Fréttablaðið - 18.10.2018, Side 20
Frá degi til dags
Halldór
Útgáfufélag: torg ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
ritStjórar: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is fréttablaðið.iS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is.
Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds. ISSN 1670-3871 fréttablaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5800, ritstjorn@frettabladid.is helgarblað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is
menning: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is ljóSmyndir: Anton Brink anton@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
Sæmilega
skynsamt
fólk nennir
ekki að taka
afstöðu í
óþörfu
kynjastríði.
Tilgangurinn
er að bæta
þjónustuna,
auka öryggið
og fjölga
dagforeldr-
um.
Meirihluti Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna í borgarstjórn leggur mikla áherslu á að bæta aðbúnað ung-
barnafjölskyldna í borginni og vinnur á báðar hendur
að kraftmikilli uppbyggingu nýrra leikskóla með
fjölgun leikskólarýma fyrir börn yngri en 18 mánaða
og hins vegar eflingu dagforeldrakerfisins sem hefur
verið mikilvægur valkostur fyrir marga foreldra á
undanförnum áratugum.
Við settum á fót starfshóp í fyrra til að vinna að
eflingu dagforeldrakerfisins og nú höfum við sam-
þykkt í skóla- og frístundaráði fjölmargar aðgerðir
sem byggja á einstökum tillögum starfshópsins að
hluta eða öllu leyti. Tilgangurinn er að bæta þjón-
ustuna, auka öryggi hennar og fjölga dagforeldrum.
Við leggjum áherslu á jákvæða hvata sem grund-
vallaraðferðafræði og borgin er tilbúin að leggja sitt
af mörkum við að fjölga dagforeldrum með því m.a.
að taka upp stofnstyrk fyrir nýja dagforeldra, auka
námsstyrki og faglegan stuðning við dagforeldra,
bæta eftirlit og ráðgjöf og taka upp ytra mat byggt
á fyrirliggjandi gæðaviðmiðum. Þá hækka niður-
greiðslur um 15% sem er mesta hækkun í einu skrefi
á undanförnum árum. Alls hafa niðurgreiðslur til dag-
foreldra þá hækkað um nærri 38% frá árinu 2015 sem
er talsvert umfram verðbólgu og yfir meðalhækkun
launa.
Ein veigamesta aðgerðin sem nú er lögð til er að
borgin leggi sitt af mörkum til að auka öryggi þjónust-
unnar með því að stíga fyrsta skrefið í að leggja þeim
dagforeldrum til húsnæði sem starfa tveir saman.
Miðað er við að eitt starfandi dagforeldri og eitt nýtt
starfi saman og í fyrsta áfanga verði lögð fram þrjú
hús á þremur stöðum. Það er vilji borgarinnar að dag-
foreldrar starfi í auknum mæli tveir saman og það er
góðu heilli þróun sem er hafin í talsverðum mæli því
tæplega helmingur dagforeldra starfar með öðrum.
Það eykur öryggi og gæði þjónustunnar, dregur úr
áhyggjum foreldra og skýtur frekari stoðum undir
starfsemi dagforeldra sem mikilvægrar þjónustu við
ungbarnafjölskyldur í borginni.
Öflugra dagforeldrakerfi
Skúli Helgason
borgarfulltrúi
Samfylkingar-
innar og for-
maður skóla- og
frístundaráðs
Á dögunum kvartaði karlmaður undan því á lokaðri Facebook-síðu hversu erfitt væri að vinna með konum. Fyrir vikið missti hann vinnuna. Ekki löngu síðar, einnig á lokaðri Facebook-síðu,
deildu femínistar um það hvort karlmenn væru
rusl. Þar lögðu einhverjar konur sem kenna í
háskólum sitt til málanna, galvaskar í þeirri vissu
að þær muni ekki missa vinnuna þótt þær haldi
því fram að oft framkalli það þjáningar að vera
innan um karla og þurfa að starfa með þeim.
Þeir sem hafa annað við tíma sinn að gera en að
blaðra vitleysu á Facebook, vilja til dæmis sinna
vinnu sinni, kunna að furða sig á því af hverju svo-
kallaðar lokaðar Facebook-síður eru ekki meira
lokaðar en svo að umræður þar rati auðveldlega í
fjölmiðla. Facebook virðist útvarpa öllu sem þar er
sagt, sem er vitanlega afar óþægilegt fyrir þá sem
tjá sig, sérstaklega þegar skoðanirnar sem þar er
lýst eru svo öfgakenndar að þær ofbjóða meiri-
hluta fólks. Skrækir um að konur séu ómögulegar
eða að karlar séu rusl og hver og einn þeirra sé
ábyrgur fyrir afbrotum kynbræðra sinna gera enga
lukku meðal almennings. Sæmilega skynsamt fólk
nennir ekki að taka afstöðu í óþörfu kynjastríði,
sem á lokuðum Facebook-síðum hefur greinilega
leiðst út í ótrúlegan subbuskap.
