Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.07.2018, Side 35
22.7. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35
BÓKSALA 11.-17. JÚLÍ
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1 Sumar í litla bakaríinuJenny Colgan
2 Vegahandbókin 2018Ýmsir höfundar
3 UppgjörLee Child
4 Independent PeopleHalldór Laxness
5 OfurhetjuvíddinÆvar Þór Benediktsson
6 Sagas Of The Icelanders
7 Mínus átján gráðurStefan Ahnhem
8 Marrið í stiganumEva Björg Ægisdóttir
9 Leyndarmál systrannaDiane Chamberlain
10 NicelandKristján Ingi Einarsson
1 VetrarlandValdimar Tómasson
2 Ljóð muna röddSigurður Pálsson
3 HulduljósÞorvarður Hjálmarsson
4 JarðarberjatunglJúlía Margrét Einarsdóttir
5
Íslensk úrvalsljóð
Guðmundur Andri Thorsson
valdi
6
Ljóðaúrval – Jónas
Hallgrímsson
Jónas Hallgrímsson
7 Ég er fagnaðarsöngurÝmsir höfundar
8 Sjötta DavíðsbókDavíð Hjálmar Haraldsson
9
Íslenskar úrvalsstökur
Guðmundur Andri Thorsson
valdi
10 BónusljóðAndri Snær Magnason
Allar bækur
Ljóðabækur
Gylfi sonur minn hélt að mér
Kitchen Confidential eftir hann
Anthony Bourdain. Ég hef ekki
jafn mikinn áhuga á
heimi eldamennsku
og kokka og Gylfi,
en hann var búinn
að segja mér ævin-
týralegar sögur úr
bókinni og frá erf-
iðum örlögum Bo-
urdain. Þetta er skemmtilega
skrifuð og ævintýraleg sýn inn í
þennan New York-eldhúsheim og
veitir mér innsýn í eitthvað sem
ég hef alls ekkert vit á. Ofsalega
skemmtileg bók.
Á þessum árstíma er ég alltaf
að lesa glænýtt efni í vinnunni
þannig að til að hvíla mig finnst
mér þægilegt að
lesa eitthvað sem ég
þekki. Ég er meðal
annars með eld-
gamalt smásagna-
safn, Meinleg örlög:
sögur frá Austur-
löndum eftir Som-
erset Maugham,
sem Kristín Ólafsdóttir langamma
mín þýddi, sem ég les á þriggja til
fjögurra ára fresti. Þetta eru svo
fallegar, rólegar og hægar sögur,
gerast í allt öðrum heimi og gefa
góða mynd af Austurlöndum.
ÉG VAR AÐ LESA
Guðrún Vil-
mundardóttir
Guðrún Vilmundardóttir
er bókaútgefandi.
Sænski lögregluforinginn Fabian Risk tekur að
sér mál þar sem bíl er ekið á fleygiferð fram af
bryggjusporði á heitum sumardegi í Helsingja-
borg. Í bílnum finnst lík af ungum milljóna-
mæringi og fljótt á litið virtist mönnum sem
hann hafi fyrirfarið sér. Við krufningu kemur
aftur á móti í ljós að viðkomandi var látinn áður
en bíllinn fór í sjóinn og hafði verið látinn í tvo
mánuði, en líkið geymst í frysti á óþekktum
stað. Þetta er þriðja bókin í bókaröðinni um
Fabian Risk sem Ugla gefur út. Elín
Guðmundsdóttir þýddi.
Villinorn: Eldraun heitir fyrsta bókin í bóka-
flokki Lenu Kaaberbøl um Klöru og baráttu
hennar við ill öfl. Þegar Klara verður tólf ára
kemst hún smám saman að því að hún býr yfir
yfirnáttúrlegum krafti sem skapar henni mikla
hættu því ill vera vill ná tökum á henni. Klara
lærir að virkja kraftinn hjá Isu frænku sinni,
kemst að því að hún er villinorn og ekki líður á
löngu þar til hún verður að berjast fyrir lífi sínu í
viðureign við hina illu Kímeru. Villinornarbæk-
urnar hafa komið út á sautján tungumálum.
Angústúra gefur út, Jón St. Kristjánsson þýddi.
Norski rithöfundurinn, leikskáldið og
tónlistarmaðurinn Frode Sander Øien skrifar
reyfara undir listamannsnafninu Samuel Björk
og hefur náð góðum árangri á því sviði. Bæk-
urnar segja frá lögreglukonunni Mia Krüger og
lögregluforingjanum Holger Munch sem birtust
Íslendingum fyrst í bókinni Ég ferðast ein. Uglan
drepur bara á nóttunni segir frá því er unglings-
stúlka sem hefur strokið frá upptökuheimili
finnst látin úti í skógi og því líkast sem hún hafi
verið myrt í trúarlegri athöfn.
