Morgunblaðið - 17.08.2018, Side 26

Morgunblaðið - 17.08.2018, Side 26
26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 2018 ✝ Svanur Braga-son fæddist 19. febrúar 1945 á Vopnafirði. Hann lést á krabbameins- lækningadeild Landspítalans 3. ágúst 2018. Foreldrar Svans voru Bragi Har- aldsson og Guð- björg Þorsteins- dóttir sem bæði eru látin. Systkini Svans voru Har- aldur, sem er látinn, og Unnur Sólrún, sem býr í Svíþjóð. Fjöl- skyldan flutti frá Vopnafirði til Eskifjarðar árið 1957. Svanur kvæntist Öldu Jóns- dóttur frá Skagaströnd árið 1968, en þau slitu samvistum ár- ið 1991. Lengst af sínum búskap bjuggu þau í Unufelli í Reykja- vík. Við skilnaðinn fluttist Svan- ur á Háaleitisbraut og síðustu æviárin bjó hann í Boðaþingi. keypti hann sér sína fyrstu harmónikku. Sextán ára fluttist Svanur til Reykjavíkur og hóf nám í tónlistarskóla borgarinn- ar sem stóð yfir í eitt ár. Þá hóf hann nám við Iðnskólann í Reykjavík og útskrifaðist sem húsasmiður. Námsárin sín bjó hann hjá frændfólki sínu. Svan- ur hóf störf með námi hjá Smíðastofu Halldórs Karlssonar og vann þar nær allan sinn starfsferil, eða þar til fyrirtækið hætti störfum. Síðustu starfs- árin áður en hann fór á eftirlaun vann hann hjá Húsvirki. Svanur fór að stunda hlaup um miðjan aldur. Hann hafði mest gaman af löngum hlaupum og keppti í mörgum þeirra yfir 30 ára tíma- bil. Hann er meðlimur í Heiðurs- klúbbi Reykjavíkurmaraþons með 28 hlaup; 18x heilt maraþon og 10x hálft maraþon. Tvisvar hljóp hann 100 km hlaup, eitt á Ítalíu (Del Passatore) árið 2004 og annað í Reykjavík 2008. Útförin fer fram í dag, 17. ágúst 2018, frá Fossvogskirkju klukkan 15. Dætur þeirra eru þrjár: 1) Guðbjörg Lilja, f. 1969. Eig- inmaður hennar er Jón Auðun Sigur- jónsson og börn þeirra eru: Helena Rut, Hilmar Örn og Hákon Freyr. 2) Karólína Valdís, f. 1971. Börn hennar eru: Alda Guðrún, Petra Sif, Svanur Davíð og Birgitta Sól. 3) Ingi- björg, f. 1975. Eiginmaður henn- ar er Kjartan Ingi Lorange og dætur þeirra eru Sunneva Líf og Sylvía. Þegar Svanur var ungur að árum fór hann í sveit á sumrin á Skorrastað á Norðfirði þar sem hann eignaðist nokkurs konar fósturfjölskyldu. Svanur var mikill tónlistarunnandi og spil- aði frá unga aldri í lúðrasveit Eskifjarðar. Tólf ára gamall Mikið er ég þakklát fyrir að hafa átt þig í lífi mínu í 49 ár elsku pabbi. Að sjálfsögðu hefði ég kosið að hafa þau miklu fleiri en því miður er komið að kveðju- stund. Yndislegar æskuminning- ar rifjast upp. Ég minnist ferða- lagana okkar til Eskifjarðar á hverju sumri. Ávallt var gist hjá ömmu og afa í Bleiksárhlíðinni þar sem amma dekraði við okk- ur. Við fórum í berjamó, fjall- göngur, fjöruferðir og svo að sjálfsögðu að veiða sem var þitt uppáhald. Svo voru ættingjar þínir og vinir heimsóttir. Þetta voru yndislegir dagar. Þú varst alltaf mjög vinnu- samur maður og vannst langan vinnudag. Þú varst snilldarsmið- ur, með eindæmum handlaginn, nákvæmur og vandvirkur. Þú vannst við að smíða innréttingar