Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.07.2018, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22.7. 2018
VETTVANGUR
Allur heimurinn býður upp ánáttúrufegurð. Í mismiklummæli þó. Þannig hafa fá lönd
eins fjölbreytilega náttúru og við get-
um státað af í okkar landi. Og senni-
lega eru náttúruperlur hvergi eins
margar á litlu svæði og einmitt hér.
Þetta gerir Ísland eftirsóknarvert og
jafnframt viðkvæmt í heimi sem allur
er á faraldsfæti eftir að flugvélar
urðu að strætó í loftlínu og fargjöldin
eftir því.
En ef náttúruperlurnar eru Ís-
lands, þá hef ég grun um að Evrópa
eigi vinninginn þegar kemur að
menningarminjum og fallegri manna-
byggð. Auðvitað er um allan heiminn
að finna fagrar bogir og bæi, stór-
fenglegar minjar, eldri og yngri, og
spennandi söguslóðir. En Evrópa
hefur á síðari öldum verið rík, að
hluta til á kostnað annarra heims-
hluta. Ríkidæmi nýlendutímans er
þannig meðal annars að finna í óend-
anlegum herlegheitum, höllum, lysti-
görðum og listaverkum.
Svo eru það bæirnir með sínu hlý-
lega viðmóti, slípaðir og fágaðir af
þúsund ára sögu. Einn slíkur er
Beaune í sunnanverðu Frakklandi.
Þessi litli bær var nánast eins og
paradís í augum ferðalangs frá Ís-
landi. Þarna var hægt að komast í ná-
lægð við mikla og merkilega sögu
klausturmenningar, vínræktar og
lækninga svo eitthvað sé nefnt. Þarna
vilja því margir
koma.
Slíkir staðir,
sem eru óteljandi
í Evrópu, fögnuðu
lengi vel heim-
sóknum til sín. Og
ferðamennskan
er góð og æskileg.
Aldrei þreytist ég
á að klifa á því.
En öllu má of-
gera. Fréttir ber-
ast nú af vaxandi
andúð í garð
ferðamanna á vinsælustu áning-
arstöðum í Evrópu. Barcelona er þar
ágætt dæmi því þar mun andúðin
vera orðin sýnileg. Þetta er skilj-
anlegt því ágangur ferðamanna er
orðinn heimamönnum áþján. Og ekki
er nóg með það. Ferðamannaiðnaður-
inn er orðinn svo frekur að hann er á
góðri leið með að umbylta mannlífinu
heima fyrir.
En þá gerist það líka að það sem
þótti eftirsóknarvert, friðsældin og
hógvær fegurðin með sinni hlýlegu
áferð, sú sem ferðamaðurinn kom til
að njóta, víkur fyrir allt öðrum og
glamurkenndari heimi.
Þetta hefur til dæmis gerst í fyrr-
nefndri Beaune. Bærinn sem í endur-
minningunni var – og er vissulega
enn – svo fagur, er kominn með ill-
kynja kýli. Þetta kýli getur að líta
þegar keyrt er inn í bæinnn. Í útjaðr-
inum – það er þó bót í máli – eru í
einni stórri og stækkandi klessu hót-
elkassar, greinilega byggðir með lág-
markskostnaði til að skila hámarks-
arði að hætti fjöldaframleiðslu. Þarna
gisti ég. Einhvers staðar þurfum við
að vera.
Vandinn er hins vegar sá að ef
grimm markaðssetning og gróða-
hyggja ráða ferðinni í ferðamennsku
er hætt við að kýli af þessu tagi verði
fegurðinni yfirsterkari. Ef við sýnum
ekki landinu nærgætni, þá munu
töfrar þess hverfa.
Þetta kemur allt upp í hugann þeg-
ar fréttir berast af landakaupum er-
lendra fjárfestingarfyrirtækja og
auðkýfinga hér á landi. Markmið með
kaupum þeirra virðast tvíþætt, ann-
ars vegar að loka landinu í eigin þágu,
eiga árnar út af fyrir sig, fegurðina og
kyrrðina, eða á hinn bóginn að græða
sem mest á þessari sömu fegurð.
Hvorugt er eftirsóknarvert.
