Morgunblaðið - 17.08.2018, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 17.08.2018, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 2018 Skútuvogi 1c 104 Reykjavík Sími 550 8500 Fax 550 8510 www.vv.is Allir vilja koma að sumarbústaðnum sínum eins og þeir skildu við hann og tryggja öryggi sitt og sinna sem best. Öryggisbúnaður, eins og lásar, þjófavarnarkerfi, reykskynjarar og slökkvitæki, fæst í miklu úrvali í Vélum og verkfærum. Öryggi í sumarbústaðnum Blaupunkt SA2700 Þráðlaust þjófavarnarkerfi • Fullkominn GSM hringibúnaður • Hægt að stjórna með Connect2Home-appi • Boð send með sms eða tali • Viðbótarskynjarar og fjöldi aukahluta fáanlegir Verð: 39.990 kr. OLYMPIA 9030 Þráðlaust þjófavarnarkerfi • Mjög einfalt í uppsetningu/notkun • Fyrir farsímakort (GSM) • Hringir í allt að 10 símanúmer • Allt að 32 stk. skynjarar • 2 stk. hurða/gluggaskynjarar og fjarstýring fylgir • Fáanlegir aukahlutir: viðbótarfjarstýringar, glugga/hurðaskynjarar, svæðisskynjarar PIR, reyk- og vatnsskynjarar. Verð: 13.330 kr. LAUGAVEGI 24 - 101 REYKJAVÍK SÍMI: 552 0800 SKIPAGÖTU 7 - 600 AKUREYRI SÍMI: 462 4646 GENUINE SINCE 1937 SVIÐSLJÓS Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Skólataska, pennaveski, vetrarfatn- aður, skólaferðir, greiðsla fyrir íþrótta- og tómstundastarf. Að mörgu er að hyggja í byrjun skóla- árs, útgjöldin geta verið umtalsverð og stundum meiri en foreldrar grunnskólabarna ráða við. Hjálpar- starf kirkjunnar safnar nú fyrir verkefninu Ekkert barn útundan! en tilgangur þess er að aðstoða þá sem eiga erfitt með að ná endum saman við þessi útgjöld. Í fyrra fengu um 300 börn og ungmenni styrki úr verkefninu, sem nú fer af stað annað árið í röð, en að sögn Sæ- dísar Arnardóttur, félagsráðgjafa hjá hjálparstarfinu, hefur aðstoð sem þessi verið veitt þar í mörg ár þó að sérstök söfnun hafi ekki farið fram fyrr en á síðasta ári. Á síðasta starfsári fengu 53 börn og unglingar undir átján ára aldri styrk til íþróttaiðkunar, tónlistarnáms og tómstundastarfs og 50 ungmenni í framhaldsskólum fengu aðstoð við greiðslu á skólagjöldum og/eða við bókakaup. Þá fengu foreldrar 186 grunnskólabarna víðsvegar á land- inu aðstoð vegna kaupa á skóla- gögnum, en nú er minni þörf á því þar sem mörg sveitarfélög greiða nú námsgögn fyrir grunnskólabörn. „En það þýðir ekki að þörfin sé ekki lengur fyrir hendi, því það er svo margt annað en námsgögn sem þarf að huga að í skólabyrjun,“ segir Sædís. „Fatnaður, útiföt, skór, tóm- stundir og ýmis búnaður sem þeim fylgir, skólatöskur og margt annað. Svo er talsverð þörf fyrir aðstoð við foreldra framhaldsskólanemenda, sérstaklega þeirra sem eru að byrja í framhaldsskóla, því þau eiga engar bækur sem þau geta selt á skipti- bókamörkuðum.“ Að sögn Sædísar er talsvert um að haft sé samband við hjálpar- starfið mörgum vikum áður en skól- arnir byrja á haustin. „Fólk kvíðir Morgunblaðið/Hari Félagsráðgjafi Að sögn Sædísar Arnardóttur fengu á þriðja hundrað barna og ungmenna aðstoð frá hjálparstarfinu vegna skólabyrjunar í fyrra. Ekkert barn verði útundan vetrinum. Það kannski rétt nær endum saman og kvíðir öllum auka- útgjöldum og að geta hugsanlega ekki veitt börnunum sínum það sem þeim er nauðsynlegt,“ segir Sædís. Stefnan sett á sex milljónir