næstum allan þinn starfsferil. Þú smíðaðir í herbergi mitt fata- skáp, skrifborð og hillur þegar ég var barn. Á heimili mínu núna er kommóða eftir þig og glæsi- legar hillur úr gegnheilli eik sem mér þykir óendanlega vænt um. Þú varst einstaklega greiðvikinn og hjálpsamur, alltaf tilbúinn að koma og aðstoða við hvers kyns smíðavinnu á mínum heimilum og annarra. Á fimmtugsaldri fórstu að hlaupa þér til heilsubótar, fékkst mjög fljótlega hlaupabakteríuna. Þú æfðir gríðarlega mikið í nokk- uð mörg ár og kepptir í stórum og löngum hlaupum. Það var erfitt að vinna fullan vinnudag og komast yfir að hlaupa ákveðið marga kílómetra á viku. En þetta elskaðir þú og að geta verið úti í náttúrunni. Og aldrei var of slæmt veður til að fara út að hlaupa eða fá sér góð- an göngutúr. Þú fékkst hjarta- áfall fyrir nokkrum árum. Varst á leið til vinnu eldsnemma morg- uns frá Háaleitisbraut upp í Boðaþing á hjólinu þínu. Á miðri leið þurftirðu að stoppa því þú fékkst svo svakalega slæma verki, áttir erfitt með að komast á leiðarenda. Það hafðist þó og þú helltir upp á kaffi fyrir vinnu- félagana eins og þú gerðir alla aðra morgna. Fljótlega var þó hringt á sjúkrabíl og þú gekkst undir hjartaþræðingu skömmu síðar. Að sjálfsögðu jafnaðir þú þig á undraverðum hraða. Fyrir nokkrum árum fluttirðu í Boðaþing og ég sjálf hafði flutt í Kópavoginn nokkrum árum áð- ur. Nú var stutt á milli okkar og eftir að þú hættir að vinna urðu samverustundir okkar fleiri. Síð- ustu misserin skelltum við okkur stundum í góða göngu saman, þeirra stunda naut ég í botn. Við ræddum eitt og annað á leiðinni og átti ég nú oft fullt í fangi með að fylgja þér eftir, svo röskur varstu á göngunni. Við horfðum töluvert á íþróttir saman, fót- bolta og frjálsar og ýmislegt annað. Það er undarlegt til þess að hugsa að 23. júlí borðaðir þú smá lambalæri með okkur fjölskyld- unni. Daginn eftir fórum við saman upp á bráðamóttöku. Ætl- uðum að athuga hvort ekki væri hægt að gera eitthvað fyrir þig varðandi máttleysið og verkina í bakinu. Ekki datt okkur í hug að þú kæmist ekki aftur heim í litlu sætu íbúðina þína og færir frá okkur hinn 3. ágúst. Takk fyrir allt elsku pabbi, þú auðgaðir líf mitt og okkar allra. Þín er sárt saknað. Guðbjörg Lilja Svansdóttir. Elsku pabbi minn. Þegar þetta er skrifað er ég búin að kveðja þig en þó ekki, því ég hélt að þú yrðir óendanlega gamall. Það er svo margt sem mig langar að segja að það gæti fyllt heila bók frá mér til þín, elsku pabbi minn. Ég var glöð að hafa skrifað þér bréfið sem þú last stuttu áður en þú kvaddir mig en ég vona að þú getir lesið þetta líka. Fyrst langar mig að þakka fyrir það góða uppeldi sem þú gafst mér. Ég hefði aldrei orðið þessi sterka og sjálfstæða kona sem ég er í dag nema af því að þú varst mér alltaf svo góð fyrir- mynd í einu og öllu. Þú varst mér svo mikið meira en bara pabbi, þú varst líka vinur og það var mér svo dýrmætt. Alltaf veittir þú mér skilning og stuðning í gegnum árin, ef ég hef þurft á