Morgunblaðið - 17.08.2018, Page 29

Morgunblaðið - 17.08.2018, Page 29
MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 2018 ✝ Ólöf GuðbjörgPálsdóttir fæddist á Siglufirði 13. desember 1936. Hún lést á hjúkrun- arheimilinu Upp- sölum 8. ágúst 2018. Foreldrar henn- ar voru Anna Krist- rún Bjarnadóttir f. 27. ágúst 1913, d. 10. mars 1947, og Páll Steinn Ein- arsson, f. 30. janúar 1905, d. 13. janúar 1973. Alsystir Ólafar er Kristín Jóhanna Hólm, f. 1934. Systir sammæðra er Hafdís Þóra Ragnarsdóttir, f. 1946. Systkini samfeðra eru Stefán, f. 1929, Kolbrún, f. 1932, d. 2011, og Ragnar, f. 1932, d. 2011. Uppeld- isbræður Ólafar eru Hlöðver Jó- hannsson, f. 1925, Einþór Jó- hannsson, f. 1930, d. 2005, Unnsteinn Þorfinnur Jóhanns- son, f. 1931, og Óli Sigurður Jó- hannsson, f. 1933. Ólöf giftist 6. janúar 1955 Ing- ólfi Arnarsyni Benediktssyni, f. 6. janúar 1932, d. 26. ágúst 2013. For- eldrar hans voru Benedikt Einarsson, f. 31. maí 1894, d. 16. janúar 1972, og Björg Bjarnadóttir, f. 21. júlí 1892, d. 10. mars 1985. Synir Ólafar og Ingólfs eru 1) Viðar Júlí Ingólfsson, f. 12. maí 1957, kvæntur Önnu Sigríði Karls- dóttur. Synir Viðars eru Birkir Fjalar, f. 18. febrúar 1978, og Andri Freyr, f. 21. maí 1980. 2) Páll Heimir Ingólfsson, f. 6. júní 1960, d. 31. janúar 2015, og 3) Ingi Jóhann Ingólfsson, f. 17. nóvember 1968. Börn Inga Jó- hanns eru Kristófer Leó, f. 20. apríl 1999, og Birgitta Íren, f. 10. febrúar 2003. Útför Ólafar fer fram frá Reyðarfjarðarkirkju í dag, 17. ágúst 2018, klukkan 14. Í mörg ár hafði ég átt samtal við sjálfan mig þar sem ég gekkst við því að ömmu Ólu Bubbu myndi ekki njóta mikið lengur við. Ég hef forðast þetta samtal og skammað sjálfan mig fyrir að hugsa þetta yfirleitt. Hugsanirnar hafa dúkkað upp við og við í sjálfsagt tvo ára- tugi. Amma mín var einstök, sjáið þið til. Mér finnst æv- intýralegt að hugsa til þess að fyrir mjög löngu var henni vart hugað líf vegna veikinda. Þá sat ég við hennar hlið á Landspít- alanum á meðan hún tókst á við veikindi sín. Oftast var hún án meðvitundar eða of þreytt til að opna augun, hvað þá tala. Ég hvíslaði reglulega að henni að ég yrði verulega fúll ef hún færi yfir móðuna miklu því ég ætti eftir að verða faðir og börn mín yrðu að kynnast henni. Hún kom reglulega inn á það síðar að hún hefði ákveðið að tóra svo ég yrði ekki fúll. Það er nefnilega svo magnað að harmurinn sem hún bar í brjósti eftir að afi Ingólfur dó var ekki nægilegur til að ræna hana lífsgleðinni og drifkraft- inum til að vakna og takast á við næsta dag og veikindi. Ég held að tilhugsunin um syni hennar, barnabörn og barna- barnabörn hafi gefið henni aukagír og gert henni kleift að staldra eins lengi við og raun bar vitni. Og með því auðgaði hún líf okkar allra meira en hún gerði sér grein fyrir. Hún var „aðal“ hjá okkur öllum. Drottningin. Það er afskaplega erfitt að koma í orð hversu mikilvæg amma var mér. Þessi yndislega, glaðværa, fordómalausa, fórn- fúsa og hlýja kona sem gerði bókstaflega allt fyrir litlu fjöl- skylduna sína. Ég og bróðir minn vorum svo heppnir að hún bjó í sömu götu og við, skáhallt á móti húsinu okkar. Það leið varla sá dagur alla okkar æsku og unglingsár að við kíktum ekki einu sinni á dag, stundum