NÝJAR BÆKUR
Bandaríski mannfræðingurinn Margaret Mead(1901 – 1978) var brautryðjandi í rannsóknum ásamfélögum, í senn merkilegur vísindamaður og
fræðari og umdeild fyrir frjálslyndar skoðanir á sam-
skiptum kynjanna og eins fyrir einkalíf sitt sem þótti
skrautlegt, enda var hún þrígift og átti í ástarsambandi
við konu. Bækur hennar um rannsóknir á Suðurhafs-
eyjum á þriðja áratug síðustu aldar vöktu mikla athygli
fyrir lýsingar á kynhegðun og kynjahlutverkum sem
voru á skjön við það sem talið var rétt
og viðeigandi á Vesturlöndum og
höfðu áhrif á umræðu um réttindi
kvenna og frelsi í kynferðismálum.
Því ber nafn Margaret Mead á
góma að skáldsaga Lily King, sem
kom nýverið út á íslensku hjá Ang-
ústúru og heitir Sæluvíma, sækir inn-
blástur í fund Margaret Mead, Reo
Fortune og Gregory Bateson á Sepik-
fljóti í Nýju-Gíneu skömmu fyrir jólin
1933. Mead, sem heitir Nell Stone í
bókinni, var þá gift Fortune (Fen) og átti síðar eftir að
giftast Bankson (Bateson) en bókin snýst einmitt um
þann ástarþríhyrning.
Bateson, sem er sögumaður bókarinnar að stórum
hluta, er að farast úr einmanaleika eins og kemur sterk-
lega í ljós þegar hann hittir þau í samkvæmi í héraðs-
stjórastöðinni í Angoram: „Hjartað hamaðist í brjósti
mér og það eina sem komst að í huga mínum var hvernig
ég gæti haldið þeim, hvernig ég gæti haldið þeim hjá
mér.“ Honum finnst ekki mikið til Mead koma er hann
hittir þau hjónin, finnst hún fíngerð og veikluleg: „Andlit
hennar var smágert og stór augun reyklituð eins og litla
pokadýrið sem Kiona-börnin höfðu fyrir gæludýr“, en
hann hrífst af eldmóði hennar og fræðimannshuganum.
Lily King fer frjálslega með staðreyndir í bókinni,
enda er hún skáldsaga, en byggir á heimildum, bréfum
og bókum. Í viðtali við vefrit Northwestern-háskóla í
Chicago segist hún hafa hrifist af Mead þegar hún datt
niður á ævisögu hennar nánast fyrir tilviljun og hreifst
af konunni sem þar birtist, byltingarkonu og hugsuði
sem fannst sitthvað athugavert við samfélagið og það
hafi einmitt verið drifkraftur hennar, orðið til þess að
mannfræðirannsóknir hennar beindust að því að skoða
félagslegar breytingar.
Sæluvíma, sem heitir Euphoria á frummálinu, er
fjórða skáldsaga King, áður komu The Pleasing Hour
(2000), sem hlaut ýmis verðlaun og New York Times
taldi með bestu bókum ársins, The English Teacher kom
út 2005 og var einnig verðlaunuð og talin með bestu bóm-
um ársins af ýmsum vefmiðlum og bókmenntaritum.
Þriðja bók hennar, Father of the Rain, sem kom út 2010,
var meðal úrvalsbóka ársins hjá New York Times og
Publishers Weekly og hlaut fleiri verðlaun. Sæluvímu /
Euphoria var ekki síður tekið þegar hún kom út 2014,
hlaut ýmis verðlaun og New York Times og Time töldu
bókina með tíu bestu bókum ársins.
Af byltingarkonu
Í skáldsögunni Sæluvímu lýsir Lily King því þegar þrír mannfræðingar hitt-
ast á Sepik-fljóti í Nýju-Gíneu og úr verður eldfimur ástarþríhyrningur.
Árni Matthíasson arnim@mbl.is
Bandaríski rithöfundurinn Lily King fékk innblástur úr
ævisögu Margaret Mead nánast fyrir tilviljun.
Mannfræðingurinn
Margaret Mead.
Einfasa rafmótor 2800 W
Sjálfbrýnandi kurlaravals
Koma með safnkassa
Meðfærilegir og hljóðlátir
45 mm hámarks sverleiki stofna
Flottur í garðinn eða í sumarbústaðinn
Wolf Garten - Model SDL2800
Greinakurlarar
í garðinn eða sumarbústaðinn
Öflugur og afkastamikill
9 HP Honda bensínmótor
60 mm hámarks sverleiki stofna
Hámarks afköst 2.5 m3 / klst
Tilvalinn í sumarbústaðinn
Jo Beau - Model M200
ÞÓR FH
Akureyri:
Baldursnes 8
603 Akureyri
Sími 568-1555
Opnunartími:
Opið alla virka daga
Lokað um helgar
Reykjavík:
Krókháls 16
110 Reykjavík
Sími 568-1500
Vefsíða og
netverslun:
www.thor.is