Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.07.2018, Page 37

Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.07.2018, Page 37
Godzilla úr bandarísku myndinni frá 2014. Japanir kvörtuðu undan því hvað hann var feitur, en stærð og útlit konungsins tekur stanslausum breytingum. Godzilla: King of the Monsters er væntanleg á næsta ári, en hún verður framhald af endurgerðinni sem kom út 2014 og verður þriðja bandaríska myndin um þennan konung skrímslanna. Það er þó ekki nema brot af því sem heima- menn hafa framleitt, en upp- runalega myndaröðin frá Japan hefur verið samfleytt í gangi frá 1954 og er í dag skráð í heims- metabók Guinness sem lengsta samfellda kvikmyndasería heims með yfir þrjátíu myndir. Gojira, eins og hún nefnist á frummálinu, kom fyrst út í Japan árið 1954. Eðlan er táknmynd kjarnorkustríðs frá sjónarhorni Japan, en tröllvaxin stærð hennar er í myndunum afleiðing geisla- virkni frá kjarnorkuvopnapróf- unum. Síðan þá hafa yfir þrjátíu myndir verið framleiddar í Japan um eðluna sem þróaðist hægt og bítandi frá því að vera ógnvæn- legur skaðvaldur sem leggur borg- ir í rúst í að vera eins konar vernd- ari Japan gegn öðrum skrímslum. Þar má til dæmis nefna tröllmöl- inn Mothra og hinn þríhöfða King Ghidorah sem munu birtast í bandarísku myndinni sem kemur út á næsta ári. Myndin verður ein af tveimur sem áætlaðar eru, en árið 2020 munu Godzilla og King Kong kljást aftur á hvíta tjaldinu í fyrsta skipti í meira en hálfa öld. Japönsku myndirnar voru gefn- ar út í Bandaríkjunum í talsvert breyttri mynd. Þar var upp- runalega myndin talsett og öll pólitísk ádeila klippt út. Auk þess var bandarískri persónu bætt við til að höfða til þjóðarinnar. Þar lék Raymond Burr á móti tvíförum karakteranna úr upp- runalegu myndinni. Fyrsta Godzilla-myndin sem var að fullu framleidd í Bandaríkj- unum kom út árið 1998 þar sem Matthew Broderick fór með aðal- hlutverk samhliða eðlunni. Mynd- in var vinsæl en fékk slæma dóma frá gagnrýnendum. Mesta óánægj- an kom frá Japan þar sem starfslið Godzilla-seríunnar lastaði mynd- ina hástöfum. Óbeit þeirra á bandarísku útgáfunni var slík að eftir að þeir fengu réttindin að Godzilla úr bandarísku myndinni settu þeir hana í lítið hlutverk í myndinni Godzilla: Final Wars, þar sem upprunalega japanska eðlan kálaði þeirri bandarísku á innan við 10 sekúndum. Önnur endurgerð af Godzilla var gefin út árið 2014 og fékk betri dóma, þó að japönskum aðdáend- um hafi fundist eðlan of feit. TRÖLLVAXINN FERILL Konungur skrímslanna Godzilla á fullu við að leggja Tókýó í rúst í frumraun sinni frá 1954. Tröllmölurinn Mothra snýr vængjum þöndum aftur á næsta ári. 22.7. