Morgunblaðið - 17.08.2018, Side 27

Morgunblaðið - 17.08.2018, Side 27
MINNINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 2018 ✝ Ingólfur G.Sigurðsson fæddist á Lauga- vegi 27a í Reykja- vík 22. apríl 1929. Hann lést á heimili sínu 6. ágúst 2018. Ingólfur var sonur hjónanna Sigurðar Sigurðs- sonar járnsmiðs og Dagmarar Júlíu Finnbjörnsdóttur húsfreyju. Hann ólst upp í Reykjavík ásamt systkinum sín- um Sigurði, f. 21. febrúar 1915, d. 20. október 1945, og Guð- rúnu Kaldal, f. 14. ágúst 1918, d. 10. janúar 1984. Ingólfur kvæntist 7. ágúst 1960 Theódóru Thorlacius hjúkrunarfræðingi frá Stein- túni á Bakkafirði, f. 29. maí 1927, dóttur Þórarins Valdi- mars Magnússonar og Sigur- bjargar Sigurðardóttur. Ing- ólfur og Theódóra bjuggu sér heimili á Skólavörðustíg 46 í Reykjavík en fluttu árið 1967 á heimili sitt á Lindarflöt 10 í Garðabæ þar sem börn þeirra slitu barnsskónum. Þau eru: 1) Jórunn Thorlacius Sigurðar- dóttir, dagskrárgerðarmaður á Rás 1, f. 29. október 1954. Jór- Finnborg, f. 2002, Hringur, f. 2004, og Snæbjörn, f. 2010, fyr- ir átti Margrét Sunnu Eldon, f. 1989, og Örnólf Eldon, f. 1992. 5) Hildur náms- og starfsráð- gjafi, f. 22. júlí 1966. Eigin- maður hennar er Valdimar Jón Björnsson vélfræðingur. Þeirra börn eru Anna Magnea, f. 1986, Yrsa Hrund, f. 1987, d. 1987, Oddur Aron, f. 1988, Lilja Bjarney, f. 1993, og Sigurbjörg Katla, f. 1996. Barnabarnabörn Ingólfs eru ellefu og eitt á leið- inni. Ingólfur varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1949. Þá lá leið hans til Kaup- mannahafnar þar sem hann stundaði nám í heimspeki við Kaupmannahafnarháskóla á árunum 1950-1952 og eftir það framhaldsnám og rannsókn- arstörf á sviði lífefnafræði á ýmsum rannsóknarstofnunum 1953-1959. Hann starfaði þó aldrei á þeim vettvangi hér heima heldur sem kerfisfræð- ingur, fyrst hjá fyrirtæki Ottos A. Michelsens, Skrifstofuvél- um, 1960-1963 og síðan hjá Skýrsluvélum ríkisins og Reykjavíkurborgar til loka árs- ins 1995. Eftir að Ingólfur fór á eftirlaun lærði hann gerð víra- virkis og silfursmíði og eiga tíu dætur barna hans í dag íslensk- an upphlut með silfurvíravirki eftir afa sinn. Útför Ingólfs fer fram frá Vídalínskirkju í dag, 17. ágúst 2018, klukkan 15. unn var gift Thom- asi Ahrens, þau skildu. Börn þeirra eru Númi Þorkell, f. 1979, Ingólfur Máni, f. 1981, og Theódór Sölvi, f. 1985. 2) Sigurður hagfræðingur, f. 25. janúar 1961. Sigurður var kvæntur Elísabetu Ólafsdóttur hjúkrunarfræðingi, þau skildu. Börn þeirra eru Dagmar, f. 1985, Margrét, f. 1986, Theó- dóra, f. 1988, og Ingólfur, f. 1999. Sambýliskona Sigurðar er Maria Solomatina hugbúnaðarverkfræðingur og eiga þau dreng f. 2018. 3) Þór- arinn heimilislæknir, f. 13. apr- íl 1963. Þórarinn var kvæntur Önnu Vilbergsdóttur hjúkrun- arfræðingi, þau skildu. Börn þeirra eru Theódóra Thorla- cius, f. 1989, Rósamunda, f. 1991, Bergþóra, f. 1997, og Veigar Örn, f. 2000, fyrir átti Anna soninn Pálma, f. 1980. 