Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.07.2018, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.07.2018, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22.7. 2018 VETTVANGUR Allur heimurinn býður upp ánáttúrufegurð. Í mismiklummæli þó. Þannig hafa fá lönd eins fjölbreytilega náttúru og við get- um státað af í okkar landi. Og senni- lega eru náttúruperlur hvergi eins margar á litlu svæði og einmitt hér. Þetta gerir Ísland eftirsóknarvert og jafnframt viðkvæmt í heimi sem allur er á faraldsfæti eftir að flugvélar urðu að strætó í loftlínu og fargjöldin eftir því. En ef náttúruperlurnar eru Ís- lands, þá hef ég grun um að Evrópa eigi vinninginn þegar kemur að menningarminjum og fallegri manna- byggð. Auðvitað er um allan heiminn að finna fagrar bogir og bæi, stór- fenglegar minjar, eldri og yngri, og spennandi söguslóðir. En Evrópa hefur á síðari öldum verið rík, að hluta til á kostnað annarra heims- hluta. Ríkidæmi nýlendutímans er þannig meðal annars að finna í óend- anlegum herlegheitum, höllum, lysti- görðum og listaverkum. Svo eru það bæirnir með sínu hlý- lega viðmóti, slípaðir og fágaðir af þúsund ára sögu. Einn slíkur er Beaune í sunnanverðu Frakklandi. Þessi litli bær var nánast eins og paradís í augum ferðalangs frá Ís- landi. Þarna var hægt að komast í ná- lægð við mikla og merkilega sögu klausturmenningar, vínræktar og lækninga svo eitthvað sé nefnt. Þarna vilja því margir koma. Slíkir staðir, sem eru óteljandi í Evrópu, fögnuðu lengi vel heim- sóknum til sín. Og ferðamennskan er góð og æskileg. Aldrei þreytist ég á að klifa á því. En öllu má of- gera. Fréttir ber- ast nú af vaxandi andúð í garð ferðamanna á vinsælustu áning- arstöðum í Evrópu. Barcelona er þar ágætt dæmi því þar mun andúðin vera orðin sýnileg. Þetta er skilj- anlegt því ágangur ferðamanna er orðinn heimamönnum áþján. Og ekki er nóg með það. Ferðamannaiðnaður- inn er orðinn svo frekur að hann er á góðri leið með að umbylta mannlífinu heima fyrir. En þá gerist það líka að það sem þótti eftirsóknarvert, friðsældin og hógvær fegurðin með sinni hlýlegu áferð, sú sem ferðamaðurinn kom til að njóta, víkur fyrir allt öðrum og glamurkenndari heimi. Þetta hefur til dæmis gerst í fyrr- nefndri Beaune. Bærinn sem í endur- minningunni var – og er vissulega enn – svo fagur, er kominn með ill- kynja kýli. Þetta kýli getur að líta þegar keyrt er inn í bæinnn. Í útjaðr- inum – það er þó bót í máli – eru í einni stórri og stækkandi klessu hót- elkassar, greinilega byggðir með lág- markskostnaði til að skila hámarks- arði að hætti fjöldaframleiðslu. Þarna gisti ég. Einhvers staðar þurfum við að vera. Vandinn er hins vegar sá að ef grimm markaðssetning og gróða- hyggja ráða ferðinni í ferðamennsku er hætt við að kýli af þessu tagi verði fegurðinni yfirsterkari. Ef við sýnum ekki landinu nærgætni, þá munu töfrar þess hverfa. Þetta kemur allt upp í hugann þeg- ar fréttir berast af landakaupum er- lendra fjárfestingarfyrirtækja og auðkýfinga hér á landi. Markmið með kaupum þeirra virðast tvíþætt, ann- ars vegar að loka landinu í eigin þágu, eiga árnar út af fyrir sig, fegurðina og