Eignarhaldi á Norðausturlandinu
er nú hratt verið
að þjappa saman
í hendur erlendra
auðkýfinga,
Fljótin eru einnig
á svipaðri veg-
ferð og víðar er
sömu sögu að
segja, án þess að
gæslumenn ís-
lenskrar náttúru
reyni einu sinni
að grennslast
fyrir um áform
þessara aðila,
sem eru að hanna Ísland upp á nýtt.
Hvað er til dæmis að gerast í nánd við
Geysi í Haukadal og Biskupstungum?
Spyr sá sem ekki veit. Hitt er víst
að varla viljum við þar nokkuð í ætt
við kýlið á Beaune-borg.
Þegar Hallgrímskirkjan í Reykja-
vík var í smíðum var umdeilt að reisa
svo háreista byggingu á Skólavörðu-
holtinu. Einn þeirra sem höfðu efa-
semdir var Kjarval. Og einhverju
sinni þegar á þetta var minnst við
hann, að hann væri svo mikið á móti
Hallgrímskirkju, þá sagði hann það
vera af og frá. Hann hefði ekkert á
móti þessari byggingu. En það væri
Esjan, hún hefði sínar efasemdir.
Nú kunna efasemdir Esjunnar að
hafa verið óþarfar. Það breytir því
ekki að þetta er það samhengi sem
færa þarf umræðuna í, að meta
stærð, hlutföll, samhengi; í stuttu
máli, að sýna kurteisi gagnvart land-
inu.
Ella verður Ísland allt fyrr en varir
að illkynja kýli á borð við neon-
þyrpinguna í Beaune.
Efasemdir Esjunnar
’Vandinn er hins vegarsá að ef grimm mark-aðssetning og gróða-hyggja ráða ferðinni í
ferðamennsku er hætt við
að kýli af þessu tagi verði
fegurðinni yfirsterkari. Ef
við sýnum ekki landinu
nærgætni, þá munu
töfrar þess hverfa.
Úr ólíkum
áttum
Ögmundur Jónasson
ogmundur@ogmundur.is
Morgunblaðið/Ómar
Unnsteinn Manúel, tónlistar-
maður, las Vinstri grænum pistilinn
á Facebook og
sagði meðal ann-
ars: „Eftir +-3 vik-
ur eignast ég mitt
fyrsta barn og fæ
að heyra það í dag
að þið séuð að
fljúga verðandi mæðrum norður á
land. Er ekki í lagi með ykkur? Ætlar
þú Katrín Jakobsdóttir endanlega að
rústa heilbrigðiskerfinu fyrir hönd
Bjarna Ben?“
Atli Steinn Guðmundsson
skellti sér á tónleika: „Þessir tón-
leikar Guns’N Ro-
ses voru líklega
mesta tímasóun
ævi minnar. Gafst
upp og fór heim kl.
21. Lúdó og Stefán
hefðu staðið sig
betur. Fullkomin tímasóun radd-
lauss fituhlunks sem heldur að árið
sé enn 1988. Þessir piltar eru bara
búnir. Skemmtið ykkur vel í Laug-
ardalnum á þriðjudaginn, góðir Ís-
lendingar, þetta var
ekki krónu virði.
Una Sighvats-
dóttir, fréttakona,
gladdist yfir nýjum
heyrnartólum sem
hún hafði keypt
sér og tísti: „Fjárfesti loksins í noise
cancelling heyrnartólum og er að
nota þau í fyrsta sinn núna, í bið eft-
ir seinkuðu flugi. Hvar hafa þau ver-
ið allt mitt líf! Enginn kliður á flug-
vellinum. Ég fyrirverð mig fyrir að
vera slík nánös að hafa dregið þessi
kaup í marga mán-
uði.“
Villi Goði, leið-
sögumaður, sagð-
ist á Facebook
vera búinn að
stofna hljómsveit.
„Ég var að stofna hljómsveitina
Girls and roses. Þá vantar bara flott
lógó og restin sér um sig.“
AF NETINU
Ármúli 7, Reykjavík | Sími 568 0708 | www.fako.is
Borð 136.900
TILBOÐ 82.140
Stóll 18.900
Spegill 38 cm
8.900
Spegill 32 cm
6.900
Stóll 29.900
30-50%afsláttur afvöldum
vörum