því að halda. Þú varst fordómalaus gagn- vart nánast öllu enda var þess vegna svo gott að tala við þig og vera í kringum þig. Aldrei hefur þú brugðist trausti mínu, elsku pabbi minn, þú varst bara svo einstakur mað- ur, tókst öllu með æðruleysi og ró og það gera nú ekki allir. Aldrei hefur þú tekið þátt í þessu lífsgæðakapphlaupi heldur bara hlaupið þér til ánægju og yndisauka. Ég vildi óska þess að ég hefði fengið að verða gömul og grá með þér en það er víst ekki í boði. Lífið er ekki alltaf sann- gjarnt. Guð hvað ég á eftir að sakna þín, pabbi minn, en ég er rík af góðum og skemmtilegum minningum um þig og öllu sem þú gerðir með mér þegar ég var að alast upp. Það átti sko enginn svona pabba sem gerði með okk- ur ekta eskimóasnjóhús þar sem þú bjóst til hillur og allt inn í það. Svo vorum við með kerti í því og ég man að ég hugsaði að mig langaði að sofa í því. Alltaf fórstu hringinn með okkur á nýbónuðum bílnum, því enginn hugsaði eins vel um bíl- ana sína eins og þú. Nú brosi ég, því þú varst alltaf að þrífa þá og bóna. Ég tók þig til fyrirmyndar varðandi þetta framan af en er búin að gefast upp á því. Mér er alltaf sérstaklega minnisstætt þegar það var ófært og þú skelltir þér á gönguskíðum í vinnuna og þegar þú varst ökklabrotinn eftir skautaferðina okkar á Rauðavatni og varst á hækjunum að brjóta klakann á stéttinni í raðhúsalengjunni okk- ar. Alltaf sami dugnaðurinn í þér, elsku pabbi. Vonandi ertu búinn að hitta þitt fólk þarna uppi og hefur það gott. Hvíldu í friði, elsku pabbi minn. Þín dóttir, Karólína Valdís Svansdóttir. Elsku pabbi. Mikið ofboðslega er sárt að kveðja þig. Pabbi minn, þú kenndir mér svo margt. Ég man þegar ég fór með þér út í Júmbó sjoppu til að kaupa hraun og malt með laug- ardagsmyndinni. Alltaf hleyptir þú öðrum fram fyrir í röðina af því að þú varst aldrei að flýta þér. Það sem ég gat látið þetta fara í taugarnar á mér. En þegar ég stend í röðinni í Bónus og hleypi öllum fram fyrir mig sem eru með lítið í körfunni verður mér hugsað til þín. Þú kenndir mér að vera góð við náungann og þar varst þú besta fyrirmyndin. Alltaf varstu tilbúinn að hjálpa öðrum og fordómalausari maður en þú er vandfundinn, góð- mennska þín var með eindæmum og þú talaðir aldrei illa um aðra. Þú vannst mikið en samt gafstu þér alltaf tíma til að sinna stelpunum þínum. Við fórum í veiðiferðir, útilegur, á skíði, á skauta og útbjuggum snjóhús og snjókarla úti í garði. Mér er sér- staklega minnisstæð snjókonan sem þú gerðir fyrir framan lengjuna okkar í Unufellinu. Hún var stórkostleg og vakti mikla kátínu meðal grannanna. Elsku pabbi, ég hélt að þú yrðir 100 ára, hlaupandi úti um allan bæ og spilandi á harmóník- una þína fyrir fjölskyldu og vini. En lífið er hverfult og enginn veit sína ævina fyrr en öll er. Takk pabbi fyrir: ástina sem þú veittir mér, öll eggjabrauðin með kavíar, veiði- túrana, hlaupatúrana, öll fallegu húsgögnin sem þú smíðaðir inn í herbergið mitt, alla hjálpina í gegnum árin. Takk pabbi