Fréttablaðið - 18.10.2018, Qupperneq 44
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða
hringja í síma 512 5407.
Ég er enn hraustur og vel lif-andi,“ segir Friðrik Sophus-son hressilega, inntur eftir því hvernig árin sjötíu og fimm hafi farið með hann. Friðrik er, eins og margir
muna, fyrrverandi alþingismaður og
ráðherra bæði iðnaðar og fjármála á
Íslandi. Skyldi hann alltaf hafa ætlað að
verða stjórnmálamaður?
„Nei, það gerðist nú bara,“ segir hann
– eins og afsakandi. „Ég gekk ekki í Sjálf-
stæðisflokkinn fyrr en ég var tuttugu
og tveggja eða þriggja ára gamall. En
í Háskóla Íslands tók ég þátt í félags-
málum og var formaður Vöku, félags
lýðræðissinnaðra stúdenta, í tvö ár. Svo
æxlaðist það þannig að ég tók að mér
meiri störf en ég hafði hugsað mér og
eitt leiddi af öðru. Ég var kjörinn for-
maður Sambands ungra sjálfstæðis-
manna árið 1973 á átakafundi á Egils-
stöðum, þar sem Björn Bjarnason var
líka í kjöri, og vann með örfárra atkvæða
mun. Í framhaldinu mátti um skeið
merkja tvær fylkingar í röðum ungra
sjálfstæðismanna en eftir því sem árin
liðu urðu menn eindregnir samherjar,
þar á meðal áttum við Björn Bjarnason
afar gott samstarf í ríkisstjórn Davíðs
Oddssonar.“
Friðrik sat á Alþingi frá 1978 til árs-
byrjunar 1999 þegar hann tók við sem
forstjóri Landsvirkjunar og sinnti því
starfi í tæp ellefu ár. Helgi steinninn
er ekkert í sjónmáli því Friðrik sinnir
enn ýmsum störfum, til dæmis sem
formaður stjórnar Íslandsbanka. „Mér
finnst afskaplega spennandi að geta
unnið með ungu og vel menntuðu fólki
að því að byggja upp fjármálakerfi fram-
tíðarinnar,“ segir hann og kveðst líka í
seinni tíð hafa lagt tveimur „uppeldis-
félögum“ lið, skátahreyfingunni og Val.
Hann sat til skamms tíma í stjórn sam-
eignarfélagsins Úlfljótsvatns, sem er í
eigu skáta og Skógræktarfélags Íslands
og nú er hann stjórnarformaður sjálfs-
eignarstofnunarinnar Hlíðarenda, sem
er bakhjarl Vals. „Valur keypti jörðina
Hlíðarenda 1939. Fjósið og hlaðan eru
friðuð hús og nýlega voru þau endur-
byggð. Þar inni má sjá myndir og muni
frá sögu félagsins og nú ætla ég að bjóða
nánustu fjölskyldu í mat í Fjósinu."
Friðrik spilar bridds og fer í veiði-
ferðir með gömlum skólafélögum auk
þess að iðka golf sem hann segir að
gangi ekki alltof vel. Svo ferðast þau
hjónin, hann og Sigríður Dúna Krist-
mundsdóttir, víða. „Einu er skemmti-
legt að segja frá, við nokkrir strákar,
sem störfuðum saman í röðum ungra
sjálfstæðismanna og erum núna á átt-
ræðis- og níræðisaldri, höfum hist tvisv-
ar í mánuði í fimmtíu ár,“ segir hann.
„Fundirnir voru fyrst haldnir í hádeginu
á miðvikudögum og þó þeir hafi færst
yfir á föstudaga heitir klúbburinn enn
Miðvikudagsklúbburinn. Sumir verða
forvitnir þegar þeir sjá okkur koma út
úr fundarherbergjum ýmissa veitinga-
húsa borgarinnar og hafa spurt: „Hvað
eruð þið að ræða?“ Einn okkar var
orðinn þreyttur á þessu og svaraði: „Við
hittumst reglulega til að hlusta á Perry
Como!“ Þar með var það útrætt mál.
gun@frettabladid.is
Býður fjölskyldunni í Fjósið
Friðrik Sophusson, fyrrverandi ráðherra, er sjötíu og fimm ára í dag og ætlar að
fagna því með kvöldverði í Valsfjósinu á Hlíðarenda með nánustu fjölskyldu sinni.
„Mér finnst afskaplega spennandi að geta unnið með ungu og vel menntuðu fólki að
því að byggja upp fjármálakerfi framtíðarinnar,“ segir Friðrik. Fréttablaðið/anton brink
Við nokkrir strákar,
sem störfuðum saman í
röðum ungra sjálfstæðismanna
og erum núna á áttræðis- og
níræðisaldri, höfum hist tvisvar
í mánuði í fimmtíu ár.
Ástkær faðir minn, sonur okkar,
bróðir og mágur,
Þorbjörn Haukur Liljarsson
lést þann 15. október sl. Útför fer
fram frá Kópavogskirkju mánudaginn
22. október kl. 15. Blóm og kransar
afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast
hans er bent á Hjálpræðisherinn.
