Morgunblaðið - 17.08.2018, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 17.08.2018, Blaðsíða 35
kvæmdastjóri fyrirtækisins 2005- 2010 Valdís stofnaði fjárfestinga- fyrirtækið Þórsgarð árið 2009 ásamt öðrum og var framkvæmdastjóri þess til 2014: „Markmið félagsins var að finna fasteignatækifæri á markaði. Þórsgarður fjárfesti m.a. í Kirkju- hvoli, Kirkjutorgi 4 og Kaaber- húsinu.“ Valdís varð meðeigandi og stjórn- arformaður Blámar 2015 en hefur verið framkvæmdastjóri fyrirtæk- isins frá 2017: „Hjá Blámar eru spennandi tímar fram undan: Við er- um að markaðssetja íslenskan fisk inn á neytendamarkað í Asíu, erum nú þegar komin inn í verslunarkeðjur í Hong Kong, Kína og Singapúr, auk þess sem við seljum til Danmerkur og Bandaríkjanna. Við erum einnig að kynna nýjung sem felst í rekjanleika fisksins með því að skanna kóða á pakkningunum. Það eru forréttindi að hafa gaman af starfi sínu og fá tækifæri til þess að kynnast menningu, svona gjörólíkri okkar samfélagi.“ Valdís æfði fótbolta og handbolta með KR fram á fullorðinsár og lék með unglingalandsliðum í báðum greinum. Hún hefur hlaupið mikið, m.a. maraþon í Reykjavík. „Ég ferðast mikið, held mikið upp á franska menningu og nú er Asía að banka á dyrnar. Ég hef verið að kynn- ast heillandi menningu Asíuþjóða sl. tvö ár, vegna starfa minna.“ Fjölskylda Maki Valdísar er Hanna Magnús- dóttir, f. á Egilsstöðum 1.3. 1973, starfsmaður VITA Sport. Foreldrar hennar eru Magnús Ingólfsson, f. 24.9. 1940, fv. endurskoðandi, og Helga María Aðalsteinsdóttir, f. 24.5. 1942, fv. starfsmaður Landsbankans, búsett á Egilsstöðum. Stjúpdóttir Valdísar er Þórdís Lind, f. 12.3. 2000, nemi í Kvennaskól- anum í Reykjavík. Synir Valdísar eru Mikael Búi, f. 14.2. 2013; Elí, f. 5.8. 2015, og Hugi, f. 5.8. 2015. Systir Valdísar er Dóra, f. 9.5. 1974, tölvunarfræðingur, gæðastjóri hjá Netcompany, búsett í Danmörku, og hálfsystur samfeðra Rut, f. 19.8. 1964, félagsliði á Selfossi, og Bergþóra, f. 27.10. 1965, félagsliði í Reykjavík. Foreldrar Valdísar eru Eva Gests- dóttir, f. 1.12. 1942, fv. starfsmaður Icelandair, og Fjölnir Björnsson, f. 26.12. 1940, fv. stýrimaður og fv. starfsmaður 66°norður, búsett í Reykjavík. Svavar Pálsson forstjóri Sementsverksmiðjunnar Jörundur Pálsson arkitekt og myndlistarmaður Bríet Héðinsdóttir leikkona í Rvík Steinunn Þorsteinsdóttir leikkona Guðrún Pálsdóttir húsfreyja í Rvík Hreinn Pálsson söngvari og forstj. BP aldvin Baldvinsson járnsmiður í RvíkBBaldvin Baldvinsson landsliðsm. í knattspyrnu og þekktur KR-ingur igríður Björnsdóttir húsfr. í Rvík SMatthías Oddgeirsson sjávarútvegsfr. Í Grindavík Bjarni Pálsson vélstj. og framkvstj. á Sauðárkróki Jónas Bjarnason efnaverfræðingur Gunnar Pálsson skrifstofustj. hjá Fiskimálasjóði Gunnar Snorri Gunnarsson sendiherra Eva Pálsdóttir húsfr. á AkureyriHaraldur Kröyer sendiherra Úr frændgarði Valdísar Fjölnisdóttur Valdís Fjölnisdóttir Valdís R. Jónsdóttir húsfreyja í Krossi, Akraneshr. Baldvin J. Sigurðsson