fyrir að vera þú, það var gott að vera stelpan þín. Ég elska þig, pabbi minn. Þín dóttir, Ingibjörg Svansdóttir. Elsku besti afi minn, fyrir- mynd í lífi og starfi. Ég trúi ekki að þú hafir kvatt okkur. Þú tókst við þessu verkefni í byrjun árs og núna er það búið. Ég vil trúa því að þú sért búinn að heilsa upp á bróður þinn þarna uppi og jafnvel hlaupa nokkra kílómetra, vonandi er til harmóníka og góð- ur matur! Ég ylja mér við allar minning- arnar sem við eigum saman. Sú sem stendur upp úr tengist að sjálfsögðu hlaupabakteríunni. Þegar við Lea ákváðum að láta reyna á hálft maraþon og þú ákvaðst að láta það duga. Við hittumst við rásmarkið og hit- uðum upp saman. Þegar hlaup- inu var startað varstu svo ein- lægur og sagðir við okkur að vera ekkert að hugsa um þig eða bíða eftir þér, þú ætlaðir að fara hægt. Þú komst í mark hálftíma á undan okkur að mig minnir. Já, ég hef svo sannarlega oft montað mig af þér við hvern þann sem vill heyra. Afi, ég ætla að telja upp nokk- ur orð sem mér finnst lýsa þér vel: bækur, maraþon, harmón- íka, grettur, lambalæri, skítugur kisubolli, fordómaleysi, götótt lopapeysa, bíladella, stór jakka- föt, vinur. Það verður skrítið að hitta þig ekki stundum í mat hjá mömmu, sjá þig ekki á hlaupum í dalnum, heyra ekki að það sé enn betra að keyra þennan nýja bíl, fá ekki bók frá þér á jólunum eða að skála ekki við þig á áramótunum. Sárast finnst mér að litli bum- bubúinn okkar Leu fái ekki að hitta þig og kynnast þér, en hann mun sko sannarlega fá að heyra um langafa sinn. Ég sendi knús og koss á kinn til þín elsku yndislegi afi, sakna þín. Helena Rut Jónsdóttir. Kæri Svanur afi, ég vil að þú vitir að mér þykir ótrúlega vænt um þig, þú átt og munt alltaf eiga sérstakan stað í hjarta mér. Ég vil að þú vitir að ég er stoltur af því að vera barnabarn þitt, og að ég dáist að þrjósku þinni og þreki. Þú ert fyrirmynd mín í svo mörgu og ég vil að þú vitir að ég mun alltaf hugsa til þín með að- dáun. Ég vil að þú vitir að mér þótti alltaf vænt um að þú gæfir þér tíma til að koma í heimsókn til okkar. Ég vil líka að þú vitir að ég á, í hjarta mér, minningar um þig sem að munu alla tíð gleðja mig. Ég man þegar við hlupum saman fimm kílómetra af þinni hundrað kílómetra leið, og ég vil að þú vitir að þó að í þínu lífshlaupi höfum við aðeins ferðast saman stuttan spöl er það sá spölur sem mér mun þykja hvað vænst um. Takk afi, fyrir að gefa mér svo margt, og takk afi fyrir að gefa okkur öllum tækifæri á að hlaupa með þér stuttan spöl af þínu lengsta hlaupi. Hilmar Örn Jónsson. Svanurinn hnarreistur breiðir út vængi og hverfur í eilífð tímans Minn besti vinur og bróðir nú ber þig á óþekktar slóðir, hjá mér eru minningasjóðir um magnaðar kærleiksglóðir, um andardrátt eilífðarinnar um áhrif lífsspeki þinnar, um dugnað og þrautseigju þína það er ljós sem ávallt mun skína. Þó horfinn sértu að sinni mér sjónum, úr lífssögu minni, ég á þig í mér og mig í þér þar og hér, hvar sem er. Alltaf. Unnur Sólrún