Morgunblaðið - 17.08.2018, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 17.08.2018, Blaðsíða 20
20 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 2018 Ljósmyndir Rutar og Silju Skipholti 31 • 105 Reykjavík • Sími 568 0150 Opið virka daga 10-17 • www.rut.is • Ljósmyndir Rutar og Silju Fyrir passann, ökuskírteinið, ferilskrána o.fl. Skjót og hröð þjónusta Engar tímapantanir Góð passamynd skiptir máli Dásamlegur þvottur - einfalt, íslenskt stjórnborð Íslenskar leiðbeiningar fylgja. Þurrkarinn TDB130WP fékk góða einkunn í úttekt þýsku neytendasamtakanna árið 2017. Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is Þvottavél 119.990 kr. Þurrkari 149.990 kr. Morgunblaðið er um margt gott blað, með marga hæfa starfsmenn innan- borðs og er oftast skemmtilegt aflestrar. Ljósmyndir í Morg- unblaðinu eru oft stór- kostlegar, fréttir vel skrifaðar, íþróttafrétt- ir frábærar og minn- ingargreinar sem birt- ast í blaðinu eru ómissandi. Undirritaður bjó erlendis í 20 ár, mest í Svíþjóð en líka í Bandaríkj- unum og var allan þann tíma áskrif- andi að blaðinu. Sérstaklega á tím- anum sem áhrifa Matthíasar Johannessen gætti sem mest, var blaðið einstaklega læsilegt. Undirritaður viðurkennir að hlakka til að lesa Morgunblaðið þegar færi gefst og sem oftast þrátt fyrir að vera ekki fastur áskrifandi. Ástæðan fyrir þessum grein- arstúf er hversu gáttaður ég er á dæmalausum Reykjavíkurbréfum undanfarið. Það sem vakið hefur furðu mína er sá vaxandi stuðn- ingur við Donald Trump og stefnu ríkisstjórnar hans sem hefur birst í þeim að undanförnu. Það er með ólíkindum að þegar nánast allir fréttamiðlar í hinum vestræna heimi gagnrýna þá stefnubreytingu sem Bandaríkin hafa tekið undir forystu Trump hefur Morg- unblaðið tekið upp hanskann fyrir Trump forseta. Þannig stillir Morgunblaðið sér upp við hlið Fox fréttaveit- unnar (Fox News), en fagmennska hennar hefur oft verið dregin í efa og hún er sem stendur langt hægra megin við nánast alla aðra fréttamiðla hins vestræna heims. Það væri að æra óstöðugan að nefna öll öfugmæli, rangfærslur og hatur sem Trump forseti hefur dreift út síðan hann tók við forseta- embætti. Samkvæmt könnun Washington Post nýlega fór hann með ósannindi u.þ.b. 8 sinnum á dag! Hann hefur dregið Bandaríkin út úr Parísarsamningnum á sama tíma og önnur ríki keppast við að vinna gegn geigvænlegum áhrifum loftslagsbreytinga. Eitt af því versta sem hann og hans stjórn hafa gert nýlega er að skilja að for- eldra og börn við landamæri Bandaríkjanna og setja börnin í búr! Í Reykjavíkurbréfi Morg- unblaðsins 4. ágúst, kom fram aug- ljós stuðningur við Trump, t.d. í eftirfarandi orðum: „Robert Muell- er var skipaður sem sérstakur sak- sóknari til að rannsaka meint sam- særi Trumps og Pútíns í aðdraganda forsetakosninga, án þess að nokkurt tilefni hafi verið tilgrein.“ Að auki: „Furðumál gegn Flynn herforingja hefur ekki þok- ast neitt, en hann gafst upp á að standa í vörnum fyrir sig þegar hann sá að það stefndi í gjaldþrot hans og fjölskyldunnar innan fárra vikna.“ Enn heldur bréfritari Morgunblaðsins áfram: „Saksókn- ararnir ákváðu að ákæra Rússa fyr- ir peningaþvott vegna þeirrar fjár- hæðar. Rússland ætlaði sér með öðrum orðum að fremja hermd- arverk á bandarískum kosningum og veittu til þeirrar atlögu upphæð sem svarar til tíu milljóna íslenskra króna. Það hljómar sem svipuð upphæð og sú sem var sögð hafa verið notuð til að hafa áhrif á kosn- ingar til stjórnar Neytendasamtak- anna!