Morgunblaðið - 17.08.2018, Side 37

Morgunblaðið - 17.08.2018, Side 37
DÆGRADVÖL 37 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 2018 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú hefur þörf fyrir að bæta þig og reyna að ná betri árangri. Með það á hreinu ættu allir framtíðarvegir að vera þér færir. 20. apríl - 20. maí  Naut Það ætti að verða mikið peningaflæði hjá þér næsta mánuðinn. Ef þér finnst þú alltaf á sviðinu, breyttu þá atriðinu þínu af og til. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Ef þú gengur of hart fram kann svo að fara að þú lendir í aðstöðu sem get- ur reynst þér ofviða. Athugaðu hvað þú getur gert þér til góða án mikilla fjárútláta. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þér finnst erfitt að skipta tímanum á milli heimilis og vinnu en þarft engu að kvíða, hlutirnir reddast alltaf. Þú tekur púlsinn á skemmtanalífinu. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Hæfileiki þinn til að höfða til annarra er mikill í dag. Einhver vinur þarf spark í rassinn, taktu það að þér að veita það spark. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Láttu ekki tilfinningaflækjur annarra setja þig út af laginu. Gefa sér tíma til íhugunar og notaðu tómstundirnar á upp- byggilegan máta. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú átt sérlega auðvelt með öll sam- skipti og munt því hugsanlega stofna til nýrrar vináttu á þessum tíma í lífi þínu. Þú freistar hamingjunnar í útlöndum. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þér er óhætt að leyfa tilfinn- ingum að flæða og tjá allt það sem býr í hjartanu. Vertu hress og kát/ur og talaðu út um hlutina. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú ert að velta fyrir þér fram- tíðinni og þarft ekki að örvænta þótt lausn- in liggi ekki í augum uppi. Leggðu þitt af mörkum til að gera náttúruna hreinni. 22. des. - 19. janúar Steingeit Vinnan göfgar manninn en það er fleira sem gefur lífinu gildi. Leitaðu leiða til að prófa þig áfram. Það er allt í lagi að kaupa sér frið af og til. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú munt hljóta viðurkenningu fyrir framlag þitt og það mun koma þér á óvart hversu vel þér verður tekið. Lífið krefst þess að þú gerir þitt besta, en ekki eitthvað ómögulegt. 19. feb. - 20. mars Fiskar Það er allt í lagi að baða sig í vel- gengninni en gleymdu því ekki að þú varst ekki ein/n að verki. Fólk breytist og þú líka. Fyrir helgi skrifaði Ármann Þor-grímsson í Leirinn „breytir víst litlu hver stjórnar“: Birtu er að bregða hér, bráðum fer að hausta og snjóa. Sé það gerast senn hjá mér, sama hver mun bátnum róa. Fía á Sandi víkkaði sjónarsviðið: Býsn hvað þokan er blá og brimið er hvítt við ósinn fjöllin himnesk og há og hressileg úti ljósin. Rauð er á enginu rósin. Ólafur Stefánsson gat ekki setið á sér: Furðulegt og fráleitt grín, að Fía yrki stöku, og bjóði hvorki bjór eða vín, bitafisk né köku. Fía tók áskoruninni: Sumarblíðan einstök er engan hrjáir bölið. Komin eru krækiber í krækiberjaölið. Ólafur svaraði að bragði: Meðan nyrðra í nægta vin, næst úr berjum „tár“, þá syðra er það gúrku-gin, sem gerjar best í ár. Bjarni Karlsson yrkir á Boðnar- miði: Orku þjóð úr elfum fær, árnar temur, beislar flauminn. Okkur víst þó væri nær að virkja ferðamannastrauminn. Hallmundur Guðmundsson er með skemmtilegt „orðagrín“: Hástöfum hrópaði Eiður hræddur og andskoti reiður: „Hell, fokking fokk“ er féll ’ann við skokk, og uppskar á fæturna fleiður. Bjarni Gunnlaugur Bjarnason kvað: Ellin mörgum stirð og stíf og stöðugt minna gagn þeim í ef svo byðist annað líf eflaust myndu hafna því. Sigvaldi Skagfirðingur orti: Oft ég hlæ að orðum Steins er þó ljótur siður; en varla fæðist annar eins axarskapta smiður. Jón S. Bergmann bregst ekki: Oft við skál ég fer á fold furðu hála rinda, þegar sál og syndugt hold saman bálið kynda. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Berjaöl fyrir norðan og gúrkugin syðra Í klípu „ÉG HUGSA Í SÍFELLU UM MAT.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „HEFURÐU SÉÐ NÝJUSTU RAFMAGNSÚTGÁFUNA?“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... framtíð mín með þér ELÍN… HÉR ER MYND AF MÉR TIL AÐ GEYMA NÆRRI HJARTA ÞÍNU EF HÚN VÆRI STÆRRI VÆRI HÚN NÆRRI HJARTA ALLRA EN DÁSAM LEG TILHUGSUN! HELGA, ÉG GET EKKI SOFIÐ! ERTU TIL Í AÐ KLÓRA MÉR Á BAKINU FIRST ÞÚ ERT VAKANDI? VIRKAR ALLTAF! Sturla Böðvarsson, fyrrverandiforseti Alþingis og ráðherra, skrifaði athyglisverða grein hér í Morgunblaðið sl. þriðjudag, undir fyrirsögninni „Óviðeigandi fram- kvæmd í höfuðborginni okkar“. Vík- verji er sammála Sturlu og tekur undir hvert orð hans. Meðal þess sem Sturla gagnrýndi í grein sinni var að „forljótur grjóthnullungur“ sem Spánverjinn Santiago Sierra gaf Reykjavíkurborg árið 2012 þeg- ar Jón Gnarr var borgarstjóri væri settur framan við Alþingishúsið, sem væri vanvirðing við Alþingi. x x x Allir þeir sem þekkja Sturlu Böðv-arsson, vita að hann var og er stakt prúðmenni, yfirvegaður, ró- semdarinnar maður, sem ávallt kemur fram af hógværð og kurteisi. Því er deginum ljósara að fyrrver- andi forseta Alþingis er ekki bara nóg boðið, honum er ofboðið, eins og lýsir sér vel í þessari tilvitnun í grein hans: „Til þess að kóróna virðingar- leysið og skemmdarverkin í mið- borginni stendur þar enn forljótur grjóthnullungur sem var velt inn á svæðið í kjölfar óeirða. Grjótið er staðsett framan við Alþingishúsið á stéttinni milli styttunnar af Jóni Sig- urðssyni og styttunnar af Ingibjörgu H. Bjarnason sem var fyrsta konan sem kjörin var til setu á Alþingi og er sérstaklega minnst með glæsi- legri styttu við inngang Alþingis- hússins. Allt bendir til þess að steinninn hafi verið settur þarna af borgarstjórn höfuðborgarinnar til háðungar Alþingi Íslendinga.“ x x x Víkverji hallast að því að fyrrver-andi forseti Alþingis hafi hitt naglann á höfuðið og leggur til að forljóti grjóthnullungurinn verði fjarlægður hið fyrsta, eða eins og Sturla orðar það: „Ég skora á borg- arstjóra höfuðborgar okkar Íslend- inga að stöðva skemmdarverkin við Kirkjustræti og láta fjarlægja „svörtu keiluna“ og koma henni fyrir á viðeigandi stað. Stjórnendur höfuðborgarinnar geta ekki komið fram með þeim hætti sem gert er með fullkomnu virðingarleysi við þjóðþingið og umhverfi þess í miðju borgarinnar.“ vikverji@mbl.is Víkverji Ákalla mig á degi neyðarinnar og ég mun frelsa þig og þú skalt vegsama mig (Sálmarnir 50.15) HEILSUNUDDPOTTAR FRÁ SUNDANCE SPAS Gæði, þjónusta, ábyrgð - það er Tengi Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050 www.tengi.is • tengi@tengi.is Opið virka daga frá kl. 8-18 og laugardaga kl. 10-15 HEILSUNUDDPOTTAR OG HREINSIEFNI FYRIR HEITA POTTA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.