Bragadóttir. Við fráfall Svans Bragasonar koma minningarnar fram hver af annarri. Mínar fyrstu kynni af frænda eru frá því um sumarið 1965. Þá heimsóttum við faðir minn Svan á Eskifjörð. Það var svo gaman að horfa á þennan unga glæsilega mann kasta spjótinu. Einnig æfði Svanur frjálsar íþróttir. Svo spilaði hann líka á hljóðfæri; fyrst á trompet og svo harmóníku. Það vakti jafnan mikla lukku ef Svanur tók með sér nikkuna í afmæli eða jólaboð. Ég er þess fullviss að það heilbrigða líferni sem hann tamdi sér á sínum yngri árum hafi hjálpað honum alla hans ævi. Vissulega fylgdu íþróttirnar hon- um alltaf, en Svanur vann mörg afrek á hlaupabrautinni. Mara- þonhlaup voru áhugamál hans í mörg ár. Hjá honum var það svo sannarlega heilbrigð sál í hraust- um líkama. Reglusamur var hann líka alltaf. Kynni okkar Svans urðu svo enn nánari eftir að við urðum vinnufélagar í fyrirtæki föður míns, Smíðastofu Halldórs Karlssonar. Þá kynnt- ist ég því hve góður fagmaður Svanur var við smíðarnar. Vand- virkni og nákvæmni við alla gripi sem hann sendi frá sér. Verkin hans lofa svo sannarlega meist- arann. Traustari og heiðarlegri mann var erfitt að finna. Svo fannst mér spakmæli Kennedys Bandaríkjaforseta lýsa Svani vel: Spurðu ekki hvað land þitt getur gert fyrir þig, heldur hvað þú getur gert fyrir land þitt. Hann setti samfélagslegar skyldur sín- ar ávallt í fyrsta sæti. Hann sýndi öðrum með þessu, gott for- dæmi. Gott var líka að ræða við hann um samfélagsmál, hann kom manni fljótt niður á jörðina. Ég kalla það gæfu mína að hafa verið vinnufélagi hans og vinur í um það bil fjóra áratugi. Gaman var að fara í stangveiði með Svani, en hann var með afbrigð- um fiskinn. Hann naut svo sann- arlega allrar útiveru. Einnig var mjög gaman að hitta Svan í matarboði eða yfir kaffibolla, frá honum fór maður svo sannarlega betri maður. Okkur sem unnum Svani var það svo sannarlega áfall í byrjun árs er hann greind- ist með illvígan sjúkdóm, sem hann varð síðan að lúta í lægra haldi fyrir. En það breytir því ekki að maður vill með þessum línum sýna þakklæti og auðmýkt fyrir þann tíma sem við gengum saman hér á móður jörð. Guð blessi minningu Svans Braga- sonar. Sveinn Halldórsson. Árið var 2003. Ég hafði árin á undan fengið örlitla innsýn í áhugamál sem mörgum þótti sér- kennilegt. Það var að hlaupa og helst langt. Nú átti að stíga eitt skref áfram á þróunarbrautinni. Laugavegurinn skyldi það vera. Ég vissi það eitt að hlaupið var álitið mikil þrekraun. Að hlaupa 55 km frá Landmannalaugum niður í Þórsmörk í einum áfanga. Það var alvöru manndómsvígsla. Ég lagði af stað fullur bjartsýni. Þegar komið var nálægt Stóra Hver þá dró mig uppi hlaupari sem ég þekkti fyrst og fremst af afspurn en vissi að var enginn meðalmaður á hlaupasviðinu. Ól- seigur maraþonhlaupari sem hafði marga fjöruna sopið í þeim efnum. Þarna var kominn Svan- ur Bragason. Hann var einnig að leggja út í óvissuna með sínu fyrsta Laugavegshlaupi. Við tók- um tal saman og það