Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.07.2018, Blaðsíða 40
SUNNUDAGUR 22. JÚLÍ 2018
Listasumar hefur fyrir löngu fest sig í sessi sem vinsæl tveggja
mánaða hátíð á Akureyri. Ballið byrjar um Jónsmessu og lýkur
á afmæli bæjarins, Akureyrarvöku, í lok ágúst.
Eitt af mörgu eftirtektarverðu í ár er sýning á málverkum
Stefáns V. Jónssonar frá Möðrudal, sem notaði listamanns-
nafnið Stórval, en 110 ár eru frá fæðingu hans. Uppáhaldsmótív
Stórvals var Herðubreið, enda blasir hún við frá Möðrudal, og
er fjalladrottningin í mörgum útgáfum á veggjum menningar-
hússins Hofs, ásamt ýmsu öðru eftir listamanninn.
Í vikunni var sýnd heimildarmynd um Íslandsmeistaralið
Þórs/KA í fótbolta kvenna og mikla dramatík þegar til stóð að
slíta samstarfi félaganna og í dag, laugardag, er önnur íþrótta-
mynd á dagskrá. Eftir Akureyrarmót í frjálsíþróttum á Þórs-
velli, klukkan 16.30, verður í félagsheimilinu Hamri sýnd stutt-
myndin Stökktu – um afrekskonuna Hafdísi Sigurðardóttur.
Gestur í menningarhúsinu Hofi á Akureyri í gær virðir
fyrir sér tvær af mörgum Herðubreiðarmyndum Stórvals.
Morgunblaðið/Skapti
Stórval og listastökk
Hafdís Sigurðardóttir í langstökki á Sauðárkróki
um síðustu helgi þar sem hún varð Íslandsmeistari.
Ýmissa grasa kennir að vanda á fjölbreyttu Listasumri á Akureyri
„Ung stúlka, Jóhanna Sigurð-
ardóttir, sem afgreiðir í vöru-
bílastöðinni í Grindavík, fékk
óvenjulega gjöf í síðustu viku.“
Þannig hófst frétt í Morgun-
blaðinu 1. maí árið 1962.
Síðan segir: „Um margra ára
bil hefur það verið draumur
hennar og ósk að eignast sauma-
vél. Hafði hún árum saman spar-
að í því skyni að fá sér góða vél. Í
sl. viku var Jóhanna hér í bænum
og ætlaði nú að láta draum sinn
um saumavélina rætast. Hún
kom í Elna-vélaumboðið, skoð-
aði vélar af beztu og dýrustu
gerð gaumgæfilega og ákvað sig
svo: „Ég ætla að fá þessa vél.“
Og síðan byrjaði hún að telja
9.500.00 kr. fram á borðið. Hún
ætlaði ekki að nota sér afborg-
unarskilmála.
Þá birtist umboðsmaðurinn
Árni Jónsson stórkaupmaður og
tilkynnti ungfrúnni, að þessi vél
væri gjöf til hennar frá umboð-
inu hér. Þetta væri 1.000. vélin,
sem seld væri síðan innflutn-
ingur var gefinn frjáls 1960 og
Elna-vélaumboðið opnaði sölu-
búð. Áður höfðu selzt um 3.000
vélar. Umboðið vildi minnast
þess, og bað stúlkuna að þiggja
vélina að gjöf, þakkaði henni fyr-
ir að hafa valið Elna-vél, og
kvaðst fullviss um að vélin myndi
reynast henni vel í alla staði. „Ég
hef aldrei átt saumavél áður, en
lengi langað til að eignast vél,“
sagði Jóhanna. „Vinkona mín
hefur átt Elna-vél í nokkur ár. Sú
vél hefur reynzt svo vel, að ég
var ákveðin í að fá Elna-vél.“
Tekið er fram að vélin sé al-
gerlega sjálfvirk og vélarnar séu í
handhægum umbúðum. „Líkist
kassinn einna mest ferðaritvél-
arkassa.“
GAMLA FRÉTTIN
Taldi 9.500 kr. – en fékk vélina gefins
Myndin sem var með þessari
skemmtilegu frétt í Morgunblaðinu.
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
David Carradine
Hollywoodleikari
Ricardo Gareca
landsliðsþjálfari Perú
Samúel Gústafsson
prentsmiður og skíðakappi
Smáratorgi | Holtagörðum | Akureyri | Ísafirði
Sumarútsala
í fjórumbúðum
Afgreiðslutími Rvk
Mánudaga til föstudaga kl. 10–18
Laugardaga kl. 11–17
Sunnudaga kl. 13–17 (Smáratorgi)
www.dorma.is
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
Sumar
útsala
ALLTAÐ
60%
AFSLÁTTUR
www.dorma.is
VEFVERSLUN
ALLTAF
OPIN