4) Oddur prófessor, f. 29. júní 1964. Sambýliskona Odds er Margrét Örnólfsdóttir hand- ritshöfundur og tónlistar- maður. Börn þeirra eru Helga Það var árið 1960 að Ingólfur Gunnar Sigurðsson kom inn í líf okkar mömmu. Ég átti föður fyrir en hann var langt í burtu í henni Ameríku og ég var mjög spennt að eignast pabba fyrir alla daga ársins og öll ár. Ég tók honum fagnandi og hann tók mér fagn- andi, bar mig á háhesti þegar hann og mamma og ég, strax orð- in alvörufjölskylda, komum heim með strætó og þurftum að ganga nokkurn spöl út á Skaft, þar sem starfsmannabústaðir Kleppsspít- ala voru. Síðar fluttum við öll í miðju heimsins, efst á Skóla- vörðustíginn. Fljótlega eignaðist ég fyrsta bróðurinn af þremur og rúmum fimm árum síðar vorum við orðin fimm því litla systir hafði bæst í hópinn. Líklega hef ég verið aðeins óörugg um þessa framtíð í byrjun því ég minnist svo sterkt atviks líklega frá haustinu 1962 eða var komið vor? Það er sunnudags- morgunn, lærið mallar í ofninum og pabbi fer með okkur Sigga bróður niður á höfn. Hann leiðir okkur, Siggi er í hvítri peysu með blárri rönd í hálsinn og við stroff- ið og húfu í stíl. Ég man ekki hvernig ég var klædd, líklega í sparifötum því það var sunnudag- ur. Niðri á höfn hittir pabbi mann sem hann þekkir. Þeir heilsast, við Siggi stöndum stillt á meðan, minnir mig. Þessir fullorðnu menn hafa ekki sést lengi og ókunnugi maðurinn spyr: „Átt þú svona stóra stelpu, Ingólfur?“ Svar pabba var stutt: „Já!“ Um leið tók hann, að mér finnst ég muna, þéttar um mína litlu hönd í sinni stóru. Þetta var mikilvæg- asta staðfesting sem ég hef fengið um það hvar ég á heima. Nefni- lega hjá þeim sem ég elska af- dráttarlaust og elska mig á móti og það er það sem fjölskyldur gera, í blíðu og stríðu og með öllu sem því tilheyrir á ólíkum ævi- skeiðum. Pabba og mömmu tókst í sam- einingu að skapa þannig fjöl- skyldu með okkur systkinunum, fjölskyldu þar sem ríkir traust og virðing en líka dálítil kaldhæðni á stundum. Hann var góður húmoristi hann pabbi en líka svo margt ann- að því í húsi hans voru margar vistarverur. Hann var lengi pip- arsveinn, hár og grannur og glæsilegur, svolítið dulúðugur á myndum af honum ungum. Hann var listamaður með afburðaform- skyn og góða tónlistarhæfileika; hann var vísindamaður sem kunni sína lífefnafræði og hafði unnið að mikilsverðum rannsókn- um á því sviði; hann var kerfis- fræðingur, einn af þeim fyrstu hér á landi. Hann fór ekki út í búð og keypti tölvu þegar heimilis- tölvur komu fram heldur keypti íhluti og setti saman sjálfur. Síðar keypti hann líka tölvu, því hann fylgdist vel með nýjungum. Hann byggði hús handa okkur, hlóð það eigin höndum úr steinum frá Jóni Loftssyni og hann einangraði það að utan, sem var óvenjulegt á fyrri hluta 7. áratugarins. Þetta var rauða húsið á Lindarflöt 10. Hann var garðyrkjumaður af vís- indalegum áhuga á plöntum, ræktaði t.a.m. sitt afbrigði af dal- íu, dalíu Dódu, en líka önnur blóm sem ég kann ekki að nefna. Hann ræktaði tré af minnstu fræjum, einræktaði og klónaði og hvað það nú allt heitir. Síðustu árin átti silfursmíði huga hans og hann smíðaði ótal fallega