Stundum hafa prestar milligöngu um aðstoðina, einkum fyrir fólk utan höfuðborgarsvæðisins, en þeir sem hafa tök á að sækja um hana sjálfir koma yfirleitt til viðtals hjá félags- ráðgjöfum hjálparstarfsins með gögn sem sýna fram á tekjur og í kjölfarið er farið yfir stöðuna og þörfin metin. Á mánudaginn á milli klukkan 13 og 15 verður þar opið hús en einnig er hægt að hafa sam- band og bóka viðtal. Sædís segir að ekki sé tiltekin há- marksupphæð aðstoðar, fjölskyldur séu misbarnmargar og aðstæður fólks afar mismunandi. Í söfnuninni í fyrra safnaðist sex og hálf milljón. „Það var hægt að gera heilmikið fyrir þá peninga,“ segir Sædís og segir að stefnan sé sett á a.m.k. sex milljónir í ár. „Að- stoð sem þessi skiptir þá sem þurfa hana öllu máli. Það er bara þannig. Það má ekkert barn verða út- undan.“  Kostnaður við skólabyrjun er þungur baggi á mörgum heimilum  Foreldrar kvíða því að geta ekki veitt börnum sínum það sem þau þurfa  Hjálparstarf kirkjunnar er með söfnun í annað sinn Héraðssaksóknari hefur ákært tvítugan mann fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás í Kjarnaskógi við Akureyri árið 2016. Maðurinn er sagður hafa stungið annan mann tvisvar með þeim afleiðingum að slagæð og bláæð í læri fórnarlambsins fóru í sundur. Maðurinn missti mikið blóð og var talinn í lífshættu en unnusta hans bjargaði honum með því að búa um sárið. Var hann síðan fluttur með sjúkrabíl á Fjórðungssjúkrahúsið. Saksóknari fer fram á að ákærði verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostn- aðar og brotaþoli krefst þess að ákærði greiði sér tæpar fjórar milljónir í skaða- og miskabætur. Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur áður ákært manninn fyrir brot á vopna- og fíkniefnalögum. Ákærður fyrir hættulega árás í Kjarnaskógi Hildur Oddsdóttir er í hópi þeirra sem hafa notið góðs af aðstoð Hjálparstarfs kirkjunnar í skóla- byrjun. „Ég leitaði fyrst til þeirra þegar strákurinn minn var í grunn- skóla og fékk þá aðstoð við bóka- kaup, að kaupa skólatösku og fatn- að og síðar við að borga æfinga- gjöldin hans í íþróttum,“ segir Hildur, sem er öryrki. Hún hefur ekki verið á vinnumarkaði um skeið og hefur þurft að nýta öll úr- ræði sem henni hafa boðist til að ná endum saman. Nú er sonur hennar kominn í framhaldsskóla, því fylgir tals- verður kostnaður sem Hildur hefur ekki tök á að mæta. „Ég reiknaði saman hvað bækurnar hans kosta og það er vel yfir 50.000 krónur,“ segir Hildur. Pilturinn æfir handbolta og að sögn Hildar dugar frístundakort borgarinnar eingöngu fyrir æfinga- gjöldum fyrir hluta ársins. „Hann er líka kominn í efri flokka og því fylgja æfingaferðir og ýmis annar kostnaður,“ segir Hildur. Hún segir að sú aðstoð sem hún hefur fengið frá Hjálparstarfi kirkj- unnar og öðrum hjálparsamtökum hafi skipt sköpum í lífi þeirra mæðginanna og varðandi velferð sonar hennar. „Ef þessi aðstoð væri ekki til staðar hefði strákur- inn minn ekki náð svona langt.“ Aðstoðin hefur skipt sköpum HILDUR HEFUR NOTIÐ HJÁLPARSTARFS KIRKJUNNAR Hildur Oddsdóttir „Ef þessi aðstoð væri ekki til staðar hefði strákurinn minn ekki náð svona langt,“ segir Hildur, sem hefur þurft á aðstoð Hjálparstarfs kirkjunnar að halda.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.