Alexandra Líf Þorbjarnardóttir
Guðrún Hauksdóttir Schmidt Liljar Sveinn Heiðarsson
Dagrún Fanný Liljarsdóttir Fannar Freyr Bjarnarsson
Lilja Guðrún Liljarsdóttir Styrmir Már Sigmundsson
og fjölskyldur hins látna.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Kristín Bjarnadóttir
Suðurgötu 16, Reykjavík,
lést á heimili sínu 9. október.
Minningarathöfn fer fram frá
Dómkirkjunni 24. október kl. 15.
Ragnhildur Thorlacius
Steinunn Thorlacius Guðjón Ingi Eggertsson
Gunnlaug Thorlacius Sigurjón Halldórsson
Eggert Thorlacius Stefanía Guðmundsdóttir
Halla Thorlacius Sveinbjörn Þórkelsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir, tengdafaðir
og besti afi í heimi,
Ulrich Falkner
gullsmíðameistari,
Fornastekk 2,
lést á gjörgæslu Borgarspítalans
laugardaginn 13. október. Útförin fer fram
frá Fossvogskapellu 22. október í faðmi fjölskyldu og vina.
Símon Falkner
Örn Falkner Guðrún Bjarnadóttir
Friðrik Falkner
Arna Falkner
Ástkær eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
Hulda Björk
Guðmundsdóttir
hjúkrunarheimilinu Skjóli,
áður til heimilis að Hraunbæ 102g,
lést sunnudaginn 14. október á hjúkrunarheimilinu Skjóli.
Útförin verður frá Árbæjarkirkju þriðjudaginn 23. október
kl. 13.00.
Sigurður Óskar Jónasson
Guðmundur Arnar Sigurðsson Hrafnhildur Harðardóttir
Anna Sigríður Sigurðardóttir
Jóhann Gunnar Sigurðsson Elsa Ósk Alfreðsdóttir
Jónas Viðar Sigurðsson María H. Ólafsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Steinunn Eysteinsdóttir
andaðist á heimili sínu í Brákarhlíð,
Borgarnesi, sunnudaginn 14. október.
Hanna Kristín Steinunnar- og Þorgrímsdóttir
Erna Þorgrímsdóttir
Hrönn Þorgrímsdóttir
Unnur Þorgrímsdóttir
Elsa Þorgrímsdóttir
tengdasynir, ömmu- og langömmubörn.
Ástkær dóttir mín, systir,
mágkona og frænka,
Dögg Tryggvadóttir
hjúkrunarfræðingur,
lést á líknardeild Landspítalans
miðvikudaginn 10. október. Útför
hennar fer fram frá Garðakirkju
mánudaginn 22. október klukkan 13.00.
Birna Jónsdóttir
Sólborg Tryggvadóttir Kristinn Rafnsson
Jón Tryggvason
og ástvinir.
Ástkær móðir okkar,
Þóra Þórarinsdóttir
fv. kaupmaður, Laugavegi 76,
síðast til heimilis í Bogahlíð 2,
lést föstudaginn 12. október. Útförin
fer fram í Fríkirkjunni, Reykjavík,
þriðjudaginn 23. október kl. 13.00.
Dæturnar
Móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Ingveldur Sigurðardóttir
(Stella)
til heimilis á Dvalarheimili
Stykkishólms,
verður jarðsungin frá Stykkishólmskirkju
laugardaginn 20. október kl. 14. Blóm og kransar eru
vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vildu minnast
hennar er bent á minningarsjóð Dvalarheimilis aldraðra
í Stykkishólmi, kt. 620269-7009, reikn. 0309-13-209020.
Aðstandendur.
1906 Sjö hús brenna og um áttatíu manns missa heimili sín
í stórbruna á Akureyri.
1913 Rafveita er vígð á Seyðisfirði, ein sú fyrsta á Íslandi
sem nær til heils bæjarfélags og að sjálfsögðu er haldin
ljósahátíð þegar fyrstu rafljósin kvikna.
1922 BBC (British Broadcasting Corporation) er stofnað.
1968 Umdæmi kaþólsku kirkjunnar á Íslandi er gert að sér-
stöku biskupsdæmi.
1980 Sjötta lota Kröfluelda hefst og stendur í fimm daga.
Þetta er þriðja lotan á sama árinu.
1989 NASA skýtur Galileo-geimfarinu á loft.
2006 Microsoft gefur út Windows Internet Explorer 7.
Merkisatburðir
1 8 . o k t ó b e r 2 0 1 8 F I M M t U D A G U r28 t í M A M ó t ∙ F r É t t A b L A ð I ð
tímamót
1
8
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:4
4
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
1
B
-5
4
6
4
2
1
1
B
-5
3
2
8
2
1
1
B
-5
1
E
C
2
1
1
B
-5
0
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
6
4
s
_
1
7
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K