“ Með þessum tilvitnunum er nokkuð ljóst að bréfritari Morg- unblaðsins leggst á sveif með Trump og hans kumpánum, gerir lítið úr ásökunum bandarískra yf- irvalda um inngrip í kosningar þar í landi og lætur að því liggja að um falsfréttir sé að ræða. Spurningin er hvað í málflutningi og verkum Trump fær bréfritara Reykjavíkurbréfa Morgunblaðins til að veita honum slíkan stuðning sem hann hvorki fær hjá upplýstu fólki í Bandaríkjunum né hinum vestræna heimi. Stuðning sem margir óttast. Ritstjórnarstefna Morgun- blaðsins – stuðningur við Donald Trump fer vaxandi Eftir Einar Stefán Björnsson »Með þessum tilvitn- unum er nokkuð ljóst að bréfritari Morg- unblaðsins leggst á sveif með Trump og hans kumpánum. Einar Stefán Björnsson Höfundur er yfirlæknir við Landspítalann og prófessor við Læknadeild HÍ Fátt veit ég fal- legra en þá auð- mjúku og dýrmætu bæn trúar og vonar, kærleika og friðar sem það er að færa nýlega fætt barn í hvítan allt of stóran þar til gerðan skírn- arkjöl og afhenda það á táknrænan hátt höfundi og full- komnara lífsins í fang sem heitir því að taka það að sér skilyrð- islaust. Leiða það og umvefja í öllum aðstæðum og bera þegar það getur ekki meir. Hvað veist þú annars dýrmætara en að vera ávarpaður snemma að morgni lífsins af höfundi þess og full- komnara með orðunum: „Sjá, ég verð með þér alla daga, allt til enda veraldar.“ Tákn hreinleika og vaxtar Hvíti kjóllinn táknar meðal annars hreinleika Krists og heil- agan anda Guðs. Jesú Krists sem fyrirgefur syndir okkar þegar við misstígum okkur í hugsunum, orðum og gjörðum og heilagan anda Guðs sem minnir okkur á hver við erum, hverjum og hverju við tilheyrum og minnir okkur á að við erum ekki ein. Stærð og sídd kjólsins táknar að við fáum að vaxa og dafna í skjóli hans sem umvefur okkur og helgar á bak og brjóst og gef- ur okkur líf af kærleika sínum, náð og miskunn sem aldrei mun enda. Sítenging Þegar þú ómálga og ósjálf- bjarga klæddur hvítum skrúða varst borinn af umhyggju og kærleika af þeim sem elska þig mest upp að brunni réttlætisins til að laugast í vatni og anda, þá varstu sítengdur við lífið. Sam- bandið er þráðlaust, uppsprettan eilíf, þú ert sítengd/ur. Skapari þinn og frelsari hefur krýnt þig náð og miskunn og gert þig að erfingja eilífðarinnar. Ekkert mun fá þig hrifið úr frelsarans fangi sem foreldrar þínir forðum af einskærri ást færðu þig í. Þú varst nefndur með nafni og nafnið þitt var skráð af frelsarans hendi með himnesku letri í lífsins bók. Letri sem fæst hvorki afmáð né eytt og ekkert strokleður megnar að þurrka út. Þér var heitið eilífri samfylgd í skjóli skaparans. Þeir sem þannig eiga himininn í hjarta sér og nafn sitt letrað í lífsins bók þurfa því ekki að óttast tanna- för tilverunnar og þá taumlausu ógn sem frá henni stafar. Einhliða samn- ingur Höfundur lífsins hefur gert samning við þig. Einhliða samning sem er óupp- segjanlegur af hans hálfu. Hann er gjöf Guðs til þín. Mótframlag þitt er ekkert. Þú þarft bara að lifa með samn- ingnum í einlægni, af auðmýkt og í þakklæti. Höfundur og full- komnari lífsins hefur fyrirgefið þér allar þínar syndir og öll þín mistök í eitt skipti fyrir öll. Hann þráir að fá að fylla hjarta þitt af heilögum friði. Það er á þínu valdi að rifta um- ræddum samningi ef þú ein- hverra hluta vegna vilt ekki þiggja hann eða halda honum í gildi. Það er auðvelt fyrir okkur að segja okkur frá honum, af- neita honum eða afþakka hann. Hann er ekki og honum verður aldrei troðið upp á einn eða neinn. Handarfar skaparans Í lófa Guðs er nafn þitt ritað. Þú ert handarfar skaparans í þessum heimi og líf þitt hið feg- ursta ljóð. Heilagur andi hefur blásið þér lífi, anda og krafti í brjóst til að vera sá sem þú ert. Þú ert leikflétta í undri kærleik- ans. Njóttu ávaxtanna og ávinnings- ins og láttu endilega muna um þig. Stöndum saman í lífinu öllu, í leik og starfi. Í trú, von og kær- leika, með fyrirgefandi hugarfari frelsarans, í auðmýkt, virðingu og þakklæti fyrir lífið og fyrir hvert annað. Því við þurfum sannarlega hvert á öðru að halda. Með kærleiks-, samstöðu- og friðarkveðju. Njótum lífsins. Lifi lífið! Fátt fallegra en skírn ungbarns Eftir Sigurbjörn Þorkelsson Sigurbjörn Þorkelsson »Hvað veist þú dýr- mætara en vera ávarpaður að morgni lífsins af höfundi þess og fullkomnara: „Sjá, ég verð með þér alla daga, allt til enda veraldar.“ Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur og aðdáandi lífsins. Atvinnublað alla laugardaga mbl.is ER ATVINNUAUGLÝSINGIN ÞÍN Á BESTA STAÐ?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.