Bergþóra Baldvinsdóttir húsfreyja í Rvík Björn G. Sigurbjörnsson vélstj. frá Siglufirði Fjölnir Björnsson stýrim. og starfsmaður 66° Norður í Rvík Friðrikka Magnea Símonardóttir húsfreyja í Langhúsum Sigurbjörn Jósefsson b. í Langhúsum í Fljótum SvanhildurJörundardóttir húsfreyja í Hrísey, dóttir Hákarla-Jörundar í Hrísey Páll Bergsson kaupm. og útgerðarm. í Hrísey Gestur Pálsson leikari og lögfr. í Rvík Dóra Þórarinsdóttir húsfreyja í Rvík Sigríður Snæbjarnardóttir húsfr. í Rvík Jón G. Björnsson deildarstj. hjá SÍS, framkvstj. í New York, Reykjavík og á Keflavíkurflugvelli Björn Einar Þorláksson b. og hreppstjóri á Varmá í Mosfellssveit Dr. Björg Þorláksson fyrsti íslenski kvendoktorinn Jón Þorláksson verkfr., alþm. forsætisráðherra, borgarstj. og fyrsti form. Sjálfstæðisflokksins Þorlákur Þorláksson hreppstj. í Vesturhópshólum Arnór Þorláksson pr. á Hesti í Borgarfirði Guðrún Elísabet Arnórsdóttir húsfr. á Skinnastöðum Stefán Pálsson fyrrv. bankastjóri Búnaðarbankans Sigurður Pálsson skáld og rithöfundur Þorleifur Pálsson fv. sýslum. í Kópavogi Lárus Arnórsson pr. á Miklabæ í Blönduhlíð Ragnar Fjalar Lárusson sóknarprestur í Hallgrímskirkju Stefán Lárusson pr. í Odda Þórarinn B. Þorláksson listmálari í Rvík Eva Gestsdóttir starfsm. Icelandair í Rvík ÍSLENDINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 2018 Baldur Líndal fæddist á Lækja-móti í Víðidal 17.8. 1918. For-eldrar hans voru Jakob Hansson Líndal, hreppstjóri, kennari og jarðfræðingur á Lækjamóti, og k.h., Jónína Steinvör Sigurðardóttir Líndal kennari. Jakob var sonur Hans Baldvins- sonar, bónda á Hrólfsstöðum í Akra- hreppi, og Önnu Pétursdóttur, en Jónína var dóttir Sigurðar Jónsson, hreppstjóra á Lækjamóti, og Mar- grétar Eiríksdóttur. Baldur var þríkvæntur. Fyrsta kona hans var Kristín R.F. Búa- dóttir. Þau slitu samvistir eftir stutta sambúð og áttu ekki börn. Önnur kona Baldurs var Amalía Líndal, f. Gourdin, frá Cambridge í Massachu- setts í Bandaríkjunum. Þau slitu samvistir eftir 19 ára sambúð. Börn þeirra: Tryggvi Valtýr, Ríkarður Eð- varð, Eiríkur Jón, Jakob Emil og Anna Elísabet. Þriðja kona Baldurs er Ásdís Hafliðadóttir. Baldur varð stúdent frá MA 1939 og lauk B.Sc.-prófi í efnaverkfræði frá MIT í Boston 1949 og var við framhaldsnám í sama skóla 1955. Baldur var verkfræðingur hjá raf- orkumálastjóra frá 1949 og sjálfstætt starfandi ráðgjafarverkfræðingur frá 1961. Baldur hannaði og ók fyrstur Ís- lendinga á vetnisbíl árið 1945. Hann hafði frumkvæði að kísilgúrvinnslu í Mývatni og sjóefnavinnslu á Reykja- nesi. Hann vann á 8. áratugnum ítar- lega úttekt á möguleikum á magn- esíumframleiðslu á Reykjanesi. Hann starfaði við fjölda verkefna á sviði efnavinnslu í Bandaríkjunum og Mið-Austurlöndum og fyrir Virki hf. í Mið- og Suður-Ameríku og Afríku og hafði nýlega fengið styrk frá ESB til frumrannsókna á framleiðslu etanóls sem eldsneytis og annarra afurða úr lúpínuseyði þegar hann lést. Baldur Líndal fékk Hina íslensku fálkaorðu 1968, Verðlaun Ásu Guð- mundsdóttur Wright 1972 og gull- merki Verkfræðingafélags Íslands 1985. Baldur Líndal lést 17.6. 