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37 KVIKMYNDIR Söngkonan Taylor Swift mun leika í væntanlegri kvikmyndaaðlögun að söng- leiknum Cats, en auk hennar hafa þau Jennifer Hudson, Ian McKellen og James Corden einnig verið ráðin. Myndin verður í leikstjórn Tom Hoo- per sem fékk Óskarsverðlaun sem besti leikstjóri fyrir The King’s Speech. Þetta verður í annað skipti sem söngleikurinn verður kvikmyndaður, en fyrri myndin sem fram- leidd var árið 1998 í umsjón höfundarins Andrew Lloyd Webber fór beint á myndbandaleigurnar. Í þetta skipti verður því vonandi hægt að sjá þenn- an vinsæla söngleik í kvikmyndahúsum í fyrsta sinn. Swift í kattarham Ekki er vitað hvaða kisu Swift mun leika.AFP TÓNLIST Oasis-bræðurnir Liam og Noel Gallagher hafa mögulega grafið stríðsöxina en Liam hefur opinberlega fyrirgefið Noel á Twitter. Fyrir skömmu síðan kallaði Liam eiginkonu Noels norn og sagði að hún væri ástæðan fyrir því að sveitin næði ekki aftur saman. Oasis hætti árið 2009 en fram að sveitar- slitunum var samstarf þeirra enginn dans á rósum þar sem þeir hafa löngum verið þekktir fyrir rifrildi sín á sviði. Noel hefur áður útskýrt að deilur bræðranna hafi byrj- að eftir að Noel meig fullur yfir splunkunýtt hljóðkerfi Liams. Vinir í raun Í hjarta bæjarins – Þú hýri Hafnar- fjörður er ný netþáttaröð á vegum Björgvins Franz Gíslasonar og Óla Björns Finnssonar. Í þættinum heimsækja þeir verslanir og menn- ingarstofnanir í Hafnarfirði og taka einnig viðtöl við þjóðþekkta Hafnfirðinga. „Kveikjan að þætt- inum var þegar ég var á gangi í Hafnarfirði á sólríkum degi og furðaði mig á því hvað það væru fá- ir á ferli á meðan það væri krökkt í Reykjavík.“ segir Björgvin. „Bær- inn hefur verið í rosa uppvexti og fólk hefur jafnvel kallað hann Nott- ing Hill Íslands. Þættirnir eru okk- ar leið til að búa til skemmtilegt efni og vekja athygli á því sem er að gerast í Hafnarfirði.“ Spurður um heiti þáttanna segir Björgvin að ástæða sé fyrir að það skiptist í tvennt. „Ef önnur bæjar- félög sýna áhuga erum við opnir fyrir því að heimsækja þau og erum á sama tíma komnir með skemmti- legt vörumerki,“ segir Björgvin. „Það er nóg að gerast í mörgum bæjarfélögum sem verða oft út und- an í umræðunni. Það er gaman að horfa á þætti eins og þá sem Steph- en Fry hefur verið að gera þar sem hann heimsækir og skoðar ólíkar hliðar Bandaríkjanna. Okkur lang- ar að fara í svipaða átt og taka fyrir þær gersemar sem ekki allir þekkja.“ Björgvin og Óli hafa áður unnið í sjónvarpi, en Björgvin var umsjón- armaður Stundarinnar okkar. „Mér þykir æðislegt að vinna í sjónvarpi og lærði fljótt hvað það væri öfl- ugur miðill. Netið hefur svo gert það enn auðveldara að ná til fólks, svo að það lá beint við að færa sig þangað. Við Óli höfum verið að búa til efni fyrir netið og stofnuðum því kvikmyndagerðina Efnisveitan til að halda utan um það. Okkur fannst óþarfi að finna flókið nafn og köll- uðum þetta frekar það sem það er,“ segir Björgvin og hlær. Þættirnir verða alls sex, en fyrsti þátturinn er þegar kominn í loftið og má nálgast þá á Facebook og á Youtube. Björgvin Franz heimsækir bernskuslóðir Svölu Björgvinsdóttur í fyrsta þætti. Í HJARTA BÆJARINS – ÞÚ HÝRI HAFNARFJÖRÐUR Gersemar sem ekki allir þekkja Gullfiskur Kæliþurrkaður harðfiskur semhámarkar ferskleika, gæði og endingu. Inniheldur 84%prótein. 84%prótein - 100% ánægja Framleiðandi: Tradex ehf, Eyrartröð 11, 220Hafnarfjörður, tradex@tradex.is Harðfiskur // Bitafiskur // Skífur Fullkominn ferðafélagi Liam Gallagher

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.