Konum og körlum semur yfirleitt alveg ágætlega
í þessu þjóðfélagi. Þar tíðkast ekki að kynin mæti
andvarpandi til vinnu hvern dag, þjökuð af þeirri
skyldu að þurfa að starfa saman og eiga samskipti.
Þau eru bara ósköp kát með það. Það er ekki eins
og kona sem á samskipti við karlmann, hvort sem
er í vinnu eða annars staðar, virði hann fyrir sér
með hryllingi, sjái hann sem holdgerving hins illa
feðraveldis og umgangist hann því af tortryggni.
Það er heldur ekki eins og karlmaðurinn sjái kon-
una sem auðvelda bráð sem mögulegt sé að svína
á við hvert tækifæri. Í hinu raunverulega lífi ganga
hlutirnir ekki þannig fyrir sig – nema í undantekn-
ingartilvikum. Þar er um að ræða algjörar undan-
tekningar, ekki reglu og því er þreytandi þegar
alhæft er um annað.
Í nútímasamfélagi eiga konur og karlar auð-
velt með að mætast sem jafningjar. Þegar þau
mætast einnig sem vinir þá er það mikið lán fyrir
þau bæði. Það er sérlega gefandi og þroskandi að
eignast trausta vini af hinu kyninu. Einstaklingur
sem býr að því láni getur ekki annað en litið á
kynjastríð sem algjöra tímaeyðslu. Með því er
hann ekki að hafna því að hallað hafi á konur í
gegnum aldirnar og er heldur ekki að neita því að
það gerist enn. Hann er einfaldlega að benda á að
skætingur milli kynjanna skilar engu uppbyggi-
legu. Þetta veit þorri fólks. Enda fer svo að þegar
blásið er til kynjastríðs þá hvarflar ekki að því að
mæta. Það vill sinna uppbyggilegri hlutum, eins og
til dæmis þeim að koma fram við aðra af virðingu
og hlýju, og um leið skiptir engu af hvoru kyninu
þær manneskjur eru.
Kynjastríð
VIÐ SÉRHÆFUM
OKKUR Í
ASÍSKRI
MATARGERÐ.
HOLLUR OG
LJÚFFENGUR
MATUR.
Vietnamese restaurant
Laugavegi 27 og
Suðurlandsbraut 8
sími: 588 6868
pho.is
Sjúkraskýli Samfylkingarinnar
Dagur B. Eggertsson stendur
höllum fæti vegna braggabullsins
og erfiðs sjúkdóms. Eitthvað sem
allir geta sýnt skilning og skilið
frá pólitísku karpi. Þó rann æði
á Helgu Völu Helgadóttur, þing-
konu og flokksystur Dags, vegna
ummæla Eyþórs Arnalds. „Er
ekkert heilagt í pólitísku stríði?“
spurði hún mjög reið á Facebook.
Sagði engan leika sér að því að
veikjast og ef um meira en flensu
er að ræða „ætti fólk með vott af
sómakennd að taka tillit til þess“.
Stríðsaðgerð Eyþórs fólst í því að
óska Degi góðs bata en geta þess
að óþægilegt væri að hann gæti
ekki verið til andsvara í máli þar
sem hann er yfir og allt um kring.
Pólitísk veikindi
Minna fór fyrir skilningi Helgu
Völu á veikindum í hruninu
miðju þegar Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir glímdi við alvarleg
veikindi á meðan þjóðin var í
auga stormsins. Þá var Helga Vala
formaður Samfylkingarfélagsins
í Reykjavík og gekk vasklega
fram á sögulegum fundi flokksins
í Þjóðleikhúsinu og krafðist
stjórnarslita. Þá var enn móðins
að blogga og 29. janúar 2009
skrifaði Helga Vala: „Hún verður
ekki mikið skýrari krafan sem
nú er send Ingibjörgu Sólrúnu
Gísladóttur og Geir H. Haarde.“
Formaður Samfylkingarinnar
þjáðist þá vegna æxlis í heila.
thorarinn@frettabladid.is
1 8 . o k t ó b e r 2 0 1 8 F I M M t U D A G U r20 s k o ð U n ∙ F r É t t A b L A ð I ð
SKOÐUN
1
8
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:4
4
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
1
B
-4
5
9
4
2
1
1
B
-4
4
5
8
2
1
1
B
-4
3
1
C
2
1
1
B
-4
1
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
6
4
s
_
1
7
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K