víravirkisgripi. Fyrst og síðast var pabbi minn, Ingólfur G. Sigurðsson, mér mað- urinn sem ég vissi að ég gat treyst þótt stundum væri hann strangur og stundum líka þreytt- ur og pirraður. Hann kunni allt, hann pabbi, þó ekki ljóð – en þau kann mamma – hann kunni meira að segja að deyja þótt hann hefði aldrei gert það áður. Takk fyrir allt, pabbi minn. Jórunn Thorlacius Sigurðar- dóttir. Elsku afi. Það er erfitt að ímynda sér lífið án þín enda hefur þú alltaf verið hjá okkur. Við erum svo þakklát fyrir að hafa fengið að eiga þig sem afa og öll augnablikin og minningarnar með þér. Minning- arnar og augnblikin eru margs konar. Stundum erum við lítil að heimsækja þig í skúrinn eða skoða gróðurhúsið þitt eða með þér að velja hasarmynd á vídeó- leigunni. Stundum erum við stór, og þú að leika við langafabörnin þín eða við að sýna þér þjóðbún- inga sem þú smíðaðir silfrið á. Stundum ertu að horfa á fréttirn- ar, áhyggjufullur yfir gjörðum mannkynsins, og stundum ertu að útskýra fyrir okkur efnafræði sem við eigum engan séns á að skilja. Sumar minningarnar eru einungis augnablik, eins og mýkt- in og nákvæmnin sem þú beittir þegar þú fjarlægðir sykur af mat- arborðinu eða reimaðir fyrir okk- ur skóna. Við eigum dýrmæt augnablik og minningar og það viljum við þakka þér fyrir. Elsku afi, takk fyrir að elska okkur og vera alltaf stoltur af okkur. Við elskum þig. Þín barnabörn, Dagmar, Margrét, Theódóra og Ingólfur. Ég vissi alltaf að þessi dagur myndi koma en það gerði það ekkert auðveldara þegar hann kom, hann var duglegur, hlýr og kátur, en það sem ég mun aldrei gleyma um hann afa minn var að hann gafst aldrei upp. Hann hafði alltaf eitthvað til að dunda sér við. Einu sinni gerði hann hröðustu tölvu á Íslandi, en á þessum tíma var hún bara um það bil 10 kíló- bæt. Ég hef horft á hann gera nælur úr silfri fyrir þjóðbúninga svo oft en mér fannst það samt alltaf jafn skrítið að maður á hans aldri með svona stórar hendur gæti búið til eitthvað svona lítið og fínt. Bílskúrinn hans var eins og eitthvert undraland af tækjum og tólum. Ég sakna hans afa míns alveg óendanlega mikið og ég á aldrei eftir að gleyma honum, hann mun alltaf eiga stað í hjarta mínu og þegar ég segi þetta held ég að ég tali bara fyrir alla sem þekktu hann, megi hann hvíla í friði og ekki gleyma að skrúfa fyrir heita kranann. Hringur Oddsson. Elsku afi, ég á svo erfitt með að trúa að þú sért farinn frá okkur, þetta er augnablik sem ég vissi að myndi koma að en bjóst aldrei við, maður er í rauninni aldrei undirbúinn fyrir svona lagað. Það verður svo skrítið að fara í la- sagna til ömmu og afa þar sem þú situr ekki við endann á borðinu með okkur eða að sitja í sófanum að horfa á sjónvarpið og þú ert ekki þar. Tilhugsunin um að þú fáir ekki að sjá okkur vaxa og dafna er svo sorgleg en þrátt fyrir alla sorgina mun það alltaf gleðja mig að hugsa um allar stundirnar okkar saman eins og öll skiptin sem ég og Hringur fórum niður í bílskúr til þín þar sem þú varst svo oft að smíða silfur, sátum hjá þér og fylgdumst með. Elsku