æxlaðist svo að við urðum samferða það sem eftir var. Það gekk á ýmsu það sem eftir lifði hlaups, brekk- urnar voru langar, sandarnir þungir, fæturnir þreyttust, orku- tankurinn tæmdist og gómurinn varð þurr sem þerripappír. Þeg- ar sem þyngst var fyrir fæti hvatti ég Svan til að halda sína leið og láta mig um að þumlung- ast áfram á eigin forsendum. Það var ekki við það komandi af hans hálfu. Áfram héldum við og síð- asti hluti hlaupsins var mikil upplifun. Þá fór allt að ganga betur. Við lukum hlaupinu hönd í hönd í markinu í Þórsmörk upp- hafnir af tilfinningunni yfir að hafa sigrast á margháttuðum erfiðleikum og ekki síst sigrað sjálfa okkur. Við Svanur tengd- ust ákveðnum böndum í þessu hlaupi sem aldrei rofnuðu upp frá því. Veturinn eftir bárust af því fréttir að Svanur og tveir fé- lagar hans stefndu á 100 km hlaup á Ítalíu. Það fór ekki hjá því að kraftur þeirra og ákveðni við æfingar kveikti bæði áhuga og forvitni. Að lokum var loka- prófið þreytt, 70 km hlaup í kringum Þingvallavatn. Þegar það tókst vel og var vandræða- laust þá fór kjarkurinn að vaxa. Svanur og Pétur félagi hans luku svo hinu mikla Del Passatore hlaupi á Ítalíu um vorið með miklum sóma og voru 3. og 4. Ís- lendinga til að ljúka 100 km hlaupi. Um haustið lagði Svanur einn upp frá Þingvallakirkju og hljóp Þingstaðahlaupið að al- þingishúsinu í Reykjavík. Við nokkrir félagar hans fylgdum honum seinni hluta leiðarinnar. Að hlaupinu afloknu var farið í heita pottinn í Vesturbæjarlaug- inni. Í pottinum var félag 100 km. hlaupara á Íslandi formlega stofnað. Inntökuskilyrðið er ekki flókið eða að hafa lokið í einum áfanga hlaupi, sem er a.m.k. 100 km langt. Meðlimir í þessu merka félagi eru nú orðnir hátt í 80 talsins. Svanur lauk svo öðru 100 km hlaupi nokkrum árum síðar, þá kominn á sjötugsaldur. Þessi saga er rifjuð upp hér því nú hefur Svanur komið í mark í sínu lífshlaupi. Hann var einn af þeim frumherjum sem af mikilli elju og áhuga ruddu brautina fyrir sístækkandi hóp Íslendinga sem stunda ofurhlaup sér til ánægju og lífsfyllingar. Slík hlaup njóta æ meiri áhuga og at- hygli í samfélaginu. Svanur var góður félagi sem er minnst af hlýju. Hann var mikill íþrótta- maður sem hafði virðingu allra sem hann þekktu á þeim vett- vangi. Sú tilviljum sem leiddi okkur saman í Laugavegshlaup- inu árið 2003 hafði meiri áhrif en ég gat látið mig dreyma um í stemmingu dagsins. Þar kvikn- aði neisti sem breytti lífi und- irritaðs varanlega. Ég votta fjölskyldu Svans svo og félögum hans í hlauparasam- félaginu samúð við fráfall hans. Gunnlaugur A. Júlíusson. Svanur Bragason Allar minningar á einum stað MINNINGAR er fallega innbundin bók sem hefur að geyma æviágrip og allar minningargreinar sem birst hafa um viðkomandi í Morgunblaðinu eða á mbl.is. Bókina má panta á forsíðu mbl.is eða á slóðinni mbl.is/minningar. Hægt er að kaupa minningabækur með greinum sem birst hafa frá árinu 2000 til dagsins í dag.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.