Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.07.2018, Síða 21

Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.07.2018, Síða 21
Ísey Gréta Þorgrímsdóttir, hótel- stjóri Reykjavík Konsúlat Hótel. Ímars var Reykjavík KonsúlatHótel opnað í Hafnarstræti 17-19, en í sama húsnæði var áður rekið Thomsens magasín allt frá árinu 1837. Hótelið dregur nafn sitt af hlutverki Ditlevs Thomsen, sem samhliða verslunarrekstri gegndi starfi konsúls fyrir Þýskaland í Reykjavík frá 1896 til 1915 og átti stóran þátt í að nútímavæða Reykja- vík. Ditlev Thomsen var mikill frum- kvöðull hér í bæ, sinnti bæði inn- flutningi á margvíslegum varningi og einnig útflutningi á íslenskum af- urðum. Einna þekktastur er hann fyrir innflutning á fyrsta bílnum til landsins, svokölluðum Thomsen-bíl, árið 1904. Andi frumkvöðlastarfsemi Thomsens endurspeglast í hönnun hótelsins, sem einkennist af fal- legum sögulegum myndum frá tíma Thomsen-feðga hér á landi, í bland við nýja og áður óþekkta erlenda hönnun. „Sem konsúll sinnti Thomsen hlutverki gestgjafa fyrir erlenda ferðamenn og gilti þá einu hvort þeir komu frá Þýskalandi eða annars staðar frá. Hann skipulagði dags- ferðir um borgina í Thomsen-bílnum og lengri ferðir á landsbyggðinni fyrir hópa. Við erum stolt af því að taka við gestgjafahlutverkinu af honum og ætlum okkur ekki minni hluti en hann í þeim efnum,“ segir Ísey Gréta Þorgrímsdóttir, hótel- stjóri á Reykjavík Konsúlat hótel- inu. Hótelið er hluti af ört vaxandi Cu- rio-keðju Hilton-hótelanna, en þar er hvert hótel einstakt og segir sögu. Í dag eru 52 hótel í keðjunni sem fer stækkandi í Evrópu. Í fótspor frumkvöðuls Á Reykjavík Konsúlat Hótel er lagt upp úr gestrisni og framandi hönnun, rétt eins og þýski konsúllinn Ditlev Thomsen gerði áður fyrr. Arnar Tómas Valgeirsson arnart@mbl.is Í notalegri setustofunni og hótelinu öllu mætast gamlir og nýir straumar. Málverk af Thomsen sjálfum, en her- bergi hótelsins eru prýdd myndum af honum ásamt fjölskyldu og vinum. Veitingastaðurinn Gott býður upp á hollan og gómsætan mat á viðráðanlegu verði. 22.7. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21 Ný kynslóð málningarefna SÍLOXAN Viltu betri endingu? u Almatta síloxan útimálningin hleypir rakanum út en ekki inn u Framleiðendur múrklæðninga ráðleggja eindregið síloxan u Fæst einnig teygjanleg á netsprungna fleti u Einstök ending á steyptum veggjum Opið: 8-18 virka daga 10-14 á laugardögum Síðumúla 22 | Sími 517 0404 | serefni.is Veldu betri málningu

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.