afi, ég mun sakna þín svo ótrúlega mikið en ég hugga mig við það að vita að þú ert á betri stað. Ég mun alltaf hugsa til þín, sama þótt þú sért ekki hér. Helga Finnborg Oddsdóttir. Elsku afi. Nú ertu farinn. Við munum þig. Elsku besti afi okkar. Í minn- ingunni sagðir þú ekki margt en þegar þú beindir orðum þínum til manns lagði maður við hlustir. Í okkar huga ert þú einn sá vitrasti maður sem við áttum nokkurn tímann eitthvað saman við að sælda. Við kynntumst þér mikið í gegnum sögur frá öðrum, sem ýtti undir þá dulúð sem virtist umlykja þig. Alltaf að vasast í ein- hverju. Rannsaka, hanna, smíða, brugga, leysa úr, læra eitthvað nýtt. Holdgervingur vísinda- mannsins. Tókst til matar þíns eins og það væri list. Barngóður og blíður en ekki kattavinur. Hvað sem öllu líður ert þú allt- af hjá okkur og það er vel og skemmtilegt. Við minnumst þín hlýlega og með kátínu. Eina eft- irsjáin er ef til vill að hafa ekki þorað að gramsa í bílskúrnum á Lindarflötinni. En það kemur eins og það kemur og fer eins og það fer og það eina sem við getum gert er að henda í eitthvað og hafa gaman af þessu. Við elskum þig. Númi, Máni og Sölvi. Elsku besti afi okkar. Mikið er sárt að missa þig svona brátt. Þú varst einstakur afi sem við litum öll svo upp til. Eldklár, náttúru- sinni, tæknisnillingur og fjöl- skyldumaður. Þú kenndir okkur svo margt og varst alltaf tilbúinn að hlusta. Þú nýttir hvert tækifæri til þess að fræða okkur um heiminn, líkt og af hverju er vond lykt af lýsi. Ást þín til ömmu okkar var engu lík, eða eins og Veigar segir: „relationship goals“, alltaf svo rómantískur við sína lipurtá og fátt yndislegra en að sjá ykkur saman að hlæja og gera grín. Handlaginn eins og enginn annar, allt sem þú gerðir var vel gert, hvort sem það var garðyrkj- an, að veiða mýs eða þitt helsta áhugamál seinna meir, að smíða úr silfri. Það var hreint ævintýri að leika sér í garðinum hjá þér á Lindarflötinni sem börn. Við munum seint gleyma músunum sem voru samviskusamlega veiddar í bílskúrnum, útbúið heimili með heimasmíðuðu hlaupatæki og svo hleypt frjáls- um í náttúruna. Ekki var aðdáunin minni hjá langafabörnunum þínum Önnu og Theódóru sem límdust við þig í hverri heimsókn enda ansi áhugaverður maður sem var allt- af til í að trekkja upp fluguna. Það er skrítin tilfinning að geta ekki talað við þig og sagt þér frá því sem við erum að gera. Við munum ávallt minnast þín með gleði í hjarta. Elskum þig. Þín afabörn, Theódóra, Rósamunda, Bergþóra og Veigar Örn. Þegar Ingólfur Gunnar, Golli, kom heim árið 1959 frá háskóla- námi sínu í efnafræði í Kaup- mannahöfn flutti hann inn til móður sinnar, Dagmarar Finn- björnsdóttur, í íbúð á efstu hæð á Skólavörðustig 46 í Reykjavík. Við Golli vorum góðir vinir og hittumst oft fyrir námsferð hans til Kaupmannahafnar. Eins hitt- umst við, stundum ásamt Páli Theodórssyni, þegar Gullfoss var í Kaupmannahöfn 1950 en ég var í áhöfn þar. Við hjónin, Lillý og ég, bjugg- um þá í þorpsbrotinu í Reykjavík sem kallaðist Skuggahverfið. Húsið hét Bakkabúð, gamalt