oftar, í heimsókn til hennar og afa. Hún ól okkur upp til jafns við syni sína. Við máttum alltaf koma inn, fá okkur að borða, gramsa í dótinu þeirra o.s.frv. En aðalástæða tíðra innlita okkar bræðra var einfaldlega til að hanga með ömmu. Hún var svo óhemju skemmtileg, og með afar þægilega nærveru. Við vildum bara vera nálægt henni, hlusta á hana tala, lesa blöðin hennar, segja henni frá því sem á daga okkar dreif. Vissulega leituðum við einnig til hennar þegar við vorum leið- ir eða vantaði bara einhvern óyrtan stuðning og varma. Skjól og öryggi. Amma Óla var allt þetta fyrir okkur og svo miklu meir. Nýverið sóttum við fjölskyld- an hana heim á dvalarheimilinu í Fáskrúðsfirði. Þvílík gleði og stemning. Það var sem nánast ekkert væri að henni. Líkam- lega þreytt, vissulega, en í sín- um síðustu lífsins skrefum, það hvarflaði ekki að okkur. Lánið lék við okkur. Við áttum dýr- mæta viku með henni. Amma var hress, svo hress reyndar að hún ók í tvígang til Reyðar- fjarðar, hvar við gistum. Í fyrra skiptið var það til að njóta mat- ar sem unnusta mín framreiddi af mikilli snilld. Seinna skiptið til að snæða með okkur á einum veitingastaða bæjarins. Tæpum þremur vikum síðar dró hún andann í síðasta sinn. Sakna þín svo sárt, amma mín. Kysstu afa frá mér. Þinn ömmustrákur, Birkir Fjalar Viðarsson. Amma Óla er farin, þó fyrr hefði verið hugsar afi Ingólfur eflaust sem hefur beðið hennar handan móðunnar miklu síðan hann skellti sér þangað. Eftir sitjum við sem henni vorum ná- in í mjög svo skrítnum heimi sem er skrítinn fyrir þær sakir að í honum er engin amma Óla. Amma hefur alla tíð verið mér einstaklega náinn og mikill vin- ur í raun. Mín fyrstu 15 ár á Reyðarfirði voru hún og afi mér eins og mínir aðrir for- eldrar. Var einmitt að hugsa um það um daginn að ég fór í heimsókn til þeirra hjóna á hverjum einasta degi. Á tíma- bili bjó ég meira að segja heima hjá þeim og var það mér ómetanlegur tími. Allt við að vera hjá ömmu var gott. Það var gott að opna dyrnar, finna kaffilykt, sígar- ettufýlu og heyra svo lága rödd segja: „ekki skella hurðinni, Andri minn“. Það var gott að koma inn í eldhús, sjá ömmu í sínu sæti, með bollann sinn, retturnar í sígóveskinu og glott í andlitinu. Maður gekk að því vísu að inn í ofni (þar sem amma geymdi brauð og bakk- elsi) voru alltaf til kræsingar á borð við kleinur, Póló kex, jóla- köku, kryddbrauð, kremkex o.s.fv. Maður mátti alltaf vaða í allt. Stundum gekk maður reyndar fulllangt í því þegar maður var að stelast í klink- krukkuna (hún vissi það alltaf) eða stela af henni einhverjum peysum til að líkjast einhverj- um dauðum tónlistarmönnum frá Seattle, en amma var alltaf með manni í liði. Held svei mér þá að hún hafi aldrei skammað mig, enda ekki furða kannski miðað við vitringana þrjá sem voru hennar synir, nóg búið að þurfa að skammast í þeim. Þegar við bræður þurftum að fara í nokkra daga í pössun vegna þess að mamma og pabbi voru að fara úr firðinum þá var okkur alltaf splittað upp og sendir á sitthvorn staðinn. Það var alltaf eins og maður hefði unnið lottóið ef maður var sendur til ömmu og afa, með fullri virðingu fyrir hinu fólkinu sem tók okkur að sér. Það var alltaf notalegt að sitja við eldhúsborðið hjá ömmu. Hlusta