Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.07.2018, Síða 8
Von er á nýrri plötu frá þeim fé-
lögum með haustinu. Tónleikarnir,
sem fóru fram í Laugardalshöll,
voru vel sóttir og fengu mörg
GNR-lög að fljóta með, lýðnum til
ómældrar ánægju. Í uppklappi
kom svo Íslandslagið fræga Im-
migrant Song eftir Led Zeppelin.
Morgunblaðið/Eggert
Myles Kennedy og Slash á tónleikunum í Höllinni á aðventu 2014. Kennedy fór
ljómandi vel með GNR-stöffið enda þótt hann sé vitaskuld enginn Axl Rose.
Íslashvinurinn góði
Í PRÓFÍL
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22.7. 2018
Ólöf Erla Bjarnadóttir
Guðrún Borghildur Valdís Harrysdóttir
Íslensk hönnun - Íslenskt handverk
Vesturgötu 4, 101 Reykjavík, s. 562 8990
www.kirs.is,
Kirsuberjatréð Íslensk Hönnun
Opið: Mán.-fös. 10-18, lau. 10-17, sun 10-17
UPPRUNI Guns N’ Roses var stofnuð í mars 1985,
þegar tvær Los Angeles-sveitir runnu saman, Holly-
wood Rose og LA Guns. Úr því búið var að sam-
eina mannskapinn blasti við að bræða saman nöfnin
líka – Guns N’ Roses. Raunar kom fram sú hug-
mynd að nefna bandið AIDS en henni var af ein-
hverjum ástæðum hafnað. Söngvarinn W. Axl Rose
og hryngítarleikarinn Izzy Stradlin komu úr fyrr-
nefnda bandinu en sólógítarleikarinn Tracii Guns,
bassaleikarinn Ole Beich og trymbillinn Rob Gar-
dner úr L.A. Guns. Beich lifði aðeins eitt gigg, Duff
McKagan leysti hann af hólmi og eftir að ágrein-
ingur reis milli Rose og Guns, þurfti sá síðarnefndi
einnig að víkja. Inn kom gamall félagi úr Hollywood
Rose, Slash að nafni. Ekki leið á löngu uns þriðji LA
Guns-liðinn, Gardner, var á bak og burt líka. Í hans
stað kom Steven Adler. Úr? Jú, Hollywood Rose.
Það voru þessir fimm, Rose, Slash, McKagan,
Stradlin og Adler, sem hljóðrituðu fyrstu breiðskífu
GNR og gáfu út 1987 – Appetite for Destruction.
Adler hrökk fyrstur úr skaftinu; var sagt upp
störfum sökum óreglu árið 1990. Stradlin vék ári
síðar af þveröfugum ástæðum; hann þurrkaði sig
upp og leist eftir það ekki á það sem blasti við hon-
um. Slash fékk nóg árið 1996 og McKagan yfirgaf
skipið 1997.
Gullaldarlið Guns N’ Roses: Frá vinstri Izzy Stradlin,
Steven Adler, W. Axl Rose, Duff McKagan og Slash.
Hefði getað hlotið
nafnið AIDS
W. Axl Rose í essinu sínu á tón-
leikum. Rödd hans þykir engri lík.
Reuters
Faðirinn
var myrtur
GUNS N’ ROSES Yfirskrift yfirstandandi tónleikaferðar bandaríska málm-
bandsins Guns N’ Roses, „Ekki í þessu lífi“, er ekki úr lausu lofti gripin. Í
heila tvo áratugi þóttu hverfandi sem engar líkur á því að söngvarinn sér-
lundaði, W. Axl Rose, og gítarleikarinn Slash myndu standa aftur saman á
sviði. Til þess var ágreiningur þeirra félaga of djúpstæður. En tíminn græðir
víst flest sár og eftir tvö ár á túr, sem orðinn er sá fjórði tekjuhæsti í sögunni,
leikur ennþá allt í lyndi. Og þess fáum við Íslendingar að njóta á þriðjudag-
inn þegar kempurnar sækja okkur heim. Yfir tuttugu þúsund miðar eru seld-
ir á Laugardalsvöllinn sem þýðir að um er að ræða fjölmennustu stöku tón-
leika Íslandssögunnar. Fleiri sáu poppgoðið Justin Bieber í Kórnum fyrir
tveimur árum en það var í tvennu lagi. Og þar af var líklega upp undir helm-
ingur ekki á svæðinu í tónlistarlegum tilgangi, heldur til að fylgja og gæta
barna sinna.