kyrrðina, eða á hinn bóginn að græða sem mest á þessari sömu fegurð. Hvorugt er eftirsóknarvert. Eignarhaldi á Norðausturlandinu er nú hratt verið að þjappa saman í hendur erlendra auðkýfinga, Fljótin eru einnig á svipaðri veg- ferð og víðar er sömu sögu að segja, án þess að gæslumenn ís- lenskrar náttúru reyni einu sinni að grennslast fyrir um áform þessara aðila, sem eru að hanna Ísland upp á nýtt. Hvað er til dæmis að gerast í nánd við Geysi í Haukadal og Biskupstungum? Spyr sá sem ekki veit. Hitt er víst að varla viljum við þar nokkuð í ætt við kýlið á Beaune-borg. Þegar Hallgrímskirkjan í Reykja- vík var í smíðum var umdeilt að reisa svo háreista byggingu á Skólavörðu- holtinu. Einn þeirra sem höfðu efa- semdir var Kjarval. Og einhverju sinni þegar á þetta var minnst við hann, að hann væri svo mikið á móti Hallgrímskirkju, þá sagði hann það vera af og frá. Hann hefði ekkert á móti þessari byggingu. En það væri Esjan, hún hefði sínar efasemdir. Nú kunna efasemdir Esjunnar að hafa verið óþarfar. Það breytir því ekki að þetta er það samhengi sem færa þarf umræðuna í, að meta stærð, hlutföll, samhengi; í stuttu máli, að sýna kurteisi gagnvart land- inu. Ella verður Ísland allt fyrr en varir að illkynja kýli á borð við neon- þyrpinguna í Beaune. Efasemdir Esjunnar ’Vandinn er hins vegarsá að ef grimm mark-aðssetning og gróða-hyggja ráða ferðinni í ferðamennsku er hætt við að kýli af þessu tagi verði fegurðinni yfirsterkari. Ef við sýnum ekki landinu nærgætni, þá munu töfrar þess hverfa. Úr ólíkum áttum Ögmundur Jónasson ogmundur@ogmundur.is Morgunblaðið/Ómar Unnsteinn Manúel, tónlistar- maður, las Vinstri grænum pistilinn á Facebook og sagði meðal ann- ars: „Eftir +-3 vik- ur eignast ég mitt fyrsta barn og fæ að heyra það í dag að þið séuð að fljúga verðandi mæðrum norður á land. Er ekki í lagi með ykkur? Ætlar þú Katrín Jakobsdóttir endanlega að rústa heilbrigðiskerfinu fyrir hönd Bjarna Ben?“ Atli Steinn Guðmundsson skellti sér á tónleika: „Þessir tón- leikar Guns’N Ro- ses voru líklega mesta tímasóun ævi minnar. Gafst upp og fór heim kl. 21. Lúdó og Stefán hefðu staðið sig betur. Fullkomin tímasóun radd- lauss fituhlunks sem heldur að árið sé enn 1988. Þessir piltar eru bara búnir. Skemmtið ykkur vel í Laug- ardalnum á þriðjudaginn, góðir Ís- lendingar, þetta var ekki krónu virði. Una Sighvats- dóttir, fréttakona, gladdist yfir nýjum heyrnartólum sem hún hafði keypt sér og tísti: „Fjárfesti loksins í noise cancelling heyrnartólum og er að nota þau í fyrsta sinn núna, í bið eft- ir seinkuðu flugi. Hvar hafa þau ver- ið allt mitt líf! Enginn kliður á flug- vellinum. Ég fyrirverð mig fyrir að vera slík nánös að hafa dregið þessi kaup í marga mán- uði.“ Villi Goði, leið- sögumaður, sagð- ist á Facebook vera búinn að stofna hljómsveit. „Ég var að stofna hljómsveitina Girls and roses. Þá vantar bara flott lógó og restin sér um sig.“ AF NETINU Ármúli 7, Reykjavík | Sími 568 0708 | www.fako.is Borð 136.900 TILBOÐ 82.140 Stóll 18.900 Spegill 38 cm 8.900 Spegill 32 cm 6.900 Stóll 29.900 30-50%afsláttur afvöldum vörum

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.