á hana segja manni sögur eða þá að dást að því hvað hún lét sig hafa það að hlusta á blaðrið í mér. En ég gat alltaf talað við hana eins og minn besta vin, enda var hún það til síðasta dags. Líf ömmu var allt annað en auðvelt. Sögurnar úr æsku ömmu eru margar hverjar mjög sorglegar og sumar í raun erfitt að heyra. Síðustu ár ömmu voru þungur róður, tíð veikindi og það að jarða son sinn væri eflaust nóg til að ganga frá okkur flestum. Það er auðvelt að finna barnið í sér þegar ég hugsa til ömmu og þess vegna segi ég óhikað: amma mín var meiri töffari en amma þín, amma gaf mér flottari og skemmtilegri gjafir en amma þín, amma átti alltaf betri ís í frystinum en amma þín og amma stóð leng- ur í dyragættinni og veifaði lengur á meðan maður bakkaði bílnum og keyrði út götuna en amma þín. Elsku amma Óla. Ég veit að þú ert komin á betri stað, í gamla eldhúsið þitt að elda kjöt í karrý. Ég bið að heilsa Palla frænda sem er á leiðinni í mat og kysstu afa frá mér þar sem hann er örugglega við hliðina á þér, blótandi, rekandi við og segjandi: eitt núll. Þín er sárt saknað, minning þín lifir. Andri Freyr Viðarsson. Ólöf Guðbjörg Pálsdóttir ✝ Ágúst Önund-arson fæddist á Akranesi 7. júlí 1981. Hann varð bráðkvaddur á eyj- unni Möltu þann 31. júlí 2018. Foreldrar hans eru Kristrún Harpa Ágústs- dóttir f. 28. júní 1948 og Önundur Jónsson f. 5. októ- ber 1947. Ágúst var yngstur þriggja barna þeirra, en þau eru Hrönn f. 13. maí 1967 og Marinó f. 27. desember 1969. Auk þess átti Ágúst hálfbróður, Stefán Björnsson Önundarson, og hálfsystur, Agnesi Eir Ön- undardóttur. Árið 2005 hóf hann sambúð með Ester Ösp Guðjónsdóttur f. 17. ágúst 1981. Þann 7. sept- fræði. Árið 2006 fara hann og Ester til Mið-Ameríku og stunda nám í spænsku og ferð- ast um í 9 mánuði og trúlofa sig í Kosta Ríka 1. desember 2006. Eftir það fer hann á ný í Háskólann í Reykjavík og lýkur þaðan M.Sc. í fjárfesting- arstjórnun í desember 2008, þ.e. mastersgráðu í fjármálum. Auk þess sótti Ágúst mörg námskeið í forritun og tölvu- stjórnun. Öll sumur og með námi stundaði Ágúst margs konar störf, allt frá því að beita, vinna við alls kyns fiskvinnslu- störf, öryggisvörslu á Landspít- alanum, sölumennsku, lager- störf og sem stjórnandi við hönnun og innleiðingu á gæðaeftirlitskerfum. Árið 2012 hóf Ágúst störf hjá Alvogen, þar sem hann starfaði sem sér- fræðingur í fjárstýringu til dauðadags, seinustu þrjú árin á eyjunni Möltu þar sem hann bjó með eiginkonu sinni og dóttur. Útför Ágústs fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 17. ágúst 2018, klukkan 11. ember árið 2013 gengu þau í hjóna- band. Foreldrar Esterar eru þau Guðjón Marteinn Kjartansson f. 21. apríl 1954 og Dag- björt Sigrún Hjaltadóttir f. 18. apríl 1955. Ágúst og Ester eignuðust eina dóttur, Hrefnu Ýri f. 23. júní 2013. Eftir grunnskóla í Kópavogi stundaði Ágúst nám við Menntaskólann á Ísafirði og út- skrifaðist þaðan 2001 af við- skipta-, hagfræði og tölvu- braut. 