timburhús með hlýju viðarins. Gott var að búa í þorpsbrotinu en það er nú brot af litlu Manhattan. Frá Skólavörðustig lá Frakka- stigur niður að Skuggahverfinu. Golli hringdi til okkar eitt kvöld- ið: Má ég renna niður eftir? Það var aldeilis vel þegið og áttum við við hjónin og Golli margar góðar kvöldstundir saman. Áhugamál Golla voru mjög víðtæk, allt frá dagsins umhverfi til gangs him- intungla. Hann hafði góða kímni- gáfu sem veitti birtu í skamm- degi. Við Golli lékum okkur í myrkraherberginu við ýmsar til- raunir. Í eldhúsinu gerðu Lillý og Golli tilraunir með ýmsa rétti og við Golli brugguðum úr kræki- berjum listileg vín á háalofti hússins og var hreinlætið tryggt með efnum frá Bie og Berntsen í Kaupmannahöfn. Við lékum oft klassíska tónlist. Okkur Lillý þótti mjög vænt um heimsóknir Golla og nutum þeirra. Golli kvæntist árið 1960 góðri konu, Theódóru Thorlacius hjúkrunarfræðingi, og fjölgaði þá í ferðum um Frakkastíginn í gagnkvæmum heimsóknum. Árið 1962 fluttum við Lillý í há- hýsi við Sólheima í Reykjavík og var nú ekki lengur um að ræða að renna niður eftir eða puða upp eftir. 1970 var aftur nálægð milli okkar hjóna og Golla og Theó- dóru og nú í Garðabæ. Var nú um tvær fjölskyldur að ræða. Golli kom með fádæma dugnaði upp húsi að Lindarflöt nr. 10 fyrir fjölskyldu sína en okkar fjöl- skylda bjó þar skammt frá og var mikil samgangur á milli. Á lóð sinni setti Golli niður mörg tré til endanlegrar dvalar á sínum reit en jafnframt hóf hann tilraunir með margar trjáplöntur frá ýms- um löndum þ. á m. frá fjarlæg- ustu reitum Asíu. Voru þessar til- raunir umfangsmiklar og tímafrekar. Vöktu þær athygli áhugamanna á þessu sviði. Hann átti drjúgan þátt í trjárækt Garðbæinga utan byggðar. Á efri árum hóf Golli starf á nýju sviði, silfursmíði. Smiðjan var í bílskúrnum og þar sat hann einn og smíðaði fagra gripi með góðum tækjum og næmum fingr- um. Fjölskyldan þeirra var nú orð- in stór og margar ungar stúlkur í henni sem áttu að fermast og þá í íslenskum upphlut en honum til- heyrði skart sem heitir víravirki. Golli smíðaði silfur-víravirki á tíu upphluti og eiga allar tíu stúlk- urnar í barnabarnahópnum silf- urskart eftir hann. Ég kveð nú þennan góða vin minn Golla og sendi ekkjunni og fjölskyldu hans mínar samúðar- kveðjur. Guðmundur W. Vilhjálmsson. Ingólfur G. Sigurðsson Okkar fyrstu kynni af Kristínu voru árið 1988 þegar við systkinin vorum á misjöfnum aldri, allt frá þriggja til átján ára. Alveg frá byrjun og allar stundir síðan minnumst við Kristínar með gleði í hjarta og nú söknuði þar sem hún var alveg einstök manneskja. Kristín átti í áralangri baráttu við veikindi og eiginlega erfitt að muna eftir henni öðruvísi en í þessum veik- indum sem hún laut loks í lægra haldi fyrir. Hún sýndi alla tíð ótrú- legt æðruleysi og þegar maður hitti Kristínu og spurði hvernig hún hefði það bar hún sig alltaf jafn vel, gerði eins lítið úr veik- indum sínum og hægt var en snéri jafnframt umræðu alltaf til baka og spurði hvað væri að frétta af okkur og seinna okkar nánustu. Aldrei