und-
anförnum árum hefur nær eingöngu
snúið að umhverfi Keflavík-
urflugvallar og mér finnst tími kom-
inn til að Íslandsstofa og aðrir sem
þiggja opinbert fé til kynningarmála
horfi meira á aðra staði landsins, ekki
síst til að skemma ekki þann góða ár-
angur sem náðst hefur með ofbeit á
sömu staðina sunnanlands.“
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson býður upp á útsýnisflug um Norðurland frá Akureyri og eru viðtökur góðar, ekki síst frá farþegum
skemmtiferðaskipa. Hann segir löngu tímabært að markaðsstarf snúist meira um aðra staði en suðvesturhornið og Suðurland.
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22.7. 2018
’
Ég er mjög bjartsýnn og er reyndar alveg
viss um að framtíð ferðaþjónustu á Norður-
landi er mjög björt.
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Circle Air
INNLENT
SKAPTI HALLGRÍMSSON
skapti@mbl.is