1997. Merkir Íslendingar Baldur Líndal 95 ára Tómas Guðmundsson Þórólfur Jónsson 90 ára Elísabet J. Guðmundsdóttir 85 ára Eiður A. Breiðfjörð James Arthur Rail Sigfinnur Gunnarsson 80 ára Arnoddur Þ. Tyrfingsson Guðný R. Gunnþórsdóttir Margrét A. Arnþórsdóttir Sigurður Georgsson Soffía Magnúsdóttir Sveinn Gunnlaugsson 75 ára Anna G. Friðbjörnsdóttir Arngrímur Jónsson Ágúst Jakob Schram Bára Óskarsdóttir Garðar Jóhannsson Guðbjörg Ólafsdóttir Guðbjörg Ósk Harðardóttir Hreinn Steinþórsson Inga K. Guðmundsdóttir Ingigerður Lilja Jónsdóttir Reynir Guðnason Rósa Haraldsdóttir Sigríður Jóhannsdóttir Þórarinn Guðnason 70 ára Árni Breiðfjörð Ólafsson Ása Jóhanna Ragnarsdóttir Sigurður Rúnar Andrésson Sólveig Steingrímsdóttir Steinunn F. Friðriksdóttir 60 ára Bryndís Gunnlaugsdóttir Dragica Borojevic Einar Jónsson Friðrik Gauti Kjartansson Guðjón Hafliðason Guðmundur K. Birkisson Gunnar W. Kristjánsson Jón Vigfússon Kristján Jónasson Ragna Jónasdóttir Rakel María Óskarsdóttir Svavar Guðmundsson Sveinn Egilsson Þór Tómasson 50 ára Audrius Balciunas Brynjólfur Hjartarson Cecilia Nfono Mba Gunnar Valur Eyþórsson Helena R. Guðjónsdóttir Krzysztof Dziubinski Margrét J. Sigmundsdóttir Morten Bergflödt Pawel Wybranski Sandra Yanet Lopez Munoz 40 ára Alfreð Símonarson Andri Páll Jónsson Anna Björk Theodórsdóttir Artur Zareba Dorota Jolanta Marciniak Halldóra María Einarsdóttir Henryk Marcin Wróbinski Hildur Eggertsdóttir Jóhanna Sigurðardóttir Linda Eygló Harðardóttir María Greta Einarsdóttir Róbert Kárason Örvar Arason Örvar Gunnarsson 30 ára Anna M. Kjartansdóttir Gunnar Örn Ólafsson Igor Pavlik Jóhann Eymundsson Katrín Hill Katrínardóttir Rut Valgeirsdóttir Til hamingju með daginn 30 ára Trausti ólst upp í Þorlákshöfn, býr í Garða- bær og starfar hjá Stólpa – Gámum. Maki: Ingibjörg Rafns- dóttir, f. 1990, verkstjóri við heimaþjónustu. Sonur: Jökull, f. 2015. Foreldrar: Jóhanna Sig- ríður Emilsdóttir, f. 1961, bókhaldari hjá Stólpa – Gámum, og Guðfinnur Georg Pálmason, f. 1961, d. 2017, sjómaður og verkstjóri. Trausti Guðfinnsson 30 ára Sigurbjörn ólst upp á Fáskrúðsfirði og í Garðabæ, býr í Hafnar- firði og stundar BSc-nám í íþróttafræði við HR. Systkini: Gyða Ingólfs- dóttir, f. 1983, og Agnar Páll Ingólfsson, f. 1984. Foreldrar: Anna Björg Pálsdóttir, f. 1956, starfar við umönnun, búsett í Hafnarfirði, og Ingólfur Sveinsson, f. 1951, d. 2014, viðskiptafræðingur, útgerðarstjóri. Sigurbjörn Ingi Ingólfsson 30 ára Guðrún Sif býr í Reykjavík, lauk BSc-prófi í tölvunarfræði og starfar hjá Seðlabanka Íslands. Maki: Sigurður Samik Davidsen, f. 1980, tölv- unarfræðingur hjá Sam- skipum. Börn: Sara Björg, f. 2014, og Kristófer Jökull, f. 2017. Foreldrar: Ragna Valde- marsdóttir, f. 1948, og Hilmar Eyberg Helgason, f. 1949. Guðrún Sif Hilmarsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.