kvartaði hún né kveinaði útaf neinum hlut þó manni hefði fundist full ástæða til. Þetta var dæmigert fyrir Kristínu þar sem hún var alltaf að hugsa um aðra, láta aðra skipta sig máli og átti jafnframt auðvelt með að sam- gleðjast öðrum. Það er erfitt að ímynda sér að Kristín hafi nokk- urn tímann átt í deilum við nokk- Kristín Guðmundsdóttir ✝ Kristín Guð-mundsdóttir fæddist 19. desem- ber 1957. Hún lést 2. ágúst 2018. Útför Kristínar fór fram 16. ágúst 2018. urn mann eða hall- mælt neinum þar sem hún gat alltaf séð það góða í öllum og átti auðvelt með samskipti við fólk. Það er líklega ástæða þess að hún átti stóran hóp af góðum vinum og vin- konum í kringum sig. Við minnumst með vatn í munni allra matarboð- anna á sunnudögum í Klukku- bergi hjá Kristínu og pabba hér áður fyrr auk allra kaffiboðanna þar og í Grindavík. Kristín var ekki bara mikill sælkeri heldur af- bragðs kokkur og ekki síðri bakari þar sem tertur voru miklu uppá- haldi. Við minnumst einnig kaffi- boðanna sem voru alltaf eins og fermingarveislur á yndislegu heimili foreldra hennar í Grinda- vík. Það er aðdáunarvert hvað Kristínu tókst vel til að ala upp litlu bræður okkar og koma þeim til manns, þrátt fyrir að veikindin sín. Þau hafa verið órjúfanleg heild ásamt börnum þeirra og dugleg að koma suður til að fagna með okkur systkinum þegar svo bar við. Við munum halda utan um og verða samferða sonum hennar og barnabörnum út lífið. Þó erfitt sé að kveðja Kristínu er auðvelt að snúa því upp í gleði og þakklæti fyrir að hafa kynnst henni og orðið samferða öll þessi ár. Við trúum því að Kristín sé komin á betri stað til að njóta sín. Elsku Heiðar Már og Heimir Daði, Sara, Aron Daði og Emilía Diljá, við vottum ykkur okkar innstu samúð. Sigurður, Eva, Ragnar og Linda. Það var í september 1972 að hópur unglinga alls staðar að af landinu var mættur í Héraðsskól- ann á Laugarvatni til að hefja nám. Þessi vetur er eftirminnileg- ur, við eignuðumst félaga og vini sem ennþá eru til staðar. Eftir þennan vetur, með Vest- mannaeyjagosið í janúar 1973 sem aldrei gleymist og gerði veturinn ekki síður eftirminnilegan, héld- um við hvert sína leið. Eignuð- umst fjölskyldur og hið venjulega líf hófst með ýmsu móti. Síðast- liðin ár hefur hópurinn hist reglu- lega einu sinni á ári þar sem við höfum endurnýjað gömul kynni og rifjað upp veturinn góða á Laug- arvatni. Í dag kveðjum við kæra skóla- systur frá þessum vetri, Kristínu Guðmundsdóttur, en í okkar skólatíð var alltaf talað um Gunnu og Stínu en þær voru herbergis- félagar á Hlíð á heimavist Héraðs- skólans á Laugarvatni, ævivin- konur. Kristín var hæversk, falleg, með mikla nærveru og út- geislun. Það var gott að vera í ná- vist hennar. Hún talaði af miklu æðruleysi um veikindi sín þegar hún var spurð. Það er mikill missir að Kristínu úr hópnum og hennar verður sárt saknað. Við viljum votta fjölskyldu Kristínar okkar dýpstu samúð og elsku Gunna, hugur okkar er hjá þér. Sigurður H. Einarsson, Barði Guðmundsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.