2004 útskrifast hann með diploma í markaðsfræði og vörustjórnun frá Háskól- anum í Reykjavík og ári seinna með B.Sc í alþjóðamarkaðs- Elsku Ágúst minn, það er þyngra en tárum taki að þurfa að kveðja þig svona snemma. Það var svo margt sem við átt- um eftir að bralla saman, ég hélt við ættum nægan tíma eft- ir. Ég er samt svo þakklát fyrir þann tíma sem við áttum saman og að ég hafi fengið að vera litla systir þín í öll þessi ár, þótt árin hefðu vissulega mátt vera miklu fleiri. Það er ekki hægt að minnast þín án þess að hugsa til þess hversu mikill orkubolti og húm- oristi þú varst, hversu duglegur þú varst og þá ómældu þol- inmæði og hversu góður þú varst við mig, litlu systur þína. Þau voru ófá skiptin þar sem ég hitti þig og var með verki í maganum af hlátri eftir á. Nær allar þær stundir sem við áttum saman einkenndust af miklum hlátri, þú fannst húm- orinn í öllu. Svo ef þú ákvaðst að taka þér eitthvað fyrir hendur, þá gerðir þú það ekki bara vel, heldur óaðfinnanlega. Þá skipti engu máli hvers kyns verkefni það var; þú lagðir þig allan fram. Ég er mjög þakklát fyrir að hafa fengið að slíta barnsskón- um með þig mér við hlið. Þú varst alltaf til í að leyfa mér að sniglast í kringum þig og koma með ef þú varst að fara eitt- hvað. Þú varst líka svo góður stóri bróðir, alltaf að passa upp á litlu systur þína. Ég er svo þakklát fyrir að hafa fengið að vera systir þín. Þín verður sárt saknað, elsku Ágúst minn. Þín litla systir, Agnes Eir Önundardóttir. „Getur þessi sjoppa flogið?“ – var eitt af mörgum gullkorn- um frænda míns og nafna í ferð okkar niður í bæ með viðkomu í Skalla í Lækjargötunni og Ágúst sá viftuspaða á hreyfingu í loftinu. Ágúst frændi minn var heim- alningur á Álftröðinni þegar hann var yngri, alltaf kvikur og fljótur til svars. Ég man eftir einskærum áhuga hans á bílum. Ónýtir og lélegir bílar voru jafnvel enn þá áhugaverðari en venjulegir bílar. Hann elskaði Tóta jafnmikið og ég en Tóti var fyrsti bíllinn sem ég eign- aðist og var appelsínugul VW bjalla. Ég man eftir ótal skiptum þegar hann kom hlaupandi með aðdáunarsvip er ég lagði í heimkeyrslunni með viðeigandi hávaða. Stundum fórum við lít- inn rúnt, þar sem hann stóð fyrir aftan framsætin og sendi mér hvatningarhróp við akst- urinn. Það hefur tengt okkur frændsystkinin í gegnum tíðina að vera bæði skírð eftir sama manninum, Ágústi Péturssyni. Nafni minn var sá eini í fjöl- skyldunni sem kallaði mig Gústý sem mér þótti vænt um. Það var líka mjög kært á milli þeirra nafnanna þau rúmu fimm ár sem þeir áttu saman. Það sást langar leiðir að á milli þeirra var sterkur strengur og Ágúst missti mikið þegar afi hans dó. Mamma sagði mér frá atviki sem gerðist stuttu eftir að pabbi dó. Þá sat Ágúst við eld- húsborðið og var að teikna. Mamma leit af honum andartak og fann hann fyrir utan húsið, þar sem hann var að rífa mynd- ina sína og fleygja bréfsnepl- unum upp í loftið og láta þá fljúga. Mamma spurði hann hvað hann væri að gera og hann svaraði að hann væri að gefa afa sínum myndina með þeim útskýringum barnsandans að afi væri núna hjá Guði og að Guð væri á himnum. Ég tárast þegar ég rifja upp þessa sögu, enda áttum við það líka sameig- inlegt að sakna pabba/afa okkar endalaust mikið. Ágúst lærbrotnaði illa þegar hann var 4 ára og átti nokkuð langa sjúkrahúslegu. Fjölskyld- an skiptist á að hafa ofan af fyrir honum, svæfa, spjalla, leika, lesa og syngja. Oft var ég búin að fara í gegnum allar vögguvísur sem ég kunni áður en hann sofnaði. Ég fór þá að prófa mig áfram með að semja nýja. Sú vöggu- vísa fékk að hvíla í meira en 30 ár, þar til ég fékk vin minni til að gera texta við lagið og það kom út á disknum Stjörnubjart, árið 2015. Þetta er lagið þitt, Ágúst minn. Það er þyngra en orð fá lýst að kveðja þig og átta sig á að Draumvísan er líka þín hinsta vögguvísa. Það hefur verið dásamlegt að fylgjast með ykkur fjölskyldunni vaxa og þroskast og brúðkaup ykkar Esterar i Súðavík var ógleym- anlegt. Innilegar samúðarkveðj- ur til fjölskyldu þinnar og hinn- ar yndislegu Hrefnu Ýrar. Ég veit að það var tekið vel á móti þér af afa og ömmu og ég bið kærlega að heilsa þeim. Hittumst heil, kæri nafni. Ó, sofna skjótt er dagsins dvínar birta svo fljótt hafðu hljótt, sofðu rótt Ó, sofna skjótt er máni lýsir upp myrka nótt, hafðu hljótt, ó, vinur sofðu rótt Því bjartar geymir myrkrið minningar sem morgunn veitir líf svo sofðu vært og vittu’ að allt sem er þér svo kært, bjart og tært, nýr morgunn hefur fært (Hörður Sigurðarson) Ágústa Sigrún Ágústs- dóttir (Gústý). Mér var vandi á höndum þegar velja átti setningu í upp- hafi minningargreinar um 37 ára gamlan mann sem deyr í blóma lífsins. Ágúst var á leið í vinnu morguninn 31. júlí og féll niður rétt nýlagður af stað frá bústað sínum á Möltu. Hann var að ljúka vinnuferli eftir þriggja ára starf fyrir fyrirtækið Alvo- gen. Fjölskyldan var flutt heim, kona og barn en nokkurra daga frágangur var eftir á Möltu áð- ur en hann kæmi sjálfur heim. Ágústi kynntist ég fyrst heima hjá okkur Hörpu 1996. Hann bjó á Ísafirði um þær mundir hjá Önundi föður sínum og var í Menntaskólanum á Ísa- fjarðar. Eftir að Ágúst kom suður bjó hann hjá okkur Hörpu, fyrst einn og síðan með kærustunni, henni Ester. Aldrei féll skuggi á samband okkar og á ég eingöngu góðar minningar með þeim báðum frá þeim tíma og ekki síst eftir að þau giftu sig og eignuðust Hrefnu Ýri, sem mér finnst ég eiga mikið í. Ágúst var mér eins og sonur og mikill vinur allt frá fyrstu kynnum okkar. Mér hefur alltaf þótt afskap- lega vænt um hann og sama segi ég um systkini hans, Hrönn og Marinó. Ég er þakklátur fyrir þær góðu stundir sem ég átti með Ágústi. Hann var alltaf glaður og já- kvæður. Við ræddum oft um framvindu fjármála í heiminum og þar var hann vel að sér og fróður um hvernig fjármála- heimurinn er að þróast. Við Harpa fórum margar ferðir til Möltu þessi ár sem Ágúst og Ester bjuggu þar, bæði til að fylgjast með Hrefnu litlu vaxa og dafna og til að vera með þeim hjónum. Þessi tími verður okkur ógleymanleg- ur. Ágúst minn, ég veit að þú ert enn meðal okkar og sú tilfinn- ing er notaleg. Við Harpa mín munum hugsa um Ester og Hrefnu litlu ásamt öllu því góða fólki sem er í þinni fjölskyldu. Guð blessi þig og allt þitt fólk. Sigurður Harðarson. Ágúst Önundarson Þökkum öllum þeim fjölda sem sýnt hefur okkur kærleik og samúð vegna andláts elsku sonar, stjúpsonar, bróður og barnabarns, BIRGIS IMSLAND ráðgjafa hjá Klettabæ. Hans er sárt saknað, blessuð sé minning hans. Fyrir hönd annarra ástvina, Ómar Imsland Hildur Björg Hrólfsdóttir Ragnar Imsland Arnar Imsland Alexandra Dís Unudóttir Bragi Þ. Sigurðsson Sigurlaug Sveinsdóttir Ragnar Imsland Júlía Imsland

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.