W. Axl Rose er eini maðurinn sem verið hefur í
Guns N’ Roses frá því að bandið var sett á lagg-
irnar árið 1985 (sjá betur hér að neðan) en úr
réttnefndu gullaldarliði hefur ekki bara Slash,
heldur einnig bassaleikarinn Duff McKagan sleg-
ist í hópinn á ný. Gítarleikarinn Izzy Stradlin hef-
ur lýst því yfir að hann hafi ekki haft áhuga á
þessum langþráðu endurfundum vegna þess að
ekki kom til álita að skipta kökunni jafnt á milli
manna. Steven Adler trommari vildi ólmur vera
með en það var einfaldlega ekki í boði, nema í
hlutverki gests á völdum tónleikum. Það varð til
þess að margir móðguðust fyrir hans hönd, þeirra
á meðal bróðir hans, sem kallað hefur sveitina öll-
um illum nöfnum.
En það er líklega aukaatriði í þessu samhengi;
allt hverfist um þessa tvo menn, Axl og Slash. Án
annars þeirra myndi Guns N’ Roses aldrei draga
að sér allar þessar milljónir áhorfenda. Eins og
raun ber vitni undanfarin tvö ár. Það eina sem hefði mögulega
toppað þá endurfundi, hefði verið ef John Lennon og Paul
McCartney hefðu ákveðið að endurreisa sjálfa Bítlana. Og
það verður víst ekki úr þessu.
Já, fótboltinn kom ekki heim í sumar. En það
ætlar tónlistarsagan svo sannarlega að gera. Allir í
Dalinn! orri@mbl.is
Ekki í
þessu lífi!
Sameinaðir á ný. W. Axl
Rose og Slash á tónleikum
í Kaupmannahöfn í fyrra.
AFP
Guns N’ Roses eins og bandið
er skipað árið 2018: Frank Ferr-
er, Richard Fortus, Dizzy Reed,
Duff McKagan, W. Axl Rose,
Slash og Melissa Reese sem er
eina konan í sögu bandsins.
’En það erlíklega auka-atriði í þessusamhengi; allt
hverfist um
þessa tvo menn,
Axl og Slash. Án
annars þeirra
myndi Guns N’
Roses aldrei
draga að sér all-
ar þessar millj-
ónir áhorfenda.
ÍSLAND Guns N’ Roses hefur
ekki í annan tíma haldið tónleika á
Íslandi. Slash stakk hins vegar hér
við stafni í desember 2014 ásamt
söngvaranum Myles Kennedy og
hljómsveitinni The Conspirators,
sem hann hefur starfað mikið með
undanfarin ár og gerir raunar enn.
SÖNGVARINN William
Bruce Rose, yngri, fæddist í
Lafayette, Indiana, árið 1962.
Móðir hans, Sharon Elizabeth
Lintner, var aðeins 16 ára og
faðirinn, William Rose, eldri,
tvítugur. Þau skildu fljótlega
eftir að drengurinn kom í
heiminn. Lintner gekk þá að
eiga Stephen L. Bailey og fékk
drengurinn ættarnafn hans.
Fram til sautján ára aldurs
hélt hann að Bailey væri faðir
sinn. Blóðföður sinn hitti hann
aldrei aftur en Rose eldri var
myrtur árið 1984. Líkið fannst
raunar aldrei en meintur
morðingi var eigi að síður
settur bak við lás og slá. Rose
frétti ekki af ódæðinu fyrr en
mörgum árum síðar. Nafnið
Axl tók hann síðar upp eftir að
hafa verið í samnefndri hljóm-
sveit í Los Angeles.