Fréttablaðið - 18.10.2018, Síða 2

Fréttablaðið - 18.10.2018, Síða 2
Veður Suðaustan 10-18 og rigning, en þurrt norðaustantil. Með kvöldinu snýst vindur til sunnanáttar og lægir um landið vestanvert. sjá síðu 30 Æfðu viðbrögð við árás á stjórnstöð Gæslunnar Bandarískir landgönguliðar æfðu viðbrögð við árás á stjórnstöð Landhelgisgæsl- unnar í gær en fram undan er stór heræfing NATO á Norður-Atlantshafi og í Noregi. Sérsveitin passaði hermennina meðan á æfingunni stóð. Fréttablaðið/Eyþór NeyteNdur Lítill verðmunur er í flestum tilfellum á nýjum fatnaði í H&M hér á landi og í Noregi sam- kvæmt athugun Fréttablaðsins. Heldur meiri verðmunur er á milli H&M hér og í Bretlandi en þó ekki nærri því sem Þorsteinn Sæmunds- son, þingmaður Miðflokksins, hélt fram á dögunum. Fullyrti hann að verð í H&M hér á landi væri „yfir- leitt um 30 prósentum hærra“ en á hinum Norðurlöndunum og undir þær fullyrðingar tók dósent við Háskóla Íslands. Fréttablaðið athugaði verð á nokkrum nýjum vörum úr haustlínu herra í verslun H&M í Kringlunni og bar saman við uppgefin verð í fjórum öðrum löndum. Þegar verð hér er borið saman við í Noregi má sjá að munurinn er óverulegur, eða í kringum fjögur prósent, á tveimur vörum. Mestur er verðmunurinn á þunnri peysu sem kostar hér 2.495 krónur en sem nemur 2.151 krónu í Noregi. Munurinn er 16 prósent eða 344 krónur. Munurinn á sömu peysu hér og í Bretlandi er 24 prósent eða 485 krónur. Athygli vakti að Chelsea-ökklaskór eru ódýrari hér. Raunar reyndust skórnir ódýrari hér en bæði í Noregi og Danmörku og er verð þeirra nær því sem tíðkast í Bretlandi. Lítill verðmunur reyndist einnig á H&M hér og í Danmörku og Sví- þjóð. Mestur var verðmunurinn á peysunni þunnu milli Íslands og Svíþjóðar eða 26,7 prósent. Fyrir herra yrði dýrast að kaupa sér allar fjórar vörurnar í athugun Fréttablaðsins í Danmörku og myndi það kosta 27.848 krónur, örlítið meira en hér þar sem þær kosta 27.480 krónur. Í Noregi kosta vör- urnar 26.654 krónur, í Svíþjóð 24.401 krónu og ódýrastar yrðu þær í Bret- landi, á 23.677 krónur. Munurinn á verðinu vörunum fjórum á Íslandi Ekkert okur hjá H&M Lítill munur er á vöruverði H&M hér og í nágrannalöndum. Ísland ekki einu sinni dýrast samkvæmt athugun Fréttablaðsins. Verð virðast samkeppnishæf. Ný verslun H&M við Hafnartorg var opnuð í síðustu viku. Fréttablaðið/aNtoN og þar sem það er lægst, í Bretlandi, nemur 3.803 krónum. Gylfi Magnússon, dósent við við- skiptafræðideild Háskóla Íslands, sakaði framkvæmdastjóra H&M á Íslandi um óskammfeilni eftir að hann fullyrti í samtali við Vísi á dögunum að verðið hér væri sam- keppnishæft við nágrannalöndin. Sagði Gylfi H&M „miklu dýrara hér en í Noregi“ og það blasti við. „Er H&M þar þó líklega það dýrasta utan Íslands.“ Athugun Fréttablaðsins, þó hún sé ekki tæmandi, sýnir að Gylfi fer með rangt mál á Facebook-síðu sinni í vikunni þar sem hann sagði að enginn Íslendingur með snefil af sjálfsvirðingu ætti að stíga fæti inn í H&M. mikael@frettabladid.is Herrafrakki Ísland 14.995 kr. Noregur 14.425 kr. Bretland 12.383 kr. Danmörk 14.581 kr. Svíþjóð 13.206 kr. Peysa Ísland 4.495 kr. Noregur 4.317 kr. Bretland 3.868 kr. Danmörk 4.544 kr. Svíþjóð 3.952 kr. Peysa Ísland 2.495 kr. Noregur 2.151 kr. Bretland 2.010 kr. Danmörk 2.354 kr. Svíþjóð 1.969 kr. Chelsea-skór Ísland 5.495 kr. Noregur 5.761 kr. Bretland 5.416 kr. Danmörk 6.369 kr. Svíþjóð 5.274 kr. ✿ Verðkönnun Fréttablaðsins á haustlínu H&M Öll verð í íslenskum krónum m.v. gengi gjaldmiðla 17. október. Á Plússíðu Fréttablaðsins má sjá fleiri myndir frá heræfingunum. Fréttablaðið +Plús er í Fréttablaðs- appinu og PDF-útgáfu á Fréttablaðið.is.+Plús Kynntu þér afsláttarþrep Orkunnar á orkan.is. NÝTT! Nú eru allar 55 stöðvar Orkunnar þínar stöðvar. sAMFÉLAG IKEA-geithafurinn, óformlegur boðberi jólahátíðarinn- ar, er kominn á sinn stað við verslun IKEA í Kauptúni í Garðabæ. Geitin, sem er úr strái, á rætur að rekja til sænskrar hefðar en í bænum Gävle hafa íbúar árum saman reist strágeit í aðdraganda jóla. Einnig er hefð fyrir tortímingu geit- arinnar í Kauptúni. Á síðustu árum hefur hún ýmist fuðrað upp í eldhafi eða liðast í sundur í óveðri. – khn Geitin komin á sinn stað iKEa-geithafurinn komin á lappir í Kauptúni. Fréttablaðið/sigtryggur ari MeNNING Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, segir myndasögur falla undir ákvæði frum- varps hennar sem miðar að því að efla útgáfu bóka á íslensku. Lilja mælti fyrir frumvarpinu fyrr í vikunni. Fréttablaðið hafði greint frá óánægju Gísla Einarssonar, fram- kvæmdastjóra Nexus, sem óttaðist að myndasögurnar og myndrænar skáldsögur væru skildar út undan í frumvarpinu. „Frumvarpið er mikil innspýting í bókageirann og mun hafa jákvæða keðju- ve r ku n f y r i r b ó k a ú t g á f u , r i t h ö f u n d a og mynda- sögur,“ segir Lilja. – khn Lukku-Láki og vinir ekki undanskildir 1 8 . o k t ó b e r 2 0 1 8 F I M M t u d A G u r2 F r É t t I r ∙ F r É t t A b L A ð I ð 1 8 -1 0 -2 0 1 8 0 4 :4 4 F B 0 6 4 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 1 B -2 7 F 4 2 1 1 B -2 6 B 8 2 1 1 B -2 5 7 C 2 1 1 B